Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
Ferðamenn sem komu að skoða
Litlu hafmeyjuna í Kaupmannahöfn
í gærmorgun tóku eftir því að búið
var að úða með rauðu og hvítu á
steininn sem hafmeyjan situr á.
Skilaboðin voru skýr; „Frelsið Hong
Kong“ og greinilega vísað þar til
baráttu íbúa í Hong Kong fyrir
auknu sjálfstæði gagnvart Kína.
Þetta er vissulega ekki í fyrsta
skiptið, og eflaust ekki það síðasta,
sem Litla hafmeyjan verður fyrir
barðinu á skemmdarvörgum.
Síðan styttan var reist árið 1913
hefur hún verið afhöfðuð, þakin
veggjakroti og bönnuð á Facebook
vegna nektar sinnar
Hafmeyjan hefur verið mjög vin-
sæl meðal kínverskra ferðamanna,
að því er BBC greindi frá. Árið 2010
var styttan hluti af framlagi Dana til
heimssýningarinnar í Sjanghæ.
AFP
Skilaboð Litla hafmeyjan fékk aldeilis að kenna á því í gærmorgun.
Skilaboð máluð á
Litlu hafmeyjuna
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Fyrsti maðurinn er látinn úr öndunar-
færasjúkdómi sem ný veira er talin
hafa valdið, en hún er af sömu veiru-
fjölskyldu og SARS-veiran sem kost-
aði hundruð mannslífa fyrir rúmum
áratug. Hafa rúmlega fjörutíu manns
sýkst af veirunni í borginni Wuhan í
miðhluta Kína, að sögn heilbrigðis-
yfirvalda borgarinnar.
Í gær staðfesti svo Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin (WHO) að fyrsta til-
felli nýja sjúkdómsins af þessari sömu
veiru væri komið upp í Taílandi, í ein-
staklingi sem nýkominn var frá Wuh-
an. Var talið í fyrstu að hann væri með
væga lungnabólgu en rannsóknir á
sýni leiddu svo í ljós smit af völdum
kórónaveirunnar nýju, að sögn tals-
manns WHO. Stofnunin sagðist í gær
hafa fengið upplýsingar um að Taí-
lendingurinn væri á batavegi.
Sá eini sem látinn er var 61 árs, en
auk hans eru sjö til viðbótar alvarlega
veikir. Maðurinn var með undir-
liggjandi heilsuvanda, þar á meðal
króníska lifrarveiki. Vegna afleiðinga
SARS-veirunnar hefur þessi atburður
vakið ótta, en veiran sú kostaði 349
manns lífið á meginlandi Kína 2002-
2003. Til viðbótar létust 299 í Hong
Kong og fældi veikin ferðamenn í
stórum stíl frá því að heimsækja
landið.
Ný kórónaveira
Kínverskir vísindamenn sem rann-
saka nýju veikina sögðust fyrir helgi
telja að sýkill hennar væri nýtt af-
brigði kórónaveiru; af fjölskyldu veira
sem valda allt frá venjulegu kvefi til
alvarlegri sjúkdóma eins og bráða-
lungnabólgunnar SARS. Veiruna að
baki nýju veikinni orsakaði ný kórón-
aveira sem væri frábrugðin þeim kór-
ónaveirum sem orsökuðu SARS í Suð-
ur-Kína og fleiri löndum á árunum
2002-2003 og MERS-öndunarfæra-
sjúkdóminn sem greinst hefur í Mið-
Austurlöndum frá 2012.
Báðar þessar sýkingar hafa dregið
mörg hundruð einstaklinga til bana.
Ekkert bóluefni er til við sýkingunni
og engin veirulyf. Vísindamenn í
Hong Kong sögðu að erfðalykill veir-
unnar sem fannst í sjúklingum í Wuh-
an benti til þess að 80% skyldleiki
væru með henni og kórónaveirunnar
sem fundist hefði í leðurblökum.
Smituðust á matarmarkaði
Í tilkynningu frá embætti íslenska
landlæknisembættisins í gær segir
að bæði WHO og Sóttvarnastofnun
Evrópusambandsins (ECDC) hafi
vakið athygli á hópsýkingu lungna-
bólgu í Wuhan-borg í Suður-Kína að
undanförnu. Á tímabilinu 31. desem-
ber 2019 til dagsins í dag hafi sýk-
ingin verið staðfest hjá 41 einstak-
lingi og einn látist. Allir virðast hafa
smitast á matarmarkaði í Wuhan en
ekkert smit á milli manna hefur ver-
ið staðfest.
Sóttvarnalæknir segir enga
ástæðu að svo stöddu til neinna sér-
tækra aðgerða og ekki ástæða til
ferðatakmarkana til suðurhluta
Kína. Einstaklingar sem aftur á móti
koma hingað til lands frá Wuhan-
borg með kvef, hósta og hita eru
beðnir að upplýsa heilbrigðisstarfs-
menn um ferðir sínar. Ekki er þörf á
að allir einstaklingar leiti til
heilbrigðiskerfisins sem nýlega hafa
verið í Kína og fá kvef eða hósta,
heldur einungis þeir sem veikjast al-
varlega eða hafa áhyggjur af veik-
indum sínum. Upplýsingum um
veikindin í Kína hefur verið dreift til
heilsugæslunnar og til smitsjúk-
dómalækna.
Milljónir á faraldsfæti
Almennir frídagar samkvæmt kín-
verska tímatalinu eru að ganga í garð
og eru Kínverjar þá á faraldsfæti svo
skiptir hundruðum milljóna manna.
Óttast embættismenn aukna sýking-
arhættu í mannmergðinni sem þá
myndast á samgöngumiðstöðvum.
Yfirvöld í Peking hafa þó ekki séð
ástæðu enn sem komið er til að tak-
marka ferðalög eða ráða fólki frá
þeim.
Talsmaður WHO sagði í gær að
stofnunin kynni að efna bráðlega til
sérstaks neyðarfundar vegna út-
breiðslu nýju veirunnar.
Veira lík SARS
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfestir fyrsta tilfelli sýkingar af völdum
nýrrar veiru í Taílandi. Tugir hafa sýkst af völdum sömu veiru í Kína
Wuhan
Einstaklingur
sem kom frá
Wuhan fluttur
á sjúkrahús 8. janúar
eftir að hafa greinst
með væga lungnabólgu
K Í N A
T A Í L A N D
41 hefur greinst með
nýju veiruna
1 lést 9. janúar
BEIJING
BANGKOK
FP
Rannsókn Starfsmenn heilbrigðisyfirvalda í Wuhan rannsaka matarmarkað í borginni en talið er að rekja megi veirusmit sem veldur lungnabólgu þangað.
Ný veira í Kína veldur lungnabólgu
Hópsýking lungnabólgu í Kína af völdum nýrrar veiru sem ekkert bóluefni er til við Líkist
SARS-veirunni sem kostaði mörg hundruð mannslíf 2002 og 2003 Eitt tilfelli staðfest í Taílandi