Morgunblaðið - 06.01.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 06.01.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Lariat Sport Litur: Magnetic/ Svartur að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque Lariat með Sport pakka, Ultimate pakka , up- phituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver alert og distronic, Bang Olufssen hljómkerfi, 360 myndavél. VERÐ 10.129.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphi- tanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Sport Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Sport-pakki,Bakkmyn- davél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.770.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Litur: Platinumhvítur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.770.000 m.vsk PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Íranar tilkynntu í gærkvöldi að þeir mundu hér eftir ekki virða takmark- anir, sem settar voru í samkomulagi um kjarnorkuáætlun Írans árið 2015, um fjölda þeirra skilvinda sem notaðar eru við auðgun úrans. Eru þetta viðbrögð við því,- að herforinginn Qasem Soleimani var drepinn í drónaárás Bandaríkja- manna í Írak sl. föstudag. Kjarnorkusamkomulagið var gert milli Írans annars vegar, og Banda- ríkjanna, Frakklands, Þýskalands, Bretlands, Rússlands, Kína og Evr- ópusambandsins hins vegar. Það fól í sér að írönsk yfirvöld drógu veru- lega úr auðgun úrans, sem hægt er að nota til að smíða kjarnorkuvopn og á móti afnámu hin ríkin ýmsar efnahagsþvinganir sem höfðu verið í gildi. Samkomulagið hefur hangið á bláþræði frá því Bandaríkin sögðu sig frá því árið 2018. Lík Soleimanis var flutt til Írans í gær. Fóru þúsundir manna út á göt- ur Mashhad, næststærstu borg landsins til að fylgjast með líkfylgd- inni. Fólkið klæddist svörtu og kast- aði slæðum upp á þak flutningabíls- ins sem flutti kistu herforingjans. „Íran er svartklætt, hefnd, hefnd,“ hrópaði fólkið. Er almenn- ingur hvattur til að sækja minning- arathöfn í háskóla Teheran í dag. Útför Soleimanis fer fram á morg- un. Mikil reiði ríkir í Írak yfir að Bandaríkjamenn skuli hafa gert loftárás á Soleimani þar í landi. Samþykkt var ályktun á þingi landsins þar sem hvatt er til þess að erlendum hermönnum verði bannað að dvelja á írösku landsvæði en um 5.200 bandarískir hermenn, aðallega ráðgjafar, eru í Írak. Einnig kvört- uðu stjórnvöld landsins formlega yf- ir árásinni til öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna. Adel Abdel Mahdi, sem gegnir embætti forsætisráð- herra Íraks, sagði að um hefði verið að ræða pólitískt morð. Íranar ætla að auka auðgun úrans  Íraska þingið krefst þess að er- lendu herliði verði vísað úr landinu AFP Fjölmenn líkfylgd Þúsundir Írana flykktust út á götur borgarinnar Mashhad þegar líki Qasems Soleimanis var ekið þar um í gær og kröfðust hefnda. Réttarhöld hefjast í dag í hæstarétti New York-ríkis í Bandaríkjunum yf- ir kvikmyndaframleiðandanum Har- vey Weinstein en hann er ákærður fyrir að hafa nauðgað tveimur kon- um í ríkinu. Búist er við að réttarhöldin standi yfir í einn og hálfan mánuð. Verði Weinstein, sem er 67 ára, fundinn sekur á hann yfir höfði sér ævilangt fangelsi. Yfir níutíu konur, þar á meðal heimsfrægar kvikmyndastjörnur, hafa sakað Weinstein um kynferð- isbrot gegn þeim. Saksóknarar í New York byggja ákæruna þó að- eins á framburði tveggja kvenna. Önnur, Mimi Haleyi, sem starfaði fyrir Weinstein, segir að kvikmynda- framleiðandinn hafi neytt sig til að hafa við hann munnmök í íbúð sinni í New York árið 2006. Hin konan hef- ur ekki verið nafngreind en hún ber að Weinstein hafi nauðgað sér í hót- elherbergi í New York árið 2013. Tvær aðrar konur munu bera vitni um að Weinstein hafi brotið gegn þeim á tíunda áratug síðustu aldar. Ekki er þó ákært fyrir þau brot því of langur tími er liðinn. Ásakanirnar gegn Weinstein komu fyrst fram opinberlega í októ- ber 2017 í blöðunum New York Tim- es og New Yorker. Weinstein hefur neitað öllum ásökunum. Réttað yfir Weinstein  Gæti átt yfir höfði sér ævilangt fangelsi AFP Sakborningur Harwey Weinstein kemur út úr dómhúsi í New York í desem- ber sl. Hann styðst við göngugrind en hann lenti í bílslysi á síðasta ári. Danski sjóherinn og björgunar- sveitir hafa síðan á laugardag reynt að koma í veg fyrir að olía, sem lak í sjóinn í Aabenraafirði á suðaustur- hluta Jótlands, breiðist út og valdi skaða á fugla- og sjávarlífi. Óhappið varð þegar verið var að dæla olíu í land úr olíuskipi. Hvasst var á svæðinu og landfestar skipsins slitnuðu með þeim afleiðingum að 30 kúbikmetrar af dísilolíu runnu í sjó- inn. Notaðar voru þyrlur og skip og ýmiskonar búnaður til að reyna að veiða olíuna úr sjónum áður en hún bærist að landi. Vegna hvassviðris dreifðist olían hraðar en upphaflegar vonir stóðu til, að því er kemur fram á vef danska ríkisútvarpsins, DR. Olíuleki í dönskum firði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.