Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
„EKKI HORFA Á MIG! HORFÐU BEINT
FRAM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að synda með
höfrungum.
„KÆRA SPYRÐU HUNDINN,
HVÍ ERT ÞÚ TILVALINN
VARÐHUNDUR?”
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
ÞAÐ ER HARLA
ÓLÍKLEGT AÐ ÞAÐ
SÉ VÖÐVAMASSINN
ÞESSI GULLSEKKUR ER FYRIR
HVERN ÞANN SEM FÆRIR MÉR
KRÚNU KONUNGSINS!
SKATTTEKJUR VORU MEÐ
MINNSTA MÓTI Í ÁR!
HRIFS
„ÞETTA HINDRAR KVÍÐAKÖST VEGNA
ÓVÆNTRA LYFJAPRÓFANA VEGNA FYRRI
MISNOTKUNAR.”
12.2. 1983, húsfreyja á Hólmavík,
síðast búsett í Reykjavík.
Börn Einars eru 1) Guðný Ein-
arsdóttir, f. 26.4. 1969, verkefnastjóri
í fjármálaráðuneytinu, búsett í
Reykjavík. Börn hennar eru Týr
Théophile Norðdahl og Edda Clar-
isse Norðdahl. Móðir Guðnýjar var
Edda Sigurbjörg Sigurðardóttir, f.
12.6. 1942, 28.12. 2010, lífeindafræð-
ingur. Synir Einars og Sólveigar eru
2) Hákon Einarsson, f. 31.3. 1971 í
Reykjavík, verkefnastjóri í bygg-
ingaiðnaði, búsettur í Noregi. Maki:
Ira Ojala, jarðeðlisfræðingur. Börn
þeirra eru Matilda Emilia Ojala Há-
konardóttir og Einar Ojala Hákonar-
son; 3) Hjálmar Einarsson, f. 5.8.
1975, kvikmyndagerðarmaður, bú-
settur á Hólmavík.
Systkini Einars: Magnús Há-
konarson, bróðir samfeðra, f. 6.10.
1940, d. 9.4. 2015, smiður í Reykja-
vík; Guðný Hákonardóttir, f. 11.10.
1943, d. 7.11. 2008, húsfreyja á
Skammbeinsstöðum í Holtum,
Rang., síðar í Kópavogi og í Reykja-
vík; Ingibjörg Hákonardóttir, f. 3.9.
1947, d. 1.7. 2013, hjúkrunarfræð-
ingur í Reykjavík; Svanhildur K. Há-
konardóttir, f. 5.9. 1958, leikskóla-
kennari, búsett í New Jersey, BNA;
og Edda Björg Björgvinsdóttir, f.
25.6. 1960, förðunarfræðingur, bú-
sett í Reykjavík.
Foreldrar Einars voru Hákon
Sumarliðason, f. 15.7. 1918 í Torfa-
staðakoti í Biskupstungum, d. 17.7.
2003, leigubílstjóri í Reykjavík, og
Sigurbjörg Einarsdóttir, f. 28.5. 1921
í Hafnarfirði, d. 30.8. 1997, húsfreyja
í Reykjavík og Kópavogi. Þau skildu.
Seinni eiginmaður Sigurbjargar var
Björgvin Gestsson, f. 10.11. 1923, d.
22.1. 2012, múrari, búsettur í
Reykjavík og Kópavogi.
Einar Hákonarson
Ingibjörg Magnúsdóttir
húsfreyja í Akurhúsum, f. á
Efrahvoli, Hvolhr., Rang.
Sigurður Sæmundsson
útgerðarmaður í Akurhúsum í Gerðahr., Gull., frá Vatnagarði
Svanhildur Ragnheiður Sigurðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sigurbjörg Einarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík og Kópavogi
Einar Ingvar Eiríksson
vélstjóri í Reykjavík
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja í Dúkskoti í Rvík,
f. á Völlum á Kjalarnesi
Eiríkur Helgi Eiríksson
stýrimaður í Dúkskoti í Rvík, f. á Melum í Mosfellssveit
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja í Heysholti og
Haukadal, f. á Heiði í Holtum
Kristján Guðmundsson
bóndi í Heysholti í
Landsveit og Haukadal
á Rangárvöllum, f.
Eskiholti í Landsveit
Guðný Kristjánsdóttir
húsfreyja í Litla-Hvammi í Reykjavík
Sumarliði Grímsson
bóndi og sjómaður í Litla-Hvammi í Reykjavík
Helga Guðmundsdóttir
bústýra á Torfastöðum,
í Ásakoti og Úthlíð, f. á
Brekku í Biskupstungum
Grímur Guðmundsson
bóndi á Torfastöðum í Biskupstungum, síðar bústjóri í Ásakoti
og húsmaður Úthlíð, f. á Kjaransstöðum í Biskupstungum
Úr frændgarði Einars Hákonarsonar
Hákon Sumarliðason
leigubílstjóri í Reykjavík
Á laugardag unnu Íslendingarsigur á Dönum í handbolta,
„þessi varð til eftir leikinn,“ sagði
Helgi R. Einarsson:
Nú Baunana ekki ég býð í,
þeir bugaðir híðin sín skríð’ í.
Gummi þá þekkti
og þess vegna hvekkti.
Þar lágu Danirnir í ’ðí.
Af sama tilefni segir Guðmundur
Arnfinnsson á Boðnarmiði: Aron
Pálmarsson var stjarna leiksins og
Guðmundur landsliðsþjálfari, sem
gerði Dani að ólympíumeisturum,
en fékk litlar þakkir frá þeim, get-
ur sagt: „Sá hlær best, sem síðast
hlær“:
Íslendingar unnu Dani,
ört nú þjóðar hjartað slær,
handbolta á hæsta plani
háðan sáum við í gær.
Aron Pálmars óstöðvandi
ekki Dönum vægði par.
Hansen okkar erkifjandi
ofurliði borinn var.
Gummi var að vonum hreykinn,
vopn úr höndum Dana sló.
Illa förnum eftir leikinn
að þeim best og síðast hló.
Sigurjóna Björgvinsdóttir sagði
„Danir töpuðu“ og orti:
Að vera tapsár er erfitt oft
og aldrei sýnist það gott
en fyrir Íslandi að tapa
er eins og að hrapa
í sjóðheitan sultupott.
Gylfi Þorkelsson kvað:
Danskerne er dårlig glad, men drengir
góðir.
Yfirkeyrðir, andlitsrjóðir.
Okkar núna minnsti bróðir.
Íslendingar aftur standa öllum betri.
Alveg bjargað þessum vetri ...
Jón Gissurarson segir að það sé
sérstök unun að vinna Dani í hand-
bolta:
Handbolti á háu plani
heillar sérhvern dreng.
Nú var sætt að sigra Dani
settum þá í keng.
Gústi Mar bætti við:
Gleðst mitt hjarta og gömul sál
ég gala eins og hani.
Ávallt í mér æsist bál
er við leggjum Dani.
Gunnar Hólm Hjálmarsson:
Í leiknum Danir fóru flatt
féllu af háum stalli
er Frónbúarnir umfram allt
Íslands hlýddu kalli.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sigur á Dönum