Morgunblaðið - 13.01.2020, Side 27

Morgunblaðið - 13.01.2020, Side 27
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson Rautt spjald Eitt af stóru atvikunum í leik Íslands og Danmerkur í Malmö á laugardaginn. Niklas Landin, markvörður Dana, brýtur á Ólafi Guðmundssyni í hraðaupphlaupi. Ólafur náði samt að skora en Landin, sem er einn af bestu markvörðum heims, fékk rauða spjaldið fyrir brotið. EM 2020 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is  Ísland vann Noreg í fyrsta leik á EM í janúar 2016 í Póllandi en tapaði síðan fyrir Hvíta-Rússlandi og Kró- atíu og var úr leik.  Ísland vann Svíþjóð í fyrsta leik á EM í janúar 2018 í Króatíu en tapaði síðan fyrir Króatíu og Serbíu og var úr leik.  Ísland vann Danmörku í fyrsta leik á EM í janúar 2020 í Malmö en mætir Rússlandi í dag og Ungverja- landi á miðvikudaginn.  Er íslenska landsliðið í handknatt- leik tilbúið til að fylgja eftir þessum magnaða sigri á Dönum á laugardag- inn, 31:30, og tryggja sér annað tveggja efstu sætanna í riðlinum og sæti í milliriðli Evrópukeppninnar?  Er íslenska landsliðið tilbúið til að hrista af sér draug tveggja síðustu móta og stíga næsta skref? Við fáum að sjá vísbendingu um það í Malmö í dag en viðureign Íslands og Rúss- lands hefst þar klukkan 17.15 að ís- lenskum tíma. Leikurinn við Rússa í dag er úr- slitaleikur númer tvö en sigur í hon- um myndi væntanlega ekki tryggja Íslandi sæti í milliriðli. Nema Ung- verjar komi á óvart, fylgi eftir sigr- inum á Rússum, 26:25, og taki stig af Dönum í seinni leik dagsins í Malmö. „Hver leikur á sitt líf,“ sagði ein- hver í kringum þennan Danaleik og það eru orð að sönnu. Í dag mætir ís- lenska liðið allt öðruvísi andstæð- ingum en á laugardaginn, og er ekki lengur „litla liðið“. Eftir sigurinn á Dönum er litið á Ísland sem sigur- stranglegri aðilann í dag. Rússarnir eru með bakið upp við vegginn fræga og vita að allt annað en sigur þýðir að þeir séu á heimleið eftir riðlakeppn- ina. Þeirra möguleikar standa og falla með leiknum í dag. Fyrir Danaleikinn skrifaði ég í Bakverði að þrennt þyrfti að ganga upp til að Ísland ætti möguleika á að komast áfram á EM: Varnarleikur- inn yrði að vera með allra besta móti, markvarslan yrði að vera mjög góð og stöðug og svo yrði Aron Pálmars- son að eiga sitt besta stórmót og draga félagana með sér. Danir réðu ekkert við Aron Óhætt er að segja að þetta hafi gengið eftir á laugardaginn. Aron átti stórleik, skoraði 10 mörk, átti fjölda stoðsendinga og Danir réðu einfaldlega ekkert við hann. Vörn Guðmundar Guðmundssonar gegn sínum gömlu lærisveinum gekk frá- bærlega. Hann hafði undirbúið sína menn af kostgæfni og þeir fylgdu áætluninni og útfærðu hana af stakri snilld. Markvarslan var betri hjá Ís- lendingum en Dönum, varin skot voru ekki tiltakanlega mörg, enda leikurinn þess eðlis að mikið var um dauðafæri, en Björgvin Páll Gúst- avsson og hinn ungi Viktor Gísli Hallgrímsson vörðu á réttu augna- blikunum. Markvarsla Björgvins með fæti í höfuðhæð á lokakaflanum var einn af vendipunktum leiksins. Sigurvegarinn Guðmundur Guðmundur er hinn stóri sigur- vegari laugardagsins. Hann stýrði Íslandi til sigurs á Danmörku, liðinu sem hann gerði að ólympíumeistara en fékk ekki tækifæri til að fara með lengra. Ríkjandi heims- og ólympíu- meistarar voru lagðir á magnaðan hátt í Malmö, í leik sem lengi verður í minnum hafður. En, eins og Guð- mundur sagði á fréttamannafundi í gær, þá verður sigurinn til lítils ef honum verður ekki fylgt eftir. En staða íslenska liðsins er væn- leg. Ekki síst vegna þess að ef allt fer að óskum gæti sú staða komið upp að Ísland fari í milliriðilinn með tvö stig en Danir fari þangað án stiga. Það yrði verulega athyglisverð nið- urstaða. Þá væri Ísland komið í kjör- stöðu til að gera atlögu að sæti í undankeppni Ólympíuleikanna. Skoðum hvað einstakir leikmenn gerðu í Danaleiknum:  Aron Pálmarsson skoraði 10 mörk, lagði upp níu og fiskaði eitt vítakast.  Alexander Petersson skoraði fimm mörk, lagði upp eitt og fiskaði eitt vítakast. Hann skoraði sitt 700. landsliðsmark.  Kári Kristjánsson skoraði fjög- ur mörk og fiskaði tvö vítaköst.  Guðjón Valur Sigurðsson skor- aði fjögur mörk.  Arnór Þór Gunnarsson skoraði tvö mörk, bæði úr vítaköstum.  Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk, bæði úr vítaköstum.  Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark og fiskaði eitt vítakast.  Janus Daði Smárason skoraði eitt mark og átti eina stoðsendingu.  Ólafur Guðmundsson skoraði eitt mark.  Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark.  Viggó Kristjánsson skoraði ekki. Sigvaldi Guðjónsson, Arnar Freyr Arnarsson og Haukur Þrastarson komu ekki við sögu.  Björgvin Páll Gústavsson varði sex skot (25%) og Viktor Gísli Hall- grímsson tvö skot (14,3%). Eru þeir tilbúnir?  Nákvæmlega eins byrjun og á EM 2016 og 2018  Fylgir íslenska liðið eftir mögnuðum sigri á heims- og ólympíumeisturum Dana?  Rússaleikurinn í dag ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020 Eitt ogannað Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Rússar, andstæðingar Íslendinga á Evrópumóti karla í Malmö í dag, byggja á gömlum merg í handbolt- anum. Þeir tóku við af ógnar- sterku liði Sovétríkjanna á sínum tíma og viðhéldu arfleifð þeirra fram yfir aldamótin með því að halda sér í fremstu röð í heiminum en hafa undanfarinn áratug ekki blandað sér í toppbaráttuna á stór- mótunum í íþróttunni. Frá 2006 hafa Rússar ekki kom- ist ofar en í 9. sætið á EM og botn- inum var náð þegar rússneska lið- ið komst ekki í lokakeppni EM í Króatíu árið 2018. Áður hafði rússneska liðið ekki komist á Ól- ympíuleikana 2012 eða 2016, og heldur ekki í lokakeppni HM árið 2011. Lykilmennirnir brugðust Rússar urðu að sætta sig við ósigur gegn Ungverjum, 25:26, í fyrstu umferðinni á laugardaginn. Eduard Koksharov, þjálfari liðsins og stórstjarna á árum áður, sagð- ist eftir leikinn vera mjög óhress með frammistöðu lykilmanna sinna og með markvörsluna, sem var nánast engin. Hinir óreyndu Dmitri Santalov og Sergei Kosoro- tov, sem báðir leika með Medvedi í Rússlandi, hefðu hinsvegar staðið sig vonum framar. Þeir eru báðir rétthentar skyttur. Santalov, sem var markahæstur Rússanna með fimm mörk, er 23 ára og Kosoro- tov, sem skoraði fjögur mörk, er aðeins tvítugur. Koksharov er sjálfur þjálfari norðurmakedónska stórveldisins Vardar Skopje og fimm leikmenn Rússa spila með Vardar. Þar á meðal þrír af reyndustu mönnum liðsins, Pavel Atman (32 ára), Ser- gei Gorbok (37 ára) og Timur Dib- irov (36 ára). Línumaðurinn Gleb Kalarash, sem er engin smásmíði, 2,05 m á hæð, leikur líka með Var- dar Skopje, sem og hinn 31 árs gamli hornamaður Daniil Shishka- rev. Enginn leikmanna Rússa leikur í vesturhluta Evrópu en einn af þeim reyndusti, leikstjórnandinn Dmitri Zhitnikov, er samherji Stef- áns Rafns Sigurmannssonar hjá Pick Szeged í Ungverjalandi. Aðr- ir leika með félagsliðum í Rúss- landi, Úkraínu og Hvíta-Rússlandi. Rússar eru að spyrna sér frá botninum KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Höllin Ak.: Þór Ak. – KR ..................... 19.15 Í KVÖLD! Dominos-deild kvenna Snæfell – Keflavík........................ (frl.) 75:84 1. deild karla Snæfell – Höttur................................... 68:93 Spánn Zaragoza – Tenerife ......................... 99:111  Tryggvi Snær Hlinason skoraði sjö stig fyrir Zaragoza, tók eitt frákast og átti eina stoðsendingu á 17 mínútum. Þýskaland Bikarkeppnin, undanúrslit: Bamberg – Alba Berlín....................... 66:82  Martin Hermannsson skoraði átta stig og gaf þrjár stoðsendingar fyrir Alba Berl- ín en hann lék í 18 mínútur. Bretland Essex Rebels – Leicester Riders ....... 65:96  Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 13 stig fyrir Leicester, tók fimm fráköst og átti fjórar stoðsendingar á 13 mínútum. KÖRFUBOLTI  Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, landsliðskona í handknattleik, var í að- alhlutverki hjá Bourg-De-Péage í gær þegar liðið vann mikilvægan útisigur á Merignac, 23:21, í frönsku 1. deildinni. Hún skoraði sex mörk í leiknum. Bourg-De-Péage er í hörðum slag um að komast í átta liða úrslitin um franska meistaratitilinn en liðið er í ní- unda sæti eftir fjórtán umferðir af 22, tveimur stigum á eftir Nice og Dijon sem eru í sjöunda og áttunda sæti.  Martin Hermannsson er kominn í þýsku bikarúrslitin í körfuknattleik með Alba Berlín annað árið í röð eftir öruggan útisigur á Bamberg í gær, 82:66. Martin var hvíldur allan síðari hálfleikinn en hann hafði þá skorað átta stig og átt þrjár stoðsendingar í fyrri hálfleiknum. Alba tapaði fyrir Bamberg í úrslitaleik keppninnar í fyrra.  Framherjinn reyndi Luis Suárez leikur ekki með spænska knatt- spyrnuliðinu Barcelona næstu mán- uðina en hann gekkst í gær undir upp- skurð á hné. Hann hefur skorað 14 mörk í spænsku 1. deildinni í vetur og lagt upp flest mörk allra, sjö talsins.  Kristín Erna Sigurlásdóttir knatt- spyrnukona frá Vestmannaeyjum er gengin til liðs við KR og hefur samið við félagið til tveggja ára. Kristín er 28 ára gömul og hefur skorað 44 mörk í 122 leikjum í efstu deild, þar af 42 mörk í 104 leikjum fyrir ÍBV, en hún lék einnig eitt tímabil með Fylki. KR hefur styrkt sig vel í vetur en Lára Krist- ín Pedersen og Þórdís Hrönn Sigfús- dóttir, sem báð- ar léku með Þór/ KA á síðasta tímabili, eru einnig komnar í Vesturbæinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.