Morgunblaðið - 06.01.2020, Blaðsíða 17
systurnar dáleiddar. Þú ert kom-
inn og við erum fullkomnuð, sjö
saman, fjölskyldan.
Þú ert bara smápatti, stór mó-
leit augu og mjúkar kinnar. Þú
sýnir mér nýjustu bygginguna
þína, ert mikill grúskari. Flókið
mannvirki úr alls kyns hlutum sem
allir eru með virkni … ef þú ýtir á
þennan takka, þá dettur kraninn
og sækir þetta og það fer þangað.
Sjáðu, sjáðu.
Þú ert krakki, kannski sjö eða
átta ára. Kakómalt og rigning úti.
Skólinn er búinn, við förum upp í
ris og höfum okkar kósí. Skipt-
umst á að spila Super Mario þang-
að til mamma kallar á okkur í mat.
Þú nálgast gelgjuárin. Selfoss,
þú að kenna okkur stóru systrun-
um á irkið, eigum við að teikna
saman? Sjáðu eðluna mína. Ég
skal veðja við ykkur upp á 500-kall
að ég get borðað þennan bolla af
tómatsósu. Getum við horft á
körfuboltann í nótt?
Þú ert unglingur, víð föt, rapp,
taktar, takkar og tölvur. Við stóru
systurnar að reyna að vera ekki
square, flestar orðnar mömmur.
Þú móðurbróðir. Guðfaðir.
Þú ert ungur maður, afkvæmi
guðanna. Þú ert með fullkomnun-
aráráttu. Allir taktar þurfa að eiga
sinn nákvæma stað í hellinum –
drekinn er fæddur. Drekinn sem
skilur eftir sig svo stóra arfleifð.
Drekinn sem fór víðar en við gerð-
um okkur grein fyrir.
Þú ert fullorðinn, umvafinn
systrabörnum sem dýrka þig. Þú
sérð þegar einhverju þeirra líður
illa. Þú huggar, sýnir þolinmæði,
skilning og kærleik. Þú ert stoltur
af þeim, þau eru líka arfleifð þín.
Þú ert farinn, fallegi litli bróðir
minn, eftir aðeins 35 ár. Sorgin
nístir eins og kaldur rýtingur. Þú
ert farinn en við erum sameinuð í
sorginni, sjö saman að eilífu, fjöl-
skyldan.
Ég elska þig alltaf.
Þín systir,
Selma.
Fleiri minningargreinar
um Pál Þorsteinsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020
✝ AngantýrEinarsson
fæddist á Her-
mundarfelli í Þistil-
firði 28. apríl 1938.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Hlíð
á Akureyri 24.
desember 2019.
Foreldrar hans
voru Guðrún Krist-
jánsdóttir frá Holti í
Þistilfirði, f. 16.8.
1917, d. 5.7. 2017, og Einar
Kristjánsson frá Hermundar-
felli, f. 26.10. 1911, d. 6.7. 1996.
Systkini Angantýs eru Óttar, f.
3.10. 1940, d. 7.2. 2013, Berg-
þóra, f. 21.3. 1944, Hildigunnur,
f. 17.6. 1947, d. 27.5. 1987, og
Einar Kristján, f. 12.11. 1956, d.
8.5. 2002.
Eftirlifandi eiginkona Angan-
týs er Auður Ásgrímsdóttir, f.
15. janúar 1946. Foreldrar
hennar voru Ásgrímur Hólm
Kristjánsson frá Skoruvík á
Langanesi, f. 25.3. 1913, d. 6.7.
1987, og Helga Margrét Har-
aldsdóttir, f. á Skálum 26.6.
1926, d. 28.6. 2002. Angantýr og
Auður eignuðust fjögur börn. 1)
Halla, f. 8.11. 1964. Börn hennar
eru Einar Höllu Guðmundsson,
Þórhalla Ásgeirsdóttir og
Angantýr Ómar Ásgeirsson. 2)
afleysingum þar í nokkur ár eft-
ir það. Á löngum starfsferli
kenndi hann raungreinar, ís-
lensku, erlend mál, samfélags-
greinar, íþróttir og tónmennt.
Hann var ritari fjárveitinga-
nefndar Alþingis 1958-59, erind-
reki hjá Alþýðusambandi
Norðurlands 1967-68 og tölvu-
forritari hjá ACO 1978-79. Auk
þess stundaði hann margvísleg
störf á sumrin, m.a. handfæra-
veiðar, grenjavinnslu og verk-
stjórn erlendra sjálfboðaliða.
Angantýr sat í hreppsnefnd
Raufarhafnarhrepps 1970-78 og
1990-94 og var þá oddviti og for-
maður stjórnar Fiskiðju Raufar-
hafnar, sat í sýslunefnd 1966-70,
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Sósíalistaflokkinn og
Alþýðubandalagið og sinnti fjöl-
mörgum öðrum félagsstörfum.
Angantýr lék á píanó, gítar og
harmonikku og hafði mikinn
áhuga á útivist og veiðiskap,
skák, bridge, ættfræði, íslensku
máli og bókmenntum. Hann
lærði líka spænsku og esperantó
á fullorðinsárum. Þá er ónefnd-
ur skógurinn sem hann ræktaði
á fæðingarstað sínum, Her-
mundarfelli.
Útför Angantýs verður gerð
frá Akureyrarkirkju í dag, 6.
janúar 2020, kl. 10.30.
Hlynur, f. 7.6. 1967, í
sambúð með Ölmu-
Dís Kristinsdóttur.
Börn hans eru Auður
Tinna, Íris Ösp, Elm-
ar Blær og Margrét
Bylgja. AlmaDís á
tvö börn, Sindra Þór
og Diljá Nönnu. 3)
Ásgrímur, f. 3.8.
1972, unnusta Harpa
Heimisdóttir. Dætur
hans eru Auður og
Björk. 4) Einar, f. 21.9. 1974, d.
29.5. 1979. Barnabarnabörn
Angantýs og Auðar eru níu
talsins.
Angantýr ólst upp á Her-
mundarfelli til átta ára aldurs
en flutti þá til Akureyrar. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1958, var
við nám í íslenskum fræðum við
Háskóla Íslands 1958-61, tók
kennarapróf frá Kennaraskóla
Íslands 1962 og stundaði stærð-
fræðinám við sama skóla 1971-
72. Angantýr var kennari á
Þórshöfn 1960-61, 1962-63 og
1964-67, skólastjóri í Skúlagarði
í Kelduneshreppi 1963-64, og
við Grunnskólann á Raufarhöfn
1968-78, kennari þar 1979-94,
skólastjóri við Litlu-Laugaskóla
1994-99, kennari við Grunnskól-
ann á Þórshöfn 1999-2001 og í
Þegar Angantýr föðurbróðir
okkar er fallinn frá er stórt skarð
höggvið í ættbogann okkar. Aggi
og pabbi voru afar nánir bræður,
þóttu svo líkir í útliti að margir
héldu að þeir væru tvíburar.
Bræðurnir áttu fleira sameigin-
legt, voru báðir vel greindir og
fróðir um land og sögu, bók-
hneigðir mjög og góðir í tungu-
málum, léku á hljóðfæri og höfðu
létta lund. Þeir höfðu ríka réttlæt-
iskennd og sósíalíska hugsun,
störfuðu með Allaböllum og her-
stöðvaandstæðingum og létu sig
landsmálin varða. En pabbi var
værukærari, það var svo mikill
kraftur í Agga sem var íþrótta-
maður í eðli sínu og lét ekkert
hindra sig. Hann gekk á fjöll, fór á
skíðum milli landshluta, lá á
grenjum og vann ötult starf við að
hreinsa fjörur landsins.
Barnaskólafjölskyldan eins og
hún var kölluð á Akureyri, afi,
amma og börnin fimm, var afar
samrýnd og kærleiksrík. Nýlega
söfnuðumst við frændsystkinin
saman hjá Bekku föðursystur þar
sem m.a. var lesið upp úr bréfi
sem sent var til Agga úr Barna-
skólanum forðum og skein kær-
leikurinn og húmorinn af þeim.
Systkinin voru öll svo hnyttin og
skemmtileg og full af ást og um-
hyggju.
Það er sárt að kveðja góðan
frænda en hann hafði þjáðst nóg
undanfarið og í blómabrekkunni
hinum megin bíða margir sem
voru honum svo kærir; amma
okkar og afi, Óttar faðir okkar,
Einar Kristján, Hildigunnur og
Einar litli Angantýsson sem lést
aðeins fimm ára gamall; öll hafa
þau tekið vel á móti honum ef eitt-
hvað er að marka framhaldslífið.
Megi allar góðar vættir vaka
yfir Auði, Höllu, Hlyni, Ásgrími
og fjölskyldum þeirra. Með vísu
sem Óttar Einarsson orti ungur
að árum og er nú áletrun á leg-
steini hans kveðjum við systur
kæran frænda með þökk fyrir allt
og allt.
Vor í lofti, vindblær hlýr um vanga
strýkur
burt er kuldi vetrar víkur
verð ég aftur sæll og ríkur.
Ég geng hér einn og glöð mig faðmar
græna jörðin.
Ljúffengt anga lambaspörðin,
langar mig heim í Þistilfjörðinn.
Steinunn Inga,
Guðrún Arnbjörg og
Þuríður Óttarsdætur.
Frændi minn og félagi til ára-
tuga, Angantýr Einarsson, lést nú
á aðfangadag jóla eftir erfið veik-
indi. Angantýr, eða Aggi eins og
hann var jafnan kallaður, var eft-
irminnilega fjölhæfur hugsjóna-
maður, eldhugi og með al-
skemmtilegustu mönnum með að
vera þegar sá gállinn var á honum.
Fyrstu kynni okkar svo ég
muni voru í fjárhúsinu hjá Óla
frænda okkar Halldórssyni á
Gunnarsstöðum. Ég var þar
strákpjakkurinn eitthvað að snú-
ast með Óla í fjárhúsinu þegar þá
bar að garði, ásamt einhverjum
fleirum, Angantý og Óttar Einars-
syni. Þeir voru þá báðir að kenna á
Þórshöfn ef ég veit rétt og tóku
hús, reyndar fjárhús, á frænda
sínum Óla. Og enn man ég fjörið,
hlátrasköllin og hávaðann sem
ómaði um fjárhúsið og vart þarf að
taka fram að mjög teygðist á
kvöldgjöfinni.
Seinna lá leið okkar saman
gegnum pólitíkina. Þá var Angan-
týr betri en enginn og taldi ekki
eftir sér að uppfræða ungan
frænda sinn sem var að stíga sín
fyrstu spor á þeim vettvangi í
kosningum 1978 og 1979. Eftir-
minnilegt var að heimsækja fé-
lagana á Raufarhöfn, sem þá var
einn rauðasti bær á landinu. Aggi
og Auður, Gvendur Lúlla og
Líney, Steini Hall og þannig
mætti áfram telja. Raufarhöfn var
á þessum árum ekki aðeins mjög
rauðlitaður bær heldur einnig
ótrúlega kraftmikið samfélag þar
sem öflugt félags- og menningarlíf
blómstraði og þar munaði um
frænda með sína miklu atorku og
hæfileika.
Angantýr var skóla- og félags-
málamaður fram í fingurgóma og
lagði svo sannarlega sitt af mörk-
um sem sveitarstjórnarmaður og
oddviti á Raufarhöfn, skólastjóri
og kennari þar og víðar í Þing-
eyjarsýslum. Í verkalýðs- og
stjórnmálabaráttu var hann eld-
hugi og taldi ekki eftir sér fundi og
ferðalög í því sambandi. Er mér
sérstaklega minnisstætt hve for-
veri minn í þingmennsku í
Norðurlandskjördæmi eystra,
Stefán Jónsson, talaði af mikilli
virðingu og með hlýhug um Agga.
Í eftirminnilegri sumarferð Al-
þýðubandalagsins til Grímseyjar
tókst þannig til að stærstur hluti
hópsins varð veðurtepptur sökum
þoku og tognaði þannig úr ferð-
inni um rúman sólarhring. Ekki
væsti um okkur í félagsheimilinu
Múla og þegar búið var að útvega
harmonikku spilaði Aggi fyrir
söng og dansi klukkutímum
saman.
En öllu er afmarkaður tími og
nú er veiði- og útivistarmaðurinn
Angantýr Einarsson, sem lét sig
ekki muna um að ganga þvera
Melrakkasléttu á gönguskíðum og
mæta á fund um kvöldið, lagður
upp í sína hinstu ferð. Ég votta
Auði, börnum þeirra og fjölskyldu
allri samúð mína og fjölskyldu
minnar og kveð mætan mann með
virðingu og þakklæti efst í huga.
Steingrímur J. Sigfússon.
Angantýr Einarsson
tekin frá okkur. Lífið er ekki alltaf
sanngjarnt og þetta er staðfesting
á því.
Við eigum ótalmargar minning-
ar með þér og færist bros á vör við
að hugsa til baka. Mikil gleði geisl-
aði alltaf af þér og var alltaf stutt í
grínið og fíflalætin. Þær minning-
ar sem okkur næst standa eru
meðal annars þegar þú komst yfir
í kaffi til mömmu og vorum við
ekki lengi að byrja öll fíflalætin,
allt frá Ladda-eftirhermum yfir í
að syngja lög með tilheyrandi
hljóðum sem við bjuggum til á
staðnum. Erfitt er að kyngja því
að fá ekki að hitta þig aftur, hlæja
með þér, fíflast og dansa, sjá þig
alltaf mæta fyrst af öllum í þau
boð sem haldin voru heima.
Það voru forréttindi að eiga þig
að, hjartahlýja og einstaka
frænku sem vildi allt fyrir okkur
gera. Margt var það sem þú
kenndir okkur sem við tökum
áfram með okkur inn í lífið, þá
einna helst gleðin sem þú færðir
öðrum og góð nærvera. Þú varst
stór hluti af lífi okkar og átt stóran
stað í hjörtum okkar. Sárt verður
að sætta sig við þennan missi.
Takk fyrir samveruna, elsku
Linda.
Minningar þínar munu lifa í
hug okkar og hjörtum.
Allar stundir okkar hér
er okkur ljúft að muna.
Fyllstu þakkir flytjum þér,
takk fyrir samveruna.
(HSM)
Hvíldu í friði.
Þínar frænkur og frændi,
Brynja Rós, Þórdís og Gísli.
Fleiri minningargreinar
um Jórunni Lindu Jónsdóttur
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
Okkar ástkæri,
MAGNÚS GRÉTAR FILIPPUSSON,
Hjúkrunarheimilinu Fossahlíð,
Seyðisfirði,
lést á heimili sínu á gamlársdag.
Útför hans fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju
laugardaginn 11. janúar klukkan 14.
Sigurður Filippusson Soffía Ívarsdóttir
Andrés Filippusson
Sunneva Filippusdóttir Torfi Matthíasson
Ragnhildur Filippusdóttir Kristján Helgason
Steinunn Stefánsdóttir Freysteinn Þórarinsson
Árni Jón Sigurðsson Pálína Haraldsdóttir
Gissur Sigurðsson Guðrún Árnadóttir
Elsku eiginmaðurinn minn og allra besti
vinur, faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi
og langafi,
ÞORSTEINN SIGURGEIR
THEODÓRSSON,
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
31. desember. Útförin fer fram frá
Lágafellskirkju, Mosfellsbæ, 9. janúar klukkan 13.
Elsa Helga Sveinsdóttir
Ágústa Jóna Þorsteinsdóttir
Birna Þorsteinsdóttir
Theodóra Þorsteinsdóttir Olgeir Helgi Ragnarsson
Þorsteinn Þór Þorsteinsson Guðrún Rúnarsdóttir
Sveinn Þór Gíslason
Ómar Sævar Gíslason Rakel Løkken
Elísabet S. Gísladóttir Jónas Már Hreggviðsson
afa- og langafabörn
Ástkær sambýlismaður minn, stjúpfaðir, afi,
langafi og frændi,
JÓN GUÐBJÖRN JÚLÍUSSON
frá Arnarstapa,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Hrafnistu,
Nesvöllum í Reykjanesbæ, fimmtudaginn 2.
janúar. Útför hans fer fram miðvikudaginn
8. janúar klukkan 14 í Ólafsvíkurkirkju.
Okkar innilegustu þakkir til starfsfólksins á Nesvöllum fyrir góða
umönnun og hlýju.
Sumarrós Fjóla Hansdóttir
og ástvinir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
GUÐFINNA HELGADÓTTIR,
lést hinn 26. desember á hjúkrunarheimilinu
Skjóli.
Útförin fer fram frá Fosvogskirkju hinn 10.
janúar kl. 11.
Edda Sigurgeirsdóttir Þórður Kristinsson
Helgi Sigurgeirsson Gerður Garðarsdóttir
Svanberg Sigurgeirsson Rannveig Ása Reynisdóttir
Gunnar Guðjónsson
og barnabörn
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hinnar látnu er bent á Blindrafélagið.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐMUNDA ÞURÍÐUR WÍUM
HANSDÓTTIR,
Ólafsbraut 54,
355 Ólafsvík,
lést 2. janúar á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands.
Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju
föstudaginn 10. janúar klukkan 14.
Sigurður Höskuldsson
Guðlaug Sigurðardóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Eygló Sigurðardóttir Jóhannes Axelsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVANHILDUR ÁRNÝ
SIGURJÓNSDÓTTIR
framreiðslumaður,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli
sunnudaginn 30. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. janúar
klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Minningarkort Skjóls.
Halldór Sigurðsson
Páll Sigurðsson Kristjana Jakobsdóttir
Edda Antonsdóttir Gunnar Knudsen
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Þar
sem pláss er takmarkað getur birt-
ing dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningargreinar