Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir OPINN BORGARAFUNDUR – SAMGÖNGUMÁL Hvers vegna eru samgöngur í ólesti á höfuðborgarsvæðinu? Boðað er til fundar þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, mun fjalla m.a. um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu. Fundur Miðflokksdeildar Mosfellsbæjar verður haldinn þriðjudaginn 14. janúar næstkomandi kl. 20:00 í skátaheimili Mosverja í Álafosskvosinni Miðflokksdeildin Mosfellsbæ ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, verður gestur á hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn 15. janúar kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Þar mun hann ræða um horfur í efnahagsmálum á nýju ári Húsið opnar kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1000 krónur. Allir velkomnir. Með kveðju, stjórnin. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:30-12:30, nóg pláss - Hreyfi- salurinn er opinn milli 9:30-11:30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur - Boccia kl.10:15 - Bíó í miðrými kl.13:00 - Tálgað í tré kl.13:00 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir Áskirkja Við spilum Félagsvist í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar, klukkan 20 Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju Boðinn Leikfimi kl.10.30, Fuglatálgun kl.13.00, Bridge kl.13.00, Kanasta k.13.00 Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Saumastofan kl. 10:30, ýmislegt í farvatninu. Morgunkaffi kl. 10-10:30. Boccia 10:40- 11:20. Leshópur kl. 13:00. Opið kaffihús kl. 14:30-15:15. Leikfimi með Silju kl. 13-13:40. Qi-gong kl. 17:00-18:00. Bústaðakirkja Félagsstarfið hefst á miðvikudaginn kl 13:00. Handavinna, spil, framhaldssaga og prestur verður með hugleiðingu og bæn. Jónas Þórir kantor kemur og spilar okkur inn í nýja árið. Kaffið góða frá Sigurbjörgu verður á sínum stað. Hlökkum til að sjá ykkur. Dalbraut 18-20 Félagsvist í borðsal. Handavinnusamvera í vinnustofu Dalbraut 27 Jóhanna María verður með samverustund kl. 14. Þorgils Hlynur leiðir bænastund í bókaherbergi kl. 9:30. Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12. Boðið upp á súpu og brauð eftir stundina á vægu verði. Fyrsta samvera á nýju ári. Verið velkomin í gott og gefandi samfélag. Hlökkum til að sjá ykkur öll á nýju ári. Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30- 10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Hádegismatur alla virka daga kl. 11:30- 12:20 og kaffi kl. 14:30-15:30. Bridge í handavinnustofu 13:00. Gönguferð kl. 13:00 ef veður leyfir. Helgistund kl. 14:00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8:50. Thai Chi kl. 9. Leikfimi kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30. Kríur myndlistarhópur kl. 13. Bridge kl. 13. Leiðbeiningar á tölvu kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Komdu að púsla kl. 11-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bútasaumshópur hittist kl. 9:00. Hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10:30. Bókband kl. 13:00. Frjáls spi- lamennska kl. 13:00. Opin handverkstofa kl. 13:00-16:00. Bókaklúbbur kl. 15:00. Hádegismatur frá 11:30 til 12:30 alla daga vikunnar og kaffi frá 14:30 til 15:30 alla virka daga. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Verið öll velkomin á Vitatorg. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14:45. Vatnsleikf. kl.7:30/15:15. Qi-Gong í Sjál. kl. 9:00. Liðstyrkur Ásg. kl. 11:15. Karlaleikf. Ásg. kl.12:00. Boccia í Ásg. kl. 12:45. Línudans. Sjál kl. 13:30/14:30. Fyrirlestur Hvað er heilabilun í Jónshúsi kl. 13:30 Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl .8:30-16:00. Keramik málun kl.9:00-12:00. Leikfimi gönguhóps kl. 10:00-10:30. Gönguhópur um hverfið kl. 10:30-. Leikfimi Maríu 10:30-11:15. Glervinnustofa m/leiðb. kl 13:00-16:00 Bridge 13:00-16:00 Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.45 Stólaleikfimi, kl. 13.30 Alkort. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldriborgara í kirkjunni kl. 13:00 – 15:30. Starfið hefst á samsöng þar til helgistund hefst. Þá er boðið upp á spil og handavinnu. Samverunni lýkur með kaffi kl. 15:00. Gullsmára Myndlistarhópur kl. 9.00. Boccia kl. 9.30. Málm- silfursmíði og Canasta kl. 13.00. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11:30. Hjúkrunarfræðingur 10:00- 11:00. Hádegismatur kl. 11:30. Félagsvist kl. 13:15. Kaffi kl. 14:15. Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl. 8.00 - 12.00 Dansleikfimi kl 9.00 Qi-gong kl 10.00 Bridge kl. 13.00 Leikfimi Hjallabraut kl. 10.45 Leikfimi Bjarkarhús kl.11.30 Vatnsleikfimi í Ásvallarlaug kl. 14.40 Korpúlfar Listmálun með Marteini kl. 9 í Borgum, postulínsmálun kl. 9:30. Boccia kl. 10 og 15 í Borgum. Helgistund kl 10:30 í Borgum, leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll kl 11. Spjallhópur í Borgum kl. 13 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13:30 í dag og hei- manámskennsla í bókasafninu í Spöng e.h. í dag. Neskirkja Krossgötur hefjast að nýju í dag kl. 13:00. Þá segir dr. Gunnlaugur A. Jónsson prófessor í Gamla testamentisfræðum frá ferð sinni til Ísrael. Kaffiveitingar og söngur. Fólk er hvatt til að fyl- gjast með veðurspánni. Dagskráin verður felld niður ef illa viðrar. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja 9-12, Trésmiðja kl. 9- 16, opin listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl.9.45, upplestur kl.11, kaffihúsaferð kl.14, bónusbíllinn kl.15, Hugleiðslan kl.15.30. Uppl í s 4112760 Selfoss Kl.10:00 Stólaleikfimi, kl. 12:00 Bridge, kl. 13:00 Tálgað í tré, kl. 13:00 Félagsvist Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt í Risinu Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Bridge í Eiðismýri kl. 13.30. Helgistund á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14.30. Erum byrjuð að skrá í heimsóknina í Grafarvogskirkju sem farin verður 21. janúar og í þorramatinn í kirkjunnni fimmtudaginn 28. janúar. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Stangarhylur 4, Skák kl. 13.00, allir velkomnir í hópinn. mbl.is alltaf - allstaðar Vantar þig smið? FINNA.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Mínar fyrstu minningar um Vil- hjálm Einarsson voru þær að árið 1956 sat ég með skólafélögum í borðstof- unni í Reykholtsskóla í kvöldmat. Við skólasystkinin vorum ung að árum frá fjórtán og upp í sautján ára. Skyndilega birtist skólastjór- inn í salnum ásamt glæsilegum ungum manni sem var kominn í fyrirlestraferð í skólann vegna þess að hann hafði unnið einstætt afrek í íþróttum, fengið silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Melbourne fyrr á árinu. Við sátum sem bergnumin að sjá þessa stjörnu þessa tíma á íþróttasviðinu. Seinna kynntist ég Vilhjálmi betur og byrjuðu þau kynni í Sam- vinnuskólanum þegar hann kenndi okkur að stunda útivist og hreyf- ingu, og kenndi þar einnig fög eins og fundarstjórn og fundarreglur, og kenndi í forföllum kennara og sá um tómstundastarf í skólanum. Hann spilaði fótbolta með okkur strákunum og ekki höfðum við roð við honum í spretthlaupi, hann stökk þá meira en hæð sína í há- stökki án atrennu og allt eftir þessu. Á Bifröst byrjaði hann í raun sinn feril sem skólamaður sem átti eftir að verða ævistarf hans. Síðar Vilhjálmur Einarsson ✝ VilhjálmurEinarsson fæddist 5. júní 1934. Hann lést 28. desember 2019. Útför Vilhjálms fór fram 10. janúar 2020. varð hann skólastjóri í mínum gamla skóla í Reykholti og átti langan feril í Borgar- firðinum sem skóla- stjóri og félagsmála- maður, áður en hann gerðist rektor við ný- stofnaðan Mennta- skóla á Egilsstöðum á sínum æskuslóðum. Þangað fluttist hann með sinni glæsilegu konu og þau áttu myndarlegt lið af strákum sem voru efnilegir íþrótta- menn og dugnaðarþjarkar eins og þeir eiga kyn til. Þegar þarna var komið kynntist ég foreldrum Vil- hjálms sem voru næstu nágrannar tengdaforeldra minna og frum- byggjar á Egilsstöðum, en föður- ætt Vilhjálms er náskyld Margréti konu minni. Móðurættin hans var svo kennd við Hánefsstaði þar sem einnig var dugnaðar- og hæfileika- fólk, þar á meðal í íþróttum. Mörgu að því fólki kynntist ég síðar þegar ég var í stjórnmálastarfi. Það er sjónarsviptir að Vil- hjálmi. Öllu er afmörkuð stund og þessi frábæri íþróttamaður þurfti að glíma við öldrun eins og aðrir. Nú er þeim slag lokið og við Mar- grét erum þakklát fyrir góð kynni, og vottum Gerði og fjölskyldunni allri innilega samúð. Við höfum ver- ið svo lánsöm að kynnast sonum þeirra sem búa í Reykjavík, og þau kynni hafa verið með miklum ágæt- um. Innilegar samúðarkveðjur frá okkur Margréti og okkar fjölskyldu til fjölskyldunnar allrar. Jón Kristjánsson. Með Ólafi Torfa- syni er genginn einn af þeim síðustu vösku vegagerðarmönnum sem störfuðu við að tengja byggðir landsins við meginvegakerfið. Ólaf- ur vann sem ungur maður á loft- pressu og við sprengingar í sneið- ingnum á Pennudal upp úr Vatnsfirði upp á Dynjandisheiði í Vestur-Barðastrandarsýslu. Með opnun vegar um Dynjandisheiði ár- ið 1959 komst Ísafjörður í vegasam- band við meginvegakerfi landsins. Kynni mín af Ólafi hófust ekki fyrr en rúmum einum og hálfum áratug síðar, en í apríl 1976 var gerður út leiðangur sjö vega- gerðarmanna til að kanna snjóalög og aðstæður að vetri á Þorskafjarð- arheiði og þá sérstaklega í Þor- geirsdal, en þar kom til álita að far- ið yrði upp á heiðina sunnan frá ef ákveðið yrði að tenging Inn-Djúps færi um þetta svæði. Haldið var vestur frá Reykjavík m.a. í bíl Ólafs Torfasonar, en hann hafði þá ný- lega fest kaup á notuðum Range Rover-jeppa sem greinilega hafði lengi verið draumurinn að eignast. Á þessum árum var breskur bíla- iðnaður ekki mjög hátt skrifaður og minnist ég þess að Ólafur hafði á orði að ekkert tæki í lífinu fram að þeim tíma hefði komist eins nálægt því að gera hann gjaldþrota og Range Roverinn. Já, það er á gjör- hreinu, sagði Ólafur af sinni al- kunnu hnyttni. Ég kom til starfa síðar á árinu sem umdæmisverkfræðingur á Vestfjörðum og átti alla tíð einstak- lega gott samstarf við Ólaf sem stjórnaði öllum framkvæmdum Ólafur Halldór Torfason ✝ Ólafur HalldórTorfason fædd- ist 28. júlí 1936. Hann lést 23. desember 2019. Útför Ólafs fór fram 7. janúar 2020. Vegagerðarinnar á svæði sem nú heitir Reykhólahreppur. Svæði Ólafs var nokkurn veginn miðja vegu í umdæm- inu og var því mjög algengt að við kæm- um við hjá Ólafi á ferðum okkar um umdæmið. Ólafur var einstaklega gestris- inn og var ávallt heitt á könnunni í vegavinnuskúrunum hjá honum. Gátu menn valið um venjulegt kaffi eða kaffi fyrir full- orðna sem var auðvitað kaffi Ólafs sem var stór og vörpulegur maður. Oft var rætt um stjórnmál yfir kaffinu en Ólafur var vel vinstri- sinnaður á þeim árum þótt ég hafi grun um að eitthvað hafi fölnað yfir því með árunum. Það var vel við hæfi að við útför hans sungu kirkju- gestir Maístjörnuna að lokum. Leiðir okkar Ólafs skildi að mestu í um hálfan þriðja áratug þegar ég hvarf til annarra starfa. Við hittumst þó af og til þegar ég átti erindi við Vegagerðina í Reykjavík og enn frekar þegar ég hóf þar störf aftur 2009. Ólafur var þá fyrir nokkrum árum hættur störfum fyrir aldurs sakir eftir 50 ára farsæl störf sem verkamaður, verkstjóri og vegaeftirlitsmaður með meiru. Urðu ávallt fagnaðar- fundir þegar við hittumst og tel ég það heiður að hafa átt Ólaf að góð- um vini. Ólafur kom oft í heimsókn á gamla vinnustaðinn og ef maður sá gljáfægðan rauðan jeppling í portinu þá var ljóst að Ólafur var kominn í kaffi og til að spjalla við gamla vinnufélaga. Var hann ávallt sem fyrr hrókur alls fagnaðar. Ég kveð heiðursmanninn Ólaf Torfason með söknuði og votta um leið börnum hans og öðrum vanda- mönnum samúð mína við fráfall hans. Fari hann í friði og blessuð sé minning hans. Eiríkur Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.