Morgunblaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Eggert Við Hörpu Kólnun er á byggingarmarkaði.  „Eftir að WOW air féll hef ég reglulega lagt fram minnisblað hjá ríkisstjórn varðandi vinnumark- aðinn og atvinnuleysið. Þetta var hluti af því,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamála- ráðherra, um nýja greiningu Vinnumálastofnunar á stöðunni. „Við höfum talið að ekki sé ástæða til að fara út í sértækar að- gerðir að svo komnu máli heldur teljum við rétt að fylgjast með því hvernig hagsveiflan þróast og hag- vöxturinn fer af stað á vormán- uðum og hvaða áhrif það hefur á at- vinnuleysið. Að svo stöddu er það mat bæði míns ráðuneytis og ríkis- stjórnarinnar að ekki sé ástæða til að fara af stað með sértækar að- gerðir eins og gert var eftir efna- hagshrunið eða eitthvað slíkt,“ segir Ásmundur Einar. Samkvæmt spá Vinnumálastofn- unar mun atvinnuleysi halda áfram að aukast fram á næsta ár. »14 Bíða og sjá hvernig atvinnuleysi þróast Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Greiðslur Sjúkratrygginga Íslands vegna læknismeðferða Íslendinga er- lendis fóru í fyrsta sinn yfir tvo millj- arða króna á síðasta ári. Þó að árið hafi enn ekki verið gert upp að fullu er ljóst að þessar greiðslur námu minnst 2,1 milljarði króna. Tölur yfir stærstu málaflokka, sem teknar voru saman fyrir Morgunblaðið, ná aðeins yfir fyrstu tíu mánuði ársins svo ljóst má vera að þessi tala verður talsvert hærri. Samkvæmt upplýsingum frá Höllu Er- lendsdóttur, deildarstjóra hjá Sjúkra- tryggingum Íslands, á enn eftir að skrá „töluverðan málafjölda“ frá 2019. Tölur SÍ sýna að alls leituðu 1.476 Ís- lendingar sér læknismeðferðar erlend- is fyrstu tíu mánuði síðasta árs. Það er meira en allt árið þar á undan sem þó var metár. Aukin sókn í læknis- meðferðir síðustu misseri er að lík- indum vegna tannlækninga þó að það hafi ekki fengist staðfest hjá Sjúkra- tryggingum. Fjölmargir Íslendingar hafa sömuleiðis farið í liðskiptaaðgerðir í útlöndum á liðnum árum. Alger sprenging hefur orðið í sókn Íslendinga í læknismeðferðir ytra á liðnum árum. Árið 2016 fóru 606 ein- staklingar utan í þeim tilgangi, árið 2017 voru þeir 793 en árið 2018 voru þeir 1.422. Enn eitt metárið er nú að baki. »6 Greiddu rúma 2 milljarða  Metár hjá SÍ vegna læknismeðferða Íslendinga erlendis Lækniskostnaður erlendis 2016-2019 Heildarkostnaður Sjúkratrygginga 2,5 2,0 1,5 1,0 2,1* 2,0 1,5 Milljarðar kr. 2017 2018 2019 Heimild: Sjúkra- tryggingar Íslands *Jan.-okt. 2019 Leikskólabörnin á Nóaborg í Reykjavík brostu sínu breiðasta og nutu þess að leika sér úti í gær þegar nokkuð hlýnaði í veðri eftir kuldatíð. Áfram verður tiltölulega hlýtt fram eftir degi en síðan byrjar að kólna og líklega verður hefð- bundið vetrarveður komið aftur um helgina. Morgunblaðið/Eggert Brostu breitt í blíðviðrinu M I Ð V I K U D A G U R 22. J A N Ú A R 2020 Stofnað 1913  18. tölublað  108. árgangur  VINNUR MEÐ NÁTTÚRULEG FYRIRBÆRI SVEFNINN ÞARF AÐ VERA Í LAGI BÖRNUM KENNT AÐ RÓA HUGANN VIÐSKIPTAMOGGINN DAGLEGT LÍF 11SÝNIR Í BERLÍN 29 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Ég sé einfaldlega ekki hver þörfin er á að keyra þetta svona hratt áfram,“ segir Hörður Arnarson, for- stjóri Landsvirkjunar, um þær fyrir- ætlanir umhverfis- og auðlindaráð- herra að stofna nýjan miðhálendis- þjóðgarð sem þekja mun um þriðjung landsins. Segir hann að vanda þurfi til verka við þetta verk- efni sem hann segir mjög áhuga- verða hugmynd. „Um þessar mundir er verið að móta orkustefnu og orkuöryggis- stefnu. Það er verið að skoða hvað við þurfum að gera í innviðaupp- byggingu og loftslagsmálum og þetta eru allt atriði sem þarf að taka með í reikninginn.“ Bendir hann á að orkuframleiðsla og þær aðferðir sem beitt verður við hana muni leika lyk- ilhlutverk í baráttunni við loftslags- breytingar á komandi áratugum. Í viðtali við ViðskiptaMoggann í dag segir Hörður að innan eins til tveggja ára geti Landsvirkjun tekið að greiða ríkissjóði 10 til 20 milljarða árlega í arðgreiðslur af starfseminni. Þar skipti lykilmáli nýir orkusölu- samningar sem séu mun hagstæðari fyrir íslenskt þjóðarbú en eldri samningar. Unnið á of miklum hraða  Forstjóri Landsvirkjunar segir of hratt unnið að stofnun miðhálendisþjóðgarðs  Skoða þurfi áhrif af stofnun hans í víðara samhengi, m.a. loftslagsbreytingar M »ViðskiptaMogginn & 4  Skiptastjórar WOW air gripu í tómt þegar óskað var kyrrsetn- ingar á eignum Títans fjárfestinga- félags ehf. í liðinni viku. Þær eignir sem fundust í félaginu eru allar veðsettar Arion banka. Því var um árangurslausa kyrr- setningu að ræða en til hennar var gripið vegna millifærslu milli WOW air og Títans, sem var móðurfélag flugfélagsins, sem framkvæmd var í febrúar 2019. Þar greiddi WOW air Títan tæpar 108 milljónir króna sem slitabú WOW air vill láta rifta. Slitabúinu hefur ekki tekist að afla upplýsinga um afdrif fjármunanna sem voru hluti af fullnaðargreiðslu fyrir hlut Títans í félaginu Cargo Express. Heimildir ViðskiptaMoggans herma að þess verði ekki langt að bíða að gjaldþrotaskipta verði ósk- að á Títan fjárfestingafélagi en það heldur m.a. utan um tæplega 10% hlut Skúla Mogensen í Carbon Recycling International. »ViðskiptaMogginn Morgunblaðið/Hari Gjaldþrot WOW air hætti starfsemi 28. mars í fyrra eftir mikla rekstrarerfiðleika. Ekkert fannst til að kyrrsetja hjá Títan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.