Morgunblaðið - 17.02.2020, Side 15

Morgunblaðið - 17.02.2020, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020 Vestmannaeyjar Brim barði á Stórhöfða, syðsta odda Heimaeyjar í gær, eins og tilkomumikið var að sjá úr lofti. Bjart var yfir og hitastig náði um fjórum gráðum. Vorið er ekki langt undan. Sigurður Bogi Í Moggablogginu sínu sunnudaginn 9. febrúar sl. ber Styrmir Gunnarsson vinur minn og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins lof á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra fyrir að boða auknar hömlur á jarðakaup útlendinga á Íslandi. Hann spyr jafnframt hvers vegna þetta hafi ekki verið gert fyrr. Það, sem hér fer á eftir, er ófullkomið svar við spurningu Styrmis, en verður þó að flokka undir tilraun. Fyrir um það bil aldarfjórðungi fóru fram miklar umræður um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæð- inu (EES) og hugsanlegar afleiðingar hennar. Í þingflokki Sjálfstæð- isflokksins bar jarðakaup á góma í ljósi þeirra réttinda, sem íbúar efna- hagssvæðisins öðluðust hér á landi með EES-samningnum. Sá sem þetta ritar hélt þá stutta ræðu og varaði við því að íbúar EES fengju ótakmark- aðan rétt til landakaupa. Viðbrögð við athugasemd minni voru ekki mikil, en neikvæð. Einn flokksbróðir minn benti á að litlu skipti hverjir ættu bújarðir. Annar flokksbróðir minn og ráðherra spurði hvort ég teldi líklegt að út- lendingar myndu standa í biðröðum til að kaupa jarðnæði á Ís- landi, og uppskar hlát- ur. Í svari benti ég á að vandræði hefðu skapast í Danmörku einkum vegna kaupa Þjóðverja á sumarbústaðalandi og hefðu Danir sett reglur til að verja sig gegn þess konar ásókn. Auk þess hefðu landakaup útlendinga í einu af bestu landbúnaðarhéruðum Ítalíu valdið þar talsverðu uppnámi. Þótt viðbrögð tveggja flokks- bræðra minna við varnaðarorðum mínum væru ekki uppörvandi, var ekki öll von úti. Ég skynjaði að for- sætisráðherra, Davíð Oddsson, sperrti eyrun, auk þess sem ég vissi að honum var annt um að tryggja fullveldi Íslands við samningagerð- ina. Á þessum tíma gegndi Halldór Blöndal embætti landbúnaðarráð- herra. Ég vissi að honum var mjög í mun að tryggja hagsmuni íslensks landbúnaðar við þessa samningagerð. Landbúnaðarráðherra lagði fram frumvarp til breytinga á jarðalögum nr. 65/1976 og varð það að lögum 24. febrúar 1995, rúmu ári eftir að Ís- lendingar urðu aðilar að EES. Breyt- ingarnar fólust í því m.a. að sett voru skilyrði um fasta búsetu á bújörðum í ákveðinn tíma. Ef skilyrðum var ekki fullnægt gat sveitarstjórn – að fengnu samþykki jarðanefndar og ráðherra – leyst eignina til sín. Mér barst til eyrna að gárungar kölluðu umrædd ákvæði „Tómasar Inga ákvæðin“ sennilega fremur mér til háðungar en heiðurs. Ég átti hins vegar heiðurinn ekki skilið. Löggjöfin var Halldórs Blöndal, og hétu ákvæð- in jafnan „girðingaákvæði“ á máli vandaðra embættismanna. Ég varð fljótlega upptekinn af vinnu við aðra málaflokka og fylgdist ekki með ör- lögum girðingaákvæðanna. Örlögin reyndust ekki góð. Það sem hér fer á eftir hef ég að mestu úr skýrslu starfshóps um eign- arhald á bújörðum, sem dagsett er 31. ágúst 2018. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi íslenskum stjórn- völdum erindi 4. júlí 2001 með at- hugasemdum um um girðinga- ákvæðin (þar á meðal búsetuskilyrðin). Íslensk stjórnvöld brugðust við erindi ESA árið 2004 með því að hverfa algerlega frá tak- mörkunum girðingaákvæðanna. Í Noregi voru sett lög til varnar innlendum landbúnaði árið 2003. Í þeim eru reknar niður hærri girð- ingar en í íslensku lögunum frá 1995, sem ESA gerði athugasemdir við. Eitthvað mun ESA hafa sótt mál gegn Norðmönnum um meint samn- ingsbrot á EES-samningnum vegna þessara laga frá 2003. Þeim málum mun hafa lokið í júlí 2012, þegar ESA viðurkenndi lögmæti norsku ákvæð- anna (m.a. um búsetuskilyrði) og féll frá fyrri afstöðu um að þau væru í andstöðu við EES-samninginn. Rétt er að minna á að Eftirlits- stofnun EFTA blandaði sér í ICE- SAVE-málið. ESA sótti Íslendinga til saka fyrir EFTA-dómstólnum, og gerðist framkvæmdastjórn ESB aðili að málsókninni. Eins og þjóðinni er ofarlega í minni tapaði ESA því máli. Nú get ég ekki sagt til um það hvernig stóð á því að girðinga- ákvæðin voru gefin upp á bátinn með breytingu á jarðalögum 2004, að því er virðist átakalaust. Hins vegar tek ég eftir því að girð- ingaákvæðin frá árinu 1995 hljóta sérkennileg örlög í framangreindri skýrslu frá 31. ágúst 2018, sem þó er samin af mætustu mönnum, þar á meðal af fulltrúa sem tilnefndur var af Bændasamtökum Íslands. Í skýrsl- unni er þess getið að girðinga- ákvæðin í lögum nr. 28/1995 (þar sem eru ákvæðin um búsetuskilyrði) hafi verið „lítillegar breytingar“ og klykkt út með því að „takmarkanir þessar (muni) hafa verið settar í þeim til- gangi að hindra eða hafa stjórn á að EES-borgarar gætu keypt hér land,“ rétt eins og á því hafi leikið einhver vafi til hvers takmarkanirnar voru settar. Hvort breytingarnar voru „lít- illegar“ eða ekki tilheyrir stjórnmála- umræðu, og orkar tvímælis hvort þær eiga heima í skýrslu starfshóps- ins. Mér sýnist að þessi girðingamál hafi verið í sérkennilegum farvegi í öll þessi ár sem liðin eru síðan þau voru sett í lög. Það virðist sem þeir sem um málið hafa fjallað, stjórn- málamenn og embættismenn, hafi umfram allt litið á það sem skyldu sína að líta á EES-reglur og at- hugasemdir ESA sem erkibiskups boðskap, sem ekki megi láta reyna á að viðlagðri bannfæringu, og hlíta skuli í einu og öllu. Eftir Tómas I. Olrich »… flokksbróðir minn og ráðherra spurði hvort ég teldi líklegt að útlendingar myndu standa í biðröðum til að kaupa jarðnæði á Íslandi, og uppskar hlátur. Tómas Ingi Olrich Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Var íslenska stjórnkerfið sofandi? Atburðirnir síðustu vikur hafa minnt okk- ur á hversu mik- ilvægt það er að fæðuöryggi þjóð- arinnar sé tryggt. Válynd veður, jarð- skjálftahræringar og nú hefur Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin varað við alvarlegri veiru sem heldur áfram að dreifast um heiminn. Þrátt fyrir að við höfum marga fjöruna sopið í gegnum ald- irnar hvað varðar fæðuöryggi, þá erum við ótrúlega værukær og stefnulaus í þessum málum. Sem að hluta til hefur skapast vegna áróðurs gegn innlendri framleiðslu þar sem látið er liggja að því að hún skipti ekki máli. Fæðuöryggi og lýðheilsa Framsóknarflokkurinn hefur alltaf staðið vörð um íslenskan landbúnað. Það hefur stundum verið látið í veðri vaka að tillögur okkar í þeim efnum séu hei- móttarlegar. En það er staðreynd að út- sýnið er oft best af bæjarhólnum og stefna okkar á enn fullt erindi í þann al- þjóðlega veruleika sem blasir við núna. Eflum grænmetisræktun Við eigum að nýta auðlindir þjóðarinnar til að auka hér framleiðslu á grænmeti, bæði í útiræktun og í gróðurhúsum. Raforka, heitt vatn og ræktunarland hér á landi eru kjörin til að efla ræktun og einnig til að efla ræktun á fleiri teg- undum grænmetis. Það er á valdi stjórnvalda að efla samkeppn- ishæfni íslenskrar framleiðslu en til þess þarf að huga að nokkrum þáttum. Orkuframleiðsla þarf að vera raunverulegur kostur fyrir bænd- ur sem hafa hug á að auka fram- leiðslu sína. Núverandi fram- leiðsla er mest í dreifbýli þar sem flutningskostnaður á raforku er hærri en í þéttbýli. Þetta þarf að færa til betri vegar. Íslenskar byggingarreglugerðir gera ekki ráð fyrir sérstökum ákvæðum um gróðurhús líkt og tíðkast víða er- lendis. Íslenskir garðyrkjubændur þurfa jafnvel að greiða hærri gatnagerðargjöld við byggingu nýrra húsa heldur en efniskostnað við húsin. Einnig er vert að skoða samkeppnisumhverfið þegar kem- ur að mun á heilnæmi erlendrar og innlendrar framleiðslu. Þar höfum við tæki sem hægt er að nýta til að styrkja grunn inn- lendrar framleiðslu með því að klára löggjöf um bann við dreif- ingu á vörum sem innihalda ákveðnar tegundir sýklalyfja- ónæmrabaktería á markaði. Fjölbreyttari styrkir Nú stendur yfir endurskoðun á búvörusamningi grænmetis- bænda. Þar er m.a. fjallað um hvernig styrkjakerfið nýtist best til að styðja við íslenska fram- leiðslu. Auknir jarðræktarstyrkir sem tæku sérstaklega á ræktunar til manneldis myndu hjálpa til bæði við nýræktun og við endur- ræktun. Plöntuheilbrigði Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, hefur lýst því yfir að árið 2020 sé alþjóðlegt ár plöntuheil- brigðis í heiminum. FAO hvetur þjóðir til að leggja sitt af mörkum til að stuðla að eflingu plöntuheil- brigðis í heiminum. Besta leiðin til þess er að auka fræðslu, efla eftirlit með innflutningi á plöntum og tryggja heilbrigði þeirra. Ís- lensk reglugerð þess efnis er orðin 30 ára og er því nauðsynlegt að koma henni nær þeim raunveru- leika sem við búum við. Samkeppnishæfni Ísland setur tolla á ákveðnar vörur sem og önnur lönd til að byggja undir samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu. Íslensk framleiðsla keppir við erlenda risa og aðstaðan hér er um margt ólík. Veðurfar og strangar reglur um framleiðsluna auka fram- leiðslukostnað og launastig hér er hátt og langt frá því að vera ná- lægt því sem gengur og gerist í landbúnaðargeiranum erlendis. Þannig viljum við líka hafa það. Þá þurfum við líka að viðurkenna að okkur ber að vernda með tollum. Landbúnaður á Íslandi er og verð- ur stærsta stoðin í matvælafram- leiðslu fyrir íslenskan markað og það verður að tryggja að svo verði áfram. Fæðuöryggi Íslendinga Eftir Höllu Signýju Kristjánsdóttur Halla Signý Kristjánsdóttir » Landbúnaður á Ís- landi er og verður stærsta stoðin í mat- vælaframleiðslu fyrir íslenskan markað og það verður að tryggja að svo verði áfram. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. hallasigny@althingi.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.