Morgunblaðið - 13.01.2020, Side 1
M Á N U D A G U R 1 3. J A N Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 10. tölublað 108. árgangur
MÓTFALLNIR
SKYLDUGRI
SAMEININGU GENGUST VIÐ ÁBYRGÐ
MARMARABÖRN
FRUMSÝNA Á
STÓRA SVIÐINU
MÓTMÆLI Í ÍRAN 13 NÝTT LEIKVERK 28SKAGASTRÖND 6
Línubáturinn Kristinn HU sést hér koma til
hafnar í Ólafsvík í gærmorgun. Drifu smábáta-
sjómenn sig á hafið um helgina þegar færi
gafst, en veðurspá gærdagsins gerði ráð fyrir
versnandi veðri um kvöldið. Stóðst sú spá að
flestu leyti, þar sem færi versnaði til mikilla
muna og myndaðist meðal annars um þriggja
kílómetra löng röð bifreiða á veginum til flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar. Aflýsti Icelandair
öllu flugi sínu í gærkvöldi og þurftu margir far-
þegar sem lentir voru í Keflavík að bíða veðrið
af sér um borð í vélunum. » 4
Sóttu sjó meðan færi gafst
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Í kjölfar rútuslyssins sem varð ná-
lægt Blönduósi á föstudag vakti for-
maður byggðaráðs Blönduósbæjar
athygli á því að flugvöllurinn í
sveitarfélaginu væri sá eini við þjóð-
veg eitt á milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar og gagnrýndi Isavia fyrir að
vanrækja hann. Nefndi hann meðal
annars að aðflugshallaljós hefðu
ekki verið stillt og ekki hefði verið
gert við flugturn í kjölfar skemmda
sem urðu í óveðrinu í desember.
Isavia kveðst hafa skilning á
gagnrýninni en segir ákvarðanir um
viðhald liggja hjá ráðuneytinu.
Ráðuneytið segist hins vegar ekki
geta haft skoðun á „einstökum þátt-
um á stökum flugvöllum“ þar sem
það sé Isavia að forgangsraða þeim
fjármunum sem þeim eru veittir. »4
Flugvöllurinn á
Blönduósi án hirðis
Flug Þyrlan flaug með þrjá eftir slysið og
nýtti Blönduósflugvöll til lendingar.
Baldur Arnarson
Sigurður Bogi Sævarsson
Verktakar hafa á undanförnum
mánuðum lækkað verð á nýjum
íbúðum í miðborg Reykjavíkur. Þá
meðal annars á Brynjureit og
Höfðatorgi.
Kaupsamningar sem Morgunblað-
ið hefur undir höndum vitna um að
verð nýrra íbúða hafi jafnvel verið
lækkað um sex milljónir frá aug-
lýstri verðskrá. Skal tekið fram að í
þeim tilfellum keyptu kaupendur
íbúðir fyrir hundruð milljóna.
Nálgast 600 þúsund krónur
Má því ætla að fermetraverð hafi
lækkað úr nærri 700 þúsund krónum
í um 600 þúsund krónur. Íbúðirnar
eru litlar og flestar án bílastæða.
Jafnframt hafa verktakar boðið
kaupendum að gera tilboð í nýjar
íbúðir á Hlíðarenda. Slíkt er ekki al-
gengt svo snemma í söluferlinu. Þá
eru vísbendingar um verðlækkanir á
reitum utan miðborgarinnar.
Þrátt fyrir vaxtalækkanir
Þessi þróun hefur orðið þrátt fyrir
vaxtalækkanir Seðlabankans. Þá
hefur það ekki dugað til að halda
uppi verðinu að framboð á næstu
misserum hefur verið takmarkað
með því að seinka nýjum verkefnum.
Aukið atvinnuleysi kann að vera
orsakavaldur í þessu samhengi.
Jafnframt hefur markaður með
skammtímaleigu til ferðamanna gef-
ið mikið eftir, sem aftur skerðir
tekjumöguleika.
Óskar Bergsson, fasteignasali hjá
Eignaborg, segir kaupendamarkað
að skapast á fasteignamarkaði.
Slá af verði nýrra
íbúða í miðborginni
Niðursveiflan birtist í verðlækkunum á nýjum íbúðum
MKaupendamarkaður … »4
Morgunblaðið/Eggert
Lækkun Miðbæjarálagið í Reykja-
vík hefur lækkað undanfarið.
Íslenska karlalandsliðið leikur í
dag gegn Rússum á Evrópumeist-
aramótinu í handbolta, er nú fer
fram í Svíþjóð. Þetta er annar leik-
ur liðsins á mótinu, en það vann
frækinn sigur á Dönum í mögn-
uðum leik á laugardaginn, 31:30.
Ljóst er þó að sá sigur mun ekki
skila neinu nema liðið haldi upp-
teknum hætti í dag gegn Rússum,
en landslið þeirra hefur verið að
spyrna sér frá botninum eftir mög-
ur ár að undanförnu. Þá hafa strák-
arnir okkar byrjað vel á síðustu
tveimur EM-mótum en ekki náð að
láta kné fylgja kviði. »27
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
EM í handbolta Strákarnir okkar unnu
frækinn sigur á Dönum á laugardaginn.
Verða að fylgja eftir
sigrinum á Dönum
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Leitað hefur verið til borgaraþjón-
ustu utanríkisráðuneytisins vegna
andláts Íslendings í Torrevieja á
Spáni. Sveinn H. Guðmarsson, upp-
lýsingafulltrúi
utanríkisráðu-
neytisins, stað-
festi þetta í sam-
tali við Morgun-
blaðið og mbl.is í
gærkvöldi.
Greint var frá
því á vefsíðu
Fréttablaðsins í
gær að Íslend-
ingur á fertugs-
aldri væri grunaður um að hafa myrt
sambýlismann móður sinnar á Spáni
á þriðja tímanum í fyrrinótt á stað-
artíma. Þar segir að hinn látni sé ís-
lenskur karlmaður á sjötugsaldri og
að verknaðurinn hafi verið framinn á
heimili hans og móður árásarmanns-
ins. Maðurinn er sagður í haldi lög-
reglunnar í Torrevieja á suðaustur-
hluta Spánar þar sem fólkið er
búsett.
Torrevieja og svæðið þar í kring
er í um 40 mínútna fjarlægð frá
borginni Alicante á Spáni og hefur
verið eftirsóttur staður meðal Ís-
lendinga um nokkurt skeið, en tölu-
verður fjöldi Íslendinga hefur fest
kaup á fasteignum á svæðinu.
Íslend-
ingur lést
á Spáni
Íslendingur liggur
undir grun fyrir morð
Torrevieja á Spáni.