Morgunblaðið - 17.02.2020, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Daniel Hann-an, sem þartil nýlega
sat á þingi Evrópu-
sambandsins og
kvaddi starfið
glaður í bragði, ritaði grein í
The Telegraph um helgina um
írsk stjórnmál og sérstaklega
Sinn Fein. Hannan gagnrýnir
mjög að sá flokkur, með vafa-
sama tengingu við skæruliða-
samtök og söguleg tengsl við
Írska lýðveldisherinn sem
flokkurinn hafi ekki gert upp
við, skuli fá mikinn stuðning í
kosningum og jafnvel koma til
greina í ríkisstjórn.
Þessi gagnrýni er skiljanleg.
Tengslin við hryðjuverka-
samtökin eru slík að þau ættu
að útiloka flokkinn sem kost í
kosningum, en fólk er fljótt að
gleyma og unga fólkið hefur
engu að gleyma og er því miður
oft áhugalaust um að lesa sér
til um söguna. Þó mun hafa far-
ið um ýmsa kjósendur flokks-
ins eftir kosningar þegar einn
þingmanna hans sást á mynd-
skeiði hrópa: „Upp með IRA,
okkar dagur mun koma!“
En eins og Hannan bendir á
hefur Írland ekki þurft að sæta
almennum mótmælum erlendis
fyrir gott gengi slíks flokks.
„Hvar er alþjóðlega reiðiald-
an? Fyrir tuttugu árum setti
ESB Austurríki í nokkurs kon-
ar pólitíska sóttkví eftir að
Frelsisflokkurinn var tekinn
inn í ríkisstjórn. Skemmra er
síðan sambandið hefur hótað
Póllandi og Ung-
verjalandi á þeim
forsendum að það
telji stjórnarflokk-
ana með alræðis-
tilhneigingu. Þó
hafa jafnvel áköfustu gagnrýn-
endur þessara flokka ekki sak-
að þá um tengsl við skipulagða
glæpastarfsemi,“ skrifar
Hannan.
Þetta misræmi er umhugs-
unarvert enda skiptir máli að
eitt gangi yfir alla. Annað
dæmi, sem Hannan nefnir að
vísu ekki, er fordæmingin sem
flokkurinn AfD í Þýskalandi
sætir, en þrátt fyrir það aukast
vinsældir hans jafnt og þétt.
Vissulega hafa komið upp
dæmi innan þess flokks um
stjórnmálamenn sem hafa viðr-
að skoðanir sem ekki eru til
fyrirmyndar. Það er þó ekkert
á við Vinstri flokkinn, Die
Linke, sem á beinlínis rætur að
rekja til kommúnistaflokks
Austur-Þýskalands og hefur
státað af stjórnmálamönnum
sem hófu feril sinn í því mann-
fjandsamlega umhverfi.
Die Linke hefur átt sæti í
ríkisstjórnum í fylkjum Þýska-
lands eftir sameiningu þýsku
ríkjanna án þess að uppnám
yrði innan eða utan Þýska-
lands. Hvernig má það vera?
Er það vegna þess að flokk-
urinn er til vinstri eins og
margir sem hæst láta í stjórn-
málaumræðunni? Er sama
skýring á því að Sinn Fein
sleppur að mestu við gagnrýni?
Mikið misræmi
er í pólitísku
umræðunni }
Eru vinstri öfgar í lagi?
Í hamfaraveðr-inu sem gekk
yfir landið í des-
ember kom ber-
lega í ljós hve mik-
ið vantar upp á að
raforkukerfi
landsins sé byggt upp á full-
nægjandi hátt með hliðsjón af
raforkuöryggi. Kerfið hrundi
víða um norðanvert landið
með miklum óþægindum og
hættu fyrir íbúana, auk veru-
legs kostnaðar fyrir atvinnu-
lífið.
Ellefu þúsund íbúar urðu
fyrir rafmagnsleysi á Norður-
landi í desember á 7.600 heim-
ilum, sem er augljóslega óá-
sættanlegt, jafnvel þó að haft
sé í huga að veðurofsinn var
óvenjulega kröftugur.
Síðastliðinn föstudag minnti
veðrið enn á þessa veikleika í
raforkukerfinu. Afleiðingar
veðurofsans voru ekki jafn
miklar og á Norðurlandi í des-
ember en þó urðu 5.600 heim-
ili og vinnustaðir rafmagns-
laus á Suðurlandi og
Suðausturlandi. Mikill fjöldi
staura brotnaði, rétt eins og á
Norðurlandi í des-
ember, og þó að
starfsmenn
raforkukerfisins
hafi enn unnið
þrekvirki við að
koma rafmagni
aftur á, var ástandið vitaskuld
óviðunandi fyrir þá sem urðu
fyrir rafmagnsleysinu.
Þegar liggur fyrir að íbúar
á þeim svæðum sem verst
urðu úti á föstudag mega bú-
ast við rafmagnstruflunum á
næstu vikum á meðan unnið er
að viðgerðum. Eftir ofsaveðrið
í desember á Norðurlandi kom
fram að viðgerðum yrði ekki
að fullu lokið fyrr en í sumar.
Skiljanlegt er að tíma taki að
gera við eftir slík ósköp, en
nauðsynlegt er að uppbygg-
ingin eftir þessi áföll verði
ekki skammtímalagfæringar á
veikburða kerfi. Horfa þarf til
framtíðar í endurnýjun kerf-
isins og að því þarf að vinna
þegar í stað til að tryggja að
slík áföll endurtaki sig ekki.
Raforkukerfið á Íslandi verð-
ur einfaldlega að þola íslenskt
veðurfar.
Aftur lenda Íslend-
ingar í því að þús-
undir eru án raf-
magns vegna veðurs}
Annað áfall raforkuöryggis
N
ú er kominn tími til þess að hefj-
ast handa“ voru skilaboðin sem
ríkisstjórnarflokkur fékk á
fundaferð sinni um landið. Núna,
þegar rétt rúmt ár er eftir af
kjörtímabilinu, á að hefjast handa. Þegar nálgast
kosningar þá er kominn tími til þess að láta
verkin tala. Hendur fram úr ermum og allt það,
á síðasta árinu. Ég er nokkuð viss um að síðast-
liðnar kosningar hafi ekki snúist um að setja allt
í endalaust margar nefndir á fyrstu þremur ár-
um kjörtímabilsins.
Skilaboðin sem við í þingflokki Pírata fengum
í liðinni kjördæmaviku voru svipuð, það eru fjöl-
mörg tækifæri út um allt land sem eru í biðstöðu
en eru föst í stirðum fjárhagslegum samskiptum
ríkis og sveitarfélaga. Langflest af þeim vanda-
málum sem fólk bendir á mætti einfaldlega leysa
nær heimahögum í stað þess að sveitarfélög þurfi að treysta
á að detta í lukkupott stóriðju eða sérstakra byggðafjár-
framlaga.
Vandamálin ná allt frá samgöngum, menntamálum og
heilbrigðisþjónustu til launakjara starfsmanna sveitarfé-
laga. Það er nefnilega þó nokkuð mikill munur á launum op-
inberra starfsamanna eftir því hvort unnið er hjá ríki eða
sveitarfélögum, sem hefur áhrif á öll málefni sveitarfélaga.
Þann mun er hægt að rekja til misskiptingar í tekjum á milli
ríkis og sveitarfélaga.
Tekjur sveitarfélaga markast nefnilega aðallega af fast-
eignaskatti og útsvari af tekjuskatti einstaklinga. Það þýðir
einfaldlega að ef sveitarfélög vilja fara í upp-
byggingu atvinnulífs sem styrkir tekjur sveitar-
félagsins þá þarf að byggja fermetra eða fá fullt
af fólki með launatekjur til þess að búa í sveitar-
félaginu. Ríkið fær hins vegar tekjur frá at-
vinnustarfsemi sem byggist ekki endilega á
fjölda fasteignafermetra og fjölda fólks. Þar er
fjármagnstekjuskattur, virðisaukaskattur, fjár-
magnstekjuskattur og ýmislegt annað. Það er
því augljóst að spyrja af hverju ekki sé útsvar af
þessum tekjustofnum líka? Ef sveitarfélög
væru með útsvar af virðisaukaskatti þá myndi
ferðamaðurinn skilja eftir sig útsvarstekjur
þegar hann kaupir samloku í búðinni og iðn-
aðarmaðurinn myndi skilja eftir útsvarstekjur
vegna viðhaldsverkefna.
Það mikilvægasta við fjölbreyttari tekju-
stofna sveitarfélaga væri hvati þeirra til þess að
byggja upp fjölbreyttari atvinnu en fermetrafreka stóriðju.
Laun starfsmanna sveitarfélaga væru samkeppnishæfari
og tækifærin sem bíða eftir að ríkið hætti að þvælast fyrir
gætu blómstrað. Stefna Pírata í sveitarstjórnarmálum er
meira sjálfstæði, sérstaklega fjárhagslegt sjálfstæði. Þann-
ig að sveitarfélög geti fjármagnað eigin samgönguáætlun,
greitt betri laun og sinnt lögbundnum verkefnum með full-
nægjandi hætti. Það væri allavega betra en að þurfa að bíða
í þrjú ár til þess að eitthvað gerist, kannski.
bjornlevi@althingi.is
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
Að hefjast handa
Höfundur er þingmaður Pírata.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Væntingavísitala Gallup náði137 stigum í desember2017. Bjartsýni var þá ríkjandi
í íslensku hagkerfi sem birtist meðal
annars í fréttum um ný hótel, met-
fjölda ferðamanna í Leifsstöð og vax-
andi kaupmætti.
Þegar líða fór á árið 2018 mátti
heyra það sjónarmið að öll góðæri
taki enda. Vöxturinn gæti ekki haldið
áfram endalaust.
Eftir að þátttöku Íslands á HM í
knattspyrnu lauk í júní 2018 beindist
athyglin að erfiðleikum WOW air.
Þær áhyggjur mögnuðust þegar
skuldabréfaútboð félagsins gekk
heldur treglega. Niðurskurður WOW
air í desember 2018 var svo vendi-
punktur um þróun væntinga hvað
ferðaþjónustuna varðar.
Náði lágmarki haustið 2018
Birtist þetta í því að væntinga-
vísitalan fór niður í 75,8 stig í nóv-
ember 2018 en ef hún stendur í 100
stigum eru jafn margir svartsýnir og
bjartsýnir á horfurnar framundan.
Guðni Rafn Gunnarsson, sviðs-
stjóri fjölmiðlarannsókna hjá Gallup,
segir að ef fleiri fréttir af efnahags-
málum séu neikvæðar en jákvæðar
auki það óvissu um framtíðarhorfur.
Það minnki aftur tiltrú neytenda á
efnahagsaðstæðum. Sé fólk svartsýnt
á eigin hag á næstunni sé það líklegra
til að halda að sér höndum í einka-
neyslu og bíða með stærri útgjöld.
Aukinn órói í samfélaginu
Ásamt erfiðleikum WOW air stóð
Icelandair frammi fyrir miklum
vanda vegna kyrrsetningar á Boeing
Max-þotum sem áttu að leiða endur-
nýjun flotans. Sér ekki fyrir endann á
þeim erfiðleikum sem valdið hafa
miklum álitshnekki fyrir Boeing.
Umræða um neikvæð áhrif af
styrkingu krónunnar á samkeppnis-
hæfni íslenskrar ferðaþjónustu varð
líka til að draga úr væntingum.
Samhliða því að afkoma ferðaþjón-
ustunnar fór hratt versnandi gerði ný
forysta verkalýðsfélaganna kröfu um
réttlátari skerf láglaunafólks af verð-
mætasköpuninni.
Útkoman var undirritun lífs-
kjarasamningsins í aprílbyrjun 2019,
nokkrum dögum eftir fall WOW air.
Atvinnuleysi hefur síðan stöðugt
aukist og voru um 9.600 án vinnu um
síðustu mánaðamót, samkvæmt töl-
um Vinnumálastofnunar sem sagt var
frá í Morgunblaðinu sl. föstudag.
Deila má um hvort verkföll hafi já-
kvæð eða neikvæð áhrif á væntingar
almennnings í efnahagsmálum. Hins
vegar er óumdeilt að verkföll auka
óvissu. Hún er aftur til þess fallin að
leiða til aukinnar varkárni og þannig
draga úr fjárfestingum. Rætt er um
verkföll á fleiri vígstöðvum í ár.
Fjármálakerfið skorið niður
Meðal þeirra sem misst hafa vinn-
una er fjármálafólk en bankafólki
hefur fækkað jafnt og þétt.
Þá hefur aukin notkun sjálfvirkni í
afgreiðslu leitt til fækkunar versl-
unarmanna, ásamt því sem net-
verslun hefur fækkað störfum í hefð-
bundinni verslun. Þrjár stórar
atvinnugreinar – ferðaþjónustan,
fjármálageirinn og verslun – eru því
að ganga í gegnum endurskipulagn-
ingu. Þá hefur verið hætt við fjölda
verkefna í hótelgeiranum og við upp-
byggingu margra íbúðareita vegna
versnandi horfa í efnahagsmálum.
Þessu til viðbótar hafa óveður sett
flug til og frá landinu úr skorðum,
kórónuveiran dregið úr komum kín-
verskra ferðamanna og jarðhrær-
ingar við Grindavík vakið ugg.
Fréttir af erfi ðleikum og átökum síðustu misseri
Dæmi um atburði sem geta haft áhrif á væntingar
2018
13. desember
Hundruð-
um
sagt
upp
hjá
WOW
air
2020
14. janúar
Snjófl óð
falla á
Flateyri og í
Súgandafi rði
– óveður
setur
atvinnulíf á
Vestfjörðum
úr skorðum
20. janúar
Isavia birtir
tölur um
26%
fækkun farþega
um fl ugvöllinn
milli ára 2018 og
2019 – fækkaði
um 2,56 milljónir
31. janúar
219 fl ug-ferð-
um afl ýst á
Kefl avíkurfl ug-
velli í janúar
vegna óveðurs,
borið saman við
31 í fyrra
23. janúar
Kínversku
borginni
Wuhan lokað
vegna kór-
ónuveirunnar
– fl eiri borgir
fylgja í
kjöl-
farið
27. janúar
Íbúafundur
í Grindavík
vegna
óvissu-
ástands
– áhyggjur
af mögu-
legu eldgosi
29. janúar
Væntingar
kaupmanna
um viðskipti
við kínverska
ferðamenn
á kínverska
nýárinu bregð-
ast vegna
kórónuveiru
6. febrúar
Verkfall
Efl ingar hjá
borginni hefst
– setur m.a.
leikskólastarf
úr skorðum
2019
8. mars
Verkfall
Efl ingar
setur ferða-
þjónustu úr
skorðum
12. mars
Icelandair
kyrrsetur
þrjár Boeing
Max-þotur
13. mars
Félagar
í VR
samþykkja
verkfall
28. mars
WOW air
gjald-
þrota
31. desember
8.605
eru án vinnu í
lok árs 2019,
samkvæmt
tölum Vinnu-
málastofnunar,
í fyrsta sinn frá
mars 2013
26. september
Arion banki segir upp
100 manns – síðar
um haustið segja
Íslandsbanki og
Valitor upp alls
32 starfsmönnum
Ótíðindin berast
þjóðinni á færibandi