Morgunblaðið - 17.02.2020, Síða 19

Morgunblaðið - 17.02.2020, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020 ✝ RagnhildurEinarsdóttir fæddist í Reykja- vík 17. september 1933. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 9. febr- úar 2020. For- eldrar hennar voru Einar G. Runólfsson, f. 23. apríl 1886 í Skálmabæjar- hrauni í Álftaveri, d. 30. okt. 1962 í Reykjavík, og Kristín Þorleifsdóttir, f. 21. janúar 1900 í Stykkishólmi, d. 6. júní 1973 í Reykjavík. Bræður hennar voru: 1) Sigurður Breiðfjörð Þor- steinsson, f. 31. mars 1927, d. 2. mars 1974. 2) Þorleifur Einarsson, f. 29. ágúst 1931, d. 22. mars 1999. Maður Ragnhildar var Al- bert Ólafsson bakarameistari, f. í Reykjavík 8. október 1924, d. 13. júní 2009 í Reykjavík. For- eldrar hans voru Ólafur Bjarna- son, f. 5. júní 1887, d. 12. febr- úar 1956, og Efemía G. Al- bertsdóttir, f. 8. júní 1889, d. 9. janúar 1934. Ragnhildur og Albert gift- ust 30. september 1961. Synir þeirra eru: Einar, f. 30. mars 1957. Ólafur, f. 6. febrúar 1962. Kona hans er Imelda Caing- coy, börn hennar eru Aimee Sambajon, f. 1991, og Antonio Sambajon, f. 1995. Albert, f. 6. maí 1969. Útför Ragnheiðar fer fram frá Digraneskirkju í dag, 17. febrúar 2020, klukkan 15. Ragna frænka er dáin, föður- systir okkar sem við höfum þekkt alla ævi. Að kveðja Rögnu með fáum orðum er ekki einfalt, til þess eru minningarnar of margar. Við systkinin bjuggum með foreldrum okkar á Langholtsvegi í húsinu sem afi og pabbi byggðu með hjálp allrar fjölskyldunnar. Þar bjó Ragna frænka líka með fjölskyldu sinni. Fyrstu minningar okkar um Rögnu eru þó úr blokkinni í Sól- heimum 25, á 9. hæð, en þar bjuggu Ragna og Addi, Albert Ólafsson, ásamt sonunum þrem- ur. Það var því varla nema fimm mínútna gangur á milli heimil- anna. Við vorum í matarboðum hjá þeim hjónum öll jól og í ára- mótaveislum. Er foreldrar okkar fóru til útlanda eða í ferðalög um landið bjuggum við iðulega hjá Rögnu. Ragna var sérstaklega elskuleg alla tíð og þó að oft væru mikil læti í okkur krökkunum minnumst við þess ekki að hafa nokkru sinni heyrt styggðaryrði frá henni enda var Ragna með eindæmum barngóð. Ragna var sérstaklega góður kokkur og eru þeir margir réttirnir sem við höf- um hvergi fengið betri en hjá henni, frómasinn frægi, svana- súpan eða lambaréttirnir. Þau Ragna og Addi ráku A&B bak- aríið á Dalbraut í áratugi. Þar var ætíð gestkvæmt, hvort held- ur það voru vinir eða viðskipta- vinirnir, sem flestir voru fasta- gestir. Við krakkarnir litum þar alltaf við eftir leiðinlegt skóla- sundið en Ragna bjargaði þá deginum og gaf okkur súkku- laðisnúða og öllum vinum okkar líka. Ragna var vel lesin þó að ekki hafi hún notið mikillar skólagöngu utan húsmæðraskól- ans. Hún fylgdist alla tíð vel með málefnum líðandi stundar, vissi margt og gat frætt mann um alla skapaða hluti. Ragna kunni margar sögur og er hún skellti upp úr með sinni björtu rödd hef- ur það sennilega heyrst um allan stigaganginn. Ragna hafði yndi af ferðalög- um, leikhúsi og tónleikum en þess utan nýtti hún tíma sinn vel í alls konar félagsstarfi sem sjálf- boðaliði eftir að þau hjón hættu með bakaríið, svo sem félagsmál- um í kirkjunni, aðstoð við eldri borgara og var lengi skólaliði og vann í búð fyrir eldri borgara. Elsku Ragna, það er svo margs góðs að minnast er þú kemur í hugann. Við munum sakna þín mikið. Einar og Kristín. Ragna, litla systir hans pabba. Ættrækin og hlý skellibjalla með eftirminnilegasta og skemmtileg- asta hlátur sem um getur! Þegar Ragna skellti upp úr hlógu allir með, svo smitandi var hláturinn hennar. Ég var oft í pössun hjá Rögnu og Adda, manninum hennar, þeg- ar ég var lítil. Þau bjuggu í Sól- heimablokkinni sem var stein- snar frá skólanum mínum þannig að það lá beint við að ég færi þangað í pössun þegar mamma og pabbi voru á ferðalögum. Hjá Rögnu þurfti ég aldrei að vera í „stingubol“ úr ull á köldum vetr- ardögum eins og heima en ég man reyndar eftir því að hún hafi sent mig í kjól í skólann og spreyjað á mig smá vellyktandi. Sú tíska fór ofangarðs og neðan hjá krakka sem vildi bara vera í gúmmístígvélum að hoppa í poll- um! Þetta var eftir á að hyggja alveg skiljanlegt, Ragna frænka var alltaf svo fallega klædd og vel til höfð – auðvitað vildi hún að litla frænka væri líka sómasam- lega til fara! Það var þvílíkur lúxus að vera í pössun hjá Rögnu frænku; í morgunmat var nýbakað fransk- brauð með smjöri og svo var drukkin kókómjólk með. Fransk- brauðið kom að sjálfsögðu úr bakaríi þeirra hjóna, besta brauð í heimi. Ragna frænka var húsmæðra- skólagengin sem sást vel á heim- ilinu hennar. Þar var alltaf allt hreint og fínt og útsaumur henn- ar naut sín á veggjum og borðum. Svo var hún listakokkur. Matur- inn hennar var ekki bara góm- sætur heldur var allt svo fallega sett fram; servíetturnar brotnar saman eftir kúnstarinnar reglum, hamborgarhryggurinn skreyttur með sveskjum, ananas- sneiðum og kokteilberjum og á aspassúpunni hennar sigldu svanir sem hún hafði formað og bakað úr vatnsdeigi – súpan var enda aldrei kölluð annað en svanasúpa. Enska ávaxtakakan sem hún bakaði fyrir jólin og Rögnufrómasinn, með sérríi, kokteilberjum, heslihnetum og súkkulaði – allt bar þetta ómæld- um matreiðsluhæfileikum henn- ar vitni. Það var auðvelt að elska Rögnu og ég er ekki í neinum vafa um að margir hafi líka haft matarást á henni! Ragna frænka naut þess að fara í leikhús og á tónleika. Eftir að Addi dó fórum við stundum saman á sýningar og sinfóníutón- leika. Eftirminnilegust er sýning í einu leikhúsanna sem ég tengdi ekki við. Þegar ég hélt að sýning- unni væri loksins lokið sagði ég: „Jæja, þetta var nú aldeilis fínt – á ég ekki bara að skutla þér heim núna?“ Ragna leit undurfurðu- lega á mig, skellti svo upp úr og sagði: „En það er bara hlé!“ Svona fór um sjóferð þá. Það hefur verið hefð hjá mér í rúmlega 20 ár að heimsækja Rögnu frænku á aðfangadag, drekka kaffi úr spilabollunum hennar og spjalla um allt og ekk- ert. Ragna hefur verið ómissandi þáttur í lífi mínu síðan ég man eftir mér. Hún skilur ógnarstórt skarð eftir sig í hjartanu á mér sem erfitt er að fylla. Þegar Ragna frænka heilsaði og kvaddi var það alltaf með kossi sem skildi eftir appelsínu- rautt varalitarfar á kinninni. Mikið þótti mér vænt um þessa einstöku föðursystur mína og mikið óskaplega á ég eftir að sakna hennar, hlátursins hennar og varalitarfarsins hennar á kinninni. Takk fyrir allt og góða ferð, elsku Ragna frænka. Björk. Ragna frænka. Ég er búin að dvelja við minningar um hana undanfarna daga. Frá barnæsku minni koma minningabrot. Ragna að klæða sig upp fyrir veislu og ég að hjálpa henni með magabeltið. Ragna standandi við stofuglugga seint um kvöld í síð- um siffonnáttkjól, mögulega reykjandi til að ná sér niður eftir erilsaman dag. Ragna með upp- sett hár, alltaf fín og smart. Ragna með sunnudagsmatarboð- in sem voru fastir liðir hjá fjöl- skyldunni, margir saman komnir, mikið hlegið og margt rætt, oftar en ekki voru þjóðmálin krufin. Bolludagshelgi í bakaríinu, mikið að gera en alltaf skemmtilegt. Ragna kemur færandi hendi með lærissneiðar í raspi fyrir sitt fólk. Ragna var gjarnan miðpunkt- urinn þar sem fólk kom saman. Alltaf var nóg að gera hjá henni en aldrei kvartaði hún. Hún var sterk kona, ákveðin og hún kenndi mér að standa með sjálfri mér. Hún var stálminnug og hafði mikinn áhuga á fólki. Það var fátt sem hún hafði ekki skoð- un á og fór aldrei leynt með álit sitt. Það var satt að segja skemmtilegt að vera henni ekki sammála, skoðanaskipti við hana kröfðust þess að heilasellurnar væru vel virkar og oft þurftu þær að vinna hratt til að hafa í við skarpar rökfærslur hennar. Ég er óendanlega þakklát fyr- ir að hafa átt þessa konu að og minnist hennar með hlýju. Sendi strákunum hennar og fjölskyldu samúðarkveðjur. Kristín Guðveig Sigurðardóttir. Í dag kveðjum við Rögnu frænku, Ragnhildi Einarsdóttur. Það er stórt skarð fyrir skildi þegar sá síðasti í heilli kynslóð hverfur á braut og enginn er eftir sem man liðna tíð. Þá rofna tengslin við fortíðina, enginn lengur til að spyrja um æsku ást- vina og forfeðra. Aðeins of seint áttar maður sig á því að maður hefði átt að spyrja meira og hlusta betur. Í minningunum hefur Ragna föðursystir alltaf verið til staðar. Afi og amma höfðu kynnst við fiskvinnslu í Viðey, gift sig og flutt í örsmáa íbúð í Grímsstaða- holtinu. Ragna var alin upp við nokkurn skort því afi var í sósíal- istaflokknum, barðist fyrir rétt- indum verkamanna og var því oft án vinnu en amma gekk sjaldan heil til skógar. Ragna sagði mér að hún myndi mömmu sína aldrei unga, hún hefði alltaf verið veik. Engu að síður tókst þeim að nurla saman og byggja sér hús á Langholtsvegi sem átti eftir að vera athvarf fjölskyldunnar alla tíð síðan. Rögnu dreymdi um að fara í nám en varð að láta sér nægja að ljúka gagnfræðaprófi. Leiðin lá síðan í Húsmæðraskól- ann þar sem hún kynntist móður minni, Steinunni, og með þeim tókst áratuga vinátta. Mamma fór og lærði hjúkrun en Ragna að vinna í bankanum. Þegar Ragna eignaðist Einar árið 1957 var erf- itt að eignast barn utan hjóna- bands, reyndi það töluvert á unga konuna. Bróðir hennar ákvað því að gleðja hana með því að bjóða henni í sumarfrí til Þýskalands þar sem hann hafði í mörg ár stundað nám í jarðfræði og leikið handbolta til að fjár- magna námið. Ragna bað mömmu að koma með, í ferðinni tókust ástir með foreldrum mín- um Þorleifi og Steinunni og ári síðar kom ég í heiminn í Þýska- landi. Þegar foreldrar mínir fluttu heim settust þau að í fjölskyldu- húsinu, þar sem fyrir bjuggu afi og amma, ásamt Rögnu og Al- berti með sonunum Einari og Óla. Síðar flutti Ragna í blokkina í Sólheimum en tengslin héldust náin alla tíð. Ragna var eðalfrænka. Hana dreymdi um að eignast dóttur og naut þess að kaupa á mig kjóla. Eftirminnilegur er hvítur kjóll sem ég fór í að sjá Dýrin í Hálsa- skógi, hann var ekki hvítur lengi. Ragna gleymdi aldrei afmælis- degi. Hún var ávallt höfðingi heim að sækja, eðalkokkur og enginn kom við án þess að fá góð- an viðgjörning. Þar var aldrei skortur því hún rak með Adda eitt allra besta bakarí þeirra tíma á Dalbrautinni, með bestu snúða í heimi. Varla er hægt að hugsa sér betri frænku sem alltaf hafði tíma til að eiga með okkur stund. Minnisstæð eru árin þegar Ragna keyrði okkur krakkana flesta sunnudaga í þrjúbíó. Ferð- ir sem aldrei gleymast því hún var skelfilegur bílstjóri, en alltaf komum við samt heil heim. Fram á síðustu daga ók hún um á sín- um slyddujeppa í sjálfboðastarfi fyrir aldraða eða til að skjótast í heitapottinn með vinunum í Laugardalslaug kl. 11 alla daga. Nú er Ragna horfin á braut en minning um gjafmilda og glað- lynda konu lifir í hjarta okkar allra. Elsku Einar, Ólafur og Al- bert, mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Ásta. Hún sem átti hetjudáð og dug látin er og liggur moldu falin. Við söknum, finnum öll með einum hug að afbragðskona fallin er í valin. Við munum hennar snjalla mál og hjartans alúð, vinarþel í kynning en tryggðargulli krýnd er hennar minning. Þannig orti ein Hvítabands- kona til annarrar fyrir áratugum. Þessi orð lýsa Ragnhildi Einars- dóttur vel, hún tók jákvætt í alla beiðni um sjálfboðavinnu og vann hún alla tíð af áhuga og festu öll sín störf og það sýndi hún í verki við starf sitt í verslun Hvíta- bandsins í Furugerði 1. Þar var hún hress og reffileg, lék á als- oddi við afgreiðslustarfið. Við er- um þakklátar fyrir að hafa átt hana að félaga. Að leiðarlokum er margs að minnast, margt að þakka og með einkunnarorðum Hvítabandsins kveðjum við Ragnhildi, „Fyrir Guð, heimilið og þjóðina.“ Guð blessi minningu hennar. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Fyrir hönd líknarfélagsins Hvítabandsins, Þorbjörg Guðmundsdóttir. Nú þegar Ragnhildur Einars- dóttir, eða Ragna, hefur kvatt okkar tilverustig langar mig að minnast kærrar vinkonu. Ég kynntist Rögnu fyrir mörgum ár- um þegar hún stóð við hlið Al- berts heitins mannsins síns og af- greiddi í AB bakaríinu þeirra við Dalbraut. Rauðu krullurnar og létt fasið vöktu athygli mína. AB bakaríið var sannkallað hand- verksbakarí þar sem Albert bak- aði úr dýrindis leyniuppskriftum sem ekki fóru lengra. Ragna varð góð vinkona, hún átti yndislegt heimili í Sólheim- um 25 og þar áttum við margar ánægjustundir. Galsi og glað- værð einkenndi hana og oft vissi ég ekki hvort ég væri að hlæja að brandara eða dillandi hlátri hennar. Hún var mikil félagsvera og leiddi mig inn í líknarfélagið Hvítabandið þar sem hún veitti af kröftum sínum af fórnfýsi til dauðadags og á félagið henni mikið að þakka. En fyrst af öllu var hún trygglynd og heilindi voru hennar dyggð. Við hittumst síðast við jólatón- leika í Háteigskirkju, þar um- vafði hún mig og mína með sinni góðu hlýju og væntumþykju. Þannig eru bestu vinirnir. Ég votta sonum hennar og tengdadóttur mína innilegustu samúð. Bærinn minn, bærinn minn og þinn sefur sæll í kyrrð. Fellur mjöll hljótt í húmi á jörð. Grasið mitt grasið mitt og þitt geymir mold til vors. (Jakobína Sigurðardóttir) Guðrún Kristjónsdóttir. Ragnhildur Einarsdóttir ✝ Guðmundur ÖrnGuðbjartsson fæddist í Reykjavík 6. júní 1966. Hann lést á heimili sínu í Los Cristianos á Te- nerife 21. janúar 2020. Foreldrar Gumma eru Sigríður Birna Guðmunds- dóttir sem er látin og Guðbjartur Vil- helmsson. Systkini Gumma eru Vilhelm Guðbjartsson og Eydís Erna Guðbjartsdóttir. Fyrri sambýliskona Gumma var Ágústa Kristín Andrésdóttir og eignuðust þau tvö börn, Ásdísi Ernu Guðmundsdóttur, sem á eina dóttur, og Grétar Örn Guð- mundsson. Seinni sambýliskona Gumma var Ingi- fríður Ragna Skúla- dóttir og eiga þau saman einn son, Pat- rik Birni Guðmunds- son. Börn Ingu eru Alexía Ýr Magn- úsdóttir, Einar Kristján Guðmunds- son, látinn, Guð- mundur Dór Guð- mundsson og Hrafnkell Skúli Guð- mundsson. Gummi starfaði lengst af sem rafvirki en fluttist búferlum árið 2019 til Tenerife. Þar opnuðu þau Inga bar og starfaði hann þar fram á síðasta dag. Útförin fer fram í Vídal- ínskirkju í Garðabæ í dag 17. febrúar 2020 klukkan 13. Ástin mín. Heimur minn hrundi og hjart- að brotnaði í þúsund mola daginn sem þú kvaddir. Það var alltaf faðmurinn þinn og þínar styrku hendur sem komu mér í gegnum alla erfiðleika. Tárin vilja ekki hætta að streyma enda er enginn sem getur huggað mig þegar þú ert ekki lengur hér. Þú ert ást lífs míns, æskuástin mín og sá sem ég mun alltaf elska. Heimurinn verður aldrei jafn bjartur aftur, sólin aldrei jafn heit né golan jafn svalandi, en ég verð samt að halda áfram án þín. Öll ferðalögin sem við áttum eftir að fara í, verð ég að takast á hendur án þín. Ég mun gera mitt besta til að heiðra minningu þína og lifa lífinu lifandi, eins og ég veit að þú vilt að við gerum öll. Öll löngu samtölin okkar, fífla- lætin og hláturinn heyra sögunni til, en lifa í minningunni. Ég mun samt halda áfram að tala við þig þar sem ég finn fyrir nærveru þinni, bæði heima í stofu og á barnum þínum. Við áttum að fá svo mörg ár í viðbót, en lífið er því miður ekki alltaf sanngjarnt. Hvíldu í friði, ástin mín. Ég elska þig að eilífu. Þín Inga. Ingifríður. Ég á enn þá erfitt með að trúa að þú sért farinn. Ég er sífellt að lenda í aðstæðum þar sem ég hugsa til þín, langar að láta þig vita af einhverju eða biðja um ráð. Mér finnst skrýtið og ósann- gjarnt að góðhjartaður maður eins og þú kveðjir okkur svona snemma. Ætli það sé ekki eitt- hvað til í því að þeir sem fara ungir elski guðirnir mest? Ég sé þig fyrir mér hér og þar, brosandi fallega með blíðu augun þín skínandi. Ég hugga mig við það að þarna uppi einhvers staðar hafi Birna amma og fleiri tekið vel á móti þér og eflaust nokkrir hundar og kettir. Pabbi, ég vildi að ég gæti heyrt hláturinn þinn einu sinni enn. Eitt knús í viðbót sem sting- ur í kinnarnar út af skegginu. Fundið lyktina þína aftur. Séð broshrukkurnar dansa. Komið við í rótsterkan kaffisopa. Þetta verður víst allt að bíða betri tíma en mikið hlakka ég til. Ég lofa að vera dugleg að segja Aþenu og litla bumbusn- áðanum sögur af þér og sýna þeim myndir. Þú ert maður sem varst vinur allra. Þú ert maður sem ekkert illt máttir sjá. Þú ert maður sem gast hughreyst alla. Þú ert maður sem gladdir hverja sál. Þú ert pabbi minn. Þín dóttir, Ásdís Erna Guðmundsdóttir Þegar ég hugsa um pabba er það eitt sem kemur alltaf upp í hugann minn fyrst, potturinn í Bæjargilinu. Okkar staður til að flýja frá vandamálunum okkar á hverjum degi. Bara öruggur staður fyrir okkur þar sem við töluðum um allt frá stjörnufræði í að veiða fisk. Vildi að við gætum átt fleiri þannig stundir saman. Það að hann var alltaf í góðu skapi og ekki langt í hlátur þegar við töluðum saman er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Góð- hjartaðasta manneskja sem ég hef kynnst, vinur allra, allt frá vandamönnum í litla kettlinga. Gerði liggur við hvað sem er fyrir mann, alveg sama hvað. Vildi að ég gæti bara fengið eina stund í viðbót í pottinum. Ég held að ég hafi fengið húmor minn og ljúf- mennsku mína mest frá honum. Ég lærði af þeim bestu. Kenndi mér að veiða en var samt alltaf betri en ég og ég varð alltaf jafn pirraður þegar hann veiddi meira en ég en samt alltaf bara saman í því. Allar góðu minningarnar um að vera uppi í bústað, á hans öðru heimili, einum af mínum uppá- haldsstöðum. Bara að spila eða horfa á sjónvarpið eða bara grín- ast með mömmu og það mikil- vægasta, tónlistin. Tónlistin gerði pabba alveg einstakan, ég er svo þakklátur fyrir að hann hafi kynnt mér tónlistina, þótt ég fílaði ekki allt er það tónlistin sem minnir mig best á hann. Hann sýndi mér og ég sýndi hon- um. Það er honum að þakka að ég elska tónlist eins mikið og ég geri í dag, alltaf að sýna mér eitt- hvað nýtt. „Don’t mess with me boy.“ Elska þig að eilífu, pabbi minn. Hvíldu í friði. Patrik Birnir (Patti). Guðmundur Örn Guðbjartsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.