Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 26
BAKSVIÐ Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Umönnun barna fyrstu árin, allt frá getnaði, hefur áhrif á allt þeirra líf og gagnreyndar rannsóknir sýna að tím- inn frá getnaði til tveggja ára aldurs er afgerandi fyrir þroska og velferð barna. Megináhersla Geðverndar- félags Íslands er á tilfinninga- og geð- heilbrigði ungra barna en félagið verður 70 ára á morgun. Kjartan Valgarðsson, fram- kvæmdastjóri Geðverndarfélags Ís- lands, segir að félagið hafi verið stofnað við gjörólíkar aðstæður þeim sem nú eru og um frumkvöðla- starfsemi hafi verið að ræða. Ekkert viðlíka starf eða hugsun var í gangi á þessum tíma. Kjartan segir að eðli málsins samkvæmt hafi áherslan hjá félaginu fyrstu árin og áratugina ver- ið á endurhæfingu. „Að koma geð- sjúkum af götunni og í skjól. Það skýrir áherslu félagsins og aðkomu að uppbyggingu á Reykjalundi, vernduðu heimili sem Geðverndar- félagið rak og áfangaheimili,“ segir hann, en félagið kom að uppbyggingu á Reykjalundi í samstarfi við Sam- band íslenskra berklasjúklinga (SÍBS). Þegar nýju lífi var hleypt í Geð- verndarfélagið fyrir tíu árum rak fé- lagið tvö vernduð heimili, annað í Breiðholti og hitt í Ásholti. Íbúarnir voru þrír á hvorum stað, þrír karlar og þrjár konur. Félagið hafði áður rekið fleiri slík heimili en þessi tvö voru þau sem enn voru eftir í rekstri á vegum þess, seg- ir Kjartan. „Á þessum tíma varð okk- ur ljóst að þessi rekstur væri barns síns tíma þar sem lagaumhverfið hafði gjörbreyst og hlutverk ríkis og sveitarfélaga orðið allt annað en það var þegar félagið var stofnað. Rökrétt niðurstaða var að fara út úr þessum rekstri og Reykjavíkurborg tók við rekstri vernduðu heimilunum og þau færð til nútímans,“ segir hann. Að sögn Gunnlaugar Thorlacius, formanns Geðverndarfélags Íslands, voru vernduðu heimilin rekin í sam- starfi við Landspítalann og eins áfangaheimilið í Álfalandi en þar bjuggu átta skjólstæðingar. Áfanga- heimilið var ætlað fólki eftir útskrift á geðdeild og þar gat það dvalið í eitt ár og fengið þjálfun hjá starfsfólki við að fóta sig í daglegu lífi. „Þetta var milli- stig frá því að vera á sjúkrahúsi í að vera þátttakandi í daglegu lífi,“ segir Gunnlaug. Samið við Landspítalann „Áður en við lokuðum áfangaheim- ilinu gerðum við samning við Land- spítalann um alla faglega þjónustu en heimilið var rekið af okkur. Fyrir fjórum árum var síðan tekin ákvörð- un um að það væri ekki lengur hlut- verk félagsins að reka slíkt heimili og því lokað,“ segir Kjartan. „Í beinu framhaldi og í samræmi við upphaflega hugmyndafræði og menningu í félaginu gekk það á und- an öðrum með því að opna þessi heimili. Enginn annar aðili sinnti þessu á þeim tíma,“ segir Kjartan en fyrir nokkrum árum komst stjórn fé- lagsins, sem er að mestu skipuð fag- fólki á þessu sviði, að þeirri niður- stöðu að tímabært væri að orka félagsins myndi beinast í aðrar áttir og í samræmi við hefðir félagsins þá einbeitir félagið sér nú að tilfinninga- og geðheilbrigði ungra barna sem það telur að sé ekki nógu vel sinnt. London School of Economics (LSE) gaf út skýrslu árið 2014 sem sýndi að fyrir hverja krónu sem eytt er í þennan málaflokk mætti spara 30. Miðað við íslenskan raunveruleika og árlega fæðingartíðni mætti spara 7 milljarða íslenskra króna fyrir hvern árgang með því að sinna foreldrum á meðgöngu og börnum þeirra fyrstu tvö árin á fullnægjandi hátt. Það, hvernig við önnumst börn frá fæð- ingu til tveggja ára aldurs, ræður framtíð þeirra sem hefur í kjölfarið áhrif á framtíð samfélags okkar. Að sögn Gunnlaugar er Geð- verndarfélagið ekki í klínískri starf- semi og hefur aldrei verið nema þá kannski í gegnum þessi vernduðu heimili sem voru rekin af félaginu hér áður. Félagið hefur alltaf verið félag fagfólks og stjórnin alltaf skipuð fag- fólki. „Við eru mest í stefnumótum og að reyna að koma á framfæri breyttri hugsun í málefnum sem snerta geð- fatlaðra. Þegar þörfin var sem mest í að tengja fólk og draga úr fordómum í garð geðfatlaðra þá vorum við þar – að gera það sýnilegra en hugmynda- fræði okkar núna snýr að því að fara í mjög snemmtækar forvarnir. Það er á fræðilegum grunni, búum til fræðsluefni, skrifum greinar, gefum út tímarit og setjum fram skoðanir á frumvörpum og fleira. Þetta er ekki alfarið stefna félagsins en þetta er stefna okkar í forvörnum og þar er meginþungi starfseminnar,“ segir Gunnlaug. Geðverndarfélagið er með samning við Solihull Approach, sem tilheyrir breska heilbrigðiskerfinu. Hjá Soli- hull er að finna samantekna reynslu af því að halda vel utan um mæður, nýfædd börn og fjölskyldur almennt. Anna Guðríður Gunnarsdóttir, MSc. hjúkrunarfræðingur og sér- fræðingur í heilsugæsluhjúkrun, hef- ur notað Solihull-aðferðina í starfi sínu og mun hún fjalla um reynslu sína á afmælisfundi Geðverndar- félagsins í næstu viku. Kjartan segir að hún leggi áherslu á fyrsta viðtal við verðandi mæður í eftirliti á með- göngu. Í stað þess að ræða við þær í 20 mínútur þar sem drepið er á fjölda- mörgum atriðum er lagður spurn- ingalisti fyrir verðandi mæður og rætt lengur við sumar, í allt að eina klukku- stund. 20 mínútur eru hvergi nærri nógur tími fyrir ljósmóður eða hjúkr- unarfræðing að átta sig á því hvort konan þurfi aukinn stuðning á með- göngu, stuðning sem getur haft mikil áhrif á allt líf viðkomandi. Miðað við tölur frá WHO þurfa um 5% kvenna verulegt inngrip á með- göngu, það er þurfa á þriðja stigs þjónustu að halda, segir Gunnlaug og miðað við meðaltal barna í árgangi eru það um 200 börn á ári á Íslandi. „Þess- ar fjölskyldur þurfa á verulegri aðstoð að halda. Meðal annars vegna alvar- legs vímuefnavanda, virkra alvarlegra geðsjúkdóma og alvarlegs félagslegs vanda. Síðan má bæta við 20-30% sem þurfa á aðstoð að halda. Rannsóknir bæði hérlendis og erlendis hafa sýnt að fjölskyldumiðuð lengri viðtöl starfsmanna í mæðraeftirliti og ung- barnavernd hjálpa meirihluta foreldra með vanlíðan svo sem kvíða eða streitu í foreldrahlutverki að leysa úr sínum vanda. Þetta er gríðarlega ódýr leið miðað við forvarnargildið og áhrifin á við- komandi börn síðar. Ef gripið er inn strax er hægt að koma í veg fyrir mik- inn vanda síðar. Hefur mikil áhrif fyr- ir fjölskyldur í landinu sálrænt séð og beinan kostnað sem fellur á heilbrigð- iskerfið, menntakerfið og félagslega kerfið, segir Gunnlaug. Inngrip strax getur skipt sköpum  Megináherslan á tilfinninga- og geðheilbrigði ungra barna  200 börn í árgangi þurfa aukna aðstoð Morgunblaðið/Árni Sæberg Geðverndarfélagið Gunnlaug Thorlacius er formaður Geðverndarfélags Íslands og Kjartan Valgarðsson er fram- kvæmdastjóri þess. Félagið er stefnumótun og reynir að koma á framfæri breyttri hugsun í málefnum geðfatlaðra. 26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 Geðverndarfélag Íslands verður 70 ára á morgun og verður haldið upp á afmælið með hátíðarfundi fimmtudagskvöldið 23. janúar í sal Íslenskrar erfðagreiningar. Sér- stakir heiðursgestir verða Eliza Reid forsetafrú og dr. Hazel Gou- glas, stofnandi og stjórnandi Sol- ihull Approach, sem tilheyrir breska heilbrigðiskerfinu (NHS) í Birmingham á Englandi. Geðvernd- arfélagið gerði á síðasta ári samn- ing við Solihull Approach og er fulltrúi þess á Íslandi. Með honum er félagið „Solihull Approach Li- cenced Center“ sem þýðir að félag- ið mun kynna þá þekkingu og reynslu sem SA hefur þróað á und- anförnum áratugum innan breska heilbrigðiskerfisins með því að bjóða upp á námskeið sem Solihull hefur þróað og boðið upp á Stóra- Bretlandi og víðar. Dr. Hazel Douglas hóf starfsferil sinn sem klínískur sálfræðingur og vann með fullorðna. Hún fékk snemma áhuga á snemmtækri íhlutun og fyrirbyggjandi heilsu- gæslu. Hún lagði í framhaldinu stund á nám í viðtalsmeðferð með börnum og hóf að starfa að tilfinn- inga- og geðheilbrigði barna. Hún hafði forystu um að þróa Solihull- aðferðina (The Solihull Approach) þar sem markmiðið er að samþætta þekkingu á tilfinningalegu heil- brigði og vellíðan við fræðslu og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks ásamt upplýsingum fyrir foreldra. Hún talar fyrir aðgengi fyrir alla að námskeiðum og fræðslu fyrir mæð- ur á meðgöngu og nýbakaða for- eldra. Geðverndarfélag Íslands telur að til þess að bæta aðstæður barna í ís- lensku þjóðfélagi fyrstu árin þurfi að stytta vinnuvikuna og lengja fæðingarorlof í 18 mánuði. Styrkja fagþekkingu starfsfólks leikskóla og ráða fleiri leikskólakennara í stað ófagmenntaðra. Auka skilning og þekkingu stjórnmálamanna á mikilvægi fyrstu ára í lífi barns og stofna Fjölskylduhús. guna@mbl.is Áhersla á fræðslu fyrir foreldra Solihull Approach Dr. Hazel Douglas.  Hægt er að lesa lengri útgáfu af viðtalinu við Gunnlaug Thorlacius og Kjartan Valgarðsson á mbl.is Nautakjöt, lambakjöt, svínakjöt, grillkjöt, lúxus hamborgarar, bacon og álegg Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 7.30-16.30 Sími 557 8866 pantanir@kjotsmidjan.is Komdu við eða sérpantaðu Gæða kjötvörur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.