Morgunblaðið - 06.01.2020, Síða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020
Kjarakaup Þó að verslanir og fyrirtæki bjóði afslætti meira og minna allt árið eru janúarútsölurnar árlegt fyrirbæri. Sumir láta þær framhjá sér fara eins og lauf í vindi.
Árni Sæberg
Nýtt ár mætir okk-
ur með sínum tæki-
færum og áskorunum.
Eftir langt hagvaxt-
arskeið gefur nú á
bátinn, atvinnuleysi
hefur aukist og fyrir-
tæki leita allra leiða
til að hagræða í
rekstri. Samkeppn-
ishæfni landsins þarf
að efla og er nýsköp-
un þar í burðar-
hlutverki. Fyrir lítið hagkerfi eins
og Ísland er gríðarlega mikilvægt
að byggja enn fleiri stoðir undir
íslenskt atvinnulíf. Við viljum að
Ísland sé þekkingarsamfélagið þar
sem er ýtt og stutt við nýsköpun
og frumkvöðlahugsun. Við viljum
styðja við og hlúa að ein-
staklingum með hugmyndir og
gefa þeim tækifæri til vaxtar.
Samtök iðnaðarins vilja leggja
sitt af mörkum til að efla hér at-
vinnulíf og velsæld. Liður í því er
að helga árið 2020 nýsköpun í sín-
um víðasta skilningi. Nýsköpun og
þróun á sér stað jafnt í nýjum sem
grónum fyrirtækjum og með því
að styðja við það eflum við sam-
keppnishæfni landsins til fram-
tíðar.
Tækifæri til nýsköpunar liggja
á öllum sviðum atvinnulífsins. Ný-
sköpun leiðir til nýrra
starfa og aukinna
verðmæta. Enn-
fremur stuðlar ný-
sköpun að lausnum á
samfélagslega mik-
ilvægum áskorunum.
Nú um stundir er um
fátt meira rætt en
áhrif loftslagsbreyt-
inga og breytinga á
vistkerfi okkar. Ís-
lensk fyrirtæki hafa
sannarlega margt
fram að færa í þeim
efnum með þekkingu
á grænni orku og öðrum grænum
lausnum. Ég er sannfærð um að
íslensk fyrirtæki eiga frekari
möguleika til að takast á við hlýn-
un jarðar og stuðla að sjálfbærri
þróun. Lausnirnar munu koma frá
atvinnulífinu og þar mun nýsköp-
un og þróun gegna lykilhlutverki.
Stofnun Grænvangs, samstarfs-
vettvangs stjórnvalda og atvinnu-
lífs um grænar lausnir, sýnir
skýrt áhuga atvinnulífsins á þess-
um málum sem og metnað og vilja
til að gera enn betur og meira.
Ísland 2020 – sókn fyrir at-
vinnulíf og samfélag – með þekk-
ingu, sjálfbærni og velferð að leið-
arljósi. Þetta er titill skýrslu sem
forsætisráðuneytið lét vinna og
gefin var út árið 2010. Nú í upp-
hafi árs 2020 er tilvalið að rýna
aðeins í þá stefnumótun sem þar
var sett fram og velta árangrinum
fyrir sér. Skýrslan var unnin í kjöl-
far efnahagslegra hamfara hér á
landi og ljóst að mikill vilji var til
þess að endurreisa Ísland með
metnaðarfullum hætti. Meðal
markmiða var meðal annars að:
Lækka hlutfall íbúa með 75%
örorkumat á aldrinum 18-66 ára
úr 7,3% í 5,7% árið 2020.
Því miður höfum séð gríðarlega
fjölgun öryrkja á síðustu 10 ár-
um og er það fámennri þjóð
mikið áhyggjuefni.
Lækka hlutfall atvinnulausra úr
7% árið 2010 í 3% af heildar-
vinnuafli árið 2020.
Þessu markmiði náðum við en
þó höfum við séð fjölgun at-
vinnulausra á árinu 2019 sem
tengja má dýfu í efnahagslífinu.
Bæta stöðu jafnréttismála þann-
ig að gildi jafnréttisvísitölunnar
global gender gap index verði
nálægt 0,9 árið 2020.
Hér erum við nálægt markmið-
inu en árið 2018 vorum við með
einkunnina 0,858.
4% af landsframleiðslu sé varið
til rannsókna, þróunar og ný-
sköpunar.
Hér erum við í rúmum 2% og
betur má ef duga skal.
Árið 2020 verði færni íslenskra
grunnskólanemenda sambærileg
við 10 efstu þjóðir samkvæmt
OECD PISA-rannsókninni á
lesskilningi og læsi á stærðfræði
og raungreinar.
Okkur hefur hrakað samkvæmt
nýjustu PISA-rannsókninni og
sérstaklega er lestrarkunnáttu
ábótavant sem er áhyggjuefni.
En lítum þá til efnahags- og þró-
unarmarkmiðanna:
Að opinberar skuldir verði ekki
hærri en 60% af landsfram-
leiðslu árið 2020.
Nú eru heildarskuldir ríkissjóðs
rúmlega 23% og eru með því
lægsta innan OECD-ríkjanna.
Að verðbólga árið 2020 verði
ekki yfir verðbólgumarkmiði
Seðlabanka Íslands, þ.e. nú ekki
hærri en 2,5%.
Við höfum verið við verðbólgu-
markmiðin frá árinu 2014 og
fram á árið 2019 er verðbólga
tók að hækka en það er viðbúið
að verðbólgan færist nær mark-
miðinu á nýjan leik.
Vextir (langtímavextir) verði ár-
ið 2020 ekki hærri en tvö pró-
sentustig umfram vexti í þeim
þremur ríkjum ESB þar sem
vextir eru lægstir.
Vextir hafa verið að lækka hér á
landi undanfarið og eru nú í
sögulegu lágmarki. Það er fátt
sem bendir til annars en að
vextir muni halda áfram að
lækka enda er það eitt af mark-
miðum lífskjarasamninganna.
Eins og sjá má á þessari upp-
talningu, sem þó er ekki tæmandi,
þá höfum við á undanförnum ára-
tug náð markverðum og eftirtekt-
arverðum árangri í samfélagi okk-
ar. Endurreisn efnahagskerfis
okkar hefur gengið vonum framar
og ekkert sem bendir til annars
en að við séum á góðri leið. Leið
til framfara og frekari uppbygg-
ingar.
Ég lít björtum augum til ársins
2020. Sannfærð um að við eigum
eftir að feta okkur áfram veginn
til farsældar fyrir íslenska þjóð
rétt eins og við höfum gert síðasta
áratuginn. Það gerist hins vegar
ekki af sjálfu sér og efla þarf sam-
keppnishæfni landsins með mark-
vissum hætti eigi Ísland ekki að
verða eftirbátur annarra ríkja.
Lykilspurningin er sú hvað drífi
vöxt framtíðar. Nýsköpun leikur
þar stórt hlutverk.
Tækifæri okkar liggja á öllum
sviðum atvinnulífsins og það er
okkar að grípa þau!
Ég óska ykkur öllum farsældar
á árinu 2020.
Eftir Guðrúnu
Hafsteinsdóttur » Samkeppnishæfni
landsins þarf að efla
og er nýsköpun þar í
burðarhlutverki.
Guðrún
Hafsteinsdóttir
Höfundur er formaður
Samtakaiðnaðarins.
Ár nýsköpunar 2020