Morgunblaðið - 06.01.2020, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI
Sala á tónlist í Bretlandi, þ.e. lögum
eða heilum hljómplötum, var meiri í
fyrra en hún hefur verið í 13 ár, eða
frá árinu 2006. Seldust yfir 150
milljónir platna eða jafngildi þeirra
og þá bæði í verslunum og á netinu
með niðurhali eða streymi. Segir á
vef dagblaðsins Guardian að það
megi þakka afar góðu gengi lista-
manna á borð við Lewis Capaldi,
Billie Eilish og Ariönu Grande á ný-
liðnu ári.
Ef litið er til allra mögulegra
forma sem tónlist er seld á og þá
líka hinna föstu forma, þ.e. geisla-
diska, vínylplatna og kassetta, seld-
ust 154 milljónir platna árið 2019 en
árið 2006 voru þær 161,4 milljónir.
Capaldi var sá tónlistarmaður
sem naut mestra vinsælda í
streymisveitum og þá plata hans
Divinely Uninspired to a Hellish
Extent og lagið „Someone You Lo-
ved“. Árið 2006 var það platan Eyes
Open með Snow Patrol sem seldist
best og lagið „Crazy“ með Gnarls
Barkley.
Streymisveitur á borð við Spot-
ify, Apple, Amazon og Deezer njóta
nú vinsælda sem aldrei fyrr en sala
á geisladiskum hrundi hins vegar í
Bretlandi í fyrra, var 26,5% minni
en árið á undan. Á móti jókst
streymi á plötum álíka mikið, um
25% milli ára. Hins vegar jókst sala
á vínylplötum mikið, tólfta árið í
röð.
Skoti Söngvarinn Lewis Capaldi.
Mesta sala á tón-
list frá árinu 2006
AFPMagnús Pálsson hefur áum hálfrar aldar ferlihaft mikil áhrif á ís-lenskt listalíf. Hann hef-
ur verið atkvæðamikill á ýmsum svið-
um, gert sviðsmyndir í leikhúsi, samið
leikverk, gert skúlptúra og bókverk
og verið með uppákomur og gjörn-
inga og má kalla hann brautryðjanda
í íslenskri list. Að auki hefur hann
haft ómæld áhrif í gegnum kennslu. Í
myndinni Á skjön fáum við að komast
í návígi við Magnús frá ýmsum hlið-
um.
Mikið af efninu er frá Listahátíð
2013 þar sem boðið var upp á yfirlit
yfir lifandi verk Magnúsar og sýndir
sex gjörningar eftir hann. Magnús
segir einnig frá lífi sínu og ferli og
ræðir verk sín og listina.
Inn í myndina fléttast ökuferð, sem
hefst í Reykjavík og liggur út á land.
Ekki er ljóst hvert förinni er heitið og
virðist bíltúrinn lítið annað en út-
úrdúr í myndinni, en svo er þó alls
ekki eins og kemur í ljós í myndarlok
þegar ýmislegt skýrist, þar á meðal
heiti myndarinnar án þess að meira
verði gefið upp hér, enda ekki þakk-
látt að láta of mikið uppi um óvæntar
vendingar í umsögnum.
Magnús er mjög blátt áfram þegar
hann ræðir list sína og laus við alla
stæla og upphafningu. Hann á ekki í
samtali við rýmið og lætur vera að
setja hlutina í flókið, háfleygt og tor-
skilið samhengi, eða gefa til kynna
dýpt og ádeilu. Hann auðveldar fólki
ekki að skilja, en gerir um leið enga
kröfu um skilning. Það getur valdið
þeim, sem fjalla um verk hans,
ákveðnum erfiðleikum, en hann sýnir
því skilning. Og það gefur einnig til
kynna ákveðið umburðarlyndi af
hálfu listarinnar, sem auðveldar líka
aðkomu að verkum hans. Það er hægt
að njóta þeirra án þess að setja sig í
stellingar rétt eins og hægt er að
njóta tónlistar á eigin forsendum.
Aðrir sjái oft ýmislegt í verkunum,
segir hann í myndinni, sem jafnvel
hafi aldrei hvarflað að honum þótt
það geti verið „eins satt og hvað ann-
að“.
Þetta samtal kemur oftar en einu
sinni í myndinni.
„Veit maður hvers vegna maður er
að gera hluti,“ spyr hann á einum stað
og bætir við, „maður veit ekki neitt“
og nokkrum orðum síðar að sér standi
jafnvel á „fjandans sama“ um það.
Á öðrum stað segir hann að á bak
við verk sín séu „engar pælingar“ og
bætir við að hann „pæli aldrei neitt“.
Það henti mörgum og sé ágætt, en
hafi ekki verið sín leið.
Oft lesi hann „hvernig hlutir snerti
aðra“ og það sé sér „gjörsamlega
framandi“, þótt það sé „samt ekki
ósatt“.
Og hvað knýr listamanninn? Magn-
ús talar um þörfina „til að mikla sjálf-
an sig … maður er hégómavera“. Sér
finnist gott að vera latur, en alltaf fari
hann aftur að gera eitthvað.
Verk Magnúsar eru fjölbreytt og
það kemur rækilega fram í myndinni.
Þar eru ekki bara skúlptúrar. Ræki-
lega er lýst uppsetningu á gjörn-
ingnum Kross, sem hófst með athöfn í
Fríkirkjunni og var síðan gengið yfir í
Hafnarhúsið. Einnig er sýnt frá tilurð
og flutningi tónlistargjörningsins
Kúakyn í hættu með Sinfóníunni.
Magnús hefur unnið mikið með gifs
og í myndinni sjáum við uppsetningu
á gjörningnum „Einsemd: Steypa“
sem fram fór í Listasafni Reykjavíkur
í Hafnarhúsinu 2013 þar sem tón-
leikar þungarokksveitarinnar Muck
eru steyptir í gifs.
Önnur gifsverk koma einnig fyrir
og má nefna „Ást í sundlaug“ þar sem
afsteypur af tveimur andlitum eru sín
hvorum megin í gifsklumpi, fallegt
verk og lýsandi fyrir þann húmor,
sem oft og iðulega er að finna í verk-
um hans.
Gifsverkin verða að gjörningum
þegar hann reynir að festa í gifsmót
þegar sjórinn mætir fjörunni í flæð-
armálinu eða frysta tímann með gifs-
afsteypu af hjólum Sikorsky-þyrlu
sekúndubroti fyrir lendingu.
Við sjáum Magnús vinna með gifs-
ið, blanda það vatni og móta um leið
og hann lýsir þeirri ánægju, sem gifs-
ið veiti, kallar það „dásamlegt sull“,
sem allir ættu að prófa. Reyndar
mætti yfirfæra þessi orð á margt ann-
að í verkum Magnúsar án þess að þar
sé í nokkru hallað á brautryðjanda-
hlutverk hans með áherslu á það
dásamlega, sem úr verður þegar hann
fer af stað.
Myndin Á skjön er sýnd í Bíó Para-
dís og fer sýningum því miður fækk-
andi. Hún er vel unnin og skemmti-
leg. Magnús fær að njóta sín vel í
myndinni og hreinskilni hans og
áreynsluleysi í frásögn gerir að verk-
um að hún verður annað og meira en
upptalning á verkum og þurr feril-
skrá. Áhorfandinn fær að kynnast
listamanninum og lifa sig inn í verk
hans. Myndin er um leið ómissandi
heimild um mikilvæg verk, sem eðli
sínu samkvæmt eru hverful, hvort
sem það eru gjörningar, sem eru
horfnir um leið og þeir hafa verið
framdir, eða verk unnin úr for-
gengilegum efnum, sem listamað-
urinn notar vísvitandi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Brautryðjandi Á skjön um Magnús Pálsson er góð heimild um mikilvægan listamann. Myndin er úr safni blaðsins.
Bíó Paradís
Á skjön - verk og dagar Magnúsar
Pálssonar bbbbn
Leikstjóri: Steinþór Birgisson. Handrit:
Steinþór Birgisson og Sigurður Ingólfs-
son. Lengd: 80 mín. Tungumál: Íslenska
og enska. Ísland, 2019.
KARL
BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
„Dásamlegt sull“