Morgunblaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020
✝ Katrín HelgaKarlsdóttir
fæddist á Þórshöfn
á Langanesi 27.
desember 1939.
Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Mörk í Reykjavík 4.
janúar 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Karl Ás-
grímur Ágústsson,
verslunarmaður frá
Grund í Borgarfirði eystri, f. 7.
desember 1910, d. 7. júní 1991,
og Þórhalla Steinsdóttir, hús-
móðir frá Bakkagerði á Borgar-
firði eystri, f. 10. mars 1916, d.
14. maí 1999. Systkini Katrínar
eru: Halldór Karl, f. 20.2. 1930,
maki Halla Guðmundsdóttir; ósk-
írt meybarn, f. 1934, d. 1934;
Steinn Þór, f. 16.1. 1939, maki
Þórunn Jónsdóttir;
Ágúst Birgir, f.
7.12. 1941, maki
Svanhildur Alex-
andersdóttir; Þór-
hallur, f. 20.10.
1943, d. 8.11. 1983,
maki Aðalheiður
Ingvadóttir; Anna
Halldóra, f. 16.11.
1944, maki Björn
Axelsson; Ásgrím-
ur, f. 24.10. 1947,
Þórhildur, f. 21.8. 1949, maki
Matthías Garðarsson; Guð-
mundur, f. 12.1. 1956, maki Val-
gerður Sigfúsdóttir.
Fyrstu æviár Katrínar bjó fjöl-
skyldan á Þórshöfn á Langanesi
en fluttist árið 1946 til Akur-
eyrar þar sem hún settist að í
Litla-Garði. Katrín gekk í skóla á
Akureyri, barnaskóla, grunn-
skóla og menntaskóla og útskrif-
aðist með stúdentspróf frá
Menntaskólanum á Akureyri vor-
ið 1959.
Hinn 7. október 1961 giftist
hún Andrési Valdimarssyni, fyrr-
verandi sýslumanni, f. 25. febr-
úar 1937. Foreldrar hans voru
Valdimar Stefánsson ríkissak-
sóknari, f. 26.9. 1910, d. 23.4.
1973, og Ásta Júlía Andrésdóttir
húsfreyja, f. 16.12. 1913, d. 15.11.
1996. Börn Katrínar og Andrésar
eru: 1) Karl Ágúst, f. 5.8. 1963,
dóttir hans er Anna Katrín, börn
hennar eru Ramona og Elvira. 2)
Valdimar, f. 5.8. 1963, maki Bua-
ket Andrésson, börn hans og
Signe Hansen eru Sigurður
Andrés og Freyja. 3) Ásta Sól-
veig, f. 12.5. 1971, maki Ingimar
Ingimarsson. 4) Þórhalla, f. 30.11.
1973, maki Hlynur Veigarsson,
börn þeirra Andrés Ísak, Veigar
Áki, Helga María og Heiða Björg.
Þau hjónin stofnuðu heimili í
Reykjavík og starfaði Katrín í
Verslunarsparisjóðnum, Versl-
unarbankanum og Landsbank-
anum. Árið 1968 fluttust þau til
Hólmavíkur þegar Andrés var
skipaður sýslumaður Stranda-
manna og bjuggu þau þar næstu
sjö árin eða til ársins 1975 þegar
þau fluttu í Stykkishólm. Árið
1982 fluttist fjölskyldan á Selfoss
þegar Andrés tók við sem sýslu-
maður Árnesinga. Á þessum ár-
um starfaði Katrín við ýmiskon-
ar bókhaldsstörf, hún vann á
bókasafninu á Selfossi um hríð
en lengst af var hún fulltrúi
Sjúkratrygginga á Selfossi og
gegndi hún því starfi starfsævina
á enda. Árið 2001, þegar þau
hjón voru bæði komin á eftirlaun,
fluttust þau til Hveragerðis.
Haustið 2016 fluttu Katrín og
Andrés til Reykjavíkur í Mörkina
við Suðurlandsbraut og dvaldist
Katrín á hjúkrunarheimilinu þar
síðustu mánuði ævi sinnar. Katr-
ín starfaði innan Oddfellowregl-
unnar um árabil og var hún ein
af stofnfélögum Rbst. Þóru á Sel-
fossi auk þess að vera yfirmeist-
ari árin 1996-1998.
Útför Katrínar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
14. janúar 2020, klukkan 13.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Að morgni fjórða dags janúar-
mánaðar fengum við Þórusystur
þær fregnir að systir okkar
Katrín Helga Karlsdóttir hefði
kvatt þennan heim og væri kom-
in til starfa annars staðar. Það
er sárt að missa góðan vin.
Systur heimsóttu hana fyrir jólin
og kveiktu á fallegu kerti. Hún
fagnaði 80 ára afmæli 27. desem-
ber og þar voru systur mættar
til að fagna með henni. En svona
er lífið, aðrir heimar kalla okkur
til starfa og gegnum við því.
Katrín Helga Karlsdóttir gekk í
Oddfellowregluna hinn 31. mars
1990. Hún var einn af stofendum
Rbst. nr. 9. Þóru á Selfossi 25.
apríl 1992. Innan reglunnar
gegndi hún mörgum ábyrgðar-
störfum og var valin til forystu.
Gott var að leita til hennar með
hvaða erindi sem var og hún
leiðbeindi okkur eins og henni
var einni lagið.
Hennar verður sárt saknað og
skarð hennar verður vandfyllt.
Við kveðjum fullar þakklætis
fyrir vináttu hennar og kærleika.
Við Þórusystur sendum inni-
legar samúðarkveðjur til eigin-
manns hennar, barna og fjöl-
skyldna þeirra. Hvíl í friði kæra
systir. Guð blessi minningu þína.
Friður sé með sálu þinni.
F.h. Rbst. nr. 9. Þóru IOOF,
Margrét Halla
Ragnarsdóttir, ym.
Katrín Helga
Karlsdóttir
Elskuleg móðir
mín, Kamma Andr-
ésdóttir, hefur kvatt þennan
heim. Sú sem alltaf hefur verið
svo sterk, hraust og athafnasöm
hefur nú lagt árar í bát.
Hún kom ung til Íslands, hitti
snemma föður minn og saman
eignuðust þau 6 börn. Barna-
börnin eru í dag orðin 15 og lang-
ömmubörnin 14. Mömmu fannst
ekkert skemmtilegra en að
dekra við okkur öll með heima-
bakkelsi og þar má þá helst
nefna Billukökurnar hennar og
Kamma
Andrésdóttir
✝ Kamma Andr-ésdóttir (áður
Kamma Rasmus-
sen) fæddist 19.
október 1936. Hún
lést 18. desember
2019.
Útför Kömmu
fór fram 3. janúar
2020.
heimabakaða fær-
eyska brauðið sem
við öll elskuðum.
Fjölskylduboðin
voru óteljandi en
alltaf gat hún hrist
fram kræsingar og
safnað okkur saman
í kringum matar-
borðið til að eiga
huggulega stund
saman.
En mamma stóð
ekki bara í eldhúsinu, hún var
útivinnandi húsmóðir með 6 börn
en þrátt fyrir barnafjöldann þá
náði hún að stofna sín eigin fyrir-
tæki. Hún starfrækti veitingahús
um tíma í Neskaupstað og síðar
framleiddi hún fiskrétti sem hún
seldi víða um land. Síðustu ár
hennar í Neskaupstað starfrækti
hún svo blómabúð. Eftir að hún
og pabbi fluttust til Hafnarfjarð-
ar tók nýr tími við og mamma
sinnti ýmsum störfum, aðallega
sem matráðskona. Þegar hún
náði eftirlaunaaldri hætti hún
störfum sem matráðskona en var
þá boðin vinna í þvottahúsi þar
sem hún vann til 74 árs aldurs,
en þá lét hún undan þrýstingi
ættingja og hætti formlega störf-
um. En hún gleymdi bara að
segja okkur börnunum að hún
ætlaði að taka aukavaktir og af-
leysingar á álagstímum. Þetta
lýsir þeim krafti sem mamma bjó
yfir. Henni leið best ef hún hafði
eitthvað að gera.
Ég er svo stolt af henni
mömmu minni sem alltaf hefur
verið mín fyrirmynd. Einn dag-
inn tilkynnti okkur að hún hafði í
hyggju að ganga Jakobsveginn,
um 250 km pílagrímsgöngu, frá
norðurströnd Spánar að San-
tiago de Compostella. Hún
kvaðst fara þetta ein ef enginn
vildi fara með henni og það varð
úr að 72 ára að aldri lagði hún af
stað með tveim dætrum sínum
og barnabarni.
Mamma var með eindæmum
félagslynd og sótti mikið fé-
lagsstörf. Hennar ástríða var að
hjálpa öðrum og gefa af sér, sem
lýsir sér í öllum hennar störfum.
Hún gerðist sjálfboðaliði þegar
flóttafólk kom frá stríðsþjáðri
Kósóvó og hún lagði sig fram við
að sú fjölskylda sem henni var
treyst fyrir fengi góða byrjun í
nýju landi. Hún var alltaf boðin
og búin að aðstoða. Ekki sjaldan
ilmaði húsið af bakstri sem ætl-
aður var Færeyingafélaginu, eða
öðrum félögum sem hún starfaði
í. Ekki má gleyma að nefna vina-
hópinn sem kallaði sig Sólheima-
gengið. Það var vinskapur sem
myndaðist eftir ferð þeirra til
Sólheima í Grímsnesi. Þetta var
samhentur hópur sem mamma
hafði mikla gleði af og það voru
ýmsar uppákomur og farnar ófá-
ar helgarferðir mömmu til mik-
illar ánægju.
Mamma náði 83 ára aldri og
var heilsuhraust alla tíð nema að
undanteknum síðustu mánuðum
ævi hennar þegar heilsan fór
dvínandi. Enginn gat þó séð það
sem koma skyldi og þann 18. des-
ember síðastliðinn kvaddi hún
okkur og eftir sitjum við og sökn-
um hennar meira en orð fá lýst.
Elsku mamma, takk fyrir allt
sem þú gafst mér, ást, umhyggju
og þolinmæði. Hvíl í friði og við
hittumst þegar minn tími kemur.
Sigríður Lindbergsdóttir.
✝ Guðrún Guð-mundsdóttir
Soffía Jónsdóttir
eins og hún hét
fullu nafni fæddist í
Reykjavík hinn 9.
september 1928.
Guðrún lést á
Hrafnistu 25. des-
ember 2019. For-
eldrar hennar voru
Jón Zophanías
Guðmundsson, f.
10. janúar 1907, d. 8. júlí 1973,
og Guðjóna Benediktsdóttir, f.
og Rúnar Jakobssyni. Guðrún
Soffía eignaðist soninn Guðjón
Brodda Björgvinsson. Hann
fæddist 16. ágúst 1950 en lést af
slysförum 24. júní 1963. Faðir
hans var Jón Björgvin Björns-
son. Fyrri eiginmaður Guðrúnar
var Henning Karl Backman, f. 7.
júlí 1927, d. 10. janúar 2013. Þau
keyptu sér íbúð á Grensásvegi
60 þar sem þau bjuggu fyrst
saman og Guðrún Soffía til
hinsta dags eftir skilnað þeirra
1968. Þeim varð tveggja barna
auðið: Arna Jóna Backman, f.
12. apríl 1957, sambýlismaður
hennar er Sigurþór Jónsson.
Börn Örnu Jónu úr fyrra hjóna-
bandi með Sveini Sæmundssyni
eru þrjú. Elstur er Sæmundur
Örn, f. 27. maí 1979. Eiginkona
hans er Arnþrúður María Felix-
dóttir og eiga þau tvö börn,
Svein Rúnar og Guðrúnu Dögg.
Næstur er Henning Sævar, f. 20.
mars 1983. Eiginkona hans er
Linda Björk Hafsteinsdóttir og
eiga þau synina Arnar Loga og
Garðar Elías. Yngstur er svo
Rúnar Þór, f. 24. september
1986, unnusta hans er Sunneva
Mist Björnsdóttir.
Yngra barn Guðrúnar Soffíu
og Hennings er svo Guðjón
Broddi Backman, f. 20. apríl
1963. Sonur hans og Elísabetar
Sigríðar Ólafsdóttur er Gunnar
Örn Backman, f. 1. desember
1987.
Seinni maður Guðrúnar var
Bjarni Sigurðsson frá Geysi, f.
26. apríl 1935, d. 2. maí 2018.
Útför Guðrúnar fór fram 7.
janúar 2020.
25. nóvember 1909,
d. 2. júlí 1996.
Guðrún var elst
fimm barna þeirra
hjóna. Yngri voru
Haukur, Soffía,
Guðlaug og yngst-
ur var Hafsteinn og
er hann látinn.
Þegar Guðrún
var 13 ára skildu
foreldrar hennar
og giftust aftur.
Jón eignaðist Sabínu og Guð-
jóna eignaðist synina Einar Inga
Mig langar að minnast Guð-
rúnar systur minnar og vin-
konu.
Mínar fyrstu minningar um
Guðrúnu voru þegar við systur
vorum sendar saman í sveit á
Stað í Reykhólasveit, Guðrún
var þá aðeins 13 ára þegar hún
gekk í flest störf á bænum og
hafði þá einnig auga með mér,
litlu systur sinni.
Á fullorðinsárum ferðuðumst
við systur saman til Spánar,
Ameríku og Kúbu. Ég á góðar
minningar frá þessum ferðum.
Mér er það minnisstætt þegar
við fórum með Hofsjökli til Am-
eríku hvað hún naut sín í sigl-
ingunni og í stóru Ameríku, þar
skein í gegn hvað hún var já-
kvæð og lífsglöð kona, enda var
hún það fram á síðasta dag.
Elsku Arna Jóna, Guðjón
Broddi og fjölskylda, um leið og
ég kveð systur mína þá sendi ég
ykkur öllum innilegar samúðar-
kveðjur.
Hvíldu í friði og takk fyrir
allt.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson)
Guðlaug Dagmar Jónsdóttir.
Guðrún Soffía
Jónsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
INGIBJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR,
Kambsvegi 29,
lést þriðjudaginn 17. desember á
taugadeild Landspítalans.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Steinunn Ágústa Þorsteinsd. Grétar Kjartansson
Jakob Þorsteinsson Birna Jóna Magnúsdóttir
Berglind Þorsteinsdóttir Hallur Eiríksson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGURBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
Háaleitisbraut 121, Reykjavík,
lést á hjúkrunardeild Hrafnistu miðviku-
daginn 8. janúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
17. janúar klukkan 11.
Hugheilar þakkir til starfsfólks A7 LHS Fossvogi, Vífilsstaða og
Vitatorgs, Hrafnistu, fyrir ástúðlega og góða umönnun.
Þóra Eyland Elíasdóttir Stefán Guðbjartsson
Ólafur Magnússon Katrín I. Valentínusdóttir
Elfur Magnúsdóttir Sæmundur Jónsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og besti afi,
JÓN BJÖRN HJÁLMARSSON
bifvélavirkjameistari,
Fagrahvammi 6,
Hafnarfirði,
lést á líknardeildinni í Kópavogi 9. janúar.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju 20. janúar
klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarfélög.
Brynja Þorvaldsdóttir
Birgir Már Guðbrandsson Ingrid Johannessen
Kolbeinn Jónsson Anna Birna Jónsdóttir
Hlini Snær, Birkir Smári, Karítas Ísold
og Eirik Brynjar Birgisbörn
Birnir Breki og Hrafney Tinna Kolbeinsbörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
ÓSK GABRÍELLA BERGÞÓRSDÓTTIR
Reynigrund 44, Akranesi,
lést á sjúkrahúsinu á Akranesi laugardaginn
11. janúar eftir stutta baráttu við
krabbamein.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 20. janúar
klukkan 13.
Óli Jón Gunnarsson
Bergþór Ólason
Jóhann Gunnar Ólason Kolbrún Þóroddsdóttir
Rúnar Ólason María Rahko
Lotta Ósk Bergþórsdóttir Flume
Erik Óli Jóhannsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVANHILDUR ERLA J. LEVY,
Haðalandi 17,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 31. desember, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 16. janúar klukkan 15.
Gunnlaugur Guðmundsson
Garðar Gunnlaugsson
Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson
Anna Júlíusdóttir
Hildur Gunnlaugsdóttir Arnar Sölvason
Áslaug Gunnlaugsdóttir Ágúst Sæmundsson
barnabörn og barnabarnabörn