Morgunblaðið - 06.01.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 06.01.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020 Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Pier leðursófi Fáanlegur 3 lengdum Verð frá 259.000 kr. 50 ára Unnur býr á Egilsstöðum og er fædd þar og uppalin. Hún er með BS-gráðu í rekstrarfræði frá Há- skólanum á Akureyri og er eigandi bókhalds- þjónustunnar Ráðgjöf og lausnir. Maki: Jóhann Halldór Harðarson, f. 1972. Synir: Tvíburarnir Dagur Ingi og Hörður Þór Jóhannssynir, f. 2012. Foreldrar: Dagur Kristmundsson, f. 1940, fyrrverandi vörubílstjóri, og Þur- íður Kolbrún Ingólfsdóttir, f. 1947, bókari. Þau eru búsett á Egilsstöðum. Unnur Inga Dagsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Mundu bara að það er aldrei of seint að vinna nýja sigra. Hnýttu saman lausa þræði og haltu svo áfram för þinni. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér leggst eitt og annað til í pen- ingamálum. Gefðu þér tíma til að vera með skemmtilegu fólki. Það er eitthvað mikið í uppsiglingu í ástarsambandi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ekki láta vandamál í fjölskyld- unni buga þig. Mundu bara að aðstoð er eitt og að taka alla stjórn er annað og það átt þú að varast. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú kannt að þurfa að bregða þér af bæ með litlum fyrirvara. Þú ert eitt- hvað utan við þig þessa vikuna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert það sem þú borðar og því ættir þú að draga úr neyslu á fæðu sem er ekki holl fyrir þig. Loksins ertu réttum megin við strikið í heimilisbókhaldinu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þeir eru margir sem bíða í of- væni eftir að þú segir skoðun þína á ákveðnu máli. Lofaðu ekki upp í ermina á þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu ekki velgengnina stíga þér til höfuðs, þótt sæt sé. Ef eitthvað er ekki gaman skaltu sleppa því. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ekkert er dýrmætara en heilsan svo þú skalt varast að ofbjóða líkamanum. Ekki segja já og amen við öllu þótt börnin suði. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ef aðstæður valda þér óþægindum skaltu endilega endurskoða þær og nú með hjartanu en ekki skyn- seminni. Einhver gefur þér hýrt auga. 22. des. - 19. janúar Steingeit Fjarvera þín eða annríki eykur áhuga einhvers á þér til muna. Ekki tapa áttum þótt þú svífir um á bleiku skýi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er ekki hyggilegt að hleypa málum af stað án þess að reyna að sjá framvinduna fyrir. Vandaðu því vel mál þitt svo að ekki þurfi að koma upp misskilningur að ástæðulausu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert enn meira aðlaðandi í augum fólks en venjulega. Margar hend- ur vinna létt verk og þannig tekst þér að koma málefninu í höfn. lengra í námi. Ég hef alla tíð viljað átta mig á hugsun fólks, bæði með því að lesa bækur og með því að skilja spurningar sem nemendur bera upp. Áhugi minn á heimspeki er nátengdur þessari viðleitni enda snýst hún mest um hugarheim mannanna.“ Atli hefur tekið töluverðan þátt í Kennsla er alltaf kennsla,“ segir Atli um muninn á störfunum. „Ég hef kennt börnum og fullorðnum, byrjendum og doktorsnemum og mér finnst ég alltaf vera að gera það sama sem er að skilja nemendur og fá þá til að skilja. En óneitanlega þarf að hafa dýpri þekkingu þegar maður kennir fólki sem er komið A tli Vilhelm Harðarson er fæddur 6. janúar 1960 í Reykholti í Biskups- tungum en ólst upp í Laugarási í sömu sveit frá fjögurra ára aldri. „Ég er kominn af alþýðufólki sem flest hafði rænu á að lifa svo lítið bæri á. Þó hefur Bjarni bróðir minn lokkað Kristínu ömmu okkar, sem og móður hennar og ömmu, út úr þögninni og gleymsk- unni með því að rita sögu þeirra í bók sem heitir Svo skal dansa. Hún var gefin út af Veröld árið 2009. Aftan á kápunni stendur að bókin sé ‚hetju- saga hinna snauðu og ættarsaga hinna ættlausu‘. Um þorpið sem fóstraði suma for- feður mína í móðurætt hefur líka ver- ið skrifuð saga sem ég hef mætur á. Hún er í bók eftir Árna Óla sem heit- ir Þúsund ára sveitaþorp og kom út hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs árið 1962. Í þessari bók segir frá sam- félaginu í Þykkvabæ. Þar hjálpaðist fátækt fólk að. „Vegna þessa,“ segir Árni Óla (á bls. 95–6) „varð Þykkvi- bær í augum margra hið fyrirheitna land. Þar ríkti frelsi og samhjálp, þar báru menn hver annars byrðar.““ Atli lauk námi í barnaskóla Bisk- upstungna árið 1974 og landsprófi frá Skálholtsskóla vorið 1975. Stúdents- próf tók hann úr eðlisfræðideild Menntaskólans að Laugarvatni vorið 1979 og lauk BA-prófi í heimspeki og bókmenntum frá Háskóla Íslands 1982. Hann lauk MA-prófi frá Brown University 1984 og doktorsprófi frá Háskóla Íslands 2013. Atli starfaði sem framhaldsskóla- kennari við Fjölbrautaskóla Vest- urlands frá 1986 til 2001 og sem að- stoðarskólameistari og síðar skólameistari við sama skóla þar til hann hóf störf sem kennari við Há- skóla Íslands haustið 2014. „Ég hef verið með hugann við mennta- og skólamál frá því að ég var barn og hef eiginlega aldrei hætt í skóla, ver- ið eilífðarstúdent ásamt því að vera í vinnu. Skömmu eftir að ég lauk dokt- orsprófinu var auglýst staða við Há- skóla Íslands á mínu sérsviði og ég sótti um, fékk hana og hætti sem skólameistari áður en skipunartím- inn var liðinn. störfum fyrir stéttarfélög kennara og er meðlimur í Rótarýklúbbi Akra- ness. Meðal útgefinna verka eftir Atla eru kennslubækur í forritun og tölvufræði, bækur um heimspeki, fjöldi tímaritsgreina og bókarkafla um heimspeki, bókmenntir, skólamál og menningu. Hann hefur líka birt Atli Harðarson, heimspekingur og dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands – 60 ára Göngutúr Atli á leiðinni upp á Háahnjúk á Akrafjalli, síðastliðið sumar. Akranes í baksýn. Vill vita hvað fólk er að hugsa Fjölskyldan Frá vinstri: Vífill, Harpa, Atli og Máni. Hjónin Stödd á Delos í Eyjahafi. 40 ára Katrín er Reyk- víkingur, ólst upp í Fossvoginum en býr á Háaleitisbraut. Hún er með BA-gráðu í heim- speki og MA-gráðu í blaða- og frétta- mennsku frá Háskóla Íslands. Katrín er verkefnisstjóri á rekt- orsskrifstofu Háskóla Íslands. Dóttir: Svanfríður, f. 2006. Barnsfaðir Katrínar er Sveinn Steinarsson, f. 1979, tölvunarfræðingur. Þau Katrín og Sveinn halda upp á afmælisdaginn í Skotlandi. Foreldrar: Ólafur Mixa, f. 1939, læknir, bú- settur í Reykjavík, og Kristín Þorsteins- dóttir, f. 1943, d. 2017, grunnskólakennari. Katrín Mixa Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.