Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 23 S njólaug Lúðvíksdóttir, uppi-standari og handritshöf-undur, var prakkari sem fékk góðar einkunnir. Hún til- heyrði hópnum sem braust í sund- laugina eftir lokun og hékk í sjoppunni en var feimin að tala við stráka. Starði bara niður á Buff- alo-skóna sína og lét lítið fyrir sér fara að eigin sögn. Hún var best í tungumálum og íslensku, sæmileg í raungreinum og skelfileg í leik- fimi. Í Víðistaðaskóla og Versló eignaðist hún stóran vinkvennahóp og í þeim síðarnefnda tók hún út hið svokallaða skinkutímabil sem vinkonurnar nota enn gegn henni. „Þær geta mútað fyrir lífstíð með skinkumyndum af mér,“ segir hún kímin. Í uppistandi sínu vílar Snjólaug ekki fyrir sér að fjalla um kynlíf og kynferðismál með hressandi hætti en það getur hún þó ekki þakkað kynfræðslunni sem hún fékk á skólaárunum. „Stelpur lærðu um blæðingar og strákar um blauta drauma og þar með voru kynferðismálin af dag- skrá. Ég veit meira að segja um nokkra karlmenn sem héldu langt inn í fullorðinsár sín að þvagrás kvenna væri í leggöngum! Von- andi er Sigga Dögg kynfræðingur að hrista eitthvað upp í þessu námsefni. Ekki veitir af,“ segir hún. Af öllum þeim kennurum sem komu og fóru segir Snjólaug að Árni Hermannsson, latínu- og sögukennari í Versló, hafi slegið metið í skemmtilegheitum. „Hann gekk um með prik sem hann notaði í tímum eins og hljómsveitarstjóri. Var eldklár og fyndinn og náði að halda athygli fýldra unglinganna á meistara- legan hátt. Húmor skiptir miklu máli og að tala við nemendur eins og jafningja en halda samt í ag- ann. Árni gerði hvort tveggja. Hins vegar fóru kennararnir sem reyndu að passa inn í unglinga- hópinn með því að vera hipp og kúl voðalega í taugarnar á mér. Þetta er fín lína.“ Stelpur lærðu um blæðingar og strákar um blauta drauma „Ég veit meira að segja um nokkra karl- menn sem héldu langt inn í fullorð- insár sín að þvagrás kvenna væri í leggöngum!“ Snjólaug Lúðvíksdóttir Morgunblaðið/Eggert Velkomin í okkar hóp! Innritun og nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan. E F L IR / H N O T S K Ó G U R Ætlar þú að vera með? Vetrarkortið komið í sölu. Innritun á öll janúar námskeið stendur yfir! TT aðhaldsnámskeið Krefjandi og skemmtileg leið til að lagfæra mataræðið og koma sér í form. Fitform (60+ og 70+) Sérvalin og fjölbreytileg þjálfun sem tekur eðlilegt mið af þörfum hvors aldurshóps fyrir sig. Mótun BM Kerfisbundnar styrktar- og liðleikaæfingar í litlum sal. Æfingakerfið 1-2-3 – opnir tímar Snilldarlausn fyrir þær sem þurfa að nýta tímann sinn vel! Sjá nánar á jsb.is Innritun í síma 5813730

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.