Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Tónlistarmaðurinn Geirmundur Val- týsson ökklabrotnaði um helgina og hefur því þurft að aflýsa skemmt- unum í kvöld og á laugardagskvöld auk þess sem óvíst er með fyrirhug- aða viðburði það sem eftir lifir mán- aðar og í næsta mánuði. „Ég er svo truflaður að ég ligg á sjúkrahúsinu norður á Akureyri,“ sagði Geirmundur, þegar slegið var á þráðinn til hans í gær. Óðveðrið að undanförnu hefur tek- ið sinn toll. Um helgina var svo komið að sex strengja hestagirðing á Geir- mundarstöðum í Sæmundarhlíð í Skagafirði var nánast á kafi í snjó og því ætlaði Geirmundur að bæta við tveimur gaddavírsstrengjum, svo hestarnir kæmust ekki út. Stund gafst á milli stríða í hádeginu á sunnudaginn til þess að laga girð- inguna og Geirmundur nýtti sér „svikalognið“. „Veðrið var fínt og sem ég ætlaði að ná í gaddavírshönk til þess að reyna að setja fyrir hrossin mín missti ég fótanna á leiðinni inn í braggann og skall á hnakkann. Ég hefði ekki orðið hissa ef ég hefði höf- uðkúpubrotnað en skil ekki hvernig ég gat ökklabrotnað. Ég gekk með broddstaf í hægðum mínum, vissi vel af hálkunni, því hún er alls staðar, en sennilega hefur lítil snjóföl yfir ísnum villt mér sýn.“ „Ógeðslega heppinn“ Í fyrstu vildi Geirmundur ekkert gera í þessu, en svo fór að hann fór á sjúkrahúsið á Sauðárkróki um kvöld- ið og var svo fluttur til Akureyrar morguninn eftir. „Fóturinn á mér skekktist og það skil ég ekki heldur,“ heldur tónlistarmaðurinn áfram. Vegna þessa fór hann í aðgerð til þess að rétta fótinn, en ráðgert er að skera hann upp vegna brotsins í næstu viku. Geirmundur átti að spila í Húna- veri í kvöld og á þorrablóti í Miðgarði á laugardag. „Ég get augljóslega ekki mætt, hef slegið þetta af, og óvíst er með ball á Kringlukránni 1. febrúar. Vonandi kemst ég í brúðkaup í Reykjavík um miðjan næsta mánuð. En það kemur í ljós. Ég kann ekki á svona, hef aldrei slasast á þennan hátt.“ Geirmundur hefur sungið og spilað fyrir landann í yfir 60 ár og alltaf ver- ið tilbúinn í slaginn, þar til hann missti aðeins úr í haust vegna veik- inda. „Þá fékk ég einhverja sýkingu og var frá í fyrsta skipti, gat ekki skemmt um Laufskálaréttarhelgina. Ég hef verið „ógeðslega heppinn“, eins og krakkarnir segja, en svo ger- ist þetta allt í einu.“ Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson leikur við hvern sinn fingur og er þekktur fyrir að koma fólki í stuð. Engin gigg hjá Geir- mundi á næstunni  Skagfirski tónlistarmaðurinn datt í hálku og ökklabrotnaði Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGAR MIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna- yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd- aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava St. Pétursborg, Vínarborg og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga- rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO. „Við teljum að það sé hægt að spara með öðrum hætti en að minnka þjón- ustuna við barnafólk,“ segir Eyþór Laxdal Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, um ákvörðun skóla- og frístundaráðs um að stytta opn- unartíma leik- skóla borgarinn- ar um hálftíma á dag. Borgarfulltrúi Samfylkingarinn- ar sagði í samtali við mbl.is í gær að með þessu væri ætlunin að minnka álag á starfsfólk og börn. Eyþór segir að ýmsar leiðir séu færar í þá áttina en styttur opnunar- tími sé ekki rétta leiðin enda opn- unartími ekki það sama og viðveru- tími. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins hafa mótmælt ákvörðun sem á að taka gildi 1. apríl næstkomandi. „Við leggjumst gegn þessari breytingu. Síðasta úrræðið á að vera að úthýsa börnunum.“ Eyþór segir að ákvörðunin komi á óvart vegna þess að hún sé andstæð kosningaloforðum meirihlutans. „Þetta kemur mörgum á óvart vegna þess að þetta var ekki eitt af því sem var á dagskrá fyrir kosningar. Þá voru flokkarnir sem eru í meirihluta að tala um að auka þjónustuna við barnafjölskyldur. Þetta bitnar helst á barnafjölskyldum, vinnandi fólki og jafnvel frekar á konum en körl- um.“ Kjósa áfram gegn styttingu Eyþór segir ýmsar leiðir vænlegri til sparnaðar. „Það er svolítið skrýtið í nútíman- um að fara þessa leið á meðan við er- um með stjórnkerfi sem kostar marga milljarða á ári og notast enn við pappír frekar en rafræna þjón- ustu. Það væri hægt að spara þar frekar en með því að stytta opnunar- tíma leikskólanna.“ Eyþór segir að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins muni halda áfram að berjast gegn þessari breyt- ingu. „Við greiddum atkvæði gegn þessu í skólaráði og munum greiða atkvæði gegn þessu í borgarráði og borgarstjórn. Vonandi verður þetta dregið til baka. Það er stutt í að þetta taki gildi svo þetta er ansi bratt.“ Ekki náðist í Dag B. Eggertsson borgarstjóra. ragnhildur@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leikskólar Breyta á starfstímum leikskóla Reykjavíkurborgar þannig að þeir verði opnir frá 7.30 til 16.30. Áður voru þeir opnir til klukkan 17.00. Síðasta úrræðið að úthýsa börnum  Stytting í mótsögn við kosningaloforð Eyþór Laxdal Arnalds
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.