Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 27 Rafrænar námsbækur og verkefni Menntamálastofnun heldur vefnum mms.is úti en markmið stofnunarinnar er meðal annars að sjá öllum grunnskólanemendum fyrir fjölbreyttum og vönduðum námsgögnum sem eru í samræmi við aðalnámskrá. Á vefnum er að finna ýmsar rafrænar námsbækur sem og rafræn verkefni bæði fyrir börn og unglinga. Fjarkennsla í íslensku Fyrirtækið Katla kennsla og ráðgjöf býður upp á fjarkennslu í íslensku og dönsku. Um einkatíma er að ræða og kennslan því sniðin að þörfum hvers og eins. Sjá nánar á katla.org. Frí stærfræðikennsla Frí kennsla fyrir alla hvar sem er í heiminum eru kjörorð Khan Academy. Mikil áhersla er lögð á stærfræði en það eru líka hægt að læra fleira á síð- unni. Sjá nánar á khanacademy.org Rafræn Snorra-Edda Það er óþarfi að taka þykkar bækur eins og Snorra Eddu með í ferðalagið. Skoðið vefinn snorraedda.is. Þar er að finna rafræna útgáfu af Gylfaginningu og frásagnarkafla Skáldskaparmála úr Snorra-Eddu. Stærsti hluti textans hefur verið endurskrifaður á nútímamáli. Vefurinn er einnig hljóðbók og honum fylgja ýmis verkefni og gagnvirk próf. Aðgangur að vefnum kostar 1.890 kr. Krækjulisti Garðaskóla Garðaskóli hefur tekið saman mjög gott safn af áhugaverðum krækjum sem leiða notendur inn á fjölbreytta kennsluvefi og fræðandi vefsíður. Slóðin er gardaskoli.is/kraekjur. Listinn kemur öllum foreldrum vel á veg. Hægt er að fá fría stærðfræðikennslu á netinu. Foreldrar þurfa að leggja ýmislegt á sig ef börnin eiga ekki að dragast aftur úr í námi. Kenndu krökkunum á ferðalaginu Þegar börn eru tekin úr skóla vegna ferðalaga er það ábyrgð foreldranna að þau verði ekki eftir á í náminu. Mikilvægt er að undirbúa ferðalagið vel og búa til námsáætlun í samráði við kennara barnsins. Foreldrar geta líka nýtt sé ýmis önnur hjálpargögn ef þeir vilja halda börnunum við efnið á ferðalaginu. Hér eru dæmi um nokkra möguleika. Snæfríður Ingadóttir|snaeja@gmai.com Menntamálastofnun heldur vefnum mms.is. Þar er hægt að finna mikið af námsgögnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.