Morgunblaðið - 02.03.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐUVERÐI!
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli
fyrir notkun lyfsins.
Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari
upplýsingumumáhættuogaukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Nýjar umbúðir
Dolorin500mg
paracetamól töflur -
20stkog30stk
Tvær nýjar göngubrýr hafa verið settar á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Myndin var tekin þegar verið var að hífa
aðra brúna á sinn stað um helgina. Þvera þær brautina í einu hafi. Önnur brúin er á milli Hvamma og Áslands, til
móts við Álftaás. Hin kemur í stað undirganga við Þorlákstún, á milli íþróttasvæðis Hauka og Hvaleyrarskóla.
Tvær nýjar göngubrýr á Reykjanesbraut
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Félagsmenn Eflingar, sem starfa
annars vegar hjá einkareknum skól-
um og hins vegar hjá sveitarfélögum í
nágrenni Reykjavíkur, samþykktu
um helgina með yfirgnæfandi meiri-
hluta að boða til ótímabundinna verk-
falla frá og með mánudeginum 9.
mars.
Um 87% starfsmanna Eflingar hjá
Kópavogi, Seltjarnarnesi, Mos-
fellsbæ, Hveragerði og Ölfusi, sem
tóku þátt í atkvæðagreiðslu, kusu
með verkfallinu en þau sveitarfélög
fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga
samningsumboð sitt.
Þá samþykktu 90% þátttakenda í
einkareknum skólum verkfallsboðun.
Athygli vekur að kjarasamningar
starfsmanna einkarekinna skóla eru
ekki lausir, en um er að ræða sam-
úðarverkfall með verkfalli fé-
lagsmanna sem starfa hjá Reykjavík-
urborg. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins munu Samtök at-
vinnulífsins kæra þá verkfallsboðun
til Félagsdóms.
Friðarskylda ríkir á vinnumarkaði
meðan kjarasamningar eru í gildi, en í
því felst að „óheimilt sé að beita
vinnustöðvun til þess að knýja fram
breytingar á kjarasamningi sem er
gildur“ eins og segir í dómi Fé-
lagsdóms frá árinu 1961. Sólveig
Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar,
hefur þó látið hafa eftir sér að farið
verði fram á sams konar leiðréttingu
fyrir starfsmenn einkarekinna skóla
og félagið fer fram á fyrir starfsmenn
Reykjavíkurborgar. Álitamál er hvort
þau ummæli geti orðið til þess að
samúðarverkfall verði dæmt ólöglegt.
Ef fer sem horfir munu 510 starfs-
menn Eflingar, þar af 240 í einka-
reknum skólum, leggja niður störf
næsta mánudag. Þann sama dag er
ráðgert að verkfallsaðgerðir starfs-
manna BSRB, sem starfa hjá sveit-
arfélögum og ríki, hefjist en viðbúið
er að 15.400 manns leggi niður störf í
aðgerðunum náist samningar ekki
fyrir þann tíma.
Undanþágur veittar í Reykjavík
Sem kunnugt er hefur ótímabundið
verkfall félagsmanna Eflingar sem
starfa hjá Reykjavíkurborg nú staðið
yfir í tvær vikur.
Um helgina samþykkti undanþágu-
nefnd Eflingar að veita velferðarsviði
borgarinnar undanþágu frá verkfalli
vegna þrifa og umönnunar hjá öldr-
uðum og fötluðum fram til miðviku-
dags. Þá var einnig veitt undanþága
til föstudags vegna sorphirðu og hefst
hún að nýju í dag. Fór borgin fram á
undanþágur vegna kórónuveirunnar,
en almannavarnadeild Ríkislögreglu-
stjóra hafði stuttu áður lýst yfir
áhyggjum af áhrifum yfirstandandi
verkfallsaðgerða á viðkvæmustu hópa
samfélagsins og óttast að takmörkuð
sorphirða gæti dregið úr áhrifamætti
sóttvarnaaðgerða. Í samtali við mbl.is
segir Viðar Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Eflingar, að með sam-
þykktinni hafi félagsmenn Eflingar
fært ákveðna fórn. „Að gefa eftir sitt
öflugasta tæki í baráttunni fyrir bætt-
um kjörum, sem er verkfallið. Þeir
[félagsmenn] gera það af því þeir vilja
tryggja öryggi og heilsu hjá við-
kvæmum hópum,“ segir Viðar, og
bætir við að undanþágubeiðnir sanni
mikilvægi umræddra starfa.
Þriðju undanþágubeiðni borgaryf-
irvalda var aftur á móti hafnað. Hún
sneri að þrifum á grunnskólum borg-
arinnar og var líkt og hinar rökstudd
með vísan til kórónuveirunnar, en í
samtali við mbl.is sagði Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri borgina
leggja áherslu á það í ljósi leiðbein-
inga frá almannavörnum Ríkislög-
reglustjóra um aukin þrif í húsum þar
sem þjónusta er veitt. Að sögn Viðars,
framkvæmdastjóra Eflingar, eiga
þau rök þó ekki við í tilfelli grunn-
skóla. „Við teljum nokkuð ljóst að
röksemdirnar sem tengjast sérstak-
lega þessum faraldri eigi ekki við um
skólastarfsemi vegna þess að þar eru
ekki þessir sérstaklega viðkvæmu
hópar á ferð,“ útskýrir Viðar og bætir
við:
„Þessar stofnanir hafa einfaldlega
lokað í mörgum tilfellum þannig að
borgin sjálf hefur þannig augljóslega
færa leið til að leysa þann vanda án
þess að setja fólk í hættu.“
Efling boðar til fleiri verkfalla
Félagsmenn Eflingar í sveitarfélögum utan Reykjavíkur samþykktu verkfall Undanþágur veittar
vegna sorphirðu og umönnunar í Reykjavík, en undanþágubeiðni vegna þrifa í grunnskólum hafnað
Morgunblaðið/Eggert
Efling Ótímabundið verkfall starfsmanna Eflingar í Reykjavík hefur nú staðið í tvær vikur. Í næstu viku hefjast
aðgerðir starfsmanna hjá öðrum sveitarfélögum, auk samúðarverkfalls starfsmanna einkarekinna skóla.
Undirskriftasöfnun fyrir íbúakosn-
ingu um deiliskipulag við Stekkjar-
bakka við Elliðaárdal í Reykjavík
lauk á föstudag. Safna þurfti undir-
skriftum um 18.000 Reykvíkinga til
að borgaryfirvöld væru bundin af
niðurstöðum hennar. Alls söfnuðust
9.003 undirskriftir rafrænt, en því til
viðbótar á eftir að yfirfara undir-
skriftir sem söfnuðust á pappír og
skipta nokkrum þúsundum. Ná-
kvæmur fjöldi undirskrifta liggur því
ekki fyrir, en í samtali við Morgun-
blaðið segir Halldór Páll Gíslason,
formaður Hollvinasamtaka Elliðaár-
dals, að útilokað sé að tilskildum
fjölda hafi verið náð. „Ég held að ég
verði að vera raunsær,“ segir hann
en bætir þó við að hann telji félaginu
hafa tekist að safna því sem ætti að
þykja eðlilegur fjöldi undirskrifta.
„Við erum með fleiri undirskriftir en
kjósendur Viðreisnar, Pírata og
Vinstri grænna í síðustu kosningum,
þótt þessir aðilar hafi talað eins og
þetta sé enginn fjöldi,“ segir Halldór.
Spurður hvort félagið hafi fleiri
ráð, segir hann að íbúar í Stekkja-
hverfi í Breiðholtinu, í næsta ná-
grenni framkvæmdasvæðisins, séu
enn með það til skoðunar að fara
dómstólaleiðina, þ.e. áfrýja úrskurði
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála til dómstóla.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, for-
maður borgarráðs, vildi ekki tjá sig
um undirskriftasöfnunina þegar eft-
ir því var leitað, þar sem endanlegur
fjöldi undirskrifta liggur ekki enn
fyrir.
Náðu ekki nægum
fjölda undirskrifta
Hollvinir skoða að áfrýja til dómstóla
Ekki hefur verið fundað í kjaradeilu
Sjómannasambands Íslands og
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
og ekki hafði verið boðað til fundar
þegar blaðið heyrði í Valmundi Val-
mundssyni, formanni Sjómanna-
sambandsins. „Vonandi förum við að
funda,“ segir hann.
Nokkuð er síðan Sjómanna-
sambandið afhenti SFS kröfur sínar
og tók við gagnkröfum útvegs-
manna. Valmundur segir að menn
séu um þessar mundir að fara yfir
málin í sjómannafélögunum.
Spurður um helstu kröfur sjó-
manna nefnir Valmundur fyrst fisk-
verðsmálin. Segir að sjómenn séu
sérstaklega ósáttir við stöðu mála
varðandi verðlagningu á uppsjávar-
fiski. Þau mál þurfi að fara í betri
farveg til að menn verði sáttari.
Hann nefnir að olíukostnaður hafi
snarminnkað hjá íslenskum útgerð-
um vegna nýrri og hagkvæmari
skipa en samt séu sjómenn að greiða
hluta olíunnar, kannski fullmikið.
Hann segir að sjómenn geri einnig
kröfu um að fá 3,5% hækkun á líf-
eyrissjóðsgreiðslum, eins og aðrar
stéttir hafi fengið.
Dýrt að lifa
Spurður um mótkröfur útgerð-
armanna segir Valmundur að þær
snúist meðal annars um að útgerð-
irnar fái stærri hlut á kostnað sjó-
manna. Rökin séu þau hvað dýrt sé
að gera út, meðal annars vegna
álagningar veiðigjalda, kolefn-
isgjalda og fleiri gjalda til ríkisins.
„Það er líka dýrt að lifa. Alltaf er
verið að auka álögur á almenna
borgara og sjómenn tilheyra þeim
hópi og þurfa líka að borga þótt þeir
vinni úti á sjó,“ segir Valmundur.
helgi@mbl.is
Fiskverðsmálin mikilvæg
Samninganefndir sjómanna og útvegsmanna hafa ekki
enn fundað Sjómenn ræða verðlagningu uppsjávarfisks
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Barátta Valmundur Valmundsson
er formaður Sjómannasambandsins.