Morgunblaðið - 17.02.2020, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 7. F E B R Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 40. tölublað 108. árgangur
MATARGERÐIN
ER HELSTA
ÁHUGAMÁLIÐ FYRSTI BIKARINN Í HÚS
ÁREKSTURSSKYNJ-
ARI STYTTIR VIÐ-
BRAGÐSTÍMANN
SKALLAGRÍMUR VANN KR 26 NÝR STAÐALBÚNAÐUR 4FAGNAR FERTUGSAFMÆLI 24
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Allsherjarverkfall félagsmanna Efl-
ingar sem starfa hjá Reykjavíkur-
borg átti að hefjast á miðnætti í nótt,
en verkfallsaðgerðirnar eru ótíma-
bundnar og munu hafa víðtæk áhrif á
starfsemi borgarinnar. Engir fundir
hafa verið boðaðir í deilunni á næstu
dögum skv. vef ríkissáttasemjara.
„Velferðarsvið er búið að fá und-
anþágur fyrir þjónustu sem snýr að
hjúkrunarheimilum og sambýlum en
það er ákveðin starfsemi eins og þrif
og fleira sem ekki eru undanþágur
fyrir þannig að öll starfsemi verður
þyngri meðan á verkfallinu stendur.
Neyðarþjónustu verður þó sinnt,“
segir Bjarni Brynjólfsson, upplýs-
ingastjóri Reykjavíkurborgar, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Áhrifin verða mest í leikskólum
borgarinnar þar sem börnum sem fá
vistun í leikskólum verður skipt upp í
hópa. Þeim hópum verður svo skipt
niður á daga vikunnar.
Þrif munu falla niður
Matarþjónusta í einhverjum
grunnskólum borgarinnar mun rask-
ast og þurfa nemendur því að koma
með nesti í skólann. Verkfallið mun
einnig hafa áhrif á þrif einhverra
grunnskóla sem gæti þurft að loka ef
verkfallið dregst á langinn.
Verkfallið mun einnig hafa áhrif á
þá sem njóta velferðarþjónustu þó
svo að undanþágur hafi verið veittar
fyrir neyðarþjónustu. „Það veldur
meðal annars því að ekki verður
vaskað upp á hjúkrunarheimilum og
það þarf því að nota einnota diska og
hnífapör í staðinn fyrir leirtauið. Það
eru alls konar svona hlutir sem gera
allt miklu erfiðara,“ útskýrir Bjarni.
Þá falla þrif á heimilum fatlaðs
fólks og eldri borgara í heimahúsum
niður sem og aðstoð við böðun. Þjón-
usta við borgarlandið mun skerðast
meðan á verkfallinu stendur og
ákveðnum störfum verður ekki sinnt.
Ekki verður gert við malbik, sorp-
hirða fellur niður og almennri hreins-
un í borginni, þ. á m. í kringum
grenndargáma, verður ekki sinnt.
„Við viljum ítreka það að fólk gangi
vel um eins og t.d. í kringum grennd-
arstöðvarnar. Losun á þeim heldur
áfram en það verður ekkert hreinsað
í kringum þær. Við biðlum til fólks að
skilja ekki eftir rusl við þær heldur
fara þá frekar í SORPU,“ segir
Bjarni að lokum.
Áhrifin mest í leikskólum
Allsherjarverkfall Eflingar átti að hefjast á miðnætti Hjúkrunarheimili nota
einnota diska og hnífapör Loka þarf grunnskólum ef verkfallið dregst á langinn
Borgarráð
Reykjavíkur
hyggst veita
Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur
þriggja milljóna
króna styrk
vegna afmælis-
hátíðar frú Vig-
dísar Finnboga-
dóttur, fyrr-
verandi forseta
lýðveldisins, hinn 15. apríl næst-
komandi.
Vigdís fagnar 90 ára afmæli sínu
þann dag og 29. júní í sumar verða
40 ár liðin frá því hún var kjörin
forseti Íslands, en hún gegndi því
starfi næstu sextán árin, til 1996.
Verður efnt til hátíðarhalda í Há-
skólabíói af því tilefni, en Háskóli
Íslands og Stofnun Vigdísar standa
að þeim í samvinnu við ríkisstjórn-
ina og Reykjavíkurborg. »8
Halda veglega upp
á afmæli Vigdísar
Vigdís
Finnbogadóttir
Bandaríkjastjórn lét í gær senda eft-
ir um 400 Bandaríkjamönnum sem
staddir voru á skemmtiferðaskipinu
Diamond Princess, sem verið hefur í
sóttkví í japönsku hafnarborginni
Yokohama frá 3. febrúar síðastliðn-
um vegna kórónuveirufaraldursins.
Verða farþegarnir settir í 14 daga
einangrun til viðbótar við komuna til
Bandaríkjanna.
Fjörutíu aðrir bandarískir farþeg-
ar fengu hins vegar ekki að ferðast
heim á leið þar sem þeir höfðu smit-
ast af veirunni. Sögðu bandarísk
heilbrigðisyfirvöld í gærkvöld að
þeir hefðu verið fluttir á sjúkrahús í
Japan. Ekki var vitað hvort þessir 40
væru á meðal hinna 356 tilfella af
lungnabólgunni sem japönsk stjórn-
völd segja að hafi fundist um borð.
Nýjum tilfellum kórónuveirunnar
hefur fækkað undanfarna þrjá daga,
en 1.665 manns hafa látist á megin-
landi Kína vegna faraldursins. Þá til-
kynntu stjórnvöld í Taívan í gær að
einn hefði látist þar af völdum veir-
unnar, en fyrr um daginn hafði kín-
verskur maður látist í Frakklandi.
Fimm hafa því látist úr lungnabólg-
unni utan meginlands Kína. »13
40 Bandaríkjamenn
smitaðir af veirunni
Bandarísk stjórnvöld tilkynntu
fyrir helgi að tollar á Airbus-
flugvélar myndu hækka úr 10% í
15% frá og með 18. mars næstkom-
andi. Bandaríkin og Evrópusam-
bandið hafa lengi deilt um hvort
Boeing og Airbus njóti óeðlilegs
ríkisstuðnings og hafði Alþjóða-
viðskiptastofnunin veitt Bandaríkj-
unum heimild til að leggja á nýja
tolla til að vega upp á móti þeim
stuðningi sem Airbus fær frá
stjórnvöldum í Evrópu.
Hækkunin nú gæti verið til
marks um að Trump sé með ESB í
sigtinu eftir tollastríð við Kína og
fríverslunardeilur við Kanada og
Mexíkó. »12
AFP
Airbus Bandaríkjastjórn ætlar að hækka
tolla á flugvélar Airbus-framleiðandans.
Hækka tolla á
Airbus-flugvélar
Alls um 1.200 manns komu að marg-
víslegum björgunaraðgerðum í
óveðrinu sem gekk yfir landið síð-
asta föstudag, björgunarfólki bárust
um 700 útköll og Neyðarlínunni bár-
ust um 600 hringingar. Þetta segir
Rögnvaldur Ólafsson, aðalvarðstjóri
hjá almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra. Hann telur að vel hafi
gengið að vinna úr stöðunni, því í
björgunarstarfi gangi allir að sínu
vísu og hlutverk séu skýr og skil-
greind. Öllum aðgerðum er svo stýrt
úr samhæfingarmiðstöð í Skógarhlíð
í Reykjavík.
„Ég hef kynnt mér stöðu almanna-
varnamála víða í útlöndum og tel
okkur standa mjög vel,“ segir Rögn-
valdur og telur fyrirkomulagið hér
jafnvel með því besta á heimsvísu.
Þar ráði miklu meðal annars hve öfl-
ug fjarskipta- og náttúruvárvöktun-
arkerfi séu á Íslandi. Gott samstarf
fólks sem kemur sitt úr hverri átt-
inni til starfa sé sömuleiðis mjög
þýðingarmikið, s.s. úr lögreglu,
slökkviliði, björgunarsveitum, heil-
brigðisþjónustu, frá vísindastofnun-
um og fleirum – allt eins og við á
hverju sinni. »6
Varnir á heimsmælikvarða
1.200 manns sinntu aðgerðum í óveðri síðasta föstudag
Morgunblaðið/Eggert
Samhæfing Stjórnstöðin virkjuð.
Ein vinsælasta hljómsveit þjóðarinnar, Stuð-
menn, fagnaði um helgina hálfrar aldar afmæli
sínu með tvennum tónleikum í Eldborg Hörpu.
Hljómsveitin spilaði þar mörg af sínum þekkt-
ustu lögum, er lifað hafa með þjóðinni um hálfr-
ar aldar skeið. Sá ljóður var einn á, að færri
komust að en vildu og hafa Stuðmenn því ákveð-
ið að efna til þriðju afmælistónleikanna hinn 22.
apríl næstkomandi. Hefst miðasala í dag.
Ljósmynd/Pétur Fjeldsted Einarsson
Afmælistónleikar Stuðmanna í Eldborg vöktu mikla lukku
Tættu og
trylltu lýðinn