Morgunblaðið - 13.01.2020, Page 9

Morgunblaðið - 13.01.2020, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020 Breiðablik og HK mættust á laugardag í góðgerðarleik til minn- ingar um Bjarka Má Sigvaldason, fyrrverandi leikmann HK, sem lést í fyrra langt fyrir aldur fram eftir baráttu við krabbamein. Bjarka- leikurinn svokallaði var reyndar liður í undirbúningsmóti Fótbolta.- net sem fram fer um þessar mundir. Leikurinn var fjörugur frá fyrstu mínútu. Þrjú rauð spjöld litu dagsins ljós og lokatölur 6:1 fyrir Breiðablik. „Þetta var alvöruleikur og alveg ljóst að bæði liðin vildu vinna,“ segir Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks, og bætir við að mögulega hefði leikurinn spilast öðruvísi ef aðeins hefði verið um æfingaleik að ræða en ekki keppnisleik í undirbúningsmótinu. Frítt var á leikinn en tekið við frjálsum framlögum til styrktar Ljónshjarta, stuðningssamtökum ungs fólks sem misst hefur maka. Gunnleifur er ánægður með hvern- ig tókst til. Hann þekkir vel til beggja liða, en HK er uppeldisfélag hans. Þótt rígur sé á milli félaganna á yfirborðinu segir Gunnleifur að hann sé að mestu bundinn við völl- inn. „Það er gott að sjá félögin vinna saman að ákveðnu góð- gerðarmáli og ég held að þetta sé nokkuð sem félögin í landinu gætu gert meira af,“ segir Gunnleifur. Undanfarin ár hafi samstarf Kópavogsliðanna farið vaxandi, og nefnir hann sem dæmi Kópavogs- blótið sem liðin hafa haldið sameig- inlega síðustu tvö ár. agunnar@mbl.is Hörkuleikur í minningu Bjarka Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson Barátta Ágætis mæting var á góðgerðarleikinn í Kórnum í Kópavogi.  Breiðablik vann HK 6:1 í leik til styrktar Ljónshjarta Mat á virði landeigna úr jörðinni Vatnsenda, sem Kópavogsbær hefur eignast í gegnum eignarnámssátt, var kynnt bæjarráði Kópavogsbæjar á fimmtudag í síðustu viku. Nær matið til landeigna sem bærinn eign- aðist á árunum 1992, 1998, 2000 og 2007. „Guðjón Ármannsson [lögmaður Kópavogsbæjar] var að kynna fyrir okkur matið á jörðinni, þær niður- stöður sem snúa að okkur og fara yf- ir hvað sé fram undan,“ segir Karen Elísabet Halldórsdóttir, varafor- maður bæjarráðs, um fundinn. Hún segir flækjustigið í Vatnsendamál- inu umtalsvert. Erfingjar jarðarinnar hafa deilt um hvort heimilt hafi verið að gera eignarnámssátt við Þorstein Hjalte- sted, ábúenda á Vatnsenda, vegna skilyrða sem fylgdu jörðinni þegar hann erfði hana. Jafnframt var Þor- steinn ekki sáttur við þær greiðslur sem Kópavogsbær innti af hendi og lagði hann fram kröfu um frekari eignarnámsbætur árið 2018, en þær námu 5,6 milljörðum króna. Desem- ber það ár lést Þorsteinn og er það nú dánarbú hans sem gerir um- rædda kröfu til bæjarins. Karen kveðst ekki geta upplýst hvert matið er en tekur fram að málsaðilar hafi frest til þess að fara fram á yfirmat til 30. janúar. gso@mbl.is Mat á land- eignum Vatnsenda kynnt Morgunblaðið/Hjörtur Mat Ekki liggur fyrir hvert fram- haldið verður í Vatnsendamálinu.  Vatnsendamálið enn flókið úrlausnar Björgunarsveitir af höfuðborgar- svæðinu komu á laugardagskvöld konu til bjargar sem lent hafði í sjálfheldu á Vífilsfelli norðan Blá- fjalla. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg var konan ágætlega búin, en hún hringdi eftir aðstoð um klukkan sex seinnipart laugar- dags eftir að hafa fest sig ofarlega í fjallinu. Greiðlega gekk að hafa uppi á konunni og koma henni nið- ur af fjallinu þrátt fyrir krefjandi aðstæður, kulda, snjókomu og þó nokkurn vind. Björguðu konu af Vífilsfelli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.