Morgunblaðið - 02.03.2020, Page 9

Morgunblaðið - 02.03.2020, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020 B irt m eð fyrirvara u m m yn d - o Þetta flytur sig ekki sjálft! Sixt langtímaleiga einfaldar reksturinn ÞjónustuskoðanirTryggingar og gjöld Hefðbundið viðhaldDekk og dekkjaskipti Kynntu þér kosti langtímaleigu á sixtlangtímaleiga.is eða hafðu samband við viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222 eða á vidskiptastjori@sixt.is. (Atvinnubílar á langtímaleigu koma hreyfingu á hlutina) g textab r n g l Innifalið í langtímaleigu: Verð frá: 63.900 kr. á mán án vsk. Verð með vsk. frá: 79.236 kr. á mánuði. Pantaðu bílinn á sixtlangtimaleiga.is. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Öfgafyllri veðrátta er sögð ein af- leiðing loftslagsbreytinga og í vetur hafa einmitt verið talsvert miklar sviptingar í veðri hér á Ís- landi. Hvað er í rauninni að ger- ast vekur upp spurningar og kall- ar á rannsóknir,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni. Í vetur hafa verið hlýindi víða í Norður- Evrópu sem vísindamennn hjá Al- þjóðaveðurfræðistofnuninni munu, að áliti Einars, tengja við loftslagsbreytingar. Tíð storm- veður á Íslandi geta helgast af sömu orsökum að mati Einar sem bætir við: „Hér hefur verið lágur loftþrýstingur síðustu mánuði og þar geta breytingar á loftslagi verið orsakaþáttur. Fleira er veð- ur en bara hiti og úrkoma. Al- mennt talað er mörgum spurn- ingum ósvarað um tengsl hlýnunar loftfhjúps við lægða- brautir yfir Atlantshafi, tíðni ill- viðra og samspil við nokkrar þekktar áratugasveiflur í loft- hringrásog hita í sjó.“. Stormur og djúpar lægðir Veðrátta á landinu undan- farið hefur verið rysjótt. Mikið óveður gekk yfir norðan- og aust- anvert landið dagana 10. og 11. desember sem olli margvíslegum röskunum svo sem rafmagnsleysi á Dalvík og þar í kring svo dögum skipti. Þá var ofsarok á landinu þann 14. febrúar síðastliðinn en í aðdraganda þess voru gefnar út meri viðvaranir en oftast áður og náði þær til stórs hluta landsins. Talsvert eignatjón varð, svo sem á rafmagnslínum á Suður- og Vesturlandi. „Veðráttan í vetur hefur ver- ið nokkuð sérstök borið saman við fyrri ár. Oft hafa djúpar lægðir með miklum stormi komið að landinu,“ segir Einar. „Óveðrin tvö, það er fyrir norðan desember og stormurinn sem hér gekk yfir um miðjan febrúar, voru öflug skot sem leiddu í ljós talverða veikleika í innviðakerfi landsins. Hins vegar hefur líðandi vetur ekki verið snjóþungur, sama á hvaða mælikvarða á það er litið. Hitatölur eru sömuleiðis ekki fjarri meðaltölum, þrátt fyrir sveiflur milli daga og vikna. Ég skil aftur á móti afar vel að fólk sé orðið þreytt á veðráttu þessa vetrar. Endalausar viðvaranir og lokanir, vandræði með millilanda- flugið og margvíslegt samfélags- legt rask. Og þá er marsmánuður allur eftir en þá hafa oft komið skot og leiðinlegt veður með ófærð.“ Dans á Atlantshafi Algengt hefur verið í vetur að djúpar lægðir dansi dögum saman á Atlandshafinu sem aftur hefur á stundum haldið opinni braut norðlægra átta að landinu. Þessu lýsir Einar Sveinbjörnsson sem svo að veturinn hafi verið „allt að því afbrigðilegur í veðri,“ eins og hann kemst að orði. „Töl- ur frá desember síðastliðnum og nú fram í febrúar segja okkur að þetta er hlýjasti veturinn í Stokk- hólmi í 240 ár. Svipað er uppi á teningnum víða í Norður-Evrópu, miklar rigningar hafa verið Bret- landseyjum og á vesturströnd Noregi sem sumstaðar jaðra við met. Í Helsinki hefur nánast ekki snjóað í allan vetur, sem er óvenjulegt. Í nyrstu byggðum Finnlands og Noregi er hins veg- ar meiri snjór en sést hefur í lang- an tíma.“ Kuldi í heiðhvolfi Einar telur óvarlegt að tengja veðurfar einstaka vetra eða afmökuð tímabil tímabil við loftslagsbreytingar. Veðurathug- anir hafi verið gerðar á Íslandi í um 200 ár og niðurstöður þeirra sýni að sveiflur eru alltaf nokkar og vetur oft ólíkir. „Kannski eru sviptingar í vetrarveðráttunni einmitt það eðlilega á Íslandi og sama má segja um hlýindi og rigningar í Norður-Evrópu. Heimskauta- hringrásin eins og hún er kölluð, hefur verið óvenjuöflug í allan vetur. Hún er í raun rót alls þessa. Einfaldast að segja bara tilviljun, en á það ber líka að með hlýnun af mannavöldum kólnar í heiðhvolf- inu í 10-40 km hæð á meðan hlýn- ar nær yfirborði. Þetta getur leitt til þess ástands einmitt sem við höfum orðið vitni að í vetur – en en mér finnst oft snemmt að kveða uppúr með að slíkt sé end- anleg skýring.“ Kanna þarf hvort afbrigðileg veðrátta í vetur tengist loftslagsbreytingum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Snjókarl Heimskautahringrásin hefur verið óvenjuöflug í vetur og er rót sviptinga í veðri undanfarið, segir Einar Sveinbjörnsson í viðtalinu. Óveður og öflug skot  Einar Sveinbjörnsson er fæddur 1965. Hann lauk námi í veðurfræði í Osló 1991 og starfaði lengi á Veðurstofu Ís- lands. Hefur sinnt ýmsum fé- lags- og sveitarstjórnarmálum og aðstoðarmaður tveggja um- hverfisráðherra.  Hefur í meira en áratug starfrækt Veðurvaktina sem sinnir veðurvöktum, spáþjón- ustu og fleiru slíku, m.a. á vefnum blika.is Hver er hann? Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Félagskerfi landbúnaðarins verður einfaldað og félagseiningum fækkað um helming, nái tillaga nefndar sem unnið hefur að heildarendurskoðun félagskerfis landbúnaðarins fram að ganga. Tillagan verður lögð fyrir búnaðarþing sem hefst í dag. Lagt er til að horft verði til systur- samtaka Bændasamtaka Íslands í Danmörku sem fyrirmyndar og að stofnuð verði Samtök landbúnaðar- ins. Mynduð verði tveggja stoða samtök. Bændasamtök Íslands verði önnur stoðin en hina myndi fyrirtæki sem tengjast landbúnaði. Hugmynd- in er að Landbúnaðarklasinn verði stofn í fyrirtækjastoðinni. Fulltrúar úr báðum stoðum myndi síðan stjórn Samtaka landbúnaðarins. Tilgangur tillagnanna er að auka skilvirkni og bæta nýtingu fjármuna. Einnig að ná fram sem breiðastri samstöðu meðal bænda um fé- lagskerfið og auka þannig slagkraft hagsmunagæslunnar. Þá er lagt er til að tekið verði upp auragjald af allri búvöruframleiðslu í landinu til að tryggja fjármögnun rannsókna- og þróunarstarfs í land- búnaði. Er vísað til þess að það fyr- irkomulag sé viðhaft víðast hvar um hinn vestræna heim. Fjögur svæðissambönd Nú eru búnaðarsambönd og sam- tök búgreina aðal grundvöllur Bændasamtaka Íslands. Eru þetta 27 sambönd en fjöldi félaga er í flest- um þannig að félögin eru alls 142 talsins. Lagt er til að búnaðarsamböndun- um verði fækkað þannig að hvert þeirra nái yfir stærra svæði en nú er. Þau verði fjögur í stað ellefu. Bænd- ur sem tilheyra búgreinum sem dreifast nokkuð jafn yfir landið, sauðfjárrækt, nautgriparækt, hrossarækt, ferðaþjónusta og skóg- rækt, myndi deildir innan búnaðar- sambandanna í stað þeirra undir- félaga sem nú eru starfandi. Bændur sem tilheyra fámennum búgreinum með tiltölulega afmark- aða landfræðilega dreifingu, svo sem svínabændur, kjúklingabændur, garðyrkjubændur og fleiri, eigi áfram aðild að BÍ í gegn um sérsam- bönd. Sama gildi um bændur sem til- heyra hagsmunahópum með afmark- aða hagsmuni, svo sem Beint frá býli og Ungir bændur. Þannig verða 14 sambönd með aðild að Bændasam- tökum Íslands í stað 27 nú. Starfsmenn færist til BÍ Búgreinafélögin eru með sjálf- stæða starfsemi og mörg þeirra með starfsmann. Lagt er til að starfsemin renni inn í Bændasamtök Íslands en starfsmennirnir vinni áfram í þágu viðkomandi búgreina. Búnaðarþing mun áfram fara með æðsta vald í málefnum bænda. Í ann- arri tillögu sem liggur fyrir búnaðar- þingi nú er lagt til að búnaðarþing verði haldið á hverju ári en nú er það haldið annað hvert ár á móti ársfundi samtakanna. Í stjórn BÍ eiga að sitja níu fé- lagsmenn en þeir eru nú fimm. Búnaðarþing mun fjalla um tillög- urnar. Verði þær samþykktar fara þær til aðildarfélaganna til af- greiðslu. Í kjölfarið verður haldið aukabúnaðarþing haust til að breyta samþykktum samtakanna. Nýtt fyr- irkomulag tekur ekki gildi fyrr en þá. Einingum fækk- að um helming  Félagskerfi landbúnaðarins breytt Morgunblaðið/Sigurður Bogi Í fjósi Félagskerfið endurskoðað. Stöndum þétt saman er yfir- skrift búnaðarþings sem haldið verður í Bændahöllinni í dag og á morgun. Þingið verður sett við athöfn í Súlnasal Hótel Sögu og hefst klukkan 12 í dag. Land- búnaðarverðlaun verða afhent og Kristján Þór Júlíusson land- búnaðarráðherra og Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, formað- ur BÍ, ávarpa samkomuna. Stöndum þétt saman BÚNAÐARÞING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.