Morgunblaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 32
Iceland Airwaves er tilnefnd sem
besta litla tónlistarhátíðin á verð-
launahátíð tónlistartímaritsins NME
í ár. Verðlaunin hafa verið veitt ár-
lega frá árinu 1953, en NME er eitt
þekktasta tónlistarrit heimsins. Er
þetta í fyrsta sinn sem íslensk tón-
listarhátíð er tilefnd til verðlaun-
anna, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá skipuleggjendum Iceland
Airwaves. Aðrar tilnefndar hátíðir
eru Bluedot, End of the Road og
Kendal Calling í Bretlandi og
norska hátíðin Øya.
Airwaves tilnefnd
til verðlauna NME
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 22. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Tíu leikmenn Arsenal sýndu mikla
seiglu í gærkvöld þegar þeir jöfn-
uðu metin tvívegis, einum manni
færri, og gerðu jafntefli, 2:2, við
Chelsea í bráðskemmtilegum leik á
Stamford Bridge í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu. David Luiz
var rekinn af velli eftir tæplega
hálftíma leik. »26
Mikil seigla hjá tíu
Arsenal-mönnum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Lið Norðmanna sem gengur allt í
haginn á EM karla í handknattleik
var of stór biti fyrir íslenska liðið að
kyngja í Malmö í gær. Noregur sigr-
aði 31:28 eftir að hafa verið
yfir 19:12 að
loknum fyrri
hálfleik. Nor-
egur hefur
unnið alla sex
leiki sína til
þessa og
mætir Slóv-
eníu í dag
þegar keppni í
milliriðlum lýkur.
Ísland mætir Sví-
þjóð í dag og með
sigri endar Ísland
með 4 stig í
milliriðli. »27
Norska liðið of stór
biti fyrir það íslenska
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Betra seint en aldrei,“ segir prent-
arinn Baldvin Ársælsson, sem á 92
ára afmæli í dag og var tekinn inn í
kaþólska söfnuðinn fyrir skömmu.
„Ég var blessaður í Landakotskirkju
og er því nýfermdur.“
Sem fyrr liggur vel á Baldvini, eða
Dússa eins og hann hefur gjarnan
verið nefndur frá tveggja ára aldri.
„Það kom þannig til að Hreiðari
bróður var ekki hugað líf skömmu
eftir fæðingu og þar sem enginn
mátti deyja án þess að hafa verið gef-
ið nafn áður var drifið í að skíra hann
og ég, um tveggja ára, var skírður í
leiðinni.“ Þess má geta að Hreiðar
hresstist til muna, var mikill íþrótta-
maður, fastamaður í gullaldarliði KR
í fótboltanum á sjötta og sjöunda ára-
tug liðinnar aldar, landsliðsmaður,
þjálfari og dómari. „Ég var samt ekk-
ert í boltanum, en dæmdi þó í um
fimm ár,“ segir Dússi, sem ólst upp í
níu systkina hópi á Seljaveginum.
Dússi hefur búið á Grund hjúkr-
unarheimili við Hringbraut í Reykja-
vík í tæpt ár og unir hag sínum vel.
„Hérna er dekrað við mig og ég hef
allt til alls. Ég tek daginn snemma,
vakna fyrir allar aldir, skelli mér út á
gólf og geri leikfimiæfingar áður en
ég fer niður í salinn og hjóla í 45 mín-
útur til klukkutíma á þrektæki. Fæ
síðan heita bakstra á eftir. Það verð-
ur ekki betra, ég held mér í formi og
hef það bara gott. Áður gekk ég
nokkra hringi í einu í kringum elli-
heimilið en það er betra að bæta út-
haldið á hjólinu í salnum.“
Kirkjurækinn
Þorbjörg Guðmundsdóttir, eigin-
kona Dússa og fyrrverandi auglýs-
ingastjóri Ríkisútvarpsins, féll frá
2015 eftir að hafa búið á Grund í
nokkur ár. „Ég fór til Distu á hverj-
um degi og kom við í Landakots-
kirkju vikulega og bað fyrir henni,“
segir Dússi um trúmálin. „Eftir að ég
flutti hingað fór ég að venja komur
mínar aftur í kirkjuna og þá kom í
ljós að þar eru margir náskyldir mér.
Ég hef því tengst kaþólsku kirkjunni
nánari böndum og kann ágætlega við
það, en það versta er að ég nýt starfs-
ins ekki nógu vel vegna þess að sjónin
er farin að bila. En það er hugsað vel
um mig enda er þetta fjölskyldulegt
umhverfi og svo fer Ása, dóttir okkar
Distu, með mig í messu á sunnudags-
morgnum.“
Dússi tekur þátt í dagskránni á
Grund eftir mætti og lék meðal ann-
ars stórt hlutverk í tískusýningu ekki
alls fyrir löngu. „Það vantaði ein-
hvern nógu frakkan til þess að fara í
þetta og ég sagði já án þess að vita
hvað ég var að fara út í, en þetta var
gaman.“
Lengst af starfaði Dússi sem setj-
ari í Steindórsprenti, þar sem hann
lærði. Síðan kom hann Pappírsveri,
pappírspokafyrirtæki Haraldar
Björnssonar, á skrið og fór þaðan í
Kassagerðina, þar sem hann var
fljótlega beðinn um að taka að sér
starf prentara. „Ég sagði sem var að
ég væri setjari og vissi ekki hvað
sneri fram og hvað aftur á prentvél-
unum, en varð samt við óskunum
með því skilyrði að ég fengi náms-
samning. Þar með varð ég tvöfaldur,
bæði setjari og prentari, og er því
tvíefldur!“
Morgunblaðið/RAX
Heilsa Baldvin Ársælsson tekur daginn snemma og hjólar á þrekvél á Grund við fyrsta hanagal.
Nýfermdur á tíræðisaldri
Baldvin Ársælsson hefur tengst kaþólsku kirkjunni nán-
ari böndum Setjarinn og prentarinn ánægður á Grund
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202
hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennur frá GRÖVIK VERK í Noregi
Einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt