Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 68

Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 68
68 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 Grikkland Bikarinn, 16-liða úrslit, seinni leikur: PAOK – OFI Krít ..................................... 4:1  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK sem sigraði 7:1 samanlagt. England Bikarleikjum Manchester United – Wolves og Carlisle – Cardiff var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/enski.  EM karla 2020 E-RIÐILL, Malmö: Ísland – Ungverjaland ......................... 18:24 Rússland – Danmörk ........................... 28:31 Lokastaðan: Ungverjaland 3 2 1 0 74:67 5 Ísland 3 2 0 1 83:77 4 Danmörk 3 1 1 1 85:83 3 Rússland 3 0 0 3 76:91 0  Ungverjaland og Ísland fara í milliriðil. MILLIRIÐILL II, Malmö: Staðan: Noregur 1 1 0 0 34:28 2 Ungverjaland 1 1 0 0 24:18 2 Slóvenía 1 1 0 0 21:19 2 Svíþjóð 1 0 0 1 19:21 0 Portúgal 1 0 0 1 28:34 0 Ísland 1 0 0 1 18:24 0 Leikir á morgun: Slóvenía – Ísland Portúgal – Svíþjóð Noregur – Ungverjaland MILLIRIÐILL I, Vín: Staðan: Króatía 1 1 0 0 31:23 2 Spánn 1 1 0 0 33:26 2 Austurríki 1 1 0 0 32:29 2 Tékkland 1 0 0 1 29:32 0 Þýskaland 1 0 0 1 26:33 0 Hvíta-Rússland 1 0 0 1 23:31 0 Leikir í dag: 15.00 Spánn – Tékkland 17.15 Króatía – Austurríki 19.30 Hvíta-Rússland – Þýskaland   Dominos-deild kvenna Skallagrímur – Grindavík.................... 58:55 Valur – Snæfell ..................................... 93:54 Breiðablik – KR.................................... 60:79 Haukar – Keflavík ................................ 80:73 Staðan: Valur 16 14 2 1352:1056 28 KR 16 12 4 1229:1022 24 Keflavík 16 11 5 1181:1134 22 Skallagrímur 16 10 6 1089:1041 20 Haukar 16 10 6 1141:1118 20 Snæfell 16 4 12 1070:1264 8 Breiðablik 16 2 14 1017:1252 4 Grindavík 16 1 15 1033:1225 2 1. deild kvenna ÍR – Grindavík b ................................... 81:56 Staðan: Keflavík b 14 10 4 1058:984 20 Fjölnir 13 10 3 973:836 20 ÍR 15 9 6 969:864 18 Njarðvík 14 8 6 895:788 16 Tindastóll 14 8 6 942:941 16 Grindavík b 14 2 12 762:1023 4 Hamar 14 2 12 822:985 4 Meistaradeild Evrópu Zaragoza – Neptunas Klaipeda......... 86:70  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 2 stig fyrir Zaragoza og tók 8 fráköst en hann lék í 14 mínútur. NBA-deildin Atlanta – Phoenix ............................. 123:110 Brooklyn – Utah ............................... 107:118 Milwaukee – New York.................... 128:102 Memphis – Houston ......................... 121:110 Golden State – Dallas......................... 97:124 LA Clippers – Cleveland ................. 128:103 Staðan í Austurdeild: Milwaukee 36/6, Boston 27/11, Miami 27/12, Toronto 25/14, Indiana 25/15, Philadelphia 25/16, Orlando 19/21, Brooklyn 18/21, Charlotte 15/28, Chicago 14/27, Detroit 14/ 27, Washington 13/26, Cleveland 12/29, New York 11/30, Atlanta 9/32. Staðan í Vesturdeild: LA Lakers 33/7, Utah 28/12, Denver 27/12, LA Clippers 28/13, Houston 26/13, Dallas 25/15, Oklahoma 23/17, Memphis 19/22, San Antonio 17/21, Portland 17/24, Phoenix 16/24, Minnesota 15/24, Sacramento 15/25, New Orleans 15/26, Golden State 9/33.   KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: DHL-höllin: KR – Fjölnir.................... 19.15 Origo-höllin: Valur – ÍR....................... 19.15 Njarðtaksgryfja: Njarðvík – Keflavík 20.15 KNATTSPYRNA Fótbolti.net-mót karla: Kórinn: Stjarnan – Grótta ................... 20.10 Í KVÖLD! vörður. Hann varði alls 16 skot og þar af þrjú vítaköst. Það skipti engu máli hvað þeir hétu sem reyndu sig gegn honum í síðari hálfleik. Hann varði megnið af því hvort sem það var Aron, Alexander, Guðjón Valur eða aðrir en Guðmundur prófaði mjög marga leikmenn í sókninni í síðari hálfleik í þeirri von að liðinu tækist að stöðva blæðinguna. Eitt skot varið í síðari hálfleik Þótt Ungverjaland spili góða vörn og Mikler sé í háum gæðaflokki skýrir það ekki eitt og sér að Ísland skori aðeins sex mörk í síðari hálf- leik og tölurnar í síðari hluta leiksins séu 6:15. Á lokakafla leiksins gátu ís- lensku leikmennirnir varla komið boltanum í netið. Þeir skoruðu eitt mark á síðustu sextán mínútunum. Er það skelfileg staðreynd og fyrir vikið unnu Ungverjar sex marka sig- ur þegar upp var staðið. Fleiri slæmar tölur má sjá í leikn- um, en Ísland var aðeins með eitt skot varið í síðari hálfleik. Alls vörðu íslensku markverðirnir tíu skot en níu þeirra komu sem sagt í fyrri hálfleik. Eins og áður segir benti fátt til þess að leikur Íslands gæti hrunið algerlega í síðari hálfleik en sú varð engu að síður raunin enda hefur fyrirsjáanleiki sjaldan fylgt íslenska landsliðinu. Vörnin var virkilega góð í fyrri hálfleik. Þá heppnaðist oft að ganga út á móti hávöxnum og sterkum leik- mönnum Ungverja og drepa sóknar- lotur þeirra í fæðingu. Fyrir vikið náðu Ungverjar litlu flæði í sókn- irnar hjá sér í fyrri hálfleik. Þeir nýttu sér til hins ítrasta veik- leika íslensku varnarinnar í síðari hálfleik. Með framliggjandi vörn skapast svæði fyrir línumanninn Bence Bánhidi. Þegar hann náði að taka sér stöðu gat nánast enginn í ís- lenska hópnum haldið honum. Svo má velta því fyrir sér hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir allar línusendingarnar sem hann fékk, en Bánhidi skoraði 8 af 24 mörkum. Liðið virðist brothætt Eins og ítrekað hefur verið minnst á er íslenska liðið í uppbyggingar- ferli sem staðið hefur yfir í nokkur ár. Guðmundur landsliðsþjálfari sagði oft í aðdraganda mótsins að við værum ekki eitt af bestu liðum heims eins og sakir stæðu. Enda er ekki nema eitt ár síðan Ísland tapaði fyrir Brasilíu á HM. Eftir frammistöðuna gegn Dönum og Rússum kom frammistaðan í síð- ari hálfleik í gær eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Hún bendir sterk- lega til þess að íslenska liðið sé enn brothætt. Sagan kennir okkur hins vegar að Ísland hefur oft rifið sig upp eftir tapleiki. Aldrei hefur það farið í gegnum stórmót án bakslags. Verðlaunaliðið í Peking 2008 tapaði t.d. fyrir S-Kóreu og verðlaunaliðið á EM 2010 gerði jafntefli gegn Serbíu og Austurríki. Eitt mark síðasta korterið  Eftir fínan fyrri hálfleik gegn Ungverjalandi hrundi leikur Íslands Mark Guðjón Valur Sigurðsson skorar eitt fjögurra marka sinna gegn Ungverjum í gær. Þessi markahæsti landsliðsmaður handboltasögunnar hefur þá gert 1.865 mörk í 360 landsleikjum fyrir Íslands hönd. EM 2020 Kristján Jónsson kris@mbl.is Eftir góða sigra í fyrstu tveimur leikjunum á Evrópumótinu í hand- knattleik kom bakslag gegn Ung- verjum í síðasta leiknum í riðla- keppninni í gær. Ungverjaland hafði betur 24:18 þótt staðan hafi verið jöfn 17:17 þegar þrettán mínútur voru eftir af leiknum. Eftir ágætan fyrri hálfleik skoraði Ísland aðeins sex mörk í síðari hálfleik, sem er allt of lítið til að vinna leik gegn góðum andstæðingi á stórmóti. Fyrir vikið fer Ísland án stiga í milliriðil. Að loknum fyrri hálfleik var Ís- land yfir 12:9 og virtust Íslendingar vera með ágæt tök á leiknum. Ekki hafði allt gengið upp í sókninni en ekkert virtist benda til þess að liðið myndi fá skell eins og raunin varð. Ísland skoraði sex mörk í röð eftir að Ungverjar skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins. Ísland var yfir 12:7 en Ung- verjar skoruðu síðustu tvö mörk fyrri hálfleiks og löguðu stöðuna. Þessar tölur sýna hversu öflug vörn íslenska liðsins var í fyrri hálfleik og markvarslan var um 40%. Sóknarleikur liðsins í síðari hálf- leik er áhyggjuefni. Hann var að mínu mati virkilega góður í nánast 60 mínútur gegn bæði Dönum og Rússum. Ungverjar eru mjög sterk- ir í vörninni eins og sást gegn Dön- um og Roland Mikler er snjall mark- Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Keppni í milliriðli Íslands hefst í Malmö á morgun en hinn riðillinn fer af stað í Vínarborg í dag. Nú eru í húfi tvö sæti í undanúrslitum fyrir tvö efstu liðin úr hvorum riðli, auk þess sem mörg liðanna eru í baráttu um að komast í undankeppni Ól- ympíuleikanna. Íslenska liðið mætir Slóvenum, undir stjórn hins sænska Ljubomirs Vranjes, í fyrsta leik sínum á morgun. Slóvenar hafa unnið alla þrjá leiki sína á EM; þeir lögðu Svía, Svisslendinga og Pólverja að velli í F-riðlinum í Gautaborg og taka með sér tvö stig eftir frækinn sigur á Sví- um, 21:19. Á sunnudaginn leikur Ísland síðan við lið Portúgals, sem kom gríðar- lega á óvart með því að sigra Frakk- land, 28:25, í fyrstu umferð D- riðilsins í Þrándheimi og það varð til þess að Frakkar þurftu að halda heimleiðis eftir riðlakeppnina. Portúgal vann líka Bosníu en tapaði fyrir Norðmönnum í Þrándheimi, 28:34, og er því án stiga í byrjun. Norðmenn eru hins vegar með þau tvö stig með sér úr Portúgals- leiknum og þeir eru næstsíðustu mótherjar Íslendinga á þriðju- daginn. Norðmenn sigruðu auk þess bæði Frakka og Bosníumenn og eru af mörgum taldir sigurstranglegir í þessum milliriðli. Í lokaumferðinni á miðvikudaginn leikur íslenska liðið síðan við heima- menn, Svía, og endar því á tveimur Norðurlandaþjóðum. Þetta verður í fyrsta sinn sem Ísland mætir þrem- ur af grannþjóðum sínum á stórmóti karla í handbolta. Sigursælir Slóvenar bíða í fyrsta leiknum AFP Svíi Ljubomir Vranjes stýrir Slóv- enum og er mótherji á morgun. Þegar Íslendingar höfðu beðið lægri hlut fyrir Ungverjum í Malmö í gær voru örlög Dana ráðin. Þeir voru þar með úr leik á EM karla í handknattleik áður en leikur þeirra við Rússa hófst og árangur þeirra í keppninni er þar með sá slakasti frá árinu 1998 þegar þeir komust ekki í lokakeppnina sem þá fór fram á Ítalíu. Danmörk og Ísland hafa bæði verið með á öllum Evrópumótunum frá árinu 2000 og nú gerist það í að- eins annað skipti í ellefu lokamót- um að Ísland endar fyrir ofan Dan- mörku. Áður gerðist það árið 2010, í Austurríki, þegar Ísland fékk bronsverðlaunin en Danir höfnuðu í fimmta sæti. Sjá mátti vonbrigðasvipinn á leikmönnum Dana þar sem þeir fylgdust með Ungverjum sigla heim sigrinum á Íslandi. Það skilaði sér inn í leikinn gegn Rússum, sem voru yfir í hálfleik, 15:12, í leik sem skipti engu máli. Danir náðu að knýja fram sigur í lokin, 31:28, og náðu því einum sigri. vs@mbl.is AFP Farnir heim Niklas Landin og félagar í danska landsliðinu sitja eftir með sárt ennið og verða ekki meðal þeirra tólf liða sem fara í milliriðlana. Ísland ofar en Dan- mörk í annað sinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.