Morgunblaðið - 22.01.2020, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2020
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN
Í SKYWALKER SÖGUNNI
F ROM T HE D I R E C TOR OF S K Y FA L L
dfgsdfg
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
6 ÓSKARSTILNEFNINGAR
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Í menningarstofnuninni Künst-
lerhaus Bethanien í Berlín var í lið-
inni viku opnuð einkasýning Önnu
Rúnar Tryggvadóttur myndlistar-
konu. Sýninguna kallar hún An Ode -
poriferal phases
og er Birta Guð-
jónsdóttir
sýningarstjóri.
Í Künstlerhaus
Bethanien eru 25
vinnustofur þar
sem listamenn
sem valdir eru inn
og studdir af ýms-
um stofnunum og
þjóðlöndum
dvelja í eitt ár og
vinna að list sinni. Á tímabilinu halda
þeir þar einkasýningu og njóta
margskonar aðstoðar við að byggja
upp tengslanet með fundum og kynn-
ingum fyrir áhrifafólki úr heimi
myndlistarinnar. Menntamálaráðu-
neytið hefur nýverið gert samning
um að einn íslenskur myndlist-
armaður geti á hverjum tíma starfað
í stofnuninni.
„Þessi sýning byggist á sama hug-
mynda- og rannsóknargrunni sem ég
hef unnið með síðastliðin tíu ár en á
henni eru fjögur stór verk,“ segir
Anna Rún. „Ég vinn í þeim með nátt-
úruleg fyrirbæri, steina, svampa og
tré, og svo einnig ólífræn efni en for-
verar þeirra voru samt numdir úr
jörðu, til að mynda í formi olíu sem
svo var breytt í plastefni. Þetta eru
samsettir skúlptúrar sem verða eins-
konar skúlptúrgjörningar. Þeir eru á
hreyfingu og þá er líka visst um-
breytingaferli á litlum skúlptúrum
hér í gangi.“
Anna Rún segir ástand heimsins
vera undirliggjandi í þessum verkum
hennar, eins og þeim sem hún hefur
unnið að síðustu ár. „Við erum eðli-
lega margir listamennirnir sem
spyrjum spurninga um samband
okkar mannanna við náttúruna, og
það hvernig við skilgreinum hug-
myndina um hið náttúrulega á ýms-
um sviðum. Og spurningarnar heyr-
ast vissulega um allt, í náttúru-
vísindum, listum og heimspeki, og í
hinni daglegu orðræðu.
Á okkar litla Íslandi er náttúran
svo greinilega aflið sem ræður ríkj-
um í samfélaginu en engu að síður er-
um við alin upp í þeim tvískinnungi
að samfélagið stjórni náttúrunni,
þótt við vitum auðvitað undir niðri
betur.“
Lítur Anna Rún svo á að það sé
skylda listamanns að taka til máls og
vinna með þann blákalda veruleika?
„Listirnar hafa margvíslegar
skyldur en þær felast þó ekki í við-
fangsefnum sem slíkum,“ svarar
hún. „Engu að síður er þessi um-
hverfisvá nú stærsta málefnið sem
við stöndum frammi fyrir sem mann-
eskjur og samfélög.
Í stóru samhengi er fyrir löngu
orðið tímabært að endurnýja hug-
myndir um það á hverju við byggjum
líf okkar, skilgreiningar og gildi og
hvernig við lifum á skynsamlegan
hátt.“
Listamenn alls staðar að
Künstlerhaus Bethanien er stór og
gömul ljósaverksmiðja í hjarta Berl-
ínarborgar sem var lögð undir vinnu-
stofur og sýningarsali myndlistar-
manna fyrir um áratug en stofnunin
hafði áður verið starfrækt annars
staðar í hálfa öld.
„Hér er unnið með alþjóðlegum
hópi myndlistarmanna, í 25 vinnu-
stofum. Þetta er rótgóin og virt
stofnun og sýningarstjórar sem fara
um Berlín koma hér við og hitta okk-
ur listamennina,“ segir Anan Rún en
hún hefur nú unnið þar í sjö mánuði.
„Þessi nýi samningur milli ís-
lenska ríkisins og Künstlerhaus Bet-
hanien býður upp á ársdvöl fyrir
myndlistarmenn og er einn valinn í
senn úr sendum umsóknum. Á tíma-
bilinu halda listamennirnir hér
einkasýningu. Allan tímann er mark-
visst unnið að því, ef listamennirnir
hafa áhuga, að koma þeim á framfæri
í listasenunni og aðstoða við allra-
handa tengingar.“
Anna Rún hefur fengið fjölmargar
heimsóknir sérfræðinga á liðnum
mánuðum og sérstaklega eftir að
sýningin var opnuð. „Enda er gott að
ræða við gesti með verkin hér í
kringum okkur,“ segir hún.
„Hér eru listamenn alls staðar að,
sem alþjóðlegar stofnanir hafa milli-
göngu um að bjóða, en nokkur lönd
hafa hér einnig fasta vinnustofu eins
og Ísland var nú að semja um.“
Anna Rún hefur sýnt víða um lönd
á síðustu árum en opnar dvölin þarna
enn fleiri dyr fyrir henni?
„Það að koma undir sig fótunum í
erlendu myndlistarsamhengi er flók-
ið, ekki síst í borg eins og Berlín sem
er stútfull af myndlistarmönnum,
sem allir reyna að koma sér á fram-
færi. Þessi dvalartími hefur boðið
mér upp á djúpstæð samtöl við fólk
sem er að taka ákvarðanir, búa til
sýningar og skrifa um myndlist, fólk
sem er aktíft á alþjóðlegu listasen-
unni. Þetta hefur svo sannarlega bú-
ið til aðgengi að frábæru fólki sem
vinnur hér á öflugan hátt kringum
myndlist.
Það kemur í ljós hverju þetta skil-
ar nákvæmlega, en ég hef vissulega
byggt upp tengslanet sem ég get
vonandi nýtt mér.
Dvöl hér getur hjálpað listamönn-
um á margskonar hátt; og fyrir ís-
enskt myndlistarsamfélag er samn-
ingur ríkisins mikilvæg vilja-
yfirlýsing frá menntamála-
ráðuneytinu um að bæta hag
íslenskra myndlistarmanna og búa til
öfluga tengingu við hinn alþjóðlega
myndlistarheim. Þetta er stórt skref
og vonandi byrjun á átaki sem getur
skilað miklu,“ segir Anna Rún.
Ástand heimsins undir-
liggjandi í þessum verkum
Anna Rún Tryggvadóttir sýnir nú í Künstlerhaus Bethanien í Berlín
Berlínarsýning Hluti af sýningu Önnu Rúnar í Künstlerhaus Bethanien.
„Listirnar hafa margvíslegar skyldur en þær felast þó ekki í viðfangsefnum
sem slíkum,“ segir hún um hugmyndirnar að baki verkum sínum.
Anna Rún
Tryggvadóttir
Saxófónleikarinn
og hljómsveitar-
stjórinn Jimmy
Heath er látinn,
93 ára að aldri.
Heath lék iðu-
lega með bræðr-
um sínum sem
einnig voru
frægir djass-
menn, tromm-
aranum Albert „Tootie“ og bassa-
leikaranum Percy. Á löngum ferli
var hann m.a. í hljómsveitum með
Miles Davis, John Coltrane og
Dizzy Gillespie og var eftirsóttur
bæði sem fjölhæfur og tilfinn-
ingaríkur einleikari og afar slyng-
ur útsetjari fyrir stórsveitir, en
hann starfrækti lengi eina slíka.
Jimmy Heath allur
Jimmy Heath
Rithöfundarnir Elísabet Jökuls-
dóttir og Jónína Leósdóttir eru
gestir í nýrri viðburðaröð Borgar-
bókasafns, Húslestur í skammdeg-
inu, sem hefst í menningarhúsinu
Gerðubergi í kvöld, miðvikudag, kl.
20. Dagskráin byggir á því að góðir
gestir líta inn með uppáhaldstexta
sína undir hendinni. Rithöfund-
arnir lesa upp og deila með við-
stöddum töfrunum sem búa í hinu
ritaða orði. Ókeypis er inn og eru
gestir hvattir til að taka með sér
handavinnuna, slökkva á snjall-
tækjunum og njóta þess að dvelja í
augnablikinu.
Morgunblaðið/Eggert
Gestur Elísabet Jökulsdóttir mætir í
Gerðuberg ásamt Jónínu Leósdóttur.
Húslestur Elísa-
betar og Jónínu