Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Alls fæddust 4.448 börn á helstu sjúkrahúsum landsins og í heima- húsum í fyrra. Fæðingar voru alls 4.379 og fjölgaði víðast hvar frá fyrra ári samkvæmt lauslegri úttekt Morgunblaðsins. Fjöldi fæðinga á Landspítala árið 2019 var 3.207 og börnin voru 3.271. Árið áður fæddust 3.139 börn á Landspítalanum í 3.088 fæðingum. Tölur um fæðingar á Landspítal- anum eru með fyrirvara um að ekki er búið að yfirfara skráningu. Fæðingum fjölgaði einnig á Akur- eyri í fyrra. Alls fæddust 408 börn í 403 fæðingum þar. Árið áður fædd- ust 392 börn í 388 fæðingum fyrir norðan. Á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi fæddust 348 börn en 315 árið áður. Sagði ljósmóðir á vakt þar að vísa hefði þurft konum frá sökum anna í fyrra. „Við vorum sáttar við árið,“ sagði Sigrún Kristjánsdóttir, yfir- ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suð- urlands á Selfossi, en 70 börn fædd- ust þar í fyrra, 51 árið áður. Á Ísafirði fæddust 33 börn rétt eins og árið áður og tvö börn fædd- ust í Vestmannaeyjum. Mikil fjölgun fæðinga varð aftur á móti á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja. Þar fæddust 106 börn en þau voru 78 ár- ið áður. Í Neskaupstað fæddist 71 barn í fyrra. Heimafæðingar voru svipað margar í fyrra og árið áður, 75 tals- ins. Fæðingum á Björkinni fæðing- arstofu fjölgaði hins vegar úr 50 í 64 í fyrra. Barnsfæðingum fjölgaði í fyrra  Fæðingum á Landspítalanum fjölgaði talsvert milli ára  Svipaða sögu er að segja af flestum sjúkra- húsum landsins og öðrum fæðingarstöðum  „Við vorum sáttar við árið,“ segir yfirljósmóðir á Selfossi Fædd börn á Íslandi 2018 og 2019 6% fl eiri börn fæddust á Íslandi árið 2019 en árið á undan* Heilbrigðisstofnun Landspítalinn, Reykjavík Sjúkrahúsið á Akureyri Heilbrst. Vesturlands, Akranesi Heilbrst. Suðurnesja Heilbrst. Suðurlands, Selfossi Heilbrst. Vestfjarða, Ísafi rði Heilbrst. Austurl., Neskaupstað Heilbrst. Vestmannaeyjum Björkin fæðingarstofa, Reykjavík Heimafæðingar *Samkvæmt lauslegri úttekt Morgunblaðsins á helstu sjúkrastofnunum Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Nýr borgari Þessi litla stúlka fæddist fyrir nokkrum árum. Í fyrra fæddist alls 3.271 barn á Landspítalanum. Fæðingum fjölgaði víðast hvar í fyrra. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Kristján Þór Júlíusson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, birtir í dag áætlun sem felur í sér tölusett markmið til næstu ára um fjölgun starfsmanna stofnana sem undir ráðherrann heyra á landsbyggðinni. Nær áætlunin til Fiskistofu, Haf- rannsóknastofnunar og Matvæla- stofnunar. Þá er einnig að finna í áætluninni aðgerðir sem eiga að vera til þess gerðar að auka hagkvæmni í rekstri umræddra stofnana með því að sam- eina starfsstöðvar þeirra í sama hús- næði. Ekki er vitað til hvaða starfs- stöðva þetta mun ná en starfsstöðvar Fiskistofu og Hafrannsóknastofnun- ar á Akureyri og á Ísafirði eru þegar skráðar með sama heimilisfang, en það er til að mynda ekki tilfellið í Vestmannaeyjum. Unnið hefur verið að áætluninni frá því í haust að frumkvæði Krist- jáns Þórs og var hún unnin í samráði við forstöðumenn þeirra stofnana sem átakið nær til og undirritað af sömu aðilum. Fjármagn hefur verið tryggt til að framfylgja áætluninni á árinu 2020. Kynna fjölgun starfsmanna stofnana á landsbyggðinni  Gert að sameina starfsstöðvar í hagræðingarskyni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðgerðir Kristján Þór Júlíusson birtir áætlunina í dag. Þarfasti þjónninn lætur umhleypingana í veðr- inu ekki á sig fá og kippir sér ekki upp við há- vaðann í snjómoksturstækinu og strókinn sem þaðan kemur. Þegar óveðri slotar er fátt jafn heilnæmt og örvandi og að setja hnakk á gæð- inginn og þeysa á honum um alhvítt borgar- landið. „Ef inni er þröngt, tak hnakk þinn og hest / og hleyptu á burt undir loftsins þök,“ kvað Einar Benediktsson. Morgunblaðið/RAX Tak hnakk þinn og hest Sjö umsóknir bárust um embætti ríkislögreglustjóra sem auglýst var laust til umsóknar. Umsóknar- frestur rann út 10. janúar. Umsækj- endur voru eftirfarandi: Arnar Ágústsson öryggisvörður, Grímur Grímsson, tengslafulltrúi Ís- lands hjá Europol, Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norð- urlandi eystra, Kristín Jóhannes- dóttir lögfræðingur, Logi Kjartans- son lögfræðingur, Páll Winkel fangelsismálastjóri og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Nokkrir um- sækjenda höfðu sjálfir greint frá umsókn sinni. Haraldur Johannessen tilkynnti í byrjun desember að hann ætlaði að láta af embætti eftir 22 ára starf sem ríkislögreglustjóri. Sjö sóttu um ríkislög- reglustjóra Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.