Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
U
pphafið á ævintýri Jakobs Jónssonar minnir á
byrjunina á góðri kvikmynd: Ungur Íslend-
ingur, nýfluttur til stórborgarinnar London,
arkar þar um göturnar í atvinnuleit og upp-
götvar fyrir algjöra tilviljun merkilega viskí-
búð steinsnar frá British Museum. Hillur af öndvegis
viskíflöskum þekja alla veggi frá lofti niður í gólf, og ungi
maðurinn aldeilis lukkulegur enda byrjaður að þróa með
sér áhuga á þessum eðla drykk. Og viti menn: í búðinni
finnur hann auglýsingu; starfsmaður óskast. Hann seilist
ofan í jakkavasann sinn og dregur fram starfsferilskrána
sem hann hafði nýlokið við að útbúa fyrir næsta atvinnu-
viðtal.
Þetta var árið 2008 og er Jakob Jónsson í dag orðinn
verslunarstjóri Royal Mile Whiskies í London auk þess að
hann heldur úti viskívefritinu Viskíhornið (www.viskihor-
nid.com). Þó að hann hafi fengið að lifa og hrærast í viskí-
heiminum í rúman áratug segir hann að því fari fjarri að
hann sé farinn að þreytast á þessum mergjaða drykk og
alltaf sé hægt að uppgötva eitthvað nýtt hafi menn brenn-
andi áhuga á viskíi. „Það er líka svo mikil gróska í grein-
inni og bara á allrasíðustu árum voru opnaðar í kringum
30 nýjar viskíverksmiðjur á Bretlandseyjum. Viskí er á
mikilli siglingu um allan heim og er þetta menning sem
teygir sig allt frá hefðbundnum viskígerðarhéruðum Skot-
lands til Japans og jafnvel Indlands, að ógleymdu Íslandi.“
Að upplifa í góðra vina hópi
Jakob kennir viskínámskeið hjá Endurmenntun HÍ á
vorönn og er þetta í þriðja skiptið sem blásið er til nám-
skeiðs af þessu tagi hjá EHÍ. Námskeiðið heitir „Viskí –
lífsins vatn“ og fer fram mánudagskvöldið 27. janúar.
Lögð er áhersla á að hafa kennsluna aðgengilega en þess
jafnframt gætt að bæði byrjendur og lengra komnir hafi
gaman af.
„Þetta er ágætis inngangsnámskeið fyrir viskíáhugafólk
– Viskí 101 – og byrjum við á að fara yfir grunnatriði
viskísögunnar og viskígerðar. Nemendur læra um hin
ýmsu skref framleiðsluferlisins, og hvernig hráefni, tunn-
ur og aðferðir hafa áhrif á drykkinn,“ útskýrir Jakob og
bætir við að þátttakendur séu hvattir til að spyrja spurn-
inga og helst grípa fram í fyrir kennaranum ef eitthvað
brennur á þeim. „Við leggjum ekki síst áherslu á að viskí
á helst að drekka í góðra vina hópi þar sem fólk gefur sér
tíma til að njóta drykkjarins, ræða málin og njóta sam-
vistarinnar.“
Að fyrirlestri loknum tekur við sjálf viskísmökkunin og
leiðir Jakob nemendur í gegnum nokkrar ólíkar tegundir
viskís; eina tegund frá hverju viskíhéraði Skotlands. Mikil
breidd er í viskíinu sem hann hefur valið af kostgæfni; allt
frá léttu og ungu viskíi yfir í kröftugri gerðir með reykmiklu
bragði. Jakob upplýsir að viskísmökkun sé um margt frá-
brugðin annarri vínsmökkun og þannig er það mikilvægur
hluti af upplifuninni að kyngja drykknum frekar en að
skyrpa í fötu, og finna hvernig viskíið fyllir öll skynfæri. „Það
þýðir líka að ágætt er að fólk klári ekki endilega úr glasinu
enda þarf að skammta vel í glösin svo að viskíið fái að njóta
sín, en að klára úr fjórum eða fimm viskíglösum á einu kvöldi
er eitthvað sem ég mæli ekki endilega með,“ segir Jakob
glettinn og brýnir fyrir áhugasömum að þeir taki strætó til
og frá námskeiðinu eða láti einhvern sækja sig.
Viskísmökkun er þó svipuð annarri vínsmökkun að því
leyti að ef fólk er með athyglina við drykkinn uppgötvar það
alls kyns blæbrigði og keim. „Við smökkum virkilega vand-
að viskí, sem er töluvert ólíkt þessum mest seldu gerðum
sem fólk skammtar sér í skotglös og klárar í einum rykk
eða blandar út í kók. Nemendur fá að kynnast því hvað viskí
getur verið margslunginn drykkur og við ræðum um hvaða
Námsefni sem
auðvelt er að kyngja
Jakob Jónsson viskísérfræðingur með meiru leiðir nemendur inn í undraheim viskísins hjá EHÍ.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Jakob Jónsson í búðinni góðu
rétt hjá British Museum. Hann
segir að það þurfi ekki að vera
dýrt áhugamál að hafa gaman
af því að drekka vandað viskí
endrum og sinnum.
Andrúmsloftið inni á skrifstofunni
eða heima þar sem lært er skiptir
miklu máli. Það má fá alls konar tré
og blóm í dag sem bæta súrefnið.
Allt er vænt
sem vel er grænt
Friðarlilja er dásam-
legt blóm inn á skrif-
stofuna. Fæst í
Blómavali.
Falleg skrif-
stofuhúsgögn
frá Pennanum.
Nánari upplýsingar má finna á: www.erasmusplus.is og www.nordplusonline.org
Umsóknarfrestir 2020
Í menntahluta Erasmus+: Nám og þjálfun 5. febrúar og samstarfsverkefni 24. mars,
í æskulýðshluta Erasmus+: 5. febrúar, 30. apríl og 1. október og í Nordplus: 3. febrúar.
Rannís auglýsir umsóknarfresti fyrir Erasmus+ og Nordplus