Morgunblaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020 Granatollur og Torfalög – þjóðsögurnar Þjóðsögurnar veita nokkra innsýn í það hverjum augum menn litu fornu garðana. Í þessum kafla kynn- umst við ágjörnum tollheimtumanni, ótrúum þrælum, spaugsamri tröll- konu, dansmenn- ingu suður með sjó og hvernig Torfalögin voru goldin. Það vekur athygli hve sjálf- sagt þótti að drepa garð- hleðslumenn, og kallast þjóðsögurnar að því leyti á við Íslendingasögurnar. Fyrstan skal nefna Grana bónda á Snæfellsnesi. Jón Þorkelsson þjóð- sagnasafnari hafði eftirfarandi sögu að segja af honum: „Á Stað á Ölduhrygg (Staðastað) bjó í gamla daga bóndi sá, er Grani hét. Var hann bæði ágjarn og auð- ugur. Alfaravegurinn lá um landeign hans eftir endilöngum Ölduhrygg, sem nú er kallað Staðarholt, og verð- ur enn í dag að fara um þennan veg, er ferðast er vestur undir Jökul eða þaðan inn á Mýrar eða í Dali, enda er vegur sá mjög fjölfarinn, bæði til kauptúnanna Ólafsvíkur og Búða, og til skreiðarkaupa vestur í „pláss“, sem kallað er, en það er Hjalla- sandur, Keflavík, Ólafsvík og Brimilsvellir. Grani bóndi þóttist nú geta náð miklu fé, ef hann tollaði veginn. Byggði hann því afarmikinn torfgarð neðan frá sjó og upp í Langavatn (Staðarvatn). Hlið hafði hann á garðinum, þar sem vegurinn er, en veitti engum fararleyfi nema þeim, er greiddu Granatoll. Óljóst er með öllu, hve hár hann hefur verið, en illa undu menn tollgreiðslu þess- ari, enda launuðu þeir Grana bónda hana, því einhvern morgun fannst hann dauður hangandi við annan dyrastafinn í garðshliðinu (Jón Norðmann segir að það hafi verið tollheimtumaðurinn sem drepinn var og hafi Norðlendingar gert það). Hefur sá vegur aldrei verið tollaður síðan. Það er auðséð á garðrúst þeirri, sem eftir er, að hann hefur verið ákaflega hár og þykkur, og lengd hans hér um bil 300–400 faðmar. … Brynjólfur biskup sá þennan garð eitt sinn á yfirreiðum sínum og mælti þá: „Það var fyrir fiski, að þessi garður var ull“.“ Orðaleikur Brynjólfs, sem út- leggst „Það var fyrir löngu að þessi garður var lagður“, virðist segja að á 17. öld hafi sést garðlög sem þóttu forn. En svo vill til að sama saga gengur um garðlag í Svarfaðardal, svonefndan Sveitarlang. Orðin eru eignuð séra Magnúsi Einarssyni (1734–1794), presti á Tjörn, sem lét gátuna ganga um sveitina. Séra Magnúsi þótti hagræði að garði nokkrum í Svarfaðardal er hann átti messuleið að Urðum og kvað svo: Urðapresti og öðrum varð iðja sú fyrir góðu, þegar þennan göngugarð garpar heiðnir hlóðu. Hér kemur, að því er virðist, í fyrsta skipti fram að forngarðarnir hafi verið nefndir göngugarðar en það hugtak er mjög útbreitt eins og síðar mun vikið að. Einnig er at- hyglisvert að prestur gengur út frá að heiðnir menn hafi hlaðið garðinn. Næst er drepið niður fæti á Suðurlandi. Fornfræðingurinn Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi segir frá sögum sem gengu um Þrælagarð í Biskupstungum. Það er landnámsmaðurinn Ketilbjörn gamli sem hér er sagt frá: „En munnmælasögn er að Ketil- björn hafi látið búsmala sinn ganga fyrir austan Brúará, og látið gjöra garð frá henni austur að Tungufljóti, svo fénaðurinn væri í sjálfheldu; en smalamaður hafi hafst við í skála, þar sem bærinn Skálholt var reistur síðar. Sú sögn er einnig um garð- lagninguna, að þá er þrælarnir, sem lögðu hann, voru komnir með hann vestan frá Brúará austur á holtið, þar sem nú er bærinn Miklaholt, þá hafi þeir hvílt sig undir steini og sofnað; hafi Ketilbjörn þá komið að þeim og drepið þá fyrir ótrúmennsk- una. Segja sumir, að hann hafi velt steininum ofan á þá, og tekið svo fast á honum, að fingraförin sjáist.“ Steindór Björnsson frá Gröf sem safnaði örnefnum í Miklaholti á ár- unum 1952–1954 hefur allt aðra sögu að segja um steininn og minnir hún óneitanlega á berserkina sænsku á Snæfellsnesi: „Áður fyrr stóð Miklaholtsbærinn mun ofar í túninu en nú stendur hann, og ekki alllangt neðar en steinninn er. Bóndinn átti þrjár dæt- ur gjafvaxta, er orð fór af fyrir væn- leika sakir. Eitt sinn komu þangað þrír menn og báðu systranna sér til handa. Bónda leist ekki það gæfu- lega á biðla þessa að hann gæfi þeim dætur sínar skilyrðislaust, en þóttist ekki hafa svo í fullu tré við þá þrjá að hann neitaði þeim hreinlega. Því setti hann þeim það skilyrði að þeir skyldu gera altryggan varnargarð á norðurmörkum landareignarinnar og hafa lokið verkinu á þrem dögum. Að þessu gengu biðlarnir og hófu þegar verkið. Byrjuðu þeir vestur við Brúará og unnu austur og upp á holtið. Sóttist þeim verkið það greið- lega að þeir luku því á tilsettum tíma. Þá var berserksgangurinn af þeim runninn og þeir þreyttir mjög og syfjaðir svo að þeir hölluðu sér útaf undir stórum steini, er á leið þeirra varð rétt ofan við bæjarvöll- inn. Bóndi hafði fylgst vel með ferð- um þeirra og læddist að þeim þarna. Velti hann steininum ofan á þá og leysti sig þannig frá loforði sínu við þessa biðla dætra sinna. Það ein- kennilega er við stein þenna að á honum sjást för eins og eftir þrjá fætur og önnur för eins og móti fyrir öllum fingrum tveggja handa. Og enn kvað móta fyrir markagarði þeim, sem sagan segir að „þræl- arnir“ hafi lagt á þremur dögum. Og kræfur hefur bóndinn verið þótt ekki treysti hann sér á móti þremur.“ [...] Margir kannast við máltækið að gjalda Torfalögin um það þegar einhver þykist búinn að leggja sitt af mörkum við verk sem honum er ekki skylt að inna af hendi. Máltækið tengist þjóðsögu af Torfa Jónssyni í Klofa á Landi í Rangárvallasýslu seint á 15. öld. Hann var héraðshöfð- ingi og yfirgangsmaður mikill. „Eins og Torfi var uppivöðslu- samur og ófyrirleitinn ef hann átti við stórmenni og hlutsamur í sýslum þeim sem hann hélt af konungi, eins var hann mikill búsýslumaður heima fyrir og heldur ágengur og kenndu sveitungar hans og nágrannar helst á því. Eins og nú er byggðum skipað á Landi stendur Klofi ofan til í sveit- inni og er þaðan löng bæjarleið út að Skarði. Sá bær stendur undir fjalli sem Skarðsfjall heitir og er megin- hluti fjallsins fyrir norðan bæinn. Þegar fjallinu sleppir að norðan liggja hálsar úr því enn lengra til norðurs – þeir heita Skarðshálsar – og er ekki nema kippkorn frá hálsa- endunum norður að Þjórsá. Hálsar þessir hafa í fyrri daga verið allir skógi vaxnir sem enn má sjá vott til þar víða í jarðföllum og giljum þó nú sé þar allur skógur eyddur fyrir löngu bæði af manna völdum og náttúrunnar. Til þess að geta notað skógarlandið á hálsunum til vetrar- beitar þar sem þeir liggja svo hátt að aldrei hefur tekið fyrir beit í þeim lét Torfi bóndi hlaða geysiháan og breiðan garð frá Klofa og allt norður í Skarðshálsa, yfir Klofaland, Merkurland og Skarðsland til að reka á honum sauði sína sem sumir segja að hafi verið 600, en aðrir 900 að tölu. Garður þessi lá yfir allt einar lágheiðar þar sem ýmist skiptast á hólar eða dældir. En ef snjóavetur er fyllast allar dældirnar svo ókleift verður fyrir fé að komast af einum hólnum á annan er jafnan standa upp úr. Af því garðurinn var hið mesta mannvirki fóru margir langt að til að sjá hann auk þess sem leið flestra Upplandsbúa lá þar yfir til kirkju að Skarði. En svo var ríki Torfa mikið að engum leiðst að sjá garðinn eða fara yfir hann nema hann styngi þrjá hnausa og legði í garðinn og voru þær álögur kallaðar „Torfalög“, og er sagt að þaðan sé dregið orðtæki það sem enn er haft er sá er engan hlut á að máli grípur í að gjöra það sem honum er ekki skylt að vinna, en vinnur þó ekki meir að öllu verk- inu en Torfi lagði á þá er sjá vildu sauðagarð hans eða svo aðeins „að maður leysi hendur sínar“.“ [...] Séra Magnús Grímsson þjóð- sagnasafnari stígur fram með alveg óvænt sjónarhorn á tilgang forn- garða í safni sínu frá 1847, en þar lýsir hann Skagagarði, miklu garð- lagi sem liggur þvert yfir Garðskaga utanverðan. Magnús telur garðinn vera varnargarð fyrir fé og giskar á að hann hafi verið hlaðinn á 13. eða 14. öld. En þjóðsagan er á öðru máli. Gefum Magnúsi orðið: „Eins og áður er sagt, hefir þessi mikli garður alveg girt fyrir Skag- ann, því túngarðarnir hafa tekið þar við báðum megin, sem hann náði ei til. Það er því varla efunarmál, að hann hafi verið aðalvarnargarður fyrir Skaganum með öllu, sem á hon- um var, og er rúst hans svo stórkost- leg, að vel getur garðurinn hafa ver- ið mannheldur og gripheldur með öllu. … Menn hafa og aðra sögn um, til hvers Skagagarðurinn hafi verið, og skal hér segja hana. Flangastaðir er bær suður frá Kirkjubóli. Þar var títt að halda víkivaka, og sóttu menn þá þangað úr allri sveitinni. Garður- inn átti þá að hafa verið til þess að fara með honum um þvera heiði, fyr- ir ofan Skaga, svo menn villtust ekki á flatneskju þeirri, sem þar er og mjög þykir vandrötuð enn í dag, þegar dimmt er, því engin er þar hæð eða hóll, sem teljandi sé, og hafa menn oft villst þar á seinni tíð. … Hvorttveggja getur þetta vel komið heim um garðinn, því vel mátti nota varnargarð frá 13. eða 14. öld til þess að ganga með til víkivak- anna nokkrum öldum seinna.“ Göngugarð garpar heiðnir hlóðu Bókarkafli | Í bókinni Tíminn sefur fjallar Árni Einarsson, líffræðingur og fornvistfræðingur, um ævafornar og miklar garðhleðslur sem greina má í landslagi sums staðar á landinu. Aldur þeirra, hlutverk og umfang hefur lengi verið ráðgáta en eftir áralangar rannsóknir er ljóst að garðarnir eru flestir frá þjóðveldisöld. Ljósmynd/Árni Einarsson Fornaldargarðar Hólfaskipt heimaland við fornbæ í Kelduhverfi sem meðal annars er fjallað um í bókinni. Byggðin þar er ævaforn, í grunnum sigdal sem er í framhaldi af sprungukerfi Kröflueldstöðvarinnar við Mývatn. HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.