Morgunblaðið - 02.03.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020
Í borgarráði sl. fimmtudag var af-greitt mál sem er lýsandi fyrir
ástandið í stjórn borgarinnar. Þar
var tekið fyrir svar meirihlutans í
borginni við einfaldri beiðni sem
fram hafði komið um
að borgarráð fengi
sent „minnisblað sem
borgarlögmaður rit-
aði í kjölfar kaupa
Reykjavíkurborgar á
Hverfisgötu 41 árið
2016 á 63 milljónir“.
Afstaða þeirra semráða í borginni
er að minnisblaðið sé
„vinnugagn“ í skiln-
ingi upplýsingalaga
og því hvíli ekki sú
skylda á borginni að
upplýsa um efni þess. Og þar sem
borginni ber ekki skylda til að upp-
lýsa kýs hún að gera það ekki.
Borgarfulltrúi Miðflokksins, semhafði óskað eftir minnis-
blaðinu, bókaði meðal annars:
„Leyndarhyggjan er algjör hjá
Reykjavíkurborg. Verið er að fela
upplýsingar fyrir almenningi í for-
dæmisgefandi máli hvað varðar
breytingar á skipulagi og uppbygg-
ingu á lóð.“
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-flokksins bókuðu einnig: „Enn
og aftur staðfestist að Reykjavíkur-
borg hefur farið illa með opinbert fé.
Í þessu tilfelli fara 63 milljónir sem í
súginn fyrir ekkert. Það er með ólík-
indum að Reykjavíkurborg skuli
fara svona með fjármuni þegar við-
haldi hefur ekki verið sinnt og er
grunnþjónustu illa sinnt á ýmsum
sviðum.“
Hvað er borgin að fela?
Hvers vegna er borgin að bruðla?
Vigdís
Hauksdóttir
Leynimakk um
bruðlið í borginni
STAKSTEINAR
Eyþór Arnalds
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Um þessar mundir stendur yfir net-
uppboð á vegum Bókarinnar, forn-
bókabúðar, og Gallerís Foldar. Mikið
úrval íslenskra bóka er á uppboðinu,
mest frumútgáfur sem áritaðar eru af
höfundi.
Meðal uppboðsgripa má nefna
fimm bækur Steins Steinars í upp-
runalegri útgáfu áritaðar af höfundi,
bók Dags Sigurðarsonar Hlutabréf í
sólarlaginu og áritaðar bækur Sig-
urðar Pálssonar. Þá má finna and-
mælaritgerð Halldórs Laxness gegn
bókinni Bréf til Láru eftir Þórberg
Þórðarson, þar sem nóbelsskáldið tek-
ur upp hanskann fyrir kaþólska trú.
Ari Gísli Bragason bóksali segir
uppboðið hafa gengið þokkalega hing-
að til. Aðspurður segir hann að stór
hluti bókanna, sem nú eru til sölu,
komi úr dánarbúi Norðmannsins Ívars
Orglands sem kom upphaflega til Ís-
lands sem sendikennari og varði ára-
tugum í að efla menningartengsl Ís-
lands og Noregs auk þess að þýða
íslensk verk á nýnorsku.
Uppboðið fer fram á heimasíðunni
uppbod.is, og gefst öllum kostur á að
bjóða í gripina fram á sunnudag 8.
mars. Þá eru uppboðsmunir til sýnis í
Galleríi Fold á Rauðarárstíg í
Reykjavík. Ljóst er að bækurnar
vekja mismikla athygli, en þegar
blaðið fór í prentun hafði langhæsta
boðið borist í fyrrnefndar bækur
Steins Steinars, 120.000 krónur.
Mikið úrval bóka boðið upp á netinu
Hæsta boð í árituð frumeintök af verkum Steins Steinars 120.000 krónur
Safngripur Tíminn og vatnið.
Vigfús B. Jónsson,
fyrrverandi bóndi á
Laxamýri í Reykja-
hverfi í Suður-
Þingeyjarsýslu og for-
ystumaður í veiði-
málum, lést á
hjúkrunarheimilinu
Hvammi á Húsavík,
síðastliðinn fimmtudag.
Hann var á 91. aldurs-
ári.
Vigfús var fæddur á
Laxamýri 8. ágúst
1929. Foreldrar hans
voru Jón H. Þorbergs-
son, búfræðingur og bóndi þar, og
kona hans Elín Vigfúsdóttir. Hann
stundaði nám í héraðsskólanum á
Laugum, gagnfræðaskólanum á
Húsavík og í Jæren-Folkehögskole í
Noregi.
Vigfús kenndi tvo vetur í Búð-
ardal áður en hann gerðist bóndi á
Laxamýri árið 1953. Þar byggði
hann nýbýlið Laxamýri 2.
Hann var virkur í fé-
lagsmálum sveitar
sinnar og héraðs sem
formaður Ungmenna-
félagsins Reykhverf-
ungs, hreppsnefnd-
armaður, oddviti,
hreppstjóri og sýslu-
nefndarmaður. Hann
var í stjórn og formað-
ur Veiðifélags Laxár
og Landeigendafélags
Laxár og Mývatns. Þá
sat hann í stjórn
Landssambands veiði-
félaga og var formaður
um árabil. Vigfús gegndi trún-
aðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn og tók nokkrum sinnum sæti á
Alþingi sem varaþingmaður fyrir
Norðurlandskjördæmi eystra.
Eftirlifandi eiginkona Vigfúsar er
Sigríður Atladóttir, húsfreyja frá
Hveravöllum í Reykjahverfi. Þau
eignuðust fjögur börn, Elínu, Atla,
Sigríði Steinunni og Jón Helga.
Andlát
Vigfús B. Jónsson
bóndi á Laxamýri
fasteignir