Morgunblaðið - 22.01.2020, Page 32

Morgunblaðið - 22.01.2020, Page 32
Iceland Airwaves er tilnefnd sem besta litla tónlistarhátíðin á verð- launahátíð tónlistartímaritsins NME í ár. Verðlaunin hafa verið veitt ár- lega frá árinu 1953, en NME er eitt þekktasta tónlistarrit heimsins. Er þetta í fyrsta sinn sem íslensk tón- listarhátíð er tilefnd til verðlaun- anna, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá skipuleggjendum Iceland Airwaves. Aðrar tilnefndar hátíðir eru Bluedot, End of the Road og Kendal Calling í Bretlandi og norska hátíðin Øya. Airwaves tilnefnd til verðlauna NME MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 22. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Tíu leikmenn Arsenal sýndu mikla seiglu í gærkvöld þegar þeir jöfn- uðu metin tvívegis, einum manni færri, og gerðu jafntefli, 2:2, við Chelsea í bráðskemmtilegum leik á Stamford Bridge í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu. David Luiz var rekinn af velli eftir tæplega hálftíma leik. »26 Mikil seigla hjá tíu Arsenal-mönnum ÍÞRÓTTIR MENNING Lið Norðmanna sem gengur allt í haginn á EM karla í handknattleik var of stór biti fyrir íslenska liðið að kyngja í Malmö í gær. Noregur sigr- aði 31:28 eftir að hafa verið yfir 19:12 að loknum fyrri hálfleik. Nor- egur hefur unnið alla sex leiki sína til þessa og mætir Slóv- eníu í dag þegar keppni í milliriðlum lýkur. Ísland mætir Sví- þjóð í dag og með sigri endar Ísland með 4 stig í milliriðli. »27 Norska liðið of stór biti fyrir það íslenska Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Betra seint en aldrei,“ segir prent- arinn Baldvin Ársælsson, sem á 92 ára afmæli í dag og var tekinn inn í kaþólska söfnuðinn fyrir skömmu. „Ég var blessaður í Landakotskirkju og er því nýfermdur.“ Sem fyrr liggur vel á Baldvini, eða Dússa eins og hann hefur gjarnan verið nefndur frá tveggja ára aldri. „Það kom þannig til að Hreiðari bróður var ekki hugað líf skömmu eftir fæðingu og þar sem enginn mátti deyja án þess að hafa verið gef- ið nafn áður var drifið í að skíra hann og ég, um tveggja ára, var skírður í leiðinni.“ Þess má geta að Hreiðar hresstist til muna, var mikill íþrótta- maður, fastamaður í gullaldarliði KR í fótboltanum á sjötta og sjöunda ára- tug liðinnar aldar, landsliðsmaður, þjálfari og dómari. „Ég var samt ekk- ert í boltanum, en dæmdi þó í um fimm ár,“ segir Dússi, sem ólst upp í níu systkina hópi á Seljaveginum. Dússi hefur búið á Grund hjúkr- unarheimili við Hringbraut í Reykja- vík í tæpt ár og unir hag sínum vel. „Hérna er dekrað við mig og ég hef allt til alls. Ég tek daginn snemma, vakna fyrir allar aldir, skelli mér út á gólf og geri leikfimiæfingar áður en ég fer niður í salinn og hjóla í 45 mín- útur til klukkutíma á þrektæki. Fæ síðan heita bakstra á eftir. Það verð- ur ekki betra, ég held mér í formi og hef það bara gott. Áður gekk ég nokkra hringi í einu í kringum elli- heimilið en það er betra að bæta út- haldið á hjólinu í salnum.“ Kirkjurækinn Þorbjörg Guðmundsdóttir, eigin- kona Dússa og fyrrverandi auglýs- ingastjóri Ríkisútvarpsins, féll frá 2015 eftir að hafa búið á Grund í nokkur ár. „Ég fór til Distu á hverj- um degi og kom við í Landakots- kirkju vikulega og bað fyrir henni,“ segir Dússi um trúmálin. „Eftir að ég flutti hingað fór ég að venja komur mínar aftur í kirkjuna og þá kom í ljós að þar eru margir náskyldir mér. Ég hef því tengst kaþólsku kirkjunni nánari böndum og kann ágætlega við það, en það versta er að ég nýt starfs- ins ekki nógu vel vegna þess að sjónin er farin að bila. En það er hugsað vel um mig enda er þetta fjölskyldulegt umhverfi og svo fer Ása, dóttir okkar Distu, með mig í messu á sunnudags- morgnum.“ Dússi tekur þátt í dagskránni á Grund eftir mætti og lék meðal ann- ars stórt hlutverk í tískusýningu ekki alls fyrir löngu. „Það vantaði ein- hvern nógu frakkan til þess að fara í þetta og ég sagði já án þess að vita hvað ég var að fara út í, en þetta var gaman.“ Lengst af starfaði Dússi sem setj- ari í Steindórsprenti, þar sem hann lærði. Síðan kom hann Pappírsveri, pappírspokafyrirtæki Haraldar Björnssonar, á skrið og fór þaðan í Kassagerðina, þar sem hann var fljótlega beðinn um að taka að sér starf prentara. „Ég sagði sem var að ég væri setjari og vissi ekki hvað sneri fram og hvað aftur á prentvél- unum, en varð samt við óskunum með því skilyrði að ég fengi náms- samning. Þar með varð ég tvöfaldur, bæði setjari og prentari, og er því tvíefldur!“ Morgunblaðið/RAX Heilsa Baldvin Ársælsson tekur daginn snemma og hjólar á þrekvél á Grund við fyrsta hanagal. Nýfermdur á tíræðisaldri  Baldvin Ársælsson hefur tengst kaþólsku kirkjunni nán- ari böndum  Setjarinn og prentarinn ánægður á Grund Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennur frá GRÖVIK VERK í Noregi Einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.