Morgunblaðið - 06.01.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Blue-höllin: Keflavík – Tindastóll ....... 19.15
1. deild karla:
Hveragerði: Hamar – Vestri ............... 19.15
Ice Lagoon-höll: Sindri – Breiðablik ....... 20
Í KVÖLD!
Stórleikur Birnu Berg Haralds-
dóttur fyrir þýska handknattleiksliðið
Neckarsulmer dugði ekki til þegar liðið
tapaði 37:33-fyrir Bensheim í þýsku 1.
deildinni á laugardaginn. Birna var
markahæst í liði Neckarsulmer með
átta mörk en sjö þeirra komu af víta-
línunni. Þá gaf Birna Berg þrjár stoð-
sendingar í leiknum en Neckarsulmer
er í ellefta sæti af fjórtán liðum með
sex stig eftir tíu leiki.
Víkingur Ólafsvík er Íslandsmeistari
karla í innanhússknattspyrnu eftir
6:4-sigur gegn Ísbirninum í fram-
lengdum leik í Laugardalshöll í gær.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var
3:3 en Ólafsvíkingar reyndust sterkari
aðilinn í framlenginunni þar sem þeir
skoruðu þrjú mörk gegn engu. Her-
mann Geir Þórisson skoraði tvö mörk
fyrir Víking Ólafsvík og þeir Bjartur
Bjarmi Barkarson, Anel Crnac, Brynj-
ar Vilhjálmsson og Emir Dokara skor-
uðu sitt markið hver. Ricardo Dias,
Orats Garcia, Mateusz Tomasz og Rui
Pereira skoruðu mörk Ísbjarnarins.
Sundkonan Tanya Ýr Jóhannsdóttir
hampaði Sjómannabikarnum annað
árið í röð á Nýárssundmóti fatlaðra
barna og unglinga sem fram fór í
Laugardalslaug um helgina. Tanya,
sem keppir í fötlunarflokki S7 (hreyfi-
hamlaðir), hlaut 552 stig fyrir sund
sitt í 50 metra skriðsundi. Það skilaði
henni Sjómannabikarnum annað árið í
röð en bikarinn hlýtur sá sem vinnur
besta afrek mótsins.
Knattspyrnukonan Cloé Lacasse
heldur áfram að gera það gott með
portúgalska 1. deildar liðinu SL Ben-
fica. Cloé skoraði tvívegis fyrir liðið í
gær þegar það heimsótti A-dos-
Francos í gær en leiknum lauk með
14:0-sigri SL Benfica. Cloé hefur nú
skorað 17 mörk í 12 leikjum með liðinu
á tímabilinu en SL Benfica er í efsta
sæti deildarinnar með 36 stig. Cloé er
fædd í Kanada en fékk íslenskan rík-
isborgararétt síðasta sumar.
Markmaðurinn Alexander Nübel
mun ganga til liðs við þýska knatt-
spyrnufélagið Bayern München næsta
sumar þegar samningur hans við
þýska 1. deildar félagið Schalke rennur
út. Þessi 23 ára gamli markmaður ger-
ir fimm ára samning við Þýskalands-
meistarana en hann
hefur verið fyrirliði
Schalke á þessari
leiktíð. Nübel mun
berjast við Manuel
Neuer um
markmanns-
stöðuna hjá
Bayern
München
en Neuer,
sem er fyr-
irliði Bay-
ern, kom
einnig til
Bæjara
frá
Schalke
árið
2011.
Eitt
ogannað
KÖRFUBOLTI
Skúli B. Sigurðsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Njarðvíkingar hófu nýtt ár í Dom-
inos-deild karla í körfubolta líkt og
þeir enduðu það gamla, með sigri.
Hafa þeir nú unnið sjö leiki í röð.
Fórnarlömb þeirra að þessu sinni
voru ÍR-ingar sem í raun áttu aldrei
möguleika gegn kröftugu liði heima-
manna í Njarðtaksgryfjunni, en leik-
urinn var liður í 12. umferðinni.
Lokatölur urðu 88:64 og þessar tölur
segja í raun alla sögu þessa leiks.
Bæði lið frumsýndu nýja leik-
menn. Robert Kovac, skotbakvörður
frá Sviss, er mættur í Breiðholtið og
lofar hann góðu þó svo að hann hafi
ekki náð að sýna sitt besta í gær.
Njarðvíkingar sem losuðu sig við
Wayne Martin og Kyle Williams fyr-
ir jólafríið bólstruðu svo vel í teiginn
hjá sér þegar þeir náðu sér í þá Auri-
mas Majauskas og Tevin Falzone.
Báðir tveir stórir drengir sem stóðu
prýðilega vel við sína samninga í
gærkvöldi þó svo að meira hafi farið
fyrir þeim fyrrnefnda. Heilt yfir í
gær var það sú orka og ákefð sem
Njarðvíkingar mættu með til leiks í
gær sem gerði útslagið. Einnig virð-
ast þessi skipti á leikmönnum hafa
fallið vel fyrir þeim.
Wayne Martin er vissulega fínn
leikmaður en í því fyrirkomulagi sem
nú er þar sem Martin og Chaz Willi-
ams gátu ekki verið saman á vell-
inum þá gerðu þeir vel. ÍR-ingar
verða hálfdæmdir af gærkvöldinu.
Nýr leikmaður sem vissulega á eftir
að láta að sér kveða fyrir þá en það
bara vantaði smá kókómjólk í leik-
menn þetta kvöldið. Létu hluti sem
þeir réðu alls ekki við fara í taug-
arnar á sér. Njarðvíkingar sitja
áfram í fjórða sæti deildarinnar og
sömuleiðis ÍR í sínu 7. sæti.
Átta í röð hjá meistaraefnunum
Stjarnan vann sinn áttunda sigur í
röð er liðið lagði Þór Þorlákshöfn á
heimavelli, 84:70. Mikið jafnræði var
með liðunum í fyrri hálfleik en
Stjörnumenn stungu af í seinni hálf-
leiknum. Það er ljóst að það er aðeins
eitt markmið í Garðabænum og það
er að vinna alla þá titla sem í boði
eru. Liðið var það besta fyrir áramót
og með komu Urald King og Gunn-
ars Ólafssonar er liðið enn sterkara.
Stjarnan er komin í þá stöðu að
litlu skiptir þótt lykilmenn eigi
slæma daga, alltaf eru leikmenn til
taks sem spila vel. Breiddin er mikil
og byrjuðu leikmenn eins og Gunnar
Ólafsson, Tómas Þórður Hilmarsson
og Arnþór Freyr Guðmundsson á
bekknum, en flest lið væru meira en
til í að hafa slíka leikmenn í byrj-
unarliði sínu. Það voru gríðarleg von-
brigði fyrir Stjörnumenn að falla úr
leik gegn ÍR í undanúrslitum á síð-
ustu leiktíð og núna ætlar liðið sér
lengra.
Allan stöðuleika hefur vantað í
Þórsara, en þeir hafa tapað fjórum
af síðustu fimm leikjum sínum. Þar á
undan vann liðið þrjá í röð og verður
áhugavert að sjá hvort Þórsurum
tekst að komast í úrslitakeppnina,
en lið eins og Haukar, ÍR, Grindavík
og Valur eru í sömu baráttu og að
glíma við sömu vandamál, stöð-
ugleika. Deildin er gríðarlega sterk í
ár, sem gerir liðunum í neðri hlut-
anum erfitt með að ná í nokkra sigra
í röð.
KR kom fram hefndum
Íslandsmeistarar KR gerðu góða
ferð til Grindavíkur og unnu 94:91-
sigur í framlengingu. Sigurinn var
býsna sætur, þar sem KR-ingar
fengu skell í sama húsi í bikarkeppn-
inni fyrir jól. KR-ingar voru auk
þess vængbrotnir vegna meiðsla
lykilmanna og var liðið aðeins með
þrjá leikmenn af bekknum. Jón Arn-
ór Stefánsson var einn þeirra, en
hann spilaði ekkert vegna meiðsla.
KR var því án Jóns, Kristófers
Acox, Björns Kristjánssonar og Jak-
obs Arnar Sigurðarsonar. Í þeirra
fjarveru átti Brynjar Þór Björnsson
einn sinn besta leik í vetur til þessa
og skoraði 22 stig og gerði sjö
þriggja stiga körfur. Þótt KR-ingar
hafi oft verið í betri stöðu varðandi
leikmenn, er ekki hægt að afskrifa
liðið. KR finnur alltaf nýjan gír þeg-
ar á reynir og mest er undir. Eftir
þrjá sigra í röð hefur Grindavík nú
tapað tveimur í röð, en eins og oft
áður voru sterkir leikmenn liðsins
undir pari. Jamal Olasawere skoraði
aðeins átta stig og Ólafur Ólafsson
skoraði fjögur. Grindvíkingar sakna
Dags Kárs Jónssonar sem er að
glíma við meiðsli.
Vonin eykst á Akureyri
Þór Akureyri vann mikilvægan
92:89-heimasigur á Haukum. Þórs-
arar hafa unnið tvo leiki af síðustu
þremur eftir átta töp í röð þar á
undan. Þórsarar eru enn þá fjórum
stigum frá öruggu sæti í deildinni,
en síðustu leikir hafa gefið liðinu
aukna von um að halda sæti sínu í
deildinni, þvert gegn spám nánast
allra. Þrír erlendir leikmenn eru í
röðum Þórs, sem og Júlíus Orri
Ágústsson, sem er gríðarlega efni-
legur og er liðið að smella betur og
betur saman, eftir erfiða byrjun.
Þórsarar fá gott tækifæri strax í
næsta leik er liðið mætir Fjölni í
nýliðaslag. Með sigri þar geta Þórs-
arar komist tveimur stigum frá
öruggu sæti. Haukar eru hins vegar
eitt af vonbrigðaliðum deildarinnar
til þessa og hefur liðið tapað þremur
af síðustu fjórum og aldrei komist á
flug í vetur. Búist var við miklu af
liðinu með komu Israels Martin í
þjálfarastólinn og heimkomu Kára
Jónssonar. Kári er hins vegar ekki
eins sterkur og áður og virðist sem
meiðsli hafa tekið toll hjá bakverð-
inum unga.
Kærkomið hjá Val
Valsmenn unnu gríðarlega kær-
kominn 92:75-sigur á Fjölni á heima-
velli. Sigurinn var sá fyrsti síðan
Valsmenn unnu Tindastól þann 24.
október, en liðið tapaði sjö síðustu
leikjum sínum á síðasta ári. Vals-
menn komust í 16:2, en Fjölnismenn
neituðu að gefast upp og tókst þeim
að jafna í öðrum leikhluta. Valsmenn
voru hins vegar miklu sterkari í
fjórða leikhlutanum og var sigurinn
að lokum sannfærandi. Fjölnismenn
eru í botnsætinu með tíu tapleiki í
röð og virðist fátt benda til annars
en að liðið falli niður um deild.
Ákveðið vonleysi virðist hafa tekið
yfir í Grafarvoginum og virðast leik-
menn ekki hafa mikla trú á að þeir
geti unnið leiki. Sú var staðan hjá
Val fyrir áramót, en að ná í sigur í
fyrsta leik á nýju ári gæti gefið lið-
inu byr undir báða vængi. Með smá
stöðugleika gætu Valsmenn barist
um sæti í úrslitakeppninni, frekar
en að vera í bullandi fallbaráttu.
Njarðvík og Stjarnan á flugi
Njarðvík vann sinn sjöunda leik í röð Átta í röð hjá toppliði Stjörnunnar
Vængbrotnir meistarar unnu Kærkominn sigur Valsmanna á nýliðunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sókn Nikolas Tomsick reyndist sínum gömlu liðsfélögum erfiður og skoraði 15 stig í gær.
Tom Brady og liðsfélagar hans í New
England Patriots eru úr leik í úr-
slitakeppni bandarísku NFL-
deildarinnar í ruðningi eftir 20:13-
tap gegn Tennesse Titans í New Eng-
land á laugardaginn. Patriots eru
ríkjandi meistarar í NFL-deildinni og
fá því ekki tækifæri til þess að verja
titil sinn í febrúar í Miami en Brady
hefur sex sinnum fagnað sigri í Ofur-
skálarleiknum, oftar en nokkur ann-
ar. Þrátt fyrir að vera orðinn 42 ára
gamall sagði leikstjórnandinn ólík-
legt að hann væri hættur í leikslok.
bjarnih@mbl.is
Meistararnir
óvænt úr leik
AFP
9 Tom Brady hefur níu sinnum kom-
ist í Ofurskálarleikinn á ferlinum.
Hinn 18 ára gamli Curtis Jones
reyndist hetja Liverpool þegar liðið
vann 1:0-sigur gegn Everton í 3.
umferð ensku bikarkeppninnar í
knattspyrnu á Anfield í gær. Jones
skoraði sigurmark leiksins á 71.
mínútu með stórgæsilegu skoti ut-
an teigs sem fór í þverslána og inn.
Liverpool fer því áfram í 4. umferð
keppninnar, líkt og Manchester
City og Chelsea. Manchester Unit-
ed og Wolves gerðu jafntefli, líkt og
Tottenham og Middlesbrough, og
þurfa liðin því að mætast á nýjan
leik 14. janúar. bjarnih@mbl.is
Táningur skaut
Liverpool áfram
AFP
1 Curtis Jones skoraði sitt fyrsta
aðalliðsmark fyrir Liverpool í gær.