Morgunblaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar MARK RITSON Einn eftirsóttasti markaðsráðgjafi og fyrirlestari í heiminum mark dagurinn og Lúðurinn 6.mars 2020 Takmarkað sætaframboð! Tryggðu þér miða á imark.is Í skýrslu starfshóps forsætisráðherra frá 2018 um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu er bent á að hagsmunavarsla getur leitt til óeðlilegra áhrifa einstakra aðila, veitt þeim ávinning á kostn- að annarra í sömu stöðu og skekkt samkeppni. Stjórnarformenn Arn- arlax og Fiskeldis Aust- fjarða komu að undirbúningi og gerð laga um fiskeldi þar sem þeir voru leiðandi við hönnun á leikreglum, skjalfest í lögum, sjálfum sér og sín- um fyrirtækjum til fjárhagslegs ávinnings á kostnað annarra. Stefnumótunarhópurinn Seinnihluta ársins 2016 var stofn- aður hópur til að vinna að stefnumót- un fyrir fiskeldi með fulltrúum opin- berra stofnana, fiskeldis og veiði- félaga. Afrakstur vinnu stefnumótun- arhópsins er Skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra um stefnumótun í fiskeldi sem gefin var út 23. ágúst 2017. Fiskeldis- frumvarpið sem var lagt fram á Al- þingi Íslendinga vorið 2018 og aftur vorið 2019 tekur mið að þeim tillögum og hugmyndafræði sem lagt var upp með í stefnumótunarskýrslunni. Í starfshópnum var þröngur hópur hagsmunaaðila sem vann fyrst og fremst að því að tryggja sína sér- hagsmuni, ásamt opin- berum aðilum sem ekki voru að vinna sína heimavinnu. Það er því sérstök ástæða til að skoða hverjir voru í stefnumótunarhópnum og framlag einstakra fulltrúa í vinnunni. Fulltrúar laxeldis- fyrirtækja Fulltrúar Landsam- bands fiskeldisstöðva í stefnumótun- arhópnum voru stjórnarformenn tveggja stærstu laxeldisfyrirtækj- anna með u.þ.b. 70% eldissvæða og höfðu mikilla fjárhagslegra hags- muna að gæta. Fyrirtæki stjórnarfor- manna voru búin að koma leyfisveit- ingarkerfinu í uppnám með stórvægilegu „landnámi“ á strand- svæðum og nú var verkefnið að tryggja áfram þeirra stöðu með mikl- um væntingum um fjárhagslegan ávinning. Niðurstaðan er einnig að stefnumótunarskýrslan ber þess ein- kenni að verið er að verja hagsmuni laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila á kostnað fyrirtækja í eigu íslenskra aðila. Aðkoma er- lendra aðila er að mörgu leyti jákvæð og verður fjallað um það seinna. Aðr- ir rekstraraðilar höfðu sent inn og unnið mikla undirbúningsvinnu um að fá heimildir til eldis laxfiska í sjókvíum. Fulltrúa landssambandsins í stefnumótunarhópnum er því vart hægt að kalla fulltrúa allrar atvinnu- greinarinnar. Fulltrúi veiðiréttareigenda Á Vestfjörðum eru fjölmörg lítil veiðivötn sem eru í eigu aðila sem ekki eru í Landssambandi veiði- félaga. Um er að ræða veiðivötn í ná- lægð við eldissvæði og eru í raun í mestri hættu við erfðablöndun eins og þegar hefur mælst á sunnan- verðum Vestfjörðum. Miðað við til- lögur í stefnumótunarskýrslunni var aðeins hugað að stærri veiðivötnum sem tilheyra félögum í Landssam- bandi veiðifélaga. Það er verið að verja stærri veiðivötn og fórna minni veiðivötnum og því ekki að ástæðu- lausu að veiðiréttareigendur utan Landssambands veiðifélaga hafi ver- ið ósáttir og ekki samstiga samband- inu í sínum málflutningi við afgreiðslu málsins á Alþingi Íslendinga. Fulltrúi Landssambands veiðifélaga í stefnu- mótunarhópnum er því vart tals- maður allra eigenda veiðivatna. Fulltrúar stjórnsýslunnar Við skipan fulltrúa ráðuneyta í stefnumótunarhópinn vekur athygli almennt lítil þekking á málefnum fiskeldis. Enda ber skýrsla stefnu- mótunarhópsins þess glögg merki. Þegar skoðaðar eru tillögur stefnu- mótunarhópsins er ekki að sjá að fulltrúar ráðuneyta hafi sett sig mikið inn í málin. Í vinnunni hafa hags- munaaðilar ráðið för og fulltrúar frá ráðuneytum ekki unnið sína heima- vinnu. Það vekur athygli að niður- staðan er að Íslendingar standa að baki nágrannalöndum í opinberri um- gjörð stjórnsýslu fyrir umhverfismál laxeldis er varðar a.m.k. erfðablönd- un, laxalús og heilbrigðismál, þrátt fyrir setu opinberra starfsmanna í starfshópnum m.a. með fulltrúa frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Þessi staða er óheppileg fyrir atvinnugreinina. Afmörkun stefnumótunarhópsins Við lestur stefnumótunarskýrsl- unnar má greina að fulltrúar Lands- sambands fiskeldisstöðva í stefnu- mótunarhópnum, hafi ráðið för við að verja sína sérhagsmuni. Megin- áhersla var lögð á laxeldi í sjókvíum og lítil áhersla á landeldi og eldi ann- arra tegunda. Áhersla t.d. á ófrjóan lax frekar en regnbogasilung virðist vera sú að gera stærri laxeldisfyrir- tækjunum kleift að „helga sér svæði“ jafnvel án nýtingar í ákveðinn tíma, með von um að endurskoðað áhættu- mat erfðablöndunar gefi rýmri heim- ildir fyrir eldi á frjóum laxi og þannig geti viðkomandi aðilar fengið breytt sínum leyfum til aukningar heimilda til eldis á frjóum laxi. Betur verður fjallað um einstaka þætti sem nefndir eru hér að ofan síðar. Eftir Valdimar Inga Gunnarsson » Stjórnarformenn Arnarlax og Fisk- eldis Austfjarða voru leiðandi við hönnun á leikreglum, skjalfest í lögum, sjálfum sér og sínum fyrirtækjum til fjárhagslegs ávinnings á kostnað annarra. Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. Sjókvíaeldi laxfiska – Stefnumótunar- hópurinn og hagsmunagæsla Fjármálaþjónusta tekur hröðum breyt- ingum. Fjártæknibylt- ingin svokallaða í fjár- málageiranum hefur þegar haft mikil áhrif á bankastarfsemi. Sam- keppni milli fyrirtækja fer vaxandi, verð á fjár- málaþjónustu lækkar og tími og fyrirhöfn vegna bankaþjónustu minnkar. Mikil fækkun bankastarfsmanna Flestir bankar standa nú í um- svifamiklum aðgerðum til að lækka kostnað. Helstu leiðir sem farnar hafa verið eru uppsagnir starfsfólks, lokanir útibúa og þróun nýrra tækni- lausna. Þetta kemur m.a. fram í Hvít- bók um fjármálakerfið. Uppsagnir á starfsfólki í bönkunum hafa ekki farið fram hjá okkur. Samkvæmt upplýs- ingum frá samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja misstu 300 manns vinnuna á síðasta ári. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að mikill samdráttur sé í starfs- mannahaldi bankanna og á síðastliðnum fjór- um árum hafi um 800 manns misst vinnuna í bankastarfsemi. Svo virðist sem bankarnir telji sér í hag að setja mikla fjármuni í nýjar tæknilausnir á kostnað starfsmanna. Lands- bankinn er 98% í eigu ríkisins. Bankastjóri Landsbankans segir að bankinn sé í almennum hagræðing- araðgerðum og að starfsfólki hafi fækkað mjög mikið síðustu árin. Þrátt fyrir mikla fækkun starfsfólks og gjörbreytt starfsumhverfi stendur Landsbankinn í stórframkvæmd á Hafnartorgi upp á 17.000 fermetra og byggir nýjar höfuðstöðvar fyrir millj- arða króna á einni dýrustu lóð lands- ins. Framkvæmdin hækkar stöðugt í verði og fyrir skömmu bárust fréttir þess efnis að nú þegar verktakinn er rétt búinn með grunninn hefur verkið farið 1,8 milljarða króna fram úr áætlun, sem stendur í 12 milljörðum og á eflaust eftir að hækka enn frek- ar. Óþörf og óforsvaranleg framkvæmd Fyrir rétt tæpu ári lagði ég fram á Alþingi skriflega fyrirspurn til fjár- málaráðherra um fyrirhugaða bygg- ingu nýrra höfuðstöðva Landsbank- ans. Spurði ég um áætlaðan byggingarkostnað, hvort til greina kæmi að hætta við bygginguna og selja lóðina. Auk þess spurði ég ráð- herra hvort hann teldi framkvæmdin skynsamlega af hálfu ríkisbanka, ekki síst í ljósi mikilla breytinga á bankaþjónustu og fækkun starfs- manna. Skemmst er frá því að segja að ráðherra hefur ekki enn svarað fyrirspurninni. Lýsir þetta skorti á virðingu gagnvart Alþingi og að mál- ið er óþægilegt fyrir hann. Vandséð er hvernig hægt er að réttlæta að rík- isbanki setji vel á annan tug milljarða í byggingu, sem hann þarf ekki á að halda. Auk þess mun bankinn aðeins nota um helming byggingarinnar en leigja þúsundir fermetra út frá sér til verslunar og þjónustu. Ríkisbákn fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokks- ins heldur því áfram að þenjast út sem aldrei fyrr. Nýjasta verkefnið er útleiga húsnæðis á dýrasta stað í borginni fyrir veitingahús og tísku- vörur. Ráðherra reynir að fría sig ábyrgð Bygging nýrra höfuðstöðva rík- isbanka er óþörf og óforsvaranleg. Fjármálaráðherra hefði hæglega get- að komið í veg fyrir þessa taktlausu og dýru framkvæmd á kostnað skatt- greiðenda. Samkvæmt lögum um Bankasýslu ríkisins fer stofnunin með eignarhlut ríkisins í fjármálafyr- irtækjum. Bankasýslan heyrir undir fjármálaráðherra sem skipar stjórn- ina. Ráðherra hefði getað komið þeim tilmælunum til stjórnar að falla frá framkvæmdinni. Ráðherra hefði einnig getað beint þeim tilmælum til Bankasýslunnar að kalla saman hlutahafafund þar sem lagt hefði ver- ið fyrir stjórn bankans að hætta við framkvæmdina og selja lóðina. Þess í stað skortir ráðherra kjark til að taka á málinu og reynir að búa til sinn eig- in umboðsvanda. Vísar ábyrgðinni á stjórn bankans og Bankasýsluna en gleymir því að hann er gæslumaður ríkissjóðs, sem er eignandi bankans. Nær væri að þeir milljarðar sem fara í þetta gæluverkefni yrðu settir í fjár- svelt heilbrigðiskerfi. Eftir Birgi Þórarinsson » Bygging nýrra höfuðstöðva ríkisbanka er óþörf og óforsvaranleg. Birgir Þórarinsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins. birgirth@althingi.is Landsbankahöll og kjarklaus ráðherra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.