Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 H ússtjórnarskólinn í Reykjavík lifir enn góðu lífi og gaman að sjá hvernig þessi rótgróna mennta- stofnun nær að halda í hefðirnar en um leið aðlaga námið að síbreyti- legu samfélagi. Eins og margir lesendur þekkja nær saga Hússtjórnarskólans allt aftur til ársins 1942 og hét hann Húsmæðraskóli Reykjavíkur allt fram til ársins 1975 þegar nafninu var breytt í takt við nýja tíma. Námið spannaði áður tvö ár en í dag aðeins eina önn og leggja nemendur stund á fög tengd heimilshaldi, matreiðslu og textílgreinum. Kennslan fylgir námskrá fram- haldsskóla og er námið metið til eininga á fram- haldsskólastigi. „Flestir nemendur eru þegar búnir að ljúka stúdentsprófi, en þeir sem yngri eru nota oft tækifærið og láta námið hér ganga upp í val- greinakvótann,“ segir Guðrún Sigurgeirsdóttir, mat- reiðslukennari hjá Hússtjórnarskólanum. Heimavist og fullt fæði Meðal námsgreina má nefna matreiðslu, næringar- fræði, vörufræði, þvott og ræstingu að ónefndum textíl- greinum eins og útsaumi, fatasaumi, prjóni, hekli og vefnaði. „Nemendur læra heilmikið á önninni og öðlast stórgóðan undirbúning fyrir lífið, skapa, bæta og fegra í kringum sig,“ segir Guðrún og bendir á að vaxandi áhugi á nýtni og endurvinnslu geri námið enn áhugaverðra í augum unga fólksins. Nemendahópurinn í hverjum árgangi er ekki stór, en mjög vel um þá hugsað. Skóladagurinn er frá kl. 8 til 5 og geta þeir sem þess óska búið á heimavist í skólabygging- unni við Sólvallagötu. „Ég mæli eindregið með því að fólk nýti sér heimavistina. Er mjög góður andi í húsinu og myndast þar vináttubönd sem endast fólki ævina á enda,“ segir Guðrún. Pláss er fyrir 24 nemendur á hverri önn og 15 pláss á heimavistinni. Borga þarf 430.000 kr fyrir námið og er heimavistar- gjald 65.000 kr. fyrir önnina. Innifalið er fullt fæði alla önnina, allt námsefni, og hráefni fyrir bæði hannyrða- greinar og matreiðslugreinar. Nemendur fá því heil- mikið fyrir peninginn. Rammíslenskt og alþjóðlegt Það er staðreynd að margt ungt fólk heldur af stað út í lífið með litla þekkingu á flestu því sem snertir daglegt heimilishald. Þau hafa ekki fengið tækifæri til að læra að matbúa eða skipu- leggja matarinnkaupin, og hvað þá heldur átt þess kost að spreyta sig á gömlu matarhefð- unum eins og að taka slátur, steikja kleinur og laufabrauð. „Við gerum hefðbundinni íslenskri matreiðslu skil og lögum kjötsúpu, steikjum fisk í raspi, bökum hnallþórur og margt fleira. Nemendur læra líka að elda í takt við tíðarand- ann og spreyta sig t.d. á ítalskri eða austur- lenskri matargerð, eða hverju því sem þau hafa áhuga á.“ Guðrún segir það koma mörgum nemend- anna skemmtilega óvart að uppgötva hvað þau geta gert í eldhúsinu, með smá leiðsögn. „Það er vitaskuld einstaklingsbundið hvað nemend- urnir hafa góðan grunn þegar þau koma til okk- ar, og reynum við að haga náminu þannig að all- ir hafi gagn og gaman af og læri eitthvað nýtt.“ Það er heldur betur gott veganesti fyrir ungt fólk sem er að byrja að standa á eigin fótum að kunna að elda góðan mat og kaupa skynsam- lega inn. Guðrún segir það aldeilis hjálpa til við að halda reglu á útgjöldum heimilisins og stuðli vitaskuld að heilsusamlegra mataræði. „Námið felur m.a. í sér að nemendur læra að nýta afganga og nota það sem er til hverju sinni, og aðlaga matseldina eins og þarf til að fyrirbyggja matarsóun.“ Listrænar undirstöður Textílnámið nýtist líka vel og fá stúlkurnar að spreyta sig á að sauma á sig kjól á meðan piltarnir sauma sér jakkaföt. Guðrún segir gagnlegt að kunna að prjóna og sauma en textílnámið hafi líka leitt fólk út á nýjar brautir og kveikt neista sem hafi orðið að stóru báli: „Ég veit dæmi þess að nemendur frá okkur hafa fengið forgang inn í frekara lista- og textílnám bæði hérlendis og er- lendis eftir að hafa lært undirstöðurnar hér í Hússtjórn- arskólanum.“ Í gegnum árin hefur aðsóknin í nám Hússtjórnarskól- ans verið svo góð að ekki hefur verið þörf á að auglýsa eftir nemendum, og eflaust hjálpar þar til hvað orðspor skólans er gott og hve vel gamlir nemendur láta af dvöl- inni þar. „Við höldum opið hús tvisvar á ári í lok annar í desember og maí. Algengt er að útskriftarnemendur noti tækifærið til að hittast þar og rifja upp gamla tíma. Er það ekki skrítið enda margir sem hafa á orði að misserið við Hússtjórnarskólann hafi verið einn besti tíminn í lífi þeirra.“ Morgunblaðið/Kristinn Stórgóður undirbúningur fyrir lífið Guðrún Sigurgeirsdóttir segir útskrifaða nemendur oft hafa á orði að tíminn hjá Hússtjórnar- skólanum í Reykjavík hafi verið eitt besta tímabil lífs þeirra. Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Guðrún Sigurgeirsdóttir mælir með að nemendur búi á heimavistinni. Þeir fá fullt fæði á með- an á náminu stendur, góður andi skapast í húsinu og dýrmæt vinasambönd verða til. Frá opnum degi hjá Hús- stjórnarskólanum í Reykjavík í desember 2013. Þar sýna nemendur hvað þeir haf lært, hvort heldur á sviði hannyrða eða matseldar. Á mynd- inni eru f.v.: Sigrid Daregård, Jóhanna Stefánsdóttir og Anna Bergljót Böðvarsdóttir. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.