Morgunblaðið - 02.03.2020, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020
Vetrarsól er umboðsaðili
40 ár
á Íslandi
Sláttuvélar
Snjóblásarar
Sláttutraktorar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Fjölskyldufaðir sem er í sóttkví eft-
ir að hafa dvalið á Ítalíu í skíðaferð
segist sjálfur hafa sett sig í sam-
band við Heilsugæsluna eftir að
kona hans fann til flensulíkra ein-
kenna tveimur dögum eftir heim-
komu. Í framhaldinu kom læknir
íklæddur sóttvarnarbúningi sem
tók sýni úr henni til að athuga
hvort hún bæri kórónuveiruna. Það
reyndist neikvætt og voru veikindi
hennar af öðrum toga. Þau þurfa
samt að vera í sóttkví í 14 daga.
Að sögn mannsins voru þau búin
að vera heima við í eina viku í gær
og höfðu þau á þeim tíma ekki haft
bein samskipti við nokkurn mann.
„Við fórum í gegnum þau svæði
sem eru skilgreind sem sýkt svæði,
en skíðasvæðið, Madonna, var ekki
innan þess svæðis,“ segir
fjölskyldufaðirinn. Þó ber að taka
það fram að í gær skilgreindi rík-
islögreglustjóri alla Ítalíu sem
hættusvæði. „Svo þegar við komum
heim þá var mikil umræða um veir-
una og við byrjuðum á því þegar við
komum til landsins að spyrja
heilsugæsluna að því hvort við ætt-
um að fara í sóttkví. Okkur var í
fyrstu sagt að ekki væri ástæða til
þess þó við hefðum ferðast í gegn-
um flugvöll sem var á þessu sýkta
svæði. Svo fékk fjölskyldumeðlim-
urinn hita og þá var okkur eiginlega
skipað að fara í sóttkví. Við tókum
það að sjálfsögðu alvarlega,“ segir
hann.
Minnti á geimfara
Að sögn mannsins kom læknir á
bíl merktum heilsugæslunni og tók
strokur úr konu hans. „Hann fór í
einhvern sóttvarnarbúning og kom
inn til okkar og minnti einna helst á
geimfara,“ segir maðurinn kíminn.
Þá segir hann að ekki hafi verið
tekið sýni úr honum þrátt fyrir að
hann óskaði þess, sökum þess að
hann sýndi engin einkenni.
Með mat heim að dyrum
Þrátt fyrir að sýni konunnar hafi
verið neikvætt og að konan sé orðin
frísk þurfa þau að vera í sóttkví í 14
daga. „Við bara hlýðum því sem
okkur er sagt að gera,“ segir hann.
Aðspurður segir maðurinn að þau
hafi m.a. stytt sér stundir með því
að fara í bíltúra. „Maður má reynd-
ar ekki vera í sameigninni en við
förum bara varlega í gegnum hana
til að komast í bílinn,“ segir hann.
Þá segir maðurinn að aðrir í fjöl-
skyldunni hafi aðstoðað þau með
því að fara út í búð og kaupa í mat-
inn fyrir þau. „Maturinn var settur
á tröppurnar fyrir utan. Það er
reglan og við förum bara eftir því,“
segir hann.
Hann segir að það fari vel um
þau í sóttkvínni en verst sé að geta
ekki hitt þrjú börn þeirra sem búa
á heimilinu. Þau voru hjá pabba sín-
um á meðan þau voru í skíðaferð-
inni. Samskiptaforritið Facetime
hafi þó komið að góðu gagni.
Skoða heimasíðu landlæknis
Að sögn mannsins hafa þau sótt
sér allar upplýsingar sem þau þurfa
á heimasíðu landlæknis. Þá hafi
læknirinn sem tók sýnastrokuna
sett sig í samband við þau og sent
til þeirra tölvupóst með leiðbein-
ingum um það hvernig þau eiga að
bera sig að í sóttkvínni.
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Costco Mikilvægt er að huga að hreinlæti. Hér má sjá starfsmann Costco spritta innkaupakerru í versluninni.
Geta ekki hitt börnin
vegna sóttkvíarinnar
Hafa verið í sóttkví í viku eftir skíðaferð til Ítalíu
Þrjú tilfelli af kórónuveirunni sem
veldur COVID-19 sjúkdómi hafa ver-
ið staðfest hér á landi.
Í gær voru tvö ný tilfelli staðfest
skv. tilkynningu frá almannavörnum.
Annars vegar í karlmanni á sextugs-
aldri og hins vegar í konu á fimmtugs-
aldri. Konan kom til landsins frá
München en hafði verið í skíðaferð á
Ítalíu líkt og maðurinn en hann flaug
hingað beint frá Veróna á Ítalíu.
Smit mannsins var staðfest síðdeg-
is í gær en smit konunnar var staðfest
af veiru- og sýklafræðideild Landspít-
ala í gærkvöldi. Þau tilfelli sem greind
voru í gær tengjast bæði flugferðum á
vegum Icelandair til landsins. Sótt-
varnalæknir hefur, í samráð við al-
mannavarnir og borgaraþjónustu ut-
anríkisráðuneytisins, skilgreint
gjörvalla Ítalíu sem hættusvæði.
Þýskaland er hins vegar ekki skil-
greint hættusvæði. Því er ekki talin
þörf á sóttkví fyrir þá farþega sem
komu frá München með Icelandair í
gær nema þá sem komu frá Ítalíu.
Líðan þeirra sem greindust með
veiruna í gær er góð, skv. tilkynningu
frá almannavörnum en þau sýna
dæmigerð einkenni sjúkdómsins
(hósti, hiti og beinverkir).
Allir þrír einstaklingarnir sem
greindir hafa verið með veiruna eru
búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Um
300 manns eru nú í sóttkví á landinu.
Meðal þeirra eru 180 manns sem
komu til landsins á laugardag frá Ver-
óna. Var tekin sú ákvörðun í gær af al-
mannavörnum að setja alla þá far-
þega í 14 daga sóttkví.
Smitrannsóknateymi almanna-
varna og sóttvarnalæknis hóf í gær að
setja sig í samband við þá farþega
sem útsettir voru fyrir smit í flugvél-
inni og upplýsa þá um helstu stað-
reyndir í tengslum við COVID-19,
persónulegt hreinlæti og síma 1700.
Ef þeir fá einkenni frá öndunarfær-
um innan 14 daga, sérstaklega með
hita, skulu þeir hafa samband við
Læknavaktina í síma 1700 eða sína
heilsugæslu símleiðis en ekki mæta
óboðaðir á sjúklingamóttökur
Geta haft samskipti
Víðir Reynisson hjá almannavörn-
um segir að maðurinn sem greindur
var í gær hafi verið í hópferð. Unnið
sé að því að rekja upptök sýkingar-
innar. Hópurinn sem hann ferðaðist
með sé ekki undir sérstöku eftirliti,
heldur nái þetta til allra farþega úr
fluginu frá Veróna. Eingöngu verði
sýni tekin úr þeim sem sýni flensulík
einkenni. „Það er mjög mikilvægt að
hafa það í huga að þegar talað er um
sóttkví þá getur fólk alveg verið í
samskiptum við aðra fjölskyldumeð-
limi t.a.m, þó að þeir hafi ekki verið í
flugvélinni, svo lengi sem fólk er ein-
kennalaust,“ segir Víðir.
vidargudjons@gmail.com
Um 300 manns komnir í sóttkví
Tvö ný tilfelli af kórónuveirunni staðfest hér á landi í gær Fólk beðið um að hafa eingöngu samband
ef það verður vart við flensulík einkenni Gjörvöll Ítalía skilgreind sem hættusvæði Líðanin góð
Morgunblaðið/Eggert
Viðbúnaður Líðan þeirra sem greinst hafa með veiruna er sögð vera góð.
Viðar Guðjónsson
vidargudjons@gmail.com
Haraldur Briem, fyrrverandi sótt-
varnalæknir, telur að vel hafi verið
tekið á málum hérlendis hvað varð-
ar aðgerðir í tengslum við kórónu-
veiruna. Margt sé líkt með henni og
svínaflensunni
sem kom upp ár-
ið 2009 hér á
landi. Þó sé
óþægileg óvissan
um það hvernig
sjúkdómurinn
muni þróast á
næstu misserum.
Dæmi séu um að
slíkar sýkingar
séu vægar í
fyrstu en skelli svo á með meiri
þunga.
Margt sé líkt með aðgerðum al-
mannavarna núna og þegar svína-
flensan kom upp árið 2009. „Svipað
var uppi á teningnum þegar svína-
flensan kom upp. Reynt var að
halda fólki í heimaeinangrun.
Eins er margt líkt með þessari
kórónuveiru og inflúensusmitum
eins og svínaflensu. Inflúensan er
kannski meira smitandi því það er
ekki bara dropasmit og yfirborðs-
smit, heldur einnig úðasmit,“ segir
Haraldur.
Hann segir að tölfræði frá Kína
sýni að dánartíðni vegna kórónu-
veirunnar fari vaxandi með hærri
aldri þeirra sem smitast. „Hjá þeim
sem eru orðnir yfir 80 ára getur hún
verið um 10% en hjá ungu fólki get-
ur hún verið um 1% eða undir því.
Börn undir 10 ára virðast koma
nokkuð vel út úr smiti,“ segir Har-
aldur. Er það að sögn Haraldar
ólíkt því sem var þegar svínaflensan
geisaði. Þá lagðist hún þungt á ungt
fólk. „Nokkur tilfelli voru um ungt
fólk sem lá á gjörgæslu. Svo kom í
ljós að flensan var meira í ætt við
árstíðarbundna inflúensu og leið
undir lok. Nú erum við hins vegar í
mikilli óvissu um það hvert málin
stefna með kórónuveiruna. Ef við
tökum dæmi um spænsku veikina
árið 1918 þá byrjaði hún sem væg
flensa um vorið en hún breyttist
skyndilega í mjög svæsna flensu
með hárri dánartíðni. Við héldum
fyrst að svínaflensan væri mjög
slæm en svo reyndist ekki vera. Það
er því mjög erfitt að segja til um
það hvert þetta mun stefna með
þessa nýju veiru,“ segir Haraldur.
Líkist að mörgu
leyti svínaflensu
Erfitt að meta þróun veirunnar
Haraldur
Briem
Kórónuveirusmit á Íslandi