Morgunblaðið - 13.01.2020, Side 26

Morgunblaðið - 13.01.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020 England Everton – Brighton ................................. 1:0  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton. Chelsea – Burnley ................................... 3:0  Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Crystal Palace – Arsenal ......................... 1:1 Leicester – Southampton ........................ 1:2 Manchester United – Norwich................ 4:0 Wolves – Newcastle ................................. 1:1 Tottenham – Liverpool ............................ 0:1 Bournemouth – Watford ......................... 0:3 Aston Villa – Manchester City................ 1:6 Staðan: Liverpool 21 20 1 0 50:14 61 Manch.City 22 15 2 5 62:25 47 Leicester 22 14 3 5 47:21 45 Chelsea 22 12 3 7 39:29 39 Manch.Utd 22 9 7 6 36:25 34 Sheffield Utd 22 8 8 6 24:21 32 Wolves 22 7 10 5 31:28 31 Tottenham 22 8 6 8 36:31 30 Crystal Palace 22 7 8 7 20:24 29 Arsenal 22 6 10 6 29:31 28 Everton 22 8 4 10 25:32 28 Southampton 22 8 4 10 27:39 28 Newcastle 22 7 5 10 21:34 26 Brighton 22 6 6 10 25:30 24 Burnley 22 7 3 12 24:37 24 West Ham 21 6 4 11 25:33 22 Watford 22 5 7 10 20:34 22 Aston Villa 22 6 3 13 28:43 21 Bournemouth 22 5 5 12 20:35 20 Norwich 22 3 5 14 22:45 14 Grikkland Larissa – Aris ........................................... 0:0  Ögmundur Kristinsson varði mark Lar- issa, sem er í áttunda sæti deildarinnar. PAOK – AEK Aþena ............................... 1:0  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK, sem er í öðru sæti. Belgía Westerlo – Lommel ................................. 2:1  Kolbeinn Þórðarson lék fyrstu 83 mín- úturnar með Lommel í B-deildinni. Union St. Gilloise – OH Leuven ............. 2:3  Aron Sigurðarson lék allan leikinn með Union St. Gilloise í B-deildinni. Ítalía Fano – Padova.......................................... 2:1  Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með Padova, sem er í 5. sæti C-riðils C-deildar. Kýpur Apollon Limassol – Pyrgos .................... 6:0  Jasmín Erla Ingadóttir lék í 87 mínútur með Apollon í toppslag deildarinnar. KNATTSPYRNA HANDBOLTI EM karla 2020 A-RIÐILL, Graz: Króatía – Hvíta-Rússland.................... 31:23 Svartfjallaland – Serbía ....................... 22:21 Staðan: Króatía 2 2 0 0 58:44 4 Hvíta-Rússland 2 1 0 1 58:61 2 Svartfjallaland 2 1 0 1 43:48 2 Serbía 2 0 0 2 51:57 0 B-RIÐILL, Vín: Austurríki – Úkraína ........................... 34:30 Tékkland – Norður-Makedónía .......... 27:25 Staðan: Austurríki 2 2 0 0 66:59 4 Tékkland 2 1 0 1 56:57 2 Makedónía 2 1 0 1 51:52 2 Úkraína 2 0 0 2 55:60 0 C-RIÐILL, Þrándheimi: Lettland – Holland .............................. 24:32  Erlingur Richardsson þjálfar Holland. Spánn – Þýskaland............................... 33:26 Staðan: Spánn 2 2 0 0 66:48 4 Þýskaland 2 1 0 1 60:56 2 Holland 2 1 0 1 55:58 2 Lettland 2 0 0 2 46:65 0 D-RIÐILL, Þrándheimi: Portúgal – Bosnía ................................. 27:24 Frakkland – Noregur........................... 26:28 Staðan: Noregur 2 2 0 0 60:52 4 Portúgal 2 2 0 0 55:49 4 Frakkland 2 0 0 2 51:56 0 Bosnía 2 0 0 2 50:59 0 E-RIÐILL, Malmö: Ungverjaland – Rússland.................... 26:25 Danmörk – Ísland................................. 30:31 Staðan: Ísland 1 1 0 0 31:30 2 Ungverjaland 1 1 0 0 26:25 2 Danmörk 1 0 0 1 30:31 0 Rússland 1 0 0 1 25:26 0 F-RIÐILL, Gautaborg: Svíþjóð – Slóvenía ............................... 19:21 Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð. Sviss – Pólland...................................... 31:24 Staðan: Slóvenía 2 2 0 0 47:42 4 Svíþjóð 2 1 0 1 53:42 2 Sviss 2 1 0 1 52:58 2 Pólland 2 0 0 2 47:57 0 Frakkland Metz – Toulon ...................................... 31:18  Mariam Eradze skoraði eitt mark fyrir Toulon. Merignac – Bourg-de-Péage.............. 21:23  Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor- aði 6 mörk fyrir Bourg-de-Péage. ENGLAND Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sergio Agüero varð í gær marka- hæsti erlendi leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu þegar hann skoraði þrennu í yfirburðasigri Manchester City á Aston Villa, 6:1, á útivelli. Argentínumaðurinn leikur sitt ní- unda tímabil með City og hefur nú skorað 177 mörk fyrir liðið í deild- inni. Fyrir leikinn í gær var franski framherjinn Thierry Henry marka- hæsti útlendingurinn í deildinni en hann skoraði 175 mörk fyrir Arsen- al á árunum 1999 til 2007. Yfirburðir City á Villa Park voru ótrúlegir og ljóst er að Pep Guar- diola og hans menn ætla sér að fylgja Liverpool eftir eins lengi og hægt er. Fjórtán stig skilja liðin að og Liverpool á auk þess leik til góða, þannig að hæpið er að segja að þau séu í slag um enska meist- aratitilinn. Hann virðist vera frátek- inn fyrir Jürgen Klopp og læri- sveina hans en fátt virðist geta komið í veg fyrir að City vinni keppnina um silfurverðlaunin. Með þessu áframhaldi verður Manchest- er City fyrsta liðið sem skorar 100 mörk í efstu deild á Englandi án þess að verða enskur meistari í leið- inni. Liðið hefur þegar gert 62 mörk í 22 leikjum. Met Liverpool í sigurleikjum Robert Firmino tryggði Liver- pool góðan útisigur á Tottenham, 1:0, á laugardaginn. Þar með hefur Liverpool unnið 20 leik af 21 og setti nýtt met yfir fjölda sigurleikja eftir 21 umferð í fimm sterkustu deildum Evrópu. Þegar Leicester vann Southamp- ton 9:0 á útivelli í október var útlitið ekki bjart hjá Ralph Hasenhüttl og hans mönnum á suðurströndinni. Einhver félög hefðu rekið knatt- spyrnustjórann eftir slíka útreið en Dýrlingarnir héldu tryggð við Aust- urríkismanninn og Southampton hefur hægt og bítandi klifið stiga- töfluna. Eftir sæta hefnd og óvænt- an útisigur á Leicester, 2:1, eru Hasenhüttl og hans menn komnir í tólfta sætið og nær því að vinna sér sæti í Evrópudeildinni en að falla úr deildinni. Danny Ings hefur farið á kostum með Southampton en hann skoraði sigurmarkið og er kominn í annað sætið á markalista deildar- innar með 14 mörk.  Marcus Rashford skoraði tví- vegis fyrir Manchester United sem vann botnlið Norwich auðveldlega, 4:0.  Jorginho, Tammy Abraham og Callum Hudson Odoi tryggðu Chelsea öruggan sigur á Burnley, 3:0. Jóhann Berg Guðmundsson er ekki orðinn leikfær á ný hjá Burn- ley.  Þótt enskir fjölmiðlar fullyrði að Gylfi Þór Sigurðsson sé á förum frá Everton lék hann allan tímann á laugardaginn þegar liðið lagði Brighton að velli, 1:0, með marki frá Richarlison. Gylfi fékk ágæta dóma fyrir frammistöðu sína og þótti spila betur en í síðustu leikjum.  Watford er óstöðvandi eftir að Nigel Pearson tók við liðinu og er komið úr fallsæti í fyrsta sinn í vet- ur eftir sannfærandi 3:0-útisigur á Bournemouth – sem hinsvegar er dottið niður í næstneðsta sætið. Markaveisla hjá City og Agüero  Orðinn markahæstur erlendra AFP Þrenna Sergio Agüero fagnar öðru marki sínu af þremur fyrir Manchester City í stórsigrinum á Aston Villa í gær. Hann setti met með markinu. Útlit er fyrir að Viðar Örn Kjart- ansson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, gangi til liðs við félag í Tyrklandi á næstunni. Rússneska fé- lagið Rostov kallaði hann til baka úr láni hjá Rubin Kazan á laugardaginn og Viðar sagði í viðtali við mbl.is að hann gerði fastlega ráð fyrir að vera seldur frá liðinu í janúarmánuði. Nokkur áhugaverð tilboð hefðu bor- ist frá Tyrklandi og hann reiknaði með að fara þangað. Þá var Viðar um helgina kallaður inn í landsliðs- hópinn fyrir vináttuleikina gegn Kanada og El Salvador í vikunni. Viðar Örn reiknar með Tyrklandi Morgunblaðið/Eggert Flutningar Viðar Örn Kjartansson er á förum frá Rússlandi. Keflavík vann 84:75-sigur á Snæ- felli í framlengdum leik á útivelli í Dominos-deild kvenna í körfubolta í gær. Staðan eftir venjulegan leik- tíma var 72:72. Daniela Wallen skoraði 24 stig fyrir Keflavík og Anna Ingunn Svansdóttir kom af bekknum og skoraði 18 stig. Amarah Coleman skoraði 20 stig fyrir Snæfell og Veera Pirttinen gerði 19. Keflavík er með 22 stig, eins og KR, og eru liðin í öðru og þriðja sæti. Snæfell er í sjötta sæti með átta stig. johanningi@mbl.is Framlengt í Stykkishólmi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stigahæst Daniela Wallen skoraði 24 stig fyrir Keflavík í gær. Ragnar Sigurðsson, landsliðsmið- vörður í knattspyrnu, er kominn aftur til danska félagsins FC Köb- enhavn. Þar var hann kynntur til leiks í gær, en Ragnar hefur samið við félagið um að leika með því næstu sex mánuðina, eða til loka yfirstandandi tímabils. Ragnar var leystur undan samningi hjá Rostov í Rússlandi fyrir jólin. Ragnar lék áður með FCK á ár- unum 2011 til 2013 en var seldur til Krasnodar í Rússlandi í ársbyrjun 2014. Ragnar lék 69 úrvalsdeildar- leiki með FCK og vann með liðinu bæði danska meistaratitilinn og bikarinn. Ragnar fer beint í toppbaráttu því FCK og Midtjylland heyja ein- vígi um meistaratitilinn þar sem Midtjylland er með fjögurra stiga forystu eftir 20 umferðir af 37. Keppni í Danmörku eftir vetrar- fríið hefst 14. febrúar en þá á FCK útileik gegn Esbjerg. Áður en að því kemur leikur liðið æfingaleiki við Halmstad, Astana og Norr- köping. vs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Danmörk Ragnar Sigurðsson kannast vel við sig í Kaupmannahöfn. Ragnar snýr aftur á gamalkunnar slóðir Sexfaldir heimsmeistarar og þre- faldir Evrópumeistarar Frakka eru á heimleið frá Þrándheimi í Noregi og mæta ekki til leiks í milliriðli Evrópukeppni karla í handknattleik í Malmö eins og al- farið var reiknað með. Frakkar eru úr leik eftir annan ósigur sinn í jafnmörgum leikjum í D-riðli EM. Þeir töpuðu mjög óvænt fyrir Portúgölum í fyrsta leik og í gær lögðu Norðmenn þá að velli, 28:26, í æsispennandi leik í Þrándheimi. Norðmenn komu þar með fram hefndum fyrir tapið gegn Frökkum í úrslitaleik HM ár- ið 2017. Sander Sagosen átti stórleik fyr- ir Norðmenn og skoraði 10 mörk og þá var markvörðurinn Torbjörn Bergerud í stóru hlutverki í síðari hálfleiknum. Ísland myndi mæta Noregi og Portúgal Þar með er ljóst að komist ís- lenska liðið í milliriðilinn í Malmö verða bæði Norðmenn og Portú- galar meðal andstæðinga. Slóvenar, með sænska þjálf- arann Ljubomir Vranjes við stjórn- völinn, lögðu Svía, undir stjórn Kristjáns Andréssonar, óvænt í F- riðlinum í Gautaborg, 21:19, í gær. Vranjes er einmitt fæddur í Gauta- borg og var því sannarlega á heimavelli. Allar líkur eru á að Slóvenía og Svíþjóð fari áfram úr F-riðlinum og haldi til Malmö í vikunni, og yrðu þar með hinir tveir andstæð- ingar íslenska liðsins – nái það öðru tveggja efstu sæta E-riðilsins. vs@mbl.is Franska stórveldið á heimleið frá Noregi AFP Tíu Sander Sagosen var í aðal- hlutverki hjá Norðmönnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.