Morgunblaðið - 22.01.2020, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2020
Verið velkomin í verslun okkar
Opið mán - fim kl. 8:30 –17:00, fös 8:30–16:45
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ÞORRATILBOÐ
ER ALLT KLÁRT FYRIR
ÞORRABLÓTIN?
25%
AFSLÁTTUR
AF VÖLDUM
VÖRUM
HITALOGAR HITAKASSAR
MELAMIN BAKKAR
SNAFSAGLÖS SWAN POTTAR HITABORÐ
Það er ávallt tilhlökkunarefniað sjá nýtt leikrit eftirTyrfing Tyrfingsson, endahefur hann þegar markað
sér stöðu sem eitt eftirtektarverð-
asta íslenska leikskáld samtímans. Á
tæpum áratug hafa ratað á svið sex
leikverk eftir Tyrfing hér á landi,
einleikurinn Grande (2011) sem var
lokaverkefni hans við Listaháskóla
Íslands; einþáttungurinn Skúrinn á
Sléttunni (2013); Bláskjár (2014)
sem var fyrsta leikrit höfundar í
fullri lengd, Auglýsing ársins (2016),
Kartöfluæturnar (2017) og nú Helgi
Þór rofnar, en öll verkin nema
Grande voru sett upp í Borgarleik-
húsinu, þar sem hann starfaði um
skeið sem hússkáld.
Áberandi leiðarstef í verkum
Tyrfings hefur frá upphafi verið of-
beldi í nánum samböndum, þar sem
vanræksla, skortur á nánd, tilfinn-
ingaleg fátækt, markaleysi og
stjórnsemi hafa skelfilegar afleið-
ingar. Tyrfingur skrifar um flókin
sálfræðileg tengsl af djúpu innsæi
og augljósri þekkingu sem skilar sér
í áhrifamiklum leiktexta sem nýtur
sín vel á sviði. Beitt orðfæri og
ákveðin gróteska í bland við ofbeldi
og grimmd, sem minnir á stundum á
verk Söruh Kane, ýta auðveldlega
við áhorfendum, en Tyrfingur gætir
þess vandlega að nýta húmorinn til
að hjálpa okkur að meðtaka óþægi-
lega og sára hluti. Húmorinn hefur
þannig ávallt verið eitt mikilvægasta
verkfærið í verkfærakistu Tyrfings
og er óhætt að segja að hann sé sót-
svartur í nýjasta leikriti hans.
Í Helgi Þór rofnar beinir Tyrf-
ingur, líkt og oft áður, sjónum sínum
að undirmálsfólki án þess þó að gera
lítið úr því – því mennskan er alltaf í
fyrirrúmi hjá höfundi. Í forgrunni
eru feðgarnir Helgi Þór (Hilmar
Guðjónsson) og Jón (Bergur Þór
Ingólfsson) sem reka saman útfarar-
þjónustu þar sem Helgi Þór starfar
sem líksnyrtir, en dreymir um að
láta rödd sína heyrast, meðan faðir
hans er útfararstjóri sem hefur
viðurværi sitt af alls kyns skiptidíl-
um. Snemma verks birtist Katrín
(Þuríður Blær Jóhannsdóttir) og
reynist vera dóttir líksins (Kári
Gíslason) sem Helgi Þór er þá
stundina með á börunum. Á milli
Helga Þórs og Katrínar kviknar ein-
hver neisti sem fær Helga Þór til að
vilja sýna meira sjálfstæði í eigin lífi
en hann hefur áður gert og brjótast
út úr aðstæðum sínum. Þegar Jón
mætir á svæðið og gerir sér grein
fyrir því að hann gæti mögulega ver-
ið að missa yfirráðin yfir syni sínum
kastar hann fram spádómi og segir
líf sonarins í hættu. Inn í atburða-
rásina blandast síðan bakarinn
(Hjörtur Jóhann Jónsson) sem vill
ólmur að Helgi Þór flytji inn til sín, í
stað barnungrar dóttur sem hann
hefur ekki lengur burði eða nennu til
að sjá um.
Stefán Jónsson leikstjóri lýsir
Helgi Þór rofnar sem grískum
harmleik í viðtali í leikskrá með vís-
an til þess hversu afgerandi atburðir
verksins eru og höfundur noti mark-
visst minni á borð við álög og spá-
dóma. Áhugavert er að skoða hvaða
áhrif spádómar hafa á fólk. Hefði
Lajos konungur aldrei heyrt spádóm
þess efnis að Ödipus, sonur hans,
myndi myrða föður sinn og því næst
kvænast móður sinni, Jóköstu, hefði
Lajos sennilega aldrei skipað svo
fyrir að bera ætti barnið út heldur
alið það upp hjá sér og þá hefði spá-
dómurinn mögulega aldrei ræst.
Eins mætti spyrja sig hvort hvarflað
hefði að Makbeð að myrða Dúnkan
konung ef nornirnar þrjár hefðu
ekki orðið á vegi hans á heiðinni og
spáð fyrir honum konungdómi? Sagt
er að orð séu til alls fyrst, en orð og
hvernig talað er til okkar á mótunar-
skeiði hefur líka afgerandi áhrif á
þroska einstaklingsins. Hvaða sjálfs-
traust öðlast sá sem ávallt fær að
heyra að hann sé einskis megnugur?
Og hvernig lærir manneskja sem
býr ekki við alúð að elska? Börn
læra jú það sem fyrir þeim er haft og
mantran sem þau heyra mótar.
Umgjörð sýningarinnar er góð,
hvort heldur snýr að leikgervum
Margrétar Benediktsdóttur, fínni
lýsingu Pálma Jónssonar, áhrifamik-
illi tónlist Magnúsar Jóhanns Ragn-
arssonar eða flottri hljóðmynd Garð-
ars Borgþórssonar. Stílhrein og köld
leikmynd Gretars Reynissonar
skapar góðan ramma um atburði
verksins þar sem skemmtileg spegl-
un verður milli bakarísins og lík-
brennslunnar sem nýtt var til hins
ítrasta í þöglum leik í upphafi sýn-
ingar. Í brauðinu felst líf í formi
næringar en líkbrennsluofninn tákn-
ar endalokin sem bíða okkar allra. Á
milli ofnanna tveggja birtist vonin
um ást og nánd. Þar býr Katrín sem
Helgi Þór heimsækir tvisvar í verk-
inu. Vel útfærð myndbönd Elmars
Þórarinssonar þjóna mikilvægu
hlutverki þar sem þau sýna okkur
fyrsta fund Helga Þórs og Katrínar
sem átti sér stað áður en verkið
hefst og inniheldur jafnframt loka-
setningu verksins, sem virkar slá-
andi í ljósi þess sem gengið hefur á.
Búningar Stefaníu Adolfsdóttur
voru látlausir og þjónuðu persónum
mestmegnis vel. Hins vegar fer að
verða nokkuð þreytt stef hversu
klæðalítil Þuríður Blær þarf iðulega
að vera í sýningum án þess að það
þjóni augljósum tilgangi. Þessi frá-
bæra leikkona fer létt með að leika
druslulega fyllibyttu án þess að
þurfa að vera á brókinni. Þuríður
Blær miðlar afar vel sársauka Katr-
ínar og viðkvæmni í leit hennar að
ljósi, sem hún telur sig jafnvel sjá í
Helga Þór. Hilmar stendur sig frá-
bærlega í hlutverki titilpersónunnar
sem dreymir um aukið sjálfstæði og
langar mest af öllu að fá að ráða, en
kann vegna reynsluleysis ekkert
með valdið að fara þegar honum loks
gefst tækifærið. Samleikur Hilmars
og Þuríðar Blævar er góður, ekki
síst þegar persónur þeirra fara í
hlutverkaleik.
Hjörtur Jóhann í hlutverki bak-
arans sveiflar sér léttilega milli þess
að vera ruddalegur og viðkvæmnis-
legur. Þjáning hans og uppgjöf þeg-
ar Helgi Þór hafnar hjálp hans var
átakanlega sár. Bergur Þór í hlut-
verki föðurins er ógnandi þegar
hann kúgar aðra til hlýðni með of-
beldi jafnt í orðum og gjörðum. Ólíkt
Helga Þór sem fær engu að ráða
ætlar Jón öllu að ráða, með skelfileg-
um afleiðingum. Erlen Isabella Ein-
arsdóttir fer vel með hlutverk stelp-
unnar í bakaríinu og Kári Gíslason á
hrós skilið fyrir frammistöðu sína á
líkbörunum, enda hægara sagt en
gert að liggja grafkyrr svona lengi.
Gjöfult samstarf höfundar og leik-
stjóra skilar sér í áhrifamikilli sýn-
ingu sem birtir okkur grimman og
ofbeldisfullan heim sem erfitt getur
verið að horfast í augu við. Við get-
um þó heilmikið lært af leit höfundar
að ljósinu sem leynist í sérhverri
manneskju, en fær vegna aðstæðna
ekki alltaf tækifæri til að loga.
Guð, gerðu mig góðan, bara ekki strax
Ljósmyndun/Grímur Bjarnason og Bjarni Grímsson
Borgarleikhúsið
Helgi Þór rofnar bbbbn
Eftir Tyrfing Tyrfingsson. Leikstjórn:
Stefán Jónsson. Leikmynd: Gretar
Reynisson. Búningar: Stefanía Adolfs-
dóttir. Lýsing: Pálmi Jónsson. Tónlist:
Magnús Jóhann Ragnarsson. Mynd-
band: Elmar Þórarinsson. Leikgervi:
Margrét Benediktsdóttir. Hljóðmynd:
Garðar Borgþórsson. Leikarar: Bergur
Þór Ingólfsson, Erlen Isabella Einars-
dóttir, Hilmar Guðjónsson, Hjörtur
Jóhann Jónsson, Kári Gíslason og
Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Frumsýn-
ing á Nýja sviði Borgarleikhússins
föstudaginn 17. janúar 2020.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Samspil „Samleikur
Hilmars og Þuríðar
Blævar er góður.“
Fyrsta kvikmyndin um rithöfundinn Tove Jansson, sem frægust er fyrir
skrif sín um múmínálfana, verður frumsýnd í haust. Leikstjóri er Zaida
Bergroth og handritið skrifar Eeva Putro. Í
samtali við Sænska ríkisútvarpið segir Andrea
Reuter, framleiðandi, um að ræða dýrustu finn-
landssænsku kvikmyndina sem gerð hefur ver-
ið til þessa. Með hlutverk Jansson fer finn-
landssænska leikkonan Alma Pöysti, en hún lék
rithöfundinn einnig á sviði hjá Sænska leikhús-
inu í Helsinki árið 2017. „Ég varð svo innilega
glöð að ég bæði grét og hló,“ segir Pöysti um
það þegar henni bauðst hlutverkið.
„Konur eru í meirihluta þeirra sem vinna að
myndinni, sem er góð tilfinning þar sem við
segjum sögu mikilvægustu konu lands okkar,“
segir Reuter. Myndin gerist á eftirstríðs-
árunum í Finnlandi, sem höfðu mótandi áhrif á
Jansson. Sjónum er m.a. beint að ástarlífi Jans-
son, sem var tvíkynhneigð, og því sem veitti
henni innblástur að múmínálfabókunum. Myndin verður leikin á finn-
landssænsku, sem mun vera óvanalegt í finnskri kvikmyndagerð. Að
sögn Reuter kom þó ekki annað til greina en að myndin væri leikin á
móðurmáli Jansson.
Kvikmynd um Tove Jansson væntanleg
Ljósmynd/Reino Loppinen
Ástsæl Tove Jansson.
Gítarleikarinn
Johnny Marr,
fyrrverandi liðs-
maður popp-
sveitarinnar The
Smiths, mun
semja tónlist við
nýjustu kvik-
myndina um
James Bond, No
Time to Die,
ásamt tónskáldinu Hans Zimmer,
að því er fram kemur á vef tón-
listarritsins NME. Marr segist
hæstánægður með að fá að leika á
gítarinn í Bond-mynd, en hann hef-
ur áður unnið með Zimmer, m.a.
að tónlist kvikmyndarinnar Incep-
tion.
Zimmer vinnur nú hörðum hönd-
um að tónlistinni við myndina, en
hann fékk verkefnið fyrir fáeinum
dögum. Frumsýna á myndina í
apríl og má því segja að töluvert
álag sé á Zimmer. Tónskáldið Dan
Romer átti að semja tónlistina við
myndina en hann sagði sig frá
verkefninu vegna listræns ágrein-
ings, að því er fram kemur á vef
kvikmyndatímaritsins Variety.
Johnny Marr
Marr semur Bond-tónlist með Zimmer