Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 28
Ljósmynd/Theo Elias Mávahlátur Elias myndaði hina aðgangshörðu máva á Reykjavíkurtjörn. Sænski ljósmyndarinn Theo Elias blæs til fagnaðar í Iðnó í kvöld í til- efni af útgáfu ljósmyndabókar hans Smoke sem hefur að geyma svart- hvítar ljósmyndir hans af íslensku næturlífi, fólki og náttúru. Gleðin hefst kl. 19 og lýk- ur kl. 22 og verða myndir Elias til sýnis, bókin til sölu og AnA og Mighty Bear flytja raftónlist með myndrænu ívafi. Munu þessir listamenn túlka ljósmyndir Elias með gjörningum sínum og reykur m.a. koma við sögu, enda heitir bókin Reykur á íslensku. Myndirnar tók Elias á sex ára tímabili á ferðum sínum um Ísland, myndaði fólk sem hann hitti á knæp- um og skemmtistöðum og á vegum úti. Fléttar hann mannamyndirnar saman við landslagsmyndir sem einn- ig eru skarpar, kornóttar og svart- hvítar. Elias bar sigur úr býtum í verð- launakeppninni Photo London & La Fabrica Dummy Award í fyrra með þessari fyrstu ljósmyndabók sinni. Verðlaunin eru ein þau þekktustu í heimi þegar kemur að óútgefnum ljósmyndabókum og var bókin gefin út í kjölfarið. La Fabrica er útgefandi Smoke og stendur að verðlaununum með Photo London sem stendur fyrir umfangsmiklum ljósmyndasýningum í London á ári hverju þar sem sjá má það besta og athyglisverðasta í ljós- myndalistinni. Gos, hrun og erfiðleikar „Þetta hófst með eldgosinu í Eyja- fjallajökli árið 2010,“ segir Elias, spurður að því hvers vegna hann hafi farið að venja komur sínar til Íslands og mynda fólk og landslag. Hann seg- ir efnahagshrunið líka hafa spilað inn í og að hann hafi sjálfur glímt við erfiðleika á þessum tíma. „Mér fannst sem allur glundroðinn á Ís- landi endurspeglaði það sem ég var að ganga í gegnum,“ segir Elias. Því hafi hann ákveðið að halda til Íslands. „Þetta var bara hugboð í fyrstu en þróaðist yfir í þráhyggju. Mig langaði til að mynda tengingu við Ísland og fólkið hérna og fannst sem þetta væri leiðin til að yfirstíga mína persónu- legu glímu. Ég var auðvitað heillaður af náttúrunni hérna líka og varð frá mér numinn yfir því að hægt væri að yfirgefa bar kl. 5 að morgni og horfa á snævi þakin fjöllin handan flóans,“ útskýrir Elias. Þessar andstæður hafi honum þótt undursamlegar. „Ég ferðaðist alltaf einn og fór á putt- anum í kringum landið í tvígang. Ég held að þessi blanda af náttúru, næturlífi og fólki hafi höfðað til mín. Hvort heldur voru fuglar, landslag eða fólk, ég ljósmyndaði fólkið sem ég hitti og það sem vakti áhuga minn,“ segir Elias. Hvað tæknilegu hliðina varðar þá segist Elias hafa myndað á svarthvíta Kodak Tri-X filmu, lýsta 1600 ASA. „Ég myndaði á þessa filmu af því að hún var þokkalega ódýr og ég gat framkallað hana sjálfur. Og ég er líka hrifinn af svarthvítum myndum, þær draga úr raunveruleikanum sem er gott því raunveruleikinn getur verið ansi leiðinlegur.“ helgisnaer@mbl.is Fólk, næturlíf og íslensk náttúra  Theo Elias fagnar útgáfu Smoke í Iðnó í kvöld Theo Elias Ljósmynd/Theo Elias Reykur Ónefndur maður flettir frá sér skyrtunni fyrir ljósmyndara. 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU Dolly Parton, sem verður 74 ára á sunnudaginn kemur, er farin að leggja drög að tónlist sem á að koma út eftir andlát hennar. Í loka- þætti hljóðvarpsþáttaseríunnar Dolly Parton’s America, sem hóf göngu sína í október, er tónlistar- konan spurð um ýmis andleg mál- efni, trú hennar og hvað taki við eftir andlátið. „Ég á hundruð, jafnvel þúsundir laga sem eru flest enn óútgefin,“ segir Parton í samtali við Jad Ab- umra, meðframleiðanda þáttanna, sem hefur í þáttunum rannsakað líf og list Parton ásamt því að skoða menningarleg áhrif hennar. „Þetta er nægt efni til að halda áfram endalaust með tónlist mína, gera samantektaralbúm, gefa út nýtt og frumlegt efni. Ég er mark- visst að semja lög í þessum tilgangi og taka upp laglínuna með takt- mæli í eyrunum þannig að hægt sé að útsetja lögin að vild,“ segir Par- ton og tekur fram að þannig geti tónlistarfólk og framleiðendur í framtíðinni notað upptökurnar með rödd hennar með ýmsum hætti. „Þegar ég verð farin getur hvaða framleiðandi hvar sem er í heim- inum nálgast upptökurnar með rödd minni og útsett lögin í hvaða stíl sem er,“ segir Parton án þess að fara nánar í útfærsluna. Parton, sem er þekkt fyrir vinnusemi sína og gott skipulag, segist í viðtalinu hafa viljað vera undirbúin fyrir andlát sitt og koma í veg fyrir málaferli vegna tónlistar hennar eftir andlátið. „Mér finnst gott að vera vel undirbúin. Ólíkt Prince, Aretha og öðrum sem ekki skipu- leggja til framtíðar vil ég ekki að tónlist mín verði óbreytanleg um aldur og ævi,“ segir Parton. AFP Skipulögð Dolly Parton í fyrra. Tónlistin kemur út eftir fráfallið  Vill engin málaferli eftir andlátið Í upptakti að há- tíðinni Vetrarsól á Ströndum, sem verður haldin á Hólmavík frá föstudegi til sunnudags, býð- ur söngvaskáldið Svavar Knútur upp á ukulele- námskeið fyrir börn og fullorðna í dag og fram á föstudag. Á námskeiðinu, sem hald- ið er í gömlu flugstöðinni á Hólma- vík, verður farið yfir grundvall- aratriði ukulele-leiks og kennd grunngrip og spilatækni. Enn- fremur læra nemendur nokkur lög til að flytja fyrir vini og vanda- menn á lokatónleikum sem fara fram í Hólmavíkurkirkju á laugar- daginn kemur. Dagskrá hátíðar- innar hefst annars á föstudags- kvöldið með pöbbarölti og við- burðum sem litið verður inn á, en það er meðal annars opnun sýn- ingar í Rannsóknasetri HÍ – Þjóð- fræðistofu. Á laugardag heldur Jóhanna Ósk Valsdóttir söngkona námskeið um morguninn í söng fyrir styttra og lengra komna. Kl. 12 verða sólar- hyllingar og kl. 14 hefst dagskráin „Bábiljur og bögur í baðstofunni“ í Sævangi. Þar verður meðal annars kveðið og sungið saman. Um kvöldið heldur Svavar Knút- ur tónleika ásamt strengjatríói. Á sunnudagsmorgni verður söguganga en í henni mun Jón Jónsson þjóðfræðingur segja frá ýmsu fróðlegu. Á eftir verður boð- ið upp á súpu. Dagskrá hátíðar- innar endar með því að forfeðr- anna verður minnst með stuttri athöfn í kirkjugarðinum. Svavar Knútur hefur Vetrarsól Svavar Knútur Sandra Sif Einarsdóttir og Sigríður Þorgeirsdóttir, báð- ar starfandi forverðir við Þjóðminjasafn Íslands, flytja í dag, þriðjudag, kl. 12 erindi í fyrirlestrarsal safnsins og tengist það sérfræðiþekkingu þeirra. Á mörgum heimilum leynast gamlir dýrgripir og rétt meðferð er mikilvæg svo hægt sé að tryggja varðveislu þeirra, segir í tilkynningu. Í erindinu munu Sandra Sif og Sigríður fjalla um hvernig best sé hlúð að gripum heima fyrir og einnig svara spurningum gesta og gefa góð ráð. Fjallað verður meðal annars um varðveislu silf- urmuna og pökkun á skírnar- og brúðarkjólum, sem og þjóðbúningum. Einnig verður fjallað um þrif á gömlum húsgögnum og áhrif sólarljóss og raka á gripi, ásamt ýmsu fleiru. Aðgöngumiði í safnið gildir fyrir þá sem hafa áhuga á að hlýða á erindið. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir það á allar sýningar og viðburði á Þjóð- minjasafninu við Suðurgötu og í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Forverðir Þjóðminjasafnsins gefa góð ráð Í Þjóðminjasafninu. Rithöfundurinn John le Carré hlýtur í ár verðlaun sem kennd eru við Olof Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar. Þessu greinir Sænska ríkisútvarpið frá á vef sínum, en verðlaunin verða formlega afhent í Stokk- hólmi 30. janúar. Minningarsjóður um Olof Palme stend- ur að verðlaununum, sem veitt eru einstaklingi sem unn- ið hefur að friði og mannréttindum. Verðlaunaféð nemur 100.000 bandaríkjadölum eða ríflega 12 millj- ónum ísl. kr. John le Carré heitir réttu nafni David Cornwell og starfaði sem njósnari fyrir Breta í kalda stríðinu. Eftir fall Berlínarmúrsins gerðist hann rithöfundur og hefur í bókum sínum fjallað um dulinn heim leyniþjónustunnar. Í umsögn dómnefndar segir að John le Carré hafi í bókum sínum skrifað um frelsi einstaklingsins og spurningar sem snúa að mannréttindum. Með bókum sínum veki hann les- endur til umhugsunar um heimsmyndina og hvetji til gagnrýninnar hugs- unar um kaldrifjað valdabrölt stórveldanna, uppgang fasisma í hinum vest- ræna heimi, spillt stjórnmálafólk og velferð almennings. Hlýtur verðlaun Olof Palme árið 2019 John le Carré

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.