Morgunblaðið - 14.01.2020, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020
Dansleikur Listaverk Þorbjargar Pálsdóttur við Perluna vekur jafnan áhuga þeirra sem þangað koma. Sumir taka jafnvel dansspor en þessir gestir létu sér nægja að virða umhverfið fyrir sér.
Kristinn Magnússon
Undirritaður mun
sýna fram á í nokkrum
greinum að framin hafa
verið alvarleg stjórn-
sýslubrot þar sem
stærstu laxeldisfyr-
irtæki Íslands höfðu
mikla aðkomu að breyt-
ingu nýgerðra fiskeld-
islaga.
Síðastliðið vor var
öllum alþingismönnum
sent bréf þar sem m.a.
var vakin athygli á vinnubrögðum
starfshóps sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra um stefnumótun í fisk-
eldi. Starfshópurinn skilaði skýrslu
23. ágúst 2017. Þær breytingar sem
Alþingi samþykkti síðastliðið vor að
gera á lögum nr. 71/2008 um fiskeldi
byggðust að mestu leyti á skýrslu
starfshópsins. Undirritaður gerði al-
varlegar athugasemdir við vinnu-
brögð fyrrnefnds starfshóps og vakti
athygli á því að þau kynnu í ákv. til-
vikum að fara gegn ákvæðum stjórn-
sýslulaga.
Ferlið fram að þessu
Það hafa verið reyndar ýmsar leið-
ir til að ná framgangi í málið:
1. Hinn 29. mars 2019 voru sendar
athugasemdir til Al-
þingi Íslands vegna
frumvarps til laga um
breytingar á ýmsum
lagaákvæðum sem
tengjast fiskeldi.
2. Hinn 20. maí 2019
var sendur tölvupóstur
til stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþing-
is og óskað eftir opin-
berri úttekt vegna
þeirra alvarlegu ann-
marka á vinnubrögðum
starfshóps um stefnu-
mótun í fiskeldi. Allir
alþingismenn fengu afrit af póst-
inum. Beiðni um opinbera úttekt hef-
ur síðan verið ítrekuð nokkrum sinn-
um við stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd án árangurs.
3. Hinn 28. maí 2019 var send
beiðni til Umboðsmanns Alþingis og
óskað eftir opinberri úttekt.
4. Hinn 11. júní 2019 var send
fréttatilkynning til fjölmiðla og þar
sem þeir voru hvattir til að kynna sér
málið vel og jafnframt að viðhafa fag-
lega og góða rannsóknarblaða-
mennsku við umfjöllun sína um þetta
mál.
5. Hinn 17. október 2019 var byrj-
að að auglýsa í fjölmiðlum og kallað
eftir viðbrögðum frá stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd.
6. Hinn 10. desember 2019 var
send ítrekun til Umboðsmanns Al-
þingis um opinbera úttekt og jafn-
framt bent á vafasöm vinnubrögð
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Hver tekur út vinnubrögð
nefnda Alþingis?
Sendir hafa verið fjölmargir tölvu-
póstar til stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar og jafnframt auglýst eftir
viðbrögðum í fjölmiðlum án þess að
þeim hafi verið svarað sem er ámæl-
isvert og hvorki í samræmi við
ákvæði stjórnsýslulaga né vandaða
stjórnsýsluhætti. Umboðsmanni Al-
þingis var bent á vinnubrögð stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefndar og í
svari hans kemur fram að embættið
hafi ekki heimild til að taka störf
nefndarinnar til athugunar og lagði
til að leitað væri til Alþingis með at-
hugasemdirnar. Samskipti við Al-
þingi hafa fram að þessu ekki skilað
miklum árangri og eru ekki miklar
væntingar um að breyting verði á
því.
Það á að reyna að
þegja málið í hel
Umboðsmaður Alþingis hefur sýnt
þá kurteisi að svara en það sama er
ekki hægt að segja um stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd. Viðbrögð
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
vekja eiginlega meiri undrun en mál-
ið sjálft og vakna spurningar um
hvaða vinnu- og siðarreglum nefndin
vinnur eftir. Snemma var ákveðið í
minni vinnu að fara hefðbundnar
leiðir til að koma mínum at-
hugasemdum á framfæri. Allir eiga
að hafa sömu möguleika á að koma
sínum athugasemdum á framfæri
óháð bakgrunni eða tengslum í gegn-
um formlega ferla. Of mikil tengsli
skapa of mikla nánd og geta stuðlað
að óheppilegu hagsmunapoti og spill-
ingu.
Óheppilegt ferli
Það var svo sem búið að vara höf-
und við því að lítil eða engin viðbrögð
fengjust, m.a. af stjórnmálafræð-
ingum. Það var þó ákveðið að láta á
málið reyna. Í umræðunni var bent á
að það eina sem dygði væri að stíga
fram og fá kröftuga umfjöllun um
málið í fjölmiðlum. Það var þó ákveð-
ið að reyna að halda sig við mál-
efnalega umræðu án æsifrétta-
mennsku. Þar sem fjölmiðlar hafa
ekki viljað taka að sér rannsókn-
arblaðamennsku um þetta mál hefur
höfundur ákveðið að taka það hlut-
verk að sér. Skrifa greinar í fjölmiðla
til að upplýsa almenning, stjórn-
sýsluna og vonandi einhverja stjórn-
málamenn. Þessi greinaskrif geta því
miður haft neikvæð skammtímaáhrif
á íslenskt fiskeldi en það er mín
skoðun að ýmislegt þurfi að segja
sem mun hafa jákvæð áhrif á grein-
ina til lengri tíma litið.
Greinaskrif
Fyrst í stað verður áhersla á að
taka fyrir vinnubrögð sem hafa verið
viðhöfð til að tryggja ákveðnum að-
ilum fjárhagslegan ávinning. Á
seinni stigum verður m.a. fjallað um
umhverfismál sem tengjast breyt-
ingum á fiskeldislögunum. Stað-
reyndin er sú að með breytingum á
lögum á fiskeldi stöndum við að baki
nágrannalöndum í umhverfismálum
þó að öðru sé haldið fram af sumum
stjórnmálamönnum.
Eftir Valdimar
Inga Gunnarsson » Framin hafa verið
alvarleg stjórnsýslu-
brot þar sem stærstu
laxeldisfyrirtæki
Íslands höfðu mikla
aðkomu að breytingu
nýgerðra fiskeldislaga.
Valdimar Ingi
Gunnarsson
Höfundur er sjávarútvegsfræðingur
og hefur m.a. unnið við ýmis mál
tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár.
valdimar@sjavarutvegur.is
Sjókvíaeldi laxfiska – Vinnubrögð
stjórnmálamanna og stjórnsýslunnar