Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 Þ að er að koma æ betur í ljós hvað tilfinn- ingagreind og góð færni í mannlegum sam- skiptum skiptir miklu máli fyrir framgang fólks í atvinnulífinu. „Við sjáum þessa þró- un ekki hvað síst í atvinnuauglýsingunum þar sem áður var oft efst á lista að umsækjendur hefðu meistarapróf, en núna er iðulega efst á blaði að umsækjendur hafi framúrskarandi samskiptahæfi- leika,“ segir Guðrún Snorradóttir stjórnendaþjálfi (www.gudrunsnorra.com). Guðrún heldur tvö námskeið á vorönn hjá Opna háskólanum við Háskólann í Reykjavík: Hagnýting jákvæðrar sálfræði, sem hefst 31. janúar; og Tilfinn- inagreind til framtíðar sem hefst 24. mars. Jákvæð sálfræði og tilfinningagreind eru nátengd fræði innan sviðs sem kalla mætti manneflandi vís- indi. „Hvort tveggja á upptök sín í mannúðarsálfræð- inni sem þrátt fyrir nafnið er þó ekki undirgrein al- mennrar sálfræði, en byggist á vísindalegum rannsóknum sem skoða hvernig styrkja má jákvæða eiginleika eins og þrautseigju og tilfinningagreind,“ útskýrir Guðrún. Bæði námskeiðin eru þannig skipulögð að Guðrún byrjar á að fara yfir kenningarlegan bakgrunn sem svo er byggt ofan á með dýpri fróðleik, æfingum og mælingum á nemendunum sjálfum. Með þekkinguna af námskeiðunum í farteskinu ættu þátttakendur að vera í stakk búnir að efla sjálfa sig og aðra, jafnt í einkalífi og á vinnustað, og vaxa sem manneskjur og fagfólk. Guðrún bendir á að meðal þess sem jákvæð sálfræði hafi leitt í ljós sé að styrkleikar og veikleikar hvers og eins eru ekki meitlaðir í stein. „Bæði heim- speki og uppeldisfræði hafa glímt við þessa alda- gömlu spurningu um að hve miklu leyti mannkostir okkar ráðast af uppeldi og erfðum, en taugavísindin sýna okkur að það sem við leggjum áherslu á mun vaxa, og talað um að „leggja nýja víra“ í heilanum til að tileinka okkur mannkosti á borð við þrautseigju.“ Guðrún bendir á að námskeiðin séu ekki í anda hvatningarfyrirlestra heldur er um fræðilega yfirferð að ræða. „Það sem við byggjum á eru vísindi og rannsóknir, og sannreyndar kenningar og aðferðir sem t.d. stjórnendur geta notað til að virkja jákvæða eiginleika starfsfólks síns.“ Betri skilningur og samvinna Aldrei hefur verið mikilvægara fyrir fólk á vinnu- markaði að búa yfir þekkingu af þessum toga enda t.d. að koma nokkuð glögglega í ljós að mikill munur er á milli kynslóða svo að á hverjum vinnustað þarf að beita lagni til að skapa samstilltan hóp og hvetja fólk til dáða. „Yngsta starfsfólkið, sem við köllum aldamótakynslóðina, hefur allt aðrar áherslur en eldri kynslóðir, og vill jafnvel öðruvísi samskiptamáta og annars konar endurgjöf, auk þess að þau leggja mikið upp úr því að finna sem mestan tilgang í störfum sín- um. Þetta er kynslóð sem hefur það fram yfir eldri kynslóðir að geta iðulega talað opinskátt um tilfinn- ingar sínar og líðan, sem er jákvætt, en einnig eru vísbendingar um að starfsfólk á þessum aldri skorti ákveðna hæfileika eins og þrautseigju,“ útskýrir Guð- rún til að gefa hugmynd um hve flókinn vef þarf að flétta þegar fjölbreytt teymi fólks vinnur saman. Hvort sem um stjórnanda eða almennan starfs- mann er að ræða segir Guðrún að þekking á jákvæðri sálfræði og tilfinningagreind komi sér vel, þó ekki væri nema með því að minnka fordóma gagnvart veikleikum og styrkleikum annarra sem hjálpa engu að síður til að styrkja teymið. „Eflaust þekkja margir það hjá sjálfum sér að láta t.d. fara í taugarnar á sér ef einhver í hópnum er mjög varkár (e. prudent). Þetta er fólkið sem stígur á bremsuna og vill ekki fara sér að neinu óðslega, hefur efasemdir um að áætlanir gangi upp eða að peningar séu til fyrir hlutnum. Svona gagnrýni og jarðtenging getur stund- um stuðað fólk sem liggur á að gera sem mest og gera allt sem hraðast, en með aukinni þekkingu og skilningi áttar þetta sama fólk sig á hve mikið sterk- ari hver starsfhópur, deild eða heilt fyrirtæki verður með því að hafa svona raddir innanborðs í bland við allar hinar.“ Ná tökum á tilfinningunum Með góðan skilning á tilfinningagreind getur fólk síðan leyst mikla krafta úr læðingi. Guðrún segir menntun á sviði tilfinningagreindar m.a. felast í því að skilja þá líffræðilegu ferla sem eiga sér stað á bak við þær tilfinningar sem við finnum í dagsins amstri, en með því að skilja hvað er að gerast þegar við gleðjumst, hryggjumst, reiðumst eða skelfumst má byrja að stýra tilfinningunum betur og beisla þær frekar en að láta stjórnast af þeim. „Það á t.d. við um þjálfun í þrautseigju að þar skiptir máli að átta sig betur á hvernig hugurinn virkar og hvernig við get- um verið virkir þátttakendur í eigin lífi í stað þes að stjórnast af ótta við ókunnuga framtíð. Bara sú vitn- eskja breytir sjónarhorni fólks svo það á auðveldara með að láta ekki átök og óvissu lama sig eða hræða.“ AFP Styrkleikar okkar eru ekki meitlaðir í stein Með tilfinningagreind og jákvæða sálfræði í farteskinu opnast fólki alls konar möguleikar í leik og starfi. Guðrún Snorradóttir fer í saumana á þessum fræðum á námskeiðum hjá Opna háskólanum. Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Guðrún segir til- finningagreind m.a. snúast um þá líffræðilegu ferla sem búa að baki tilfinningum okkar. Vegfarendur í Hong Kong bíða eftir grænu ljósi. Mann- kostir fólks eru ekki fastmótaðir og öll getum við eflt okkur á flestum sviðum, óháð aldri og bakgrunni. Landsmennt Styrkur þinn til náms Landsmennt er fræðslusjóður samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Sjóðurinn styrkir starfsmenntun beint til fyrirtækjanna sjálfra. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Landsmenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.landsmennt.is Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • landsmennt@landsmennt.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.