Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 14
Stutt og hnitmiðuð kynning Það er allt í lagi að segja aðeins frá bakgrunni sínum í upphafi, sérstaklega reynslu og menntun í því sem fjallað er um. Lykilatriði er þó að hafa þá umfjöllun eins stutta og hægt er því flestir nem- endur vilja frekar fá að heyra einhver trix sem þeir geta nýtt sér strax heldur en að heyra ævisögu kennarans. Ef aðstæður bjóða upp á er gott að láta nemendur líka kynna sjálfa sig og sinn bakgrunn. Það þjappar hópnum saman og hjálpar þér sem kennara að meta hlustendahópinn betur. Náðu augnsambandi Horfðu yfir salinn, eru ekki örugg- lega allir að fylgjast með því sem þú ert að segja? Reyndu reglulega að ná sam- bandi við áheyrendur með því að líta út í sal. Leiktu með röddina og líkamann Ekkert er verra en eintóna ræður. Ef það eru engar sveiflur eða tilfinningar í röddinni þá muntu líklega svæfa áheyr- endur. Eins er gott að vera hreyfanleg/ ur. Færðu þig úr stað og notaðu handa- hreyfingar. Mundu eftir gleðinni Sýndu gleði og ánægju með látbragði þínu. Vertu viss um að áheyrendur skynji að þú vilt vera á staðnum og miðla boð- skapnum til þeirra. Þá er mun líklegra að fólk taki við honum. Notaðu leikmuni Það er tilvalið að draga fram ein- hverja leikmuni sem tengjast því sem verið er að tala um og fanga þannig at- hygli nemenda aftur. Sjálf tek ég oft töfrasprota með þegar ég er að tala um vandamál barna, enda myndu margir foreldrar og umönnunaraðilar (þar á meðal ég) vilja eiga töfrasprota sem getur lagað allan vanda með einni sveiflu, sem er því miður ekki alveg svo einfalt! Spurningar, virkni og fjölbreytileiki Spurningar vekja forvitni og fólk hlustar til þess að fá svar við forvitni- legum spurningum. Það er því gott að velta upp áhugaverðum spurningum í upphafi til þess að kveikja áhuga nem- enda á efninu. Virkni heldur líka at- hyglinni. Láttu nemendur rétta upp hönd ef þeir kannast við eitthvað sem verið er að tala um, láttu þá taka þátt í umræðum eða kallaðu fram virkni á annan hátt. Brjóttu kennsluna upp með því að sýna myndbönd, láttu nemendur taka þátt í verkefnum eða fara í hlut- verkaleiki. Notaðu myndlíkingar og segðu sögur Það er oft gott að koma boðskap á framfæri með dæmisögum eða mynd- líkingum. Til dæmis ef verið er að tala um þunglyndi þá má líkja því við svartan hund sem eltir þig út um allt og leggst of- an á þig þegar þú ætlar fram úr á morgn- ana eða út úr húsi. Myndir og sögur sitja oft betur í minni fólks. Settu dagskrá Á lengri námskeiðum er nauðsynlegt að hafa dagskrá og virða tímamörk. Fólk vill fyrirsjáanleika og tímasetning- ar skapa ró, úthald og einbeitingu. Ef nemendur vita að það er kaffipása eftir kortér er líklegra að nemendur einbeiti sér fram að kaffihléi í stað þess að vera sífellt að velta fyrir sér hvenær tíminn sé eiginlega búinn. Stutt hlé ætti að vera á 40 mínútna fresti því það er mjög erfitt að halda athygli fólks lengur en 40 mín- útur í senn. Talaðu á mannamáli Settu þig í spor nemenda og komdu námsefninu frá þér á mannamáli þannig að allir þátttakendur skilji það sem verið er að segja. Þegar verið er að tala um töl- ur er gott að setja þær í samhengi við eitthvað sem fólk skilur. Vertu þú sjálfur Sérfræðingar eru líka mannlegir, vita ekki alltaf allt og fylgja ekki alltaf öllu 100% sem þeir vita að virkar best og kenna öðrum. Ekki þykjast betri en nem- endur þínir, enginn er 100% alltaf. Auk þess hafa allir eitthvað að gefa. Fáðu umræður og hugmyndir frá nemendum. Vertu þú sjálfur, ekki taka þig of hátíð- lega og gerðu grín að þér þegar það á við. Morgunblaðið/Eggert Unsplash Unsplash Elísa segir að fólk þurfi að muna eftir gleðinni. Elísa notar oft leikmuni þegar hún er að kenna til að fanga athygli nemenda. Vog- in hentar til dæmis vel þegar verið er að ræða um jákvæðar eða neikvæðar hugs- anir og mikilvægi þess að vera í jafnvægi. Myndlíkingar og sögur virka alltaf vel. 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 Menntun skapar tækifæri Ríkismennt styrkir starfsmenntun beint til stofnana ríkisins á landsbyggðinni Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Ríkismenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.rikismennt.is Ríkismennt Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • rikismennt@rikismennt.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.