Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 Dansleikur Listaverk Þorbjargar Pálsdóttur við Perluna vekur jafnan áhuga þeirra sem þangað koma. Sumir taka jafnvel dansspor en þessir gestir létu sér nægja að virða umhverfið fyrir sér. Kristinn Magnússon Undirritaður mun sýna fram á í nokkrum greinum að framin hafa verið alvarleg stjórn- sýslubrot þar sem stærstu laxeldisfyr- irtæki Íslands höfðu mikla aðkomu að breyt- ingu nýgerðra fiskeld- islaga. Síðastliðið vor var öllum alþingismönnum sent bréf þar sem m.a. var vakin athygli á vinnubrögðum starfshóps sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra um stefnumótun í fisk- eldi. Starfshópurinn skilaði skýrslu 23. ágúst 2017. Þær breytingar sem Alþingi samþykkti síðastliðið vor að gera á lögum nr. 71/2008 um fiskeldi byggðust að mestu leyti á skýrslu starfshópsins. Undirritaður gerði al- varlegar athugasemdir við vinnu- brögð fyrrnefnds starfshóps og vakti athygli á því að þau kynnu í ákv. til- vikum að fara gegn ákvæðum stjórn- sýslulaga. Ferlið fram að þessu Það hafa verið reyndar ýmsar leið- ir til að ná framgangi í málið: 1. Hinn 29. mars 2019 voru sendar athugasemdir til Al- þingi Íslands vegna frumvarps til laga um breytingar á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi. 2. Hinn 20. maí 2019 var sendur tölvupóstur til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþing- is og óskað eftir opin- berri úttekt vegna þeirra alvarlegu ann- marka á vinnubrögðum starfshóps um stefnu- mótun í fiskeldi. Allir alþingismenn fengu afrit af póst- inum. Beiðni um opinbera úttekt hef- ur síðan verið ítrekuð nokkrum sinn- um við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd án árangurs. 3. Hinn 28. maí 2019 var send beiðni til Umboðsmanns Alþingis og óskað eftir opinberri úttekt. 4. Hinn 11. júní 2019 var send fréttatilkynning til fjölmiðla og þar sem þeir voru hvattir til að kynna sér málið vel og jafnframt að viðhafa fag- lega og góða rannsóknarblaða- mennsku við umfjöllun sína um þetta mál. 5. Hinn 17. október 2019 var byrj- að að auglýsa í fjölmiðlum og kallað eftir viðbrögðum frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. 6. Hinn 10. desember 2019 var send ítrekun til Umboðsmanns Al- þingis um opinbera úttekt og jafn- framt bent á vafasöm vinnubrögð stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Hver tekur út vinnubrögð nefnda Alþingis? Sendir hafa verið fjölmargir tölvu- póstar til stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar og jafnframt auglýst eftir viðbrögðum í fjölmiðlum án þess að þeim hafi verið svarað sem er ámæl- isvert og hvorki í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga né vandaða stjórnsýsluhætti. Umboðsmanni Al- þingis var bent á vinnubrögð stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar og í svari hans kemur fram að embættið hafi ekki heimild til að taka störf nefndarinnar til athugunar og lagði til að leitað væri til Alþingis með at- hugasemdirnar. Samskipti við Al- þingi hafa fram að þessu ekki skilað miklum árangri og eru ekki miklar væntingar um að breyting verði á því. Það á að reyna að þegja málið í hel Umboðsmaður Alþingis hefur sýnt þá kurteisi að svara en það sama er ekki hægt að segja um stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd. Viðbrögð stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vekja eiginlega meiri undrun en mál- ið sjálft og vakna spurningar um hvaða vinnu- og siðarreglum nefndin vinnur eftir. Snemma var ákveðið í minni vinnu að fara hefðbundnar leiðir til að koma mínum at- hugasemdum á framfæri. Allir eiga að hafa sömu möguleika á að koma sínum athugasemdum á framfæri óháð bakgrunni eða tengslum í gegn- um formlega ferla. Of mikil tengsli skapa of mikla nánd og geta stuðlað að óheppilegu hagsmunapoti og spill- ingu. Óheppilegt ferli Það var svo sem búið að vara höf- und við því að lítil eða engin viðbrögð fengjust, m.a. af stjórnmálafræð- ingum. Það var þó ákveðið að láta á málið reyna. Í umræðunni var bent á að það eina sem dygði væri að stíga fram og fá kröftuga umfjöllun um málið í fjölmiðlum. Það var þó ákveð- ið að reyna að halda sig við mál- efnalega umræðu án æsifrétta- mennsku. Þar sem fjölmiðlar hafa ekki viljað taka að sér rannsókn- arblaðamennsku um þetta mál hefur höfundur ákveðið að taka það hlut- verk að sér. Skrifa greinar í fjölmiðla til að upplýsa almenning, stjórn- sýsluna og vonandi einhverja stjórn- málamenn. Þessi greinaskrif geta því miður haft neikvæð skammtímaáhrif á íslenskt fiskeldi en það er mín skoðun að ýmislegt þurfi að segja sem mun hafa jákvæð áhrif á grein- ina til lengri tíma litið. Greinaskrif Fyrst í stað verður áhersla á að taka fyrir vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð til að tryggja ákveðnum að- ilum fjárhagslegan ávinning. Á seinni stigum verður m.a. fjallað um umhverfismál sem tengjast breyt- ingum á fiskeldislögunum. Stað- reyndin er sú að með breytingum á lögum á fiskeldi stöndum við að baki nágrannalöndum í umhverfismálum þó að öðru sé haldið fram af sumum stjórnmálamönnum. Eftir Valdimar Inga Gunnarsson » Framin hafa verið alvarleg stjórnsýslu- brot þar sem stærstu laxeldisfyrirtæki Íslands höfðu mikla aðkomu að breytingu nýgerðra fiskeldislaga. Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdimar@sjavarutvegur.is Sjókvíaeldi laxfiska – Vinnubrögð stjórnmálamanna og stjórnsýslunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.