Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020
HANDBOLTI
EM karla 2020
A-RIÐILL, Graz:
Svartfjallaland – Hvíta-Rússland ....... 27:36
Serbía – Króatía ................................... 21:24
Lokastaðan:
Króatía 3 3 0 0 82:65 6
Hvíta-Rússland 3 2 0 1 94:88 4
Svartfjallaland 3 1 0 2 70:84 2
Serbía 3 0 0 3 72:81 0
Króatía og H-Rússland fara í milliriðil.
B-RIÐILL, Vín:
Staðan:
Austurríki 2 2 0 0 66:59 4
Tékkland 2 1 0 1 56:57 2
N-Makedónía 2 1 0 1 51:52 2
Úkraína 2 0 0 2 55:60 0
Lokaumferðin í dag:
17.15 Austurríki – Norður-Makedónía
19.30 Úkraína – Tékkland
C-RIÐILL, Þrándheimi:
Holland – Spánn .................................. 25:36
Erlingur Richardsson þjálfar Holland.
Lettland – Þýskaland........................... 27:28
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson
dæmdu leikinn.
Lokastaðan:
Spánn 3 3 0 0 102:73 6
Þýskaland 3 2 0 1 88:83 4
Holland 3 1 0 2 80:94 2
Lettland 3 0 0 3 73:93 0
Spánn og Þýskaland fara í milliriðil.
D-RIÐILL, Þrándheimi:
Staðan:
Noregur 2 2 0 0 60:52 4
Portúgal 2 2 0 0 55:49 4
Frakkland 2 0 0 2 51:56 0
Bosnía 2 0 0 2 50:59 0
Noregur og Portúgal fara í milliriðil.
Lokaumferðin í dag:
17.15 Bosnía – Frakkland
19.30 Portúgal – Noregur
E-RIÐILL, Malmö:
Ísland – Rússland................................. 34:23
Danmörk – Ungverjaland.................... 24:24
Staðan:
Ísland 2 2 0 0 65:53 4
Ungverjaland 2 1 1 0 50:49 3
Danmörk 2 0 1 1 54:55 1
Rússland 2 0 0 2 48:60 0
Í lokaumferðinni á morgun leikur Ísland
við Ungverjaland kl. 17.15 og Danmörk við
Rússland kl. 19.30.
F-RIÐILL, Gautaborg:
Staðan:
Slóvenía 2 2 0 0 47:42 4
Svíþjóð 2 1 0 1 53:42 2
Sviss 2 1 0 1 52:58 2
Pólland 2 0 0 2 47:57 0
Lokaumferðin í dag:
17.15 Sviss – Slóvenía
19.30 Pólland – Svíþjóð
Dominos-deild karla
Þór Ak. – KR...................................... frestað
NBA-deildin
Washington – Utah .......................... 116:127
New York – Miami ........................... 124:121
Toronto – San Antonio ..................... 104:105
Memphis – Golden State.................. 122:102
Brooklyn – Atlanta............................. 108:86
Denver – LA Clippers...................... 114:104
Phoenix – Charlotte ........................... 100:92
Staðan í Austurdeild:
Milwaukee 35/6, Boston 26/11, Miami 27/12,
Toronto 25/14, Philadelphia 25/15, Indiana
24/15, Brooklyn 18/20, Orlando 18/21,
Charlotte 15/27, Chicago 14/26, Detroit 14/
26, Washington 13/26, Cleveland 12/27,
New York 11/29, Atlanta 8/32.
Staðan í Vesturdeild:
LA Lakers 32/7, Denver 27/12, Utah 27/12,
Houston 26/12, LA Clippers 27/13, Dallas
24/15, Oklahoma 22/17, Memphis 18/22,
San Antonio 17/21, Phoenix 16/23, Portland
16/24, Minnesota 15/23, Sacramento 15/24,
New Orleans 14/26, Golden State 9/32.
KÖRFUBOLTI
Ítalía
Parma – Lecce .......................................... 2:0
Staðan:
Juventus 19 15 3 1 37:18 48
Inter Mílanó 19 14 4 1 40:16 46
Lazio 18 13 3 2 41:17 42
Atalanta 19 10 5 4 49:26 35
Roma 19 10 5 4 34:21 35
Cagliari 19 8 5 6 33:29 29
Parma 19 8 4 7 26:25 28
Torino 19 8 3 8 25:26 27
Hellas Verona 18 7 4 7 21:21 25
AC Milan 19 7 4 8 18:24 25
Napoli 19 6 6 7 28:26 24
Udinese 19 7 3 9 17:28 24
Bologna 19 6 5 8 28:31 23
Fiorentina 19 5 6 8 23:29 21
Sassuolo 19 5 4 10 30:34 19
Sampdoria 19 5 4 10 19:28 19
Lecce 19 3 6 10 22:38 15
Genoa 19 3 5 11 20:38 14
Brescia 19 4 2 13 17:36 14
SPAL 19 3 3 13 12:29 12
KNATTSPYRNA
slíku sem kallar á mikla þolinmæði
og einbeitingu í vörn. Þar af leiðandi
var lykilatriði fyrir íslenska liðið að
ná fljótt góðu forskoti og þá þurftu
Rússar að flýta sér og högnuðust
ekki á því að spila langar sóknir.
Íslenska liðið missti aldrei damp-
inn í langan tíma í leiknum og fyrir
vikið tókst Rússum ekki að hleypa
spennu í leikinn í síðari hálfleik.
Okkar menn unnu því af fag-
mennsku úr þeirri góðu stöðu sem
upp var komin. Þeir hættu aldrei að
keyra hratt á Rússana þegar færi
gafst og bitið í vörninni hélst beitt og
þurfti ekki að brýna aftur
Lokakaflinn var skemmtilegur
þegar ferskir menn komu inn á af
varamannabekknum og juku við for-
skotið. Fóru með það upp í ellefu
mörk eins og úrslitin sýna.
Allir hafa komið við sögu
Eftir fyrstu tvo leikina hefur ís-
lenska liðið ekki sýnt nein alvarleg
veikleikamerki í mótinu. Liðið hefur
útfært fyrstu tvo leikina geysilega
vel. Þá er afskaplega jákvætt að allir
leikmennirnir hafa komið við sögu í
mótinu. Allir eru því búnir að ná úr
sér hrollinum sem fylgt getur fyrstu
mínútunum á stórmóti.
Sjálfstraustið er augljóslega mjög
gott því þeir sem komu inn á af vara-
mannabekknum í gær voru mjög
sprækir. Viggó Kristjánsson kom
inn á í skyttustöðuna hægra megin
þegar korter var eftir og var valinn
maður leiksins af mótshöldurum eft-
ir að hafa brotist í gegnum vörn
Rússa hvað eftir annað.
Um leið fékk Alexander Peters-
son dýrmæta hvíld. Sá kemur endur-
nærður úr fjögurra ára fríi frá lands-
liðinu. Hefur verið mjög öflugur
bæði í vörn og sókn. Gegn Rússum í
gær var Alexander enn aðgangs-
harðari í sókninni en hann var gegn
Dönum í fyrsta leik.
Guðmundur er meðvitaður um að
nýta þarf leikmannahópinn vel ef lið-
ið á að komast langt í mótinu. Liðin
sem komast í milliriðil leika nú fjóra
leiki í milliriðli en ekki þrjá eins og
áður. Liðin sem leika um verðlaun
leika því sjö leiki áður en kemur að
leikjunum í undanúrslitum.
Guðmundur lét Guðjón Val og
Arnór leika 60 mínútur í hornunum
gegn Danmörku en gegn Rússum
léku Bjarki Már og Sigvaldi Björn í
60 mínútur í hornunum. Báðir
minntu þeir hressilega á sig.
Danir treysta á Íslendinga
Þau tvö lið sem komast áfram í
milliriðil taka með sér stigin úr inn-
byrðisviðureign liðanna. Stigin gegn
liðunum sem falla úr keppni eru ekki
tekin með í milliriðil. Takist Íslandi
að vinna Ungverjaland eru líkur á
því að Danmörk fari með Íslandi í
milliriðil. Þá tæki Ísland með sér tvö
stig en Danmörk ekkert. Tapi Ísland
fyrir Ungverjalandi fara Ungverjar
áfram með tvö stig en Ísland ekkert.
Sú staða er komin upp að Danir
þurfa að treysta á að Íslendingar
vinni Ungverja. Íslenska liðið mun
því fá gífurlegan stuðning danskra
áhorfenda í leiknum á morgun.
Áður
óþekkt
staða á EM
Ísland áfram í milliriðil Aldrei fyrr
hefur Ísland unnið fyrstu tvo leiki sína
EM 2020
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ísland er öruggt um sæti í milliriðli í
Malmö á EM karla í handknattleik
þótt liðið eigi einn leik eftir í riðl-
inum. Jafntefli Ungverja og Dana í
gær gerði það að verkum að Dan-
mörk getur ekki náð Íslandi að stig-
um í riðlakeppninni.
Allt hefur gengið að óskum hjá ís-
lenska landsliðinu í fyrstu tveimur
leikjunum og jafnvel rúmlega það. Í
fyrsta skipti hefur Ísland unnið
fyrstu tvo leiki sína í lokakeppni
EM, hvort sem það er í handbolt-
anum eða öðrum boltagreinum.
Þjálfarinn og landsliðsmennirnir
lögðu á það áherslu að gleyma sér
ekki yfir frammistöðunni gegn Dön-
um heldur einbeita sér að leiknum
gegn Rússlandi. Sérstaklega gerði
Kári Kristján Kristjánsson það eft-
irminnilega í viðtali á RÚV.
Vitaskuld reyndist innistæða fyrir
þeim málflutningi því íslensku leik-
mennirnir voru geysilega einbeittir
gegn Rússlandi í gær. Ágengir í
vörn og agaðir í sókn náðu þeir strax
afgerandi frumkvæði í leiknum. Kné
var látið fylgja kviði og forskotið var
mest níu mörk áður en flautað var til
leikhlés. Að loknum fyrri hálfleik var
staðan 18:11.
Lendi lið eins og Ísland í jöfnum
leik gegn liði eins og Rússlandi get-
ur það reynt á þolrifin. Rússar eiga
það til að spila langar sóknir og
hanga á boltanum, hafa gott vald á
Bæði Ungverjar og Danir gengu
vonsviknir af velli eftir að lið þeirra
skildu jöfn, 24:24, í seinni leik gær-
kvöldsins í E-riðli Evrópumóts
karla í handknattleik frammi fyrir
12 þúsund áhorfendum í Malmö.
Úrslitin tryggðu Íslandi sæti í
milliriðli og þýða að Danir verða að
treysta á að Íslendingar vinni Ung-
verja til að ná öðru sæti riðilsins.
Að öðrum kosti hafa þeir lokið
keppni á EM eftir leik sinn við
Rússa annað kvöld.
Ungverjar voru yfir nær allan
leikinn en Dönum tókst að jafna og
ná eins marks forystu í fyrsta sinn í
leiknum, 24:23, þegar þrjár mín-
útur voru eftir. Zoltán Szita jafnaði
og löng sókn Dana á lokamínútunni
skilaði þeim ekki marki. Ungverjar
fengu nokkrar sekúndur til að
skora sigurmark en komust ekki í
færi til þess og Danir sluppu því
fyrir horn. Magnús Bramming
skoraði sex mörk fyrir Dani en
Zsolt Balogh skoraði sjö mörk fyrir
Ungverja sem mæta Íslendingum á
morgun. vs@mbl.is
AFP
Hafnfirðingur Hans Óttar Lindberg skorar eitt af mörkum Dana í gær.
Tvöföld vonbrigði en
Íslendingar fögnuðu
Erlingur Richardsson lauk keppni á
EM karla í handknattleik í gær-
kvöld þegar hollenska landsliðið
undir hans stjórn tapaði fyrir Evr-
ópumeisturum Spánverja, 25:36, í
lokaumferð C-riðilsins í Þránd-
heimi.
Hollendingar þurftu að sigra
hina firnasterku andstæðinga sína
með miklum mun til að fara áfram
og það var aldrei möguleiki. Þeir
fara hinsvegar heim reynslunni rík-
ari með einn átta marka sigur á
Lettum í pokahorninu. Kay Smits
skoraði átta mörk fyrir Hollend-
inga og Luc Steins, leikstjórnand-
inn smái en knái, gerði fimm mörk.
Jorge Maqueda var atkvæðamestur
Spánverja með sex mörk.
Þýskaland vann Lettland naum-
lega, 28:27, í leik sem litlu máli
skipti.
Spánn og Króatía með tvö stig í
milliriðil
Spánn fer með tvö stig í millirið-
ilinn en Þýskaland ekkert. Þar
verður einnig Króatía með tvö stig
og Hvíta-Rússland án stiga. Í dag
skýrist svo hvaða tvö lið úr B-riðli
fara í milliriðilinn en þar eru Aust-
urríki, Tékkland, Norður-
Makedónía og Úkraína í baráttu um
sætin tvö.
Þegar er ljóst að Ísland, Noregur
og Portúgal verða í milliriðli tvö
sem leikinn verður í Malmö og hefst
á föstudaginn. Slóvenía og Svíþjóð
fara væntanlega þangað en þó gæti
Sviss mögulega náð öðru sætanna.
Sjötta liðið í riðlinum verður síðan
Ungverjaland eða Danmörk.
vs@mbl.is
Erlingur fór heim af
EM með einn sigur
AFP
Holland Erlingur Richardsson hef-
ur lokið keppni á EM.