Morgunblaðið - 08.01.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.01.2020, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2020 11SJÁVARÚTVEGUR Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN Veitingar af öllum stærðum, hvort sem er í sal eða heimahúsi Nánar á veislulist.is Erfidrykkja Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Afurðaverð á markaði 7. jan. 2020, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 485,09 Þorskur, slægður 559,12 Ýsa, óslægð 409,26 Ýsa, slægð 431,82 Ufsi, óslægður 133,65 Ufsi, slægður 216,60 Gullkarfi 374,08 Blálanga, slægð 378,18 Langa, óslægð 270,85 Langa, slægð 297,36 Keila, óslægð 73,42 Keila, slægð 163,81 Steinbítur, óslægður 318,72 Steinbítur, slægður 482,69 Skötuselur, slægður 600,50 Grálúða, slægð 457,61 Skarkoli, slægður 406,35 Þykkvalúra, slægð 1.053,04 Bleikja, flök 1.597,57 Grásleppa, óslægð 8,28 Hlýri, slægður 583,79 Hrogn/langa 123,00 Hrogn/þorskur 260,57 Lifur/þorskur 13,00 Lúða, slægð 716,65 Lýsa, óslægð 62,53 Lýsa, slægð 138,12 Náskata, slægð 10,00 Rauðmagi, óslægður 357,00 Skata, slægð 16,19 Stórkjafta, slægð 226,00 Undirmálsýsa, óslægð 236,53 Undirmálsýsa, slægð 301,13 Undirmálsþorskur, óslægður 244,46 Undirmálsþorskur, slægður 269,31 skemmtiferðaskipum á komandi sumri.“ Úr kílóvöttum í megavött Eins og fyrr var getið er stefnt að því að bæta raftengingar í Hafnarfjarðarhöfn og segir Lúðvík að þar þurfi allir að leggjast á eitt. Hann segir Hafnarfjarðar- höfn þegar geta boðið skipum og bátum upp á rafsamband en skipin fari stækkandi og þurfi æ meiri straum. „Farþegaskip, vöruflutn- ingaskip og togarar með frysti- búnaði þurfa miklu meira rafmagn en núverandi landtengingarkerfi ræður við, og þurfa afl sem mælist í megavöttum frekar en kílóvött- um,“ útskýrir Lúðvík og bendir á að bæði loft- og hljóðmeng- unarkröfur kalli á að hafnir lands- ins tryggi gott aðgengi að raf- magni. „Hafnarfjarðarhöfn, Faxaflóa- hafnir og Akureyrarhöfn eiga núna í samstarfi um að bæta teng- ingarnar í þessum stærstu höfnum landsins. Þetta verkefni kallar á samvinnu fjölda aðila því bæði þurfa hafnirnar að koma upp tengibúnaði en skipin sömuleiðis að vera rétt tækjum búin til að nýta tenginguna, og vitaskuld verða orkufyrirtækin að geta út- vegað nægilega mikla raforku inn á hafnarsvæðið. Eins er eðlileg að- koma ríkisvaldsins með stuðningi eða styrkjum enda rafvæðing hafnanna mikilvægur liður í að- gerðum gegn kolefnislosun.“ Gaman verður að fylgjast með þróun Hafnarfjarðarhafnar á kom- andi árum og misserum en fyrir tveimur árum var haldin sam- keppni um breytt skipulag hafn- arsvæðisins. Tvær tillögur voru valdar til frekari útfærslu; önnur frá Svíþjóð og hin frá Hollandi, og miða þær að því að flétta betur saman mannlífið í miðbæ Hafnar- fjarðar og atvinnustarfsemina á hafnarsvæðinu. „Unnið hefur verið að þessu breytta skipulagi innan stjórnkerfisins og í nánu samstarfi við bæjarbúa með fjórum íbúa- fundum,“ segir Lúðvík. „Vinna við gerð rammaskipulags fyrir þetta hafnarsvæði sem nær yfir Fornu- búðir, Óseyri og Flensborgarhöfn út undir Vesturhamar við Fjöru- krána og verður væntanlega klár- uð á allra næstu vikum.“ Lúðvík lýsir vinningstillögunum þannig að þær opni hafnarsvæðið betur að miðbænum en taki um leið tillit til þess að ákveðin svæði verða að vera lokuð vinnusvæði. „Smábátahöfnin verður stækkuð og aðstaða siglingaklúbbsins bætt, og á hafnarsvæðið eftir að þróast með þeim hætti að verða sam- bland af útivistarsvæði og menn- ingasvæði með veitingasölu og að- stöðu fyrir bæði skemmtibáta og smærri útgerðir.“ Hafnarmál hluti af samgöngumálum Aðspurður hvort einhver hætta sé á að mannlífið við höfnina og íbúðabyggð á svæðinu fari að þrengja að atvinnustarfseminni reiknar Lúðvík ekki með öðru en að fjölbreytt starfsemi muni áfram geta þrifist á svæðinu. Hann segir þó orðið tímabært að huga að framtíðarþróun hafnarmála á Faxaflóasvæðinu og væntanlegri nýrri stórskipahöfn. „Undanfarin ár hefur umræðan um samgöngur einblínt á flugsamgöngur og upp- byggingu þjóðvegakerfisins en hafnirnar þurfa líka að vera hluti af umræðunni. Þegar má sjá merki þess að tekið sé að þrengja að Sundahöfn og áhugaverðar hugmyndir eru á lofti um upp- byggingu nýrra hafnarsvæða s.s. á Grundartanga eða vestan við Straumsvík. Er um að ræða verk- efni sem helst þyrftu að hafa nokkurra áratuga aðdraganda og kominn tími á að marka stefnu um framhaldið.“ huga að nýrri stórskipahöfn Morgunblaðið/RAX „Undanfarin ár hefur umræðan um samgöngur einblínt á flug- samgöngur og uppbyggingu þjóðvegakerfisins en hafnirnar þurfa líka að vera hluti af umræðunni,“ segir Lúðvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.