Morgunblaðið - 17.02.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Opin
handavinnuhópur kl. 12-16. Leikfimi með Hönnu og Maríu kl. 9.
Morgunsagan kl. 11. Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 12:30.
Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-19.
Opið fyrir innipútt. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni.
Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Boccia kl.10.30 Gönguhópur kl.10.30 Bingó (FEBK) kl.13.00
Myndlist kl.13.00 Vatnsleikfimi kl.14.30 Spjallhópur Boðans kl.15.00
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Verði allsherjar verkfall hjá
starfsmönnum Eflingar verður eldhúsið lokað. Sem þýðir að ekki
verður hægt að fá kaffi eða mat. Að öðruleiti verður starfsemin í
félagsmiðstöðinni með hefðbundnu sniði. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8:30. Hjúkrunarfræðingur
kl. 10:00. Núvitund kl. 10:30. Silkimálun kl. 12:30. Gönguferð kl. 13:00.
Handaband kl. 13:00. Bridge kl. 13:00. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13:10-
13:30. Skák kl. 14:00. Handavinnuhópur hittist kl. 15:30. Verið öll hjar-
tanlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Stólajóga í
Jónshúsi kl. 11:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Vatnsleikf. Sjál
kl.7:10/7:50/15:15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9:30. Kvennaleikf Ásg. kl.11:00.
Zumba salur Ísafold kl. 16:15
Gerðuberg 3-5 Opin Handavinnustofan kl 08:30-16:00. Útskurður
m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Qigong 10:00-11:00 Leikfimi Maríu 10:30-11:15
Leikfimi Helgu Ben 11:15-11:45. Kóræfing kl. 13:00-15:00.
Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9. 00 Boccia, kl. 9.30 Post-
ulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta, kl. 16.30 Kóræfing, kl.
19.00 Skapandi skrif.
Gullsmára Postulínshópur kl. 9.00. Jóga 9.30 og 17.00 Bridge og
handavinna kl. 13.00. Félagsvist kl. 20.00.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9 – 14. Jóga kl. 10:00 – 11:00. Hádegismatur kl.
11.30. Sögustund kl. 12:30-14:00. Prjónaklúbbur kl. 14:00-16:00.
Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika fra kl 8.00-12.00. Myndmennt
kl 9.00 Gaflarakórinn kl 11.00. Félagsvist kl 13.00.
Ganga frá Haukahúsi kl10.00
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Jóga með
Carynu kl. 9. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Samverustund kl. 10:30. Jóga
með Ragnheiði kl. 11:10 og kl. 12:05. Tálgun – opinn hópur kl. 13:00-
16:00. Frjáls spilamennska 13:00. Liðleiki í stólum 13:30. Verði verkfall
verður ekki hægt að kaupa mat eða kaffi í félagsmiðstöðinni.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl 9, ganga kl. 10
frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll, skartgripagerð kl. 13 í
Borgum, félagsvist í Borgum kl. 13 og tréútskurður á Korpúlfsstöðum
kl. 13 í dag í umsjón Gylfa og kóræfing Korpusystkina í umsjón
Kristínar kl. 16:00 í dag í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl.9.45,
upplestur kl.11, trésmiðja kl.13-16, Gönguhópurinn kl.13.30, bíó í betri
stofunni kl.15 .Uppl í s.4112760.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er
frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er
félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30
– 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4, Zumba Gold – dans, leikfimi og teygjur fyrir
byrjendur kl. 9.20. ZUMBA Gold framhald kl. 10.30 umsjón Tanya.
Enska námskeið kl. 10.30 og 12.30 Umsjón Margrét Sölvadóttir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
» Jarðvinna
» Drenlagnir
» Hellulagnir
» Þökulagnir
Þjónustum einstaklinga,
fyrirtæki og húsfélög
prostone@prostone.is
519 7780
Húsviðhald
» Smíðavinna
» Múrvinna
» Málningarvinna
Þjónustum einstaklinga,
fyrirtæki og húsfélög
prostone@prostone.is
519 7780
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald og fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
✝ GuðmundurMagnús Guð-
mundsson fæddist
á Akureyri 8. nóv-
ember 1942. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sunnu-
hlíð í Kópavogi 7.
febrúar 2020.
Foreldrar hans
voru Vilhelmína
María Magnús-
dóttir, f. 8. október
1917, d. 9. febrúar 2011, og
Guðmundur Halldórsson, f. 3.
júlí 1913, d. 7. apríl 1976.
Systkini Guðmundar: Svala,
f. 1937, d. 2019; Halldór, f.
1939, d. 2009; Bergþór Njáll, f.
1941, d. 2007; Jósef Kristján, f.
1946; stúlka, f. 1947, d. 1947;
Haukur Smári, f. 1949, d. 2004,
og Hrafnkell, f. 1951.
Eftirlifandi maki er Jónína
Davíðsdóttir, f. 22. maí 1943.
Þau gengu í hjónaband 25.
mars 1967. Dætur þeirra eru:
1) Anna María Guðmunds-
dóttir, f. 28.6.1967, maki Guðni
Björn Jónsson, f. 8.7. 1966.
Dætur þeirra eru
Guðný Ósk, f. 13.6.
1996, og Þórey
Elva, f. 7.11. 2000.
2) Brynja Guð-
mundsdóttir, f.
29.8. 1969, maki
Grímur Örn Jóns-
son, f. 17.2. 1968.
Börn þeirra eru
Jónína Hildur, f.
14.11. 1993, og
Jón, f. 24.1. 2003.
Maki Jónínu Hildar er Fannar
Emil Jónsson, f. 30.9. 1991,
börn þeirra eru Júlía Máney, f.
3.3. 2013, og Óliver Dagur, f.
19.1. 2019.
Guðmundur lærði bifvéla-
virkjun við Iðnskólann á Ak-
ureyri og í Reykjavík. Þau
hjónin fluttu til Grindavíkur
1973 þar sem Guðmundur
stofnaði Bifreiðaverkstæði
Grindavíkur og rak það til árs-
ins 1999. Árið 2001 fluttu þau
svo í Kópavog.
Útför Guðmundar fer fram
frá Lindakirkju í dag, 17. febr-
úar 2020, klukkan 11.
Elsku pabbi minn, komið er að
kveðjustund og þú hefur haldið
frjáls inn í sumarlandið, laus úr
viðjum veikinda þinna. Minning-
arnar eru margar, ég að skottast
um á bílaverkstæðinu hjá þér,
ferðalögin o.fl. Þú unnir nátt-
úrunni og hafðir gaman að því að
ferðast um landið. Þú varst alltaf
svo duglegur og flinkur í öllu sem
þú tókst þér fyrir hendur og allt-
af var hægt að leita til þín ef eitt-
hvað var að. Barnabörnin voru
þér miklir gleðigjafar og þau
sóttu í að komast í gistingu til
ömmu og afa. Seinni árin þegar
þú áttir orðið erfiðara með mál þá
sýndi fallega brosið þitt alltaf
hvað þér þótti mikið vænt um
þau, orð voru óþörf til að finna
kærleikann frá þér.
Um undra-geim, í himinveldi háu,
nú hverfur sól og kveður jarðarglaum;
á fegra landi gróa blómin bláu
í bjartri dögg við lífsins helgan
straum.
(Benedikt Gröndal)
Þín dóttir,
Anna María.
Guðmundur Magn-
ús Guðmundsson
Við Jökull minn-
umst nú með sökn-
uði yndislegu ömmu
og tengdamömmu okkar. Ég
kynntist Hönnu fyrst fyrir meira
en tveimur áratugum og var
strax tekið vel á móti mér í fjöl-
skyldunni. Ég uppgötvaði fljótt
að heilbrigð matarlyst var æski-
legur kostur í nýju fjölskyldunni
því Hanna var frábær kokkur og
bakari, af gamla skólanum, og
naut þess að dekra við fólkið sitt
með alls kyns kræsingum. Eftir
að við fjölskyldan fluttum suður
með sjó fyrir rúmum áratug varð
sambandið á milli okkar Hönnu
nánara og mikill samgangur var
alltaf á milli heimilanna. Hanna
var ekki bara yndisleg amma og
tengdamamma heldur varð hún
líka góð vinkona, sem vildi allt
fyrir okkur gera. Síðustu tvö ár
jókst vinskapur okkar enn eftir
stóra missinn okkar, þar sem við
þrjú treystum mjög hvert á ann-
að og hjálpuðumst að í sorginni.
Um leið og við Jökull kveðjum
yndislegu Hönnu ömmu með
söknuði þökkum við fyrir allar
góðu og dýrmætu stundirnar
sem við áttum saman og við mun-
um aldrei gleyma. Hvíl í friði,
elsku Hanna amma.
Sólveig Stefánsdóttir,
Jökull Halldór Þórðarson.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H.)
Elsku amma Hanna er dáin.
Við minnumst allra góðu stund-
anna sem við áttum með henni í
Sandnes þegar hún heimsótti
okkur. Við fluttum ungir til Nor-
egs og vorum svo heppnir að
amma Hanna kom oft í heimsókn
og þá var tekið í spil og amma gat
alltaf eldað grjónagraut eða bak-
að eitthvað gott handa okkur.
Það var hægt að tala við hana um
allt og hún var alltaf á okkar
„bandi“, ef við máttum fá gotterí
þá máttum við alltaf fá meira en
eitt. Þegar amma passaði okkur
giltu ömmureglur, maður mátti
borða það sem mann langaði í og
tölvuspilatími var lítið takmark-
aður, en við þurftum að stoppa
þegar mamma eða pabbi komu
heim. Hún var besti vinur dýr-
anna. Í síðustu heimsókn hennar
Hanna Björg
Sveinbjörnsdóttir
✝ Hanna BjörgSveinbjörns-
dóttir fæddist 24.
ágúst 1940. Hún
lést 5. febrúar
2020.
Útför Hönnu fór
fram 14. febrúar
2020.
til okkar í Sandnes
vorum við nýkomin
með hvolp og hann
átti ekki að fá
mannamat en ein-
hverra hluta vegna
var amma alger
klaufi eftir að
Skuggi kom til okk-
ar og missti alls
konar mat á gólfið.
Þegar við komum í
heimsókn til Íslands
átti amma alltaf kókómjólk og
kleinur ásamt alls konar öðru
góðgæti handa okkur. Við sökn-
um þín.
Þínir ömmustrákar,
Helgi og Brynjar Logi.
Það er óveður í aðsigi eina
ferðina enn, bölvuð læti eins og
sagt er á mörgum íslenskum
heimilum. Í þessum hamagangi
kveðjum við Hönnu frænku sem
er skemmtileg andstæða við ró-
lyndið í föðursystur minni. Pabbi
og systkini hans búa ekki fjarri
heimahögunum á Hauganesi
nema Hanna sem bjó í Keflavík
frá því ég man eftir henni og
hennar fjölskyldu. Það var eins
og að eiga frænku í útlöndum, því
Keflavík var útlönd fyrir mér,
það var langt að keyra þangað
frá æskuslóðunum á Dalvík og
þar var líka allt með útlenskum
blæ fannst manni, herstöð, flug-
vélar sem fóru út í heim og marg-
ir leigubílar sem maður átti erfitt
með að skilja hverjir notuðu.
Í seinni tíð var heppilegt að
eiga frænku í Keflavík og stund-
um fékk ég og mitt fólk að gista
hjá Hönnu og Dóra áður en lagt
var upp í flug til útlanda. Það
voru alltaf skemmtilegar stundir.
Oftast var Hanna heima en
stundum var bara Dóri maðurinn
hennar heima og þá fóru umræð-
urnar í ófyrirséðar áttir. Ég man
sérstaklega eftir skemmtilegri
kvöldstund með Dóra en Hanna
var á spilakvöldi og sagðist bara
skilja mig eftir með Dóra. Til
þess að bæta mér upp fjarveru
sína hafði hún keypt svo mikið í
matinn handa okkur að ísskáp-
urinn var troðinn af alls konar
kræsingum. Við sátum mjög
lengi og borðuðum en það sá ekki
högg á vatni og Hanna var miður
sín þegar hún kom heim yfir því
hvað við hefðum borðað lítið.
Krakkarnir mínir eiga líka
skemmtilegar minningar um
svona gistikvöld fyrir flug og
höfðu stundum á orði að það væri
eins og taka heila önn í sagnfræði
að gista hjá Hönnu og Dóra.
Þegar amma og afi á Hauga-
nesi féllu frá héldu Hanna og
systkinin húsinu sínu, Steinnesi,
og þar hefur fjölskyldan átt sam-
verustundir alla tíð. Hanna var
dugleg að koma norður og dvelja
í Steinnesi, en eitt herbergi í hús-
inu er nefnt eftir henni, Hönn-
ustofa. Þar er yfirleitt mikið fjör
sérstaklega hjá yngstu kynslóð-
inni, því þar má næstum allt og
fáir fullorðnir reyna að hafa
stjórn á því sem þar fer fram.
Þó að leiðin suður hafi verið
löng og samskiptin stopul, voru
stundirnar góðar. Ég og elsti
sonur Hönnu, Daddi, vorum
einnig jafnaldrar, en hann féll frá
langt um aldur fram, árið 2017.
Aðeins fjórum árum áður, eða
2013 lést Dóri. Nú verða ferðir
Hönnu í Steinnes ekki fleiri að
sinni. Við hin höfum ýmsum
skyldum að gegna í Steinnesi, t.d.
að fylgjast með trjáplöntunni
hennar, íslenska birkinu, en
systkinin í Steinnesi eiga þar
hvert sína plöntuna og einu sinni
á ári fara fram vísindalegar mæl-
ingar á vexti plantnanna. Eins og
systkinunum er líkt er vöxturinn
frekar rólegur og enginn asi á
gróðrinum.
Takk fyrir samfylgdina og
skemmtilegar stundir,
Hermína og fjölskylda.
Það er byrjaður febrúar 2020
allt virðist leika í lyndi en annað
kom á daginn. Hanna frænka féll
frá. Hanna var næstelst systkin-
anna frá Steinnesi á Hauganesi.
Þar ólst hún upp í faðmi fjöl-
skyldunnar.
Ég man ekki eftir þeim tíma,
þegar ég kemst til vits og ára var
Hanna flutt í Keflavík með Dóra
sínum. Fyrstu minningarnar um
Hönnu móðu eins og við kölluð-
um hana því hún var móðursystir
okkar var þegar hún kom norður
í síldarsöltun. Þá dvaldi hún
stundum hjá okkur og var mikill
fögnuður meðal
okkar. Seinna minnist ég þess
að hafa verið svo stoltur þegar
þau komu norður í sumarfrí og
bíllinn þeirra stóð fyrir framan
húsið okkar. Það var á þeim árum
þegar fáir áttu bíla en allt í einu
var komin drossía með taxaskilti
á toppnum í götuna og allir
krakkarnir vildu fá að vita hver
væri á ferð. Þá má
ekki gleyma jólunum og jóla-
gjöfunum sem komu sendar frá
Keflavík. Við eldri börnin í Stór-
hólsveginum fengum alltaf veg-
legar gjafir sem komu upp úr
kassanum. Þetta voru undan-
tekningarlaust leikföng sem
fengust ekki norðan heiða eða
alla vega ekki í kaupfélaginu á
Dalvík.
Einhverju sinni uppástóð ég
að nú væri tími til að skoða heim-
inn og höfuðborgina. Að sjálf-
sögðu var haft samband við
Hönnu móðu um gistingu fyrir
piltinn og dvaldi ég hjá þeim í
viku tíma. Þá var nú ekkert slor
að sitja í drossíunni með Dóra
þegar ekið var til Reykjavíkur,
horfa á plötuspilarann sem hrist-
ist í bílnum og spá í hvernig stæði
á því að plöturnar hristust ekki
líka. Þetta þótti það alflottasta
sem til var. Fá að velja músík úr
fjölmörgum albúmum sem voru í
stöflum við afturrúðuna í bílnum.
Allt var þetta sveipað ævintýra-
ljóma sem ég hefði ekki upplifað
nema fyrir Hönnu móðu.
Nú ert þú, elsku Hanna mín,
komin í draumalandið þar sem
fyrir eru Dóri, Daddi, amma og
afi, sem örugglega hafa tekið þér
opnum örmum. Mér þykir leitt að
geta ekki fylgt þér síðasta spöl-
inn. Þakka þér fyrir allar
ánægjustundirnar, minningarnar
ylja.
Elsku Sveinbjörn, Kristín,
Sólveig og fjölskyldur, ykkur
sendi ég innilegar samúðarkveðj-
ur.
Lífið okkur leikur við
ljúfar stundir munum.
Höldum nú á stærra svið
sveipuð dýrðarvonum.
Úti stundum orrahríð
óvænt kemur sveðja.
Enginn lifir alla tíð
öll við munum kveðja.
(B.H. 2020.)
Björgvin Hjörleifsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um for-
eldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar