Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
✝ Ingibjörg Ingi-mundardóttir
fæddist í Reykjavík
1. maí 1935. Hún
lést á Vífilsstaða-
spítala 3. janúar
2020.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Jón-
ína Svava Tómas-
dóttir, f. 29.10.
1911, d. 10.2. 1965,
og Ingimundur Eyj-
ólfsson, f. 23.11. 1910, d. 13.2.
1968.
Ingibjörg var elst sex systkina,
næstur kom Örn, f. 14.9. 1938,
Brynja, f. 22.6. 1942, d. 28.4.
2019, Drífa, f. 28.8. 1945, Sigur-
laug, f. 1.11. 1947, og Hrafn, f.
11.4. 1957.
Ingibjörg giftist 5.8. 1958
Hans Adolfi Hermanni Jónssyni,
f. 10.12. 1920 í Reykjavík, d. 3.8.
1993. Börn þeirra eru: 1) Dag-
björt, f. 16.8. 1958, maki Sig-
urbjörn Sveinsson. Börn þeirra
eru: a) Ingibjörg, maki Magnús
Guðjónsson, þeirra synir eru
Guðjón og Dagur. b) Eva Mjöll,
maki Gunnar Agnar Vilhjálms-
son, börn þeirra eru Ernir Thor-
berg og Ásgerður Svala. c) Guð-
rún Þórey, maki Arnar Ingason,
börn þeirra eru Katla Björt og
Þórey María. d) Sigurbjörn Ari,
sambýliskona Hrefna Rós Hlyns-
dóttir. 2) Hermann, f. 23.7. 1959,
maki Auðbjörg Tómasdóttir,
börn þeirra eru: a) Kristín,
Telma maki Jón Trausti Gunn-
arsson, börn þeirra eru Hermann
Hafþór, Sigurður Tómas og
Björgvin Baldur. b) Hanna Sif,
og Ingibjargar lést þegar hann
var sjö ára. Maki Hrafns er Elín
Ágústsdóttir börn þeirra eru: a)
Jenný Ruth, maki Árni Viðar
Sigurðsson, börn þeirra eru
Viktor og Brynja. b) Ingi Bogi,
sambýliskona Brynja Magn-
úsdóttir, hans börn eru Júlía Sól
og Benedikta Friðsemd. Áður en
Ingibjörg og Hans giftu sig átti
Hans þrjú börn af fyrra hjóna-
bandi: Jón Hreiðar, maki Krist-
björg Jónsdóttir, börn hans eru
a) Gunnar Þorkell, látinn, b)
Þórður Guðni, látinn, c) Þórey,
maki Jón Snorrason, börn henn-
ar eru Gunnar Þorkell, Kristján
Fannar, Katrín, Sóley Hrefna og
Heiður Helga. 2) Hilmar, maki
Anna Aðalsteinsdóttir. 3) Sigríð-
ur Esther, börn hennar eru: a)
Margrét Lára, látin. b) Margrjet
Lára, hennar sonur er Nökkvi
Baldur. c) Gylfi Þór, sambýlis-
kona Dagbjört Eva Hafliðadóttir,
sonur hans er Máni Þór. d) Birna
Dögg, börn hennar eru Esther
Gabriele, látin, Heiða Karen og
Esther Elena.
Ingibjörg var alin upp í
Vesturbæ og Miðbæ Reykjavík-
ur, gekk í Miðbæjarskólann og
Húsmæðraskóla Reykjavíkur.
Hún fór snemma að vinna fyrir
sér og vann í verslunum fram að
giftingu. Eftir að börnin fæddust
vann hún í mötuneytum og við
ræstingar, var með heimagist-
ingu í áraraðir og vann við þjón-
ustustörf. Ingibjörg tók þátt í að
stofna og var virkur félagi í Sam-
hjálp kvenna, samtaka kvenna er
vinna að stuðningi við konur er
greinst hafa með brjóstakrabba-
mein. Hún var virk í félagslífi,
stundaði líkamsrækt í áratugi,
átti marga vinahópa sem hún
ræktaði.
Útför Ingibjargar fer fram frá
Vídalínskirkju í Garðabæ í dag,
16. janúar 2020, klukkan 13.
sambýlismaður
Styrmir Frans Arn-
arsson, barn þeirra
Karítas Nadía. c)
Arna Björg, sam-
býlismaður Hákon
Björn Högnason. 3)
Svava, f. 12.10.
1963, maki Jóhann-
es Bragi Kristjáns-
son, börn þeirra
eru: a) Ragnhildur,
maki Sveinn Orri
Sveinsson, börn þeirra eru
Sveinn Matthías, Bjarki Hrafn og
Agnes Edda. b) Hans Óttar. c) Ír-
is Harpa, sambýlismaður Aron
Bjarki Harðarson. Ingibjörg átti
eina dóttur fyrir hjónaband,
Agnesi, faðir hennar er Jóhann
Líndal Jóhannsson, f. 25.11.
1930. 4) Agnes, f. 25.3. 1953,
maki Bessi H. Þorsteinsson, börn
þeirra eru: a) Örvar, maki 1 Ka-
milla Þorteinsdóttir, þau skildu,
börn þeirra eru Arndís Erla og
Elías Bessi, fyrir átti Örvar tví-
burana Gunnar Sindra og Svein
Andra. Maki 2 Amalía Sörens-
dóttir, börn hennar eru Kristófer
Elís, Elísa Kristín og Jónas Kol-
beinn. b) Tinna, maki Jón Björg-
vin Björnsson, börn Tinnu eru
Elena Dís og Maria Ísól, börn
Jóns Björgvins af fyrra hjóna-
bandi eru Brynhildur Ýr, Gabrí-
ela Ýr og Haukur Birgir. c)
Sindri, maki Jóhanna Íris, börn
þeirra eru Örvar Nói og Ýmir
Hrafn, börn Jóhönnu Írisar af
fyrra sambandi eru Karen Hulda
og Hlynur Ingi. Einnig ólst Hrafn
yngsti bróðir Ingibjargar upp hjá
þeim Hans eftir að móðir Hrafns
Í dag kveðjum við ástkæra
móður okkar sem lést eftir
stutt veikindi. Þegar við systk-
inin minnumst hennar er okkur
efst í huga þakklæti. Mamma
var elst í sínum systkinahópi og
þurfti ung að axla mikla
ábyrgð. Þar lærði hún sjálfsagt
strax að taka frumkvæði og að
ganga beint til verka sem mót-
aði hennar persónuleika.
Mamma var fædd 1. maí og var
verðugur fulltrúi verkalýðs-
stéttarinnar. Hún byrjaði ung
að vinna og vann fram undir
sjötugt ásamt því að sinna
lengst af stóru og gestkvæmu
heimili. Þrátt fyrir mikla vinnu
sinnti hún sínum alltaf vel. Hún
var mikill listakokkur og lagði
ríka áherslu á að maturinn sem
við börnin fengjum væri nær-
ingarríkur og fallega fram bor-
inn. Að okkar mati var hún
mikill frumkvöðull í matargerð
þar sem hún notaði grænmeti,
baunir og ýmislegt sem ekki
þekktist mikið við matargerð á
þeim tíma, aðalatriðið var að
hafa hollan mat. Af þeim þrjá-
tíu og fjórum árum sem for-
eldrar okkar voru í hjónabandi
var pabbi sjúklingur í sautján
ár eftir að hafa fengið heila-
blóðfall. Þarna vorum við börn-
in öll á unglingsaldri og var
engan stuðning að fá á þessum
tíma. Þarna sýndi mamma
hversu dugleg og traust hún
var, þekkti ekki uppgjöf heldur
bætti við sig vinnu til að geta
séð fyrir heimilinu. Mamma
sagði að til þess að geta unnið
mikið væri nauðsynlegt að
rækta vel líkama og sál og að
skila bæri líkamanum til baka
því sem frá honum væri tekið.
Hún stundaði líkamsrækt í yfir
50 ár. Hún var dugleg og þá
sérstaklega hin síðari ár eftir
að hún fór að hafa meiri tíma
að sækja menningarviðburði,
hitta hina ýmsu vinahópa ásamt
því að sinna vel sínum nánustu
og var okkur öllum mikil og góð
fyrirmynd. Elsku mamma, að
lokinni lífsgöngu viljum við
kveðja þig með þínum orðum
„Guð geymi þig“.
Þín mjúka og milda móður hönd
sem verndaði sína krakka
nú farin er í fjarlæg lönd
við eigum svo margt að þakka.
Þú trúðir á okkur öll sem eitt
svo einstök þú lést okkur finnast
og elskaðir börnin þín ofur heitt
svo margs við eigum að minnast.
Af kærleika þú kysstir kinn
og stappaðir í okkur stálið
þú vafðir okkur í faðminn þinn
og læknaðir hjarta sárið.
Þú kenndir okkur að trúa því
að Guð muni okkur vernda
og hönd hans leiði traust og hlý
í gegnum lífið allt til enda.
Með þakklæti við kveðjum nú
og biðjum Guð að geyma.
Elsku mamma nú gengur þú
um grundir nýrra heima.
(Svava Hansdóttir)
Agnes, Hrafn, Dag-
björt, Hermann og
Svava.
Í dag verður jarðsett ástkær
tengdamóðir mín Ingibjörg
Ingimundardóttir. Fyrstu kynni
okkar voru fyrir rúmum fjöru-
tíu árum er ég fór að venja
komur mínar á heimili hennar í
Samtúni 4. Allt frá upphafi hef-
ur hún tekið mér einstaklega
vel og höfum við allt frá fyrsta
degi verið miklir og góðir vinir.
Strax við fyrstu kynni sá ég
að þar var kjarnakona á ferð
því um tveimur árum áður hafði
Hans eiginmaður hennar fengið
heilablóðfall, orðið öryrki og
gat hvorki tjáð sig né tekið þátt
í hefðbundnum rekstri og heim-
ilishaldi. Auk þess voru fjögur
ungmenni á skólaaldri á heim-
ilinu.
Ingibjörg hafði alla tíð þurft
að hafa mikið fyrir sínu lífi.
Þegar áfallið með veikindi eig-
inmannsins dundi yfir herti hún
á í lífsbaráttunni og var um
margra ára skeið í þremur
vinnum, þ.e. mötuneytisstarf á
daginn, ræsting vinnustaða eft-
ir vinnu og í veitinga- og þjóna-
starfi um helgar. Samhliða
þessu rak hún heimagistingu
fyrir ferðamenn í mörg sumur
til að framfleyta sér og sínum.
Oft sá maður að Ingibjörg var
þreytt en aldrei sá maður eða
heyrði hana kvarta. Ég minnist
þess heldur ekki að hafa heyrt
hana rífast eða skammast við
sitt fólk, hún þagði frekar og
það skildu þeir sem þekktu.
Alla tíð stóð heimili hennar opið
fyrir fjölskyldu, systkinum og
vinum hennar og oft var þar
gestkvæmt.
Árið 2012 þegar hún var orð-
in ein í Samtúninu ákvað hún
að flytja út fyrir höfuðborgina,
þar sem hún hafði alltaf búið og
í Garðabæinn. Allt frá fyrsta
degi í Garðabænum fór hún að
fara í sundlaug bæjarins, kirkju
og að sækja í starf eldri borg-
ara. Hér í bænum leið henni vel
og sagði að hvergi væri betra
að búa. Stutt var á milli hennar
heimilis og okkar Dagbjartar
og því kom hún mikið til okkar
og hafði sitt ákveðna sæti þar.
Þetta vissu flestir og tóku að
sjálfsögðu tillit til þess.
Í áratugi hefur Ingibjörg
alltaf verið dugleg að hreyfa
sig, hvort heldur í leikfimi eða
að stunda sund. Sú iðkun hefur
heldur betur skilað sér vel
undanfarin ár í góðri líkamlegri
heilsu. Hún hefur ekki oft á
langri ævi verið frá vegna veik-
inda.
Margs er að minnast þegar
litið er yfir öll fjörutíu árin sem
við höfum verið samferða í líf-
inu. Ekki ætla ég að reyna að
tilgreina eitt frekar en annað
því þær minningar geymi ég
fyrir mig. Hvergi bar skugga á
okkar samskipti og allt frá
fyrsta degi hefur mér þótt ein-
staklega vænt um þessa góðu
og myndarlegu konu.
Nú þegar komið er að leið-
arlokum og mín kæra tengda-
móðir heldur af stað inn í sum-
arlandið er mér efst í huga
þakklæti fyrir að hafa fengið að
kynnast þessari yndislegu
manneskju og þakklæti fyrir
allt það sem hún gerði fyrir
okkur Dagbjörtu, börn, tengda-
börn og barnabörn okkar.
Þinn tengdasonur
Sigurbjörn Sveinsson.
Þó að dauðinn sé eitthvað
sem við getum gengið að vísu
við fæðingu okkar í þennan
heim þá er hann engu að síður
alltaf sár og þungbær. Endan-
leikinn hellist yfir og tómarúm-
ið verður svo stórt. Sér í lagi á
það við um jafn stóra karaktera
og hana Ingibjörgu ömmu okk-
ar. Það hefði síður en svo verið
henni að skapi að við myndum
minnast hennar fyrir þá sönnu
hvunndagshetju sem hún var og
virðum við það. Amma leit aldr-
ei á sig sem fórnarlamb, síður
en svo. Vopnuð fítonskrafti,
ómældum baráttuvilja og já-
kvæðni var hún sérdeilis
lausnamiðuð og í raun sigurveg-
ari. Það sem amma kannski síð-
ur áttaði sig á er sú stórbrotna
fyrirmynd sem hún var okkur
afkomendum hennar með þessu
viðhorfi. Fyrirmynd í þeim
skilningi að sama hversu þung-
bær verkefnin, og að því er
virðist nánast óyfirstíganleg,
eru þá er trúin á að maður geti
yfirstigið þau og fundið lausn,
alltaf til staðar. Að trúa því að
maður hafi kjarkinn og kraftinn
til að leysa verkefnin sem mað-
ur óumbeðinn fær í lífinu og
ekki síður þau sem einungis eru
í draumum manns. Þetta var
amma lifandi dæmi um og hví-
líkt veganesti sem það er fyrir
okkur unga fólkið.
Ekki einungis erum við
þakklát fyrir þá fyrirmynd sem
hún var okkur heldur einnig
fyrir þá kómísku framhleypni
sem svo oft hefur kitlað hlát-
urtaugar okkar og mun áfram
gera. Slík dæmi væru efni í
heila grein, út af fyrir sig.
Fyrir allt þitt veganesti,
samfylgdina, gleðina og ómælda
ást færðu okkar hlýjustu þakkir
fyrir. Góða ferð í sumarlandið,
elsku amma.
Ingibjörg, Eva Mjöll,
Guðrún Þórey og
Sigurbjörn Ari.
Mig langar til að minnast
Ingibjargar systur minnar sem
nýlátin er eftir erfið veikindi.
Hún var elst okkar systkina og
bar eftir því ábyrgð á hópnum.
Þá ábyrgð axlaði hún af mynd-
ugleik og veitti þeim sem yngri
voru leiðsögn og aðhald. Við
systkinin sóttum sunnudaga-
skóla og sá hún til þess að
fylgja hópnum til fræðslunnar.
Fyrir svefninn á kvöldin var
farið með bænir og var lögð rík
áhersla á algjöra þögn í húsi á
eftir. Annars var bænahaldið
ónýtt og varð að endurtaka það
frá byrjun.
Við Ingibjörg vorum alltaf
náin, alveg frá því að við sváf-
um andfætis hvort öðru sem
börn og fram á síðustu stund.
Við töluðumst daglega við í
síma, annaðhvort hringdi ég í
hana eða hún í mig. Þessi sam-
skipti voru fastur liður hvern
dag og eitthvað vantaði ef út af
var brugðið.
Ingibjörg byrjaði að vinna
fljótlega eftir fermingu og var
alla tíð afar vinnusöm. Hún
hafði enda fyrir stóru heimili að
sjá með sín fjögur börn og tók
að auki að sér Hrafn, yngsta
bróðurinn, við fráfall foreldra
okkar og ól hann upp sem sitt
eigið barn. Lífsbaráttan var
hörð og Ingibjörg fékk sinn
skerf af mótlæti á vegferð sinni.
En hún tók hlutskipti sínu af
æðruleysi og kvartaði aldrei.
Ingibjörg systir mín var fal-
leg kona, hún var hjartahrein
og góð sál sem vildi öllum vel
og bar umhyggju fyrir öllu sínu
fólki. Frændur og frænkur
minnast hlýju hennar og mann-
gæsku. Þakkarverð er sú um-
hyggja sem dætur hennar,
Agnes, Dagbjört og Svava,
sýndu móður sinni á dánarbeði.
Ég minnist systur minnar
með þakklæti og söknuði.
Örn Ingimundarson.
Ein af þeim konum sem voru
í stuðningshópi Samhjálpar
kvenna og eru mér afar minnis-
stæðar var Ingibjörg Ingi-
mundardóttir sem nú er kvödd.
Upphafið að vináttu og stuðn-
ingi þessa sjálfboðaliðahóps
gagnvart mér var þegar ég
skráði mig í vatnsleikfimi á
vegum Samhjálpar kvenna hjá
Lovísu heitinni Einarsdóttur í
sundlaug Hrafnistu í Hafnar-
firði haustið 1989 stuttu eftir að
ég fór í brjóstnám vegna
krabbameins. Í þeim hópi var
einmitt Ingibjörg Ingimundar-
dóttir. Ég varð ákaflega hrifin
og hænd að þessari konu. Hún
bar sig eins og drottning, svo
falleg og glæsileg var hún. Og
með hvatningu hennar og leið-
sögn tókst henni að veita mér
það sjálfsöryggi að ég fór að
stunda sund í almennum sund-
laugum. Hún var sönn fyrir-
mynd. Síðar átti ég eftir að
kynnast Ingibjörgu betur þegar
ég gekk í stuðningshópinn þar
sem hún og fleiri mætar konur
voru starfandi. Hún heimsótti
og studdi fjölda kvenna með
sínu jákvæða hugarfari og glað-
værð. Ég dáðist að því hve mik-
ið hún gaf af sér, sérstaklega
gagnvart þeim sem þurftu
stuðnings hennar við. Svo var
hún forkur dugleg að baka,
kom með fínustu tertur á
veisluborðið á hvern mánaðar-
legan fund og taldi aldrei eftir
sér að svara kalli ef einhvers
viðviks þurfti við eða að styðja
konu sem þurfti á stuðningi og
hvatningu að halda.
Fyrir hönd sjálfboðaliðahóps-
ins þakka ég Ingibjörgu sam-
fylgdina og sendi ástvinum
hennar innilegar samúðar-
kveðjur.
Guðrún Sigurjónsdóttir.
Ingibjörg
Ingimundardóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVANHILDUR ERLA J. LEVY,
Haðalandi 17,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 31. desember, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 16. janúar klukkan 15.
Gunnlaugur Guðmundsson
Garðar Gunnlaugsson
Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson
Anna Júlíusdóttir
Hildur Gunnlaugsdóttir Arnar Sölvason
Áslaug Gunnlaugsdóttir Ágúst Sæmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Alúðarkveðjur til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HELGA SKÚLASONAR
húsasmíðameistara,
Löngumýri 31, Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Höfða, hjúkrunar- og
dvalarheimili Akranesi, fyrir einstaka umönnun, væntumþykju og
hlýju. Guð gefi ykkur öllum farsælt nýtt ár, gæfu, gleði og góðar
stundir.
Fríða Proppé
Helgi Skúli Helgason Ölrún Marðardóttir
Halldóra Gyða Matthíasd. Proppé, Óli Svavar Hallgrímsson
Jóhannes Fr. Matthíasson
barnabörn og barnabarnabarn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTJANA JÓNSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Grund,
áður Eiðismýri 30,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund
8. janúar.
Jarðarför auglýst síðar.
Ólafur Haukur Ólafsson Elín Arna Arnardóttir Hannam
Valdimar Ólafsson Margrét Steinunn Bragadóttir
Guðrún Ingimundardóttir
Þórleif Drífa Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRVEIG SIGURÐARDÓTTIR
fyrrverandi kennari,
frá Sleitustöðum í Skagafirði,
Furulundi 6e, Akureyri,
lést laugardaginn 11. janúar.
Útförin fer fram frá Hóladómkirkju laugardaginn 18. janúar
klukkan 11.
Ragnar Smári Ólafsson
Sigrún Erla Ólafsdóttir Jóhann F. Þórhallsson
Hrafnhildur Inga Ólafsdóttir Magnús Traustason
Sólveig Jóna Ólafsdóttir Jóhann Þorvarður Ingimarss.
barnabörn og barnabarnabörn