Morgunblaðið - 22.01.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Forsætisnefnd borgarstjórnar
Reykjavíkur samþykkti á síðasta
fundi sínum tillögu þess efnis að al-
menningur geti leigt út herbergin
Turn og Tjarnarbúð í Ráðhúsi
Reykjavíkur fyrir athafnir á borð við
hjónavígslur á föstum tímum tvisvar
til þrisvar í viku.
Í umsögn viðburðastjórnar Ráð-
hússins er lagt til að hægt verði að
leigja umrædd rými á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum kl.
10.00-15.00, að hámarki í eina
klukkustund. Verð yrði 20.000 krón-
ur að viðbættum virðisaukaskatti og
starfsmaður Ráðhúss þyrfti ætíð að
vera viðstaddur. Leyfilegt væri að
skála að athöfn lokinni en ekki verði
leyfilegt að vera með hrísgrjón,
sápukúlur, glitpappír og þess háttar.
Í samþykkt forsætisnefndar er til-
tekið að þess skuli gætt skal að at-
hafnirnar rekist ekki á við önnur
fundarhöld. Viðburðarstjórn Ráð-
hússins er falið að sjá um að semja
reglur og annast útleiguna í sam-
ræmi við umsögn hennar frá 14. jan-
úar sl. Meta skal reynslu af verkefn-
inu að ári liðnu, í janúar 2021.
Tillagan er upphaflega komin frá
Pawel Bartoszek, foseta borg-
arstjórnar. Í greinargerð segir
Pawel að rík hefð sé fyrir því í öðr-
um löndum á borgaralegar athafnir,
á borð við hjónavígslur og nafngiftir,
fari fram í ráðhúsum borga,
þá jafnvel þannig að starfsfólk
sveitarfélagsins eða í einhverjum til-
fellum bæjarstjórar gefi saman
brúðhjón. „Hér á landi er lagaum-
gjörðin önnur en engu að síður er að
mati tillöguflytjenda eftirspurn eftir
hátíðlegu rými í Reykjavík sem hef-
ur skírskotun í borgaraleg, ver-
aldleg og lýðræðisleg gildi þar sem
þau sem það kjósa geti varðað mik-
ilvæga áfanga í lífinu í umhverfi sem
ekki er tengt einstaka trú- eða lífs-
skoðunarfélagi,“ segir Pawel m.a. í
greinargerðinni.
Kolbrún Baldursdóttir, áheyrn-
arfulltrúi Flokks fólksins, bókaði að
hún vildi að borgarstjórnarsalurinn
yrði meðal möguleika til að halda
slíkar athafnir. Fulltrúar meirihlut-
ans gagnbókuðu að rétt væri að gera
tilraun með að leigja út fyrrnefnda
sali áður en opnað er fyrir fleiri
möguleika.
Giftingar leyfðar í Ráðhúsinu
Tilraunaverkefni í tveimur herbergjum Klukkutíminn kostar 20 þúsund
Heimilt verður að skála í víni en hrísgrjón og sápukúlur eru á bannlista
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhúsið Hjónavígslur verða heimilaðar í tveimur herbergjum hússins. Þetta er tilraunaverkefni til eins árs.
Hverjir sóttu kvöldverð sem útsvars-
greiðendur greiddu fyrir rúma hálfa
milljón þann 1. nóvember sl. í Höfða í
tilefni af samgöngusáttmála? Hver
tók ákvörðun um þessa móttöku?
Þannig hljóðaði fyrirspurn sem
áheyrnarfulltrúi Miðflokksins lagði
fram ásamt fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins og áheyrnarfulltrúa Flokks
fólksins í forsætisnefnd borgarstjórn-
ar á föstudaginn. Fyrispurninni var
vísað til umsagnar skrifstofu borgar-
stjóra og borgarritara.
Fyrirspurnin er tilkomin vegna
yfirlits yfir opinberar móttökur
Reykjavíkurborgar, sem lagt var
fram á sama fundi. Þar kemur fram
að áætlaður kostnaður við þessa til-
teknu móttöku væri 506.544 krónur.
Í yfirlitinu, sem nær frá 11. ágúst
2019 til dagsins í dag, kemur fram að
borgin hélt níu móttökur á þessu
tímabili, sem kostnaður hlaust af.
Samtals nam hann rúmum 3,3 millj-
ónum króna.
Dýrasta móttakan var vegna
stjórnendadags starfsfólks Reykja-
víkurborgar, kr. 914.795. Næstdýrust
var móttaka Reykjavík forum vegna
heimsþings kvenleiðtoga, 800 þúsund.
Þá kemur fram að hafnað var beiðni
um móttökur vegna tveggja viðburða.
Í fyrsta lagi var hafnað að taka á móti
800-1.000 manns vegna norræns lög-
fræðiþings, enda rúmi Tjarnarsalur
ekki fleiri en 600 manns. Einnig var
hafnað að taka á móti fyrrverandi
þingmönnum fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings en þeim boðin í staðinn
leiðsögn í Höfða.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins
bókaði að honum þætti þetta mikill
peningur og gerði enn og aftur kröfu
um að sjá allan kostnað við móttökur
sundurliðaðan. sisi@mbl.is
Vilja vita hverjir
sátu kvöldverð
Móttaka í Höfða til að fagna sam-
göngusáttmála kostaði hálfa milljón
Morgunblaðið/Ómar
Höfði Móttökuhús borgarinnar.
Karlmaður á sjötugsaldri krefst
2,7 milljóna króna í bætur auk
vaxta vegna „frelsissviptingar,
niðurlægjandi meðferðar, harð-
ræðis og ofbeldis,“ sem hann seg-
ist hafa verið beittur af hálfu lög-
regluþjóns. Þá hefur héraðs-
saksóknari gefið út ákæru á
hendur lögreglumanninum vegna
sama máls.
Umrætt atvik átti sér stað við
skemmtistaðinn Irishman Pub í
miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt 18.
mars í fyrra.
Lögregluþjónninn er ákærður
fyrir líkamsárás og brot í opin-
beru starfi með því að hafa farið
offari og ekki gætt lögmætra að-
ferða við handtöku mannsins.
Fram kemur í ákæru að lög-
regluþjónninn hafi slegið manninn
aftan í höfuðið við að setja hann
inn í lögreglubifreið, slegið hann
tveimur höggum í andlit, þrýst
hné í háls og höfuð hans og þving-
að handjárnaða handleggi hans
ítrekað í sársaukastöðu fyrir aftan
bak þar sem maðurinn lá á gólfi
lögreglubifreiðar á Hverfisgötu,
með þeim afleiðingum að mað-
urinn tognaði og hlaut ofreynslu á
hálshrygg.
Lögreglumaður ákærður fyrir líkamsárás
Borgarráð hefur heimilað nokkrum
sportbörum í borginni tímabundið
leyfi til áfengisveitinga aðfaranótt
mánudagsins 3. febrúar nk.
Eru leyfin veitt vegna beinnar
sjónvarpsútsendingar á úrslitaleik
Ofuskálarinnar í ruðningi, Super-
bowl 2020, í Bandaríkjunum. Slík
leyfi hafa verið veitt nokkur und-
anfarin ár vegna mikils áhuga á
íþróttinni meðal Íslendinga. Að
þessu sinni fer leikurinn fram í
Miami í Flórída.
Sportbarir sem fá leyfi eru: Am-
erican Bar, Austurstræti 8-10, til
klukkan 3.30, Gummi Ben bar,
Tryggvagötu 22 til klukkan 4.30 og
Sportbarinn Ölver, Álfheimum 74
til klukkan 4.30.
Jákvæð umsögn borgarráðs er
háð því að aðrar lögbundnar um-
sagnir séu einnig jákvæðar.
sisi@mbl.is
AFP
Opið lengur
vegna
Ofurskálar
Fulltrúar launamanna í stjórn
Birtu lífeyrissjóðs
Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að
taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2020 til 2022.
Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.9) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta
tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu
og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu
stjórnarmanna.
Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn og einn varamann til tveggja ára
í stjórn sjóðsins.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð á útfylltu
framboðseyðublaði, sem er að finna á vefnum birta.is, á netfangið
valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 13. febrúar 2020.
• vera launamenn sem greiða iðgjald í Birtu lífeyrissjóð.
• ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar.
• vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv.
31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi
lífeyrissjóða og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim
kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum
lögum, reglum FME, samþykktum sjóðsins og starfsreglum valnefndar.
• Skila inn útfylltu framboðseyðublaði með drengskaparyfirlýsingu um að þeir
uppfylli skilyrði til slíkrar stjórnarsetu.
Allar nánari upplýsingar um stjórnarkjörið, framboðseyðublaðið/yfirlýsinguna og
sjóðinn má finna á vefnum birta.is
ÞEIR SEM GEFA KOST Á SÉR SKULU
Birta lífeyrissjóður I Sundagörðum 2 I 104 Reykjavík I 480 7000 I birta@birta.is I birta.is