Morgunblaðið - 02.03.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 02.03.2020, Síða 1
landi. Um 300 manns eru nú í sóttkví. Þeir þrír sem greinst hafa með veiruna hér á landi eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Harðari aðgerðir hér Líðan þeirra sem greindust með veiruna í gær er góð, að því er fram kemur í tilkynningu frá almanna- varnadeild ríkislögreglustjóra, en þau sýna dæmigerð einkenni sjúk- dómsins. Helgi Bjarnason Viðar Guðjónsson Þorsteinn Ásgrímsson Þrjú tilfelli af kórónuveirunni hafa nú verið staðfest hér á landi. Annað og þriðja tilfellið voru staðfest í gær. Báðir einstaklingarnir höfðu verið á skíðum á Ítalíu og komu til landsins á laugardag með flugvélum Ice- landair, annar er karlmaður sem kom frá Veróna á Ítalíu en hinn er kona sem kom frá München í Þýska- „Við teljum nauðsynlegt að stöðva faraldurinn frá byrjun í samræmi við viðbragðsáætlanir sem við höfum haft frá upphafi. Samkvæmt þeim ætluðum við að bregðast hart við þegar fyrstu tilfellin kæmu upp til að stöðva útbreiðsluna sem best,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir um aðgerðir stjórnvalda. Þær felast í því að útvíkka áhættusvæði vegna kórónuveirunnar úr fjórum héruðum á Norður-Ítalíu yfir á landið allt. Fólki er ráðið frá því að fara þangað að nauðsynjalausu og allir sem það- an hafa komið frá því í fyrradag, sama hvaðan og eftir hvaða leiðum, eru beðnir um að fara í sóttkví. Þór- ólfur segir að Íslendingar hafi með þessu gripið til harðari aðgerða en nágrannaþjóðirnar. Vika eftir af sóttkvínni Maður og kona sem nýlega dvöldu í skíðaferð á Ítalíu höfðu í gær verið í sóttkví í viku eftir að konan sýndi flensulík einkenni. Áætla þau að vera í viku til viðbótar í sóttkví. Sýni úr konunni reyndist þó neikvætt. Mað- urinn segir að þau hafi ekki getað hitt börn sín síðan þau komu heim en þau dvelja hjá föður barnanna. Hann segir að m.a. hafi aðrir í fjöl- skyldunni aðstoðað þau með því að fara út í búð og kaupa í matinn fyrir þau. „Maturinn var settur á tröpp- urnar fyrir utan. Það er reglan og við förum bara eftir því,“ segir hann. Þrjú tilfelli kórónuveiru greind  Fólk sem kom úr skíðaferðum frá Veróna og München greindist í gær  „Við teljum nauðsynlegt að stöðva faraldurinn frá byrjun“  Fjölskyldan kemur með mat á tröppur fólks sem er í sóttkví MKórónuveira »2, 4, 12 & 13 M Á N U D A G U R 2. M A R S 2 0 2 0 Stofnað 1913  52. tölublað  108. árgangur  SPÁÐ GÓÐU GENGI Í ROTTERDAM EINSTAKUR Á HEIMSVÍSU INNGRIP Í GALLERÍ GRÓTTU HELLIRINN JÖRUNDUR 10 LISTSÝNING 29DAÐI OG GAGNAMAGNIÐ 11 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég man ekki eftir jafn sterkri byrjun á ári. Afla- brögð eru góð og fiskurinn stór og vel á sig kominn. Það fer saman við að allir markaðir eru galopnir og þess vegna hefur gengið vel að vinna aflann og selja,“ segir Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Vísis hf. í Grindavík. Nokkrar frátafir hafa verið frá veiðum vegna veðurs, sérstaklega fyrstu tvær vikur ársins. „Afl- inn hefur verið mjög góður í febrúar og þá daga sem við náðum að róa í janúar. Við náðum 14 róðr- um í febrúar sem er ágætt miðað við árstíma en margir róðrar hafa verið ansi erfiðir,“ segir Krist- inn Arnberg Kristinsson, skipstjóri á Daðey GK-777, línubáti Vísis. Hann var að landa í Grinda- vík í fyrradag þegar tíðindamaður Morgunblaðsins kom við á bryggjunni. Afli dagsins var 21 tonn og þurfti áhöfnin að fara tvær ferðir til að koma aflan- um í land. Kristinn segir að þeir hafi landað 157 tonnum í febrúar sem gera rúm 11 tonn að með- altali í róðri og er hann ánægður með það. Kristinn segir að fiskurinn hafi verið stærri en undanfarin ár. Það sé oft svo í upphafi árs en svo gangi minni fiskurinn þegar loðnan nálgist. Vísir er með allar gerðir af vinnslu, selur fisk- inn ferskan úr landi, frystan eða saltaðan. Segir Pétur að þess vegna sé hægt að taka á móti öllum fiski. Mikil eftirspurn sé á öllum mörkuðum. Hann er einnig ánægður með afurðaverðið, segir að það hafi verið jafnt og gott. Segir hann við því að búast að verð fyrir ferskan fisk lækki þegar vertíð hefst í Noregi en þá eigi Vísir þann möguleika að frysta meira og salta. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rígaþorskur Kristinn Arnberg Kristinsson skipstjóri hampar 25 kílóa þorski sem kom á línuna í góðum róðri Daðeyjar GK frá Grindavík á laugardag. Öflugt upphaf vertíðar  Aflabrögð eru góð og þorskurinn stór og vænn  Framkvæmdastjóri Vísis segir að markaðirnir taki jafnóðum við öllum afurðum  Fiskverð er gott og stöðugt  Félagskerfi landbúnaðarins verð- ur einfaldað og félagseiningum fækkað um helming, nái tillaga nefndar sem unnið hefur að heildar- endurskoðun félagskerfisins fram að ganga. Tillagan verður lögð fyrir búnaðarþing í dag. Lagt er til að stofnuð verði Sam- tök landbúnaðarins og þau mynduð úr Bændasamtökum Íslands og fyr- irtækjum landbúnaðarins sem eru í Landbúnaðarklasanum. Einfalda á bændahluta samtakanna með því að fækka samtökum sem eiga aðild að Bændasamtökunum úr 27 í 14. Meðal annars verður búnaðarsamböndum fækkað úr ellefu í fjögur. »9 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ræktun Allir bændur munu geta átt aðild. Félagskerfi bænda verði einfaldað  Sendiherra- stöður verða framvegis aug- lýstar og um- sækjendum gert að uppfylla ákveðin skilyrði sem kveðið er á um í lögum, nái frumvarp Guð- laugs Þórs Þórð- arsonar utanrík- isráðherra um breytingar á reglum um skipan sendiherra fram að ganga. Þetta kemur fram í aðsendri grein hans í blaðinu í dag. Kveðið verður á um hámarksfjölda sendi- herra, sem nemur 120% af fjölda sendiskrifstofa, en með því mun sendiherrum fækka töluvert frá því sem nú er. »15 Guðlaugur Þór Þórðarson Sendiherrastöður verði auglýstar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.