Morgunblaðið - 02.03.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020
UMHVERFISVÆNI
RUSLAPOKINN
Umhverfisvæna ruslapokann má
nálgast í öllum helstu verslunum
Hugsum áður en við hendum!
Umhverfisvæni ruslapokinn er úr maíssterkju
sem brotnar niður á nokkrum vikum án þess
að valda skaða í náttúrunni.
Umhverfisvæni ruslapokinn er með handföngum
og passar vel í ruslatunnur á heimilum eða
sem burðarpoki í verslunum.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfis-
stofnunar og forsætisráðuneytisins
og fulltrúi Bláskógabyggðar unnið að
gerð stjórnunar- og verndaráætlunar
fyrir náttúruvættið Jörund. Náttúru-
vætti eru friðlýstar náttúrumyndanir
samkvæmt íslenskum lögum.
Jörundur er hraunhellir í Lamba-
hrauni við Hlöðufell og þykir ein-
stakur á heimsvísu.
Hann var friðlýstur sem náttúru-
vætti árið 1985 af Ragnhildi Helga-
dóttur þáverandi menntamálaráð-
herra og
dropsteinar í hell-
inum voru frið-
lýstir 1974 af
Magnúsi Torfa
Ólafssyni. Stað-
setningu Jör-
undar er haldið
leyndri til að
vernda náttúru-
minjar sem þar er
að finna. Op
hellisins er hulið grjóti sem falið er
undir foksandi. Rétt innan við opið er
þrenging þar sem búið er að koma
fyrir læstu hliði. Hellirinn hefur
meira og minna verið lokaður síðan
1984. Síðast var farið inn í hann
kringum 2010, þegar lásar á lok-
uninni voru endurnýjaðir. Óheimilt er
að fara í hellinn án sérstaks leyfis
Umhverfisstofnunar, sem getur gert
ráðstafanir til að koma í veg fyrir um-
ferð í leyfisleysi.
Stjórnunar- og verndaráætlun fyr-
ir Jörund er ætlað að vera stefnumót-
andi skjal, unnið í samvinnu við rétt-
hafa lands og sveitarfélag og er
hugsað sem stjórntæki til að móta
framtíðarsýn svæðisins.
Í drögum að áætluninni kemur
fram að Jörundur er í Lambahrauni
sem myndaðist í dyngjugosi fyrir um
4.100 árum. Gígur dyngjunnar er í
miðju hraunsins og nefnist Eldborgir.
Þrátt fyrir að góð skilyrði fyrir hella-
smíði hafi verið í þeim hraunum sem
runnu úr Eldborgum hafi fáir hraun-
hellar fundist. Ætla megi að þeir
stærstu séu enn ófundnir en mikill
foksandur hefti hellakönnun.
Jörundur fannst sumarið 1980 í
upphafi hundadaga og þótti því við
hæfi að kenna hann við Jörgen Jörg-
ensen, Jörund hundadagakonung.
Hellismynnið lætur ekki mikið fyrir
sér fara og þurfti upphaflega að nota
sleggju og járnkarl til að komast nið-
ur í hellinn. Jörundur er um 225
metra langur í heildina.
Jörundur er metinn einstakur
hraunhellir á heimsvísu, bæði vegna
ótrúlegra litbrigða á veggjum og
þeirra hraunmyndana sem hann
geymir. Af þeim tæplega 800 hellum
sem hafa verið kannaðir hér á landi
kemst enginn nærri því sem finnst í
Jörundi hvað varðar litadýrð og
hraunmyndanir.
Björn Hróarsson jarðfræðingur
lýsir Jörundi á þennan hátt í bók
sinni Hraunhellar á Íslandi: „Lita-
dýrðin í hellinum er engu lík og erfitt
að lýsa henni í orðum … Hvergi ann-
ars staðar á Íslandi getur að líta ann-
að eins samspil lita nema þá helst í
sýningarsölum listasafna á hátíðis-
dögum. Á hellisveggjum ægir saman
öllum regnbogans litum þótt mest
beri á sterkum rauðum og gulum lit-
um … Litirnir stafa flestir af oxun
járnsins í hrauninu og hafa efnahvörf-
in gengið hraðast við sprungur og
aðrar glufur í veggjum hellisins.
Innstu hundrað metrar Jörundar eru
þaktir dropsteinsmyndunum.
Lengstu dropsteinarnir eru yfir
metri á hæð en þúsundir steina eru
yfir hálfur metri á hæð.“
Myndun dropsteina í hraunhellum
tekur ekki langan tíma, í mesta lagi
nokkrar vikur eða mánuði, þar sem
kólnun hellisins kemur fljótt í veg fyr-
ir frekari myndun þeirra. Drop-
steinar í Jörundi eru því allir taldir
hafa myndast á fyrstu þremur mán-
uðunum eftir að hraunstreymi um
hellinn lauk og kólnun hans hófst.
Þessi myndun dropsteina og
hraunstráa gerist aðeins einu sinni á
æviskeiði hraunhella og því séu allar
skemmdir með öllu óafturkræfar.
Hraunhellar eru meðal viðkvæm-
ustu náttúruminja Íslands og lítið
megi út af bera til að varanlegar
skemmdir verði. Með aukinni ásókn
ferðafólks í íslenska náttúru séu hell-
ar einna helst taldir í hættu þar sem
þeir eru afar viðkvæmir fyrir ágangi.
Hellar haldist oftast óbreyttir í ár-
þúsundir eða þar til ferðafólk tekur
að leggja leið sína í þá. Dropsteinar
og aðrar hraunmyndanir hafi verið
brotnar niður og fjarlægðar í mörg-
um hellum landsins.
Almenningur getur kynnt sér
verndaráætlunina á vefnum
www.ust.is. Frestur til að skila
athugasemdum og ábendingum fyrir
Jörund er til 19. mars 2020.
Leynihellir fær aukna vernd
Gerð hefur verið verndaráætlun fyrir náttúruvættið Jörund Hraunhellir í Lambahrauni við
Hlöðufell er einstakur á heimsvísu Þar má finna dropasteina og alla regnbogans liti
Hellirinn Jörundur „Hvergi annars staðar á Íslandi getur að líta annað eins samspil lita nema þá helst í sýningarsölum listasafna á hátíðisdögum.“
Jörundur hunda-
dagakonungur
Umsóknum íslenskra aðila um skrán-
ingu hugverka hér á landi fækkaði
nokkuð á seinasta ári miðað við árið á
undan skv. nýrri tölfræði Hugverka-
stofunnar. Fram kemur á vefsíðu
Hugverkastofunnar að vörumerk-
jaumsóknum íslenskra aðila fækkaði
um 26% milli ára. Á sama tíma fjölg-
aði hins vegar vörumerkjaumsóknum
erlendra aðila um 2%.
„Þegar litið er til vörumerkja þá
var töluverð fækkun umsókna frá ís-
lenskum aðilum á árinu 2019. 639
vörumerkjaumsóknir bárust Hug-
verkastofunni sem er 26% fækkun
miðað við árið 2018, en hafa verður í
huga að árið 2018 var algjört metár
hvað varðar fjölda vörumerkja-
umsókna. Erfitt er að meta ástæður
fyrir fækkuninni, en vörumerkja-
umsóknir gefa oft vísbendingar um
sveiflur og umsvif í viðskiptalífinu.
Þessar tölur gætu því verið merki um
að íslensk fyrirtæki hafi haldið að sér
höndum í fjárfestingum og nýsköpun
á árinu 2019,“ segir í frétt á vef stofn-
unarinnar.
Þar kemur einnig fram að á sein-
asta ári bárust Hugverkastofunni
samtals 3.405 vörumerkjaumsóknir
frá erlendum aðilum. Þær voru 3.337
á árinu 2018 og fjölgaði því milli ára.
Spurður hvort starfsmenn Nýsköp-
unarmiðstöðvar hafi orðið varir við þá
þróun að hægt hafi á nýsköpun segir
Karl Friðriksson, forstöðumaður hjá
Nýsköpunarmiðstöð, svo vera.
Áhyggjur af þessari þróun
„Við höfum lengi vel haft áhyggjur
af þessari þróun og staðið fyrir um-
ræðu um þessi mál meðal opinberra
aðila og hagaðila,“ segir hann í svari
til blaðsins. „Við höfum einnig bent á
verkefni sem gætu örvað þennan þátt
nýsköpunar. Viðbrögð hafa verið fá-
leg. Við höfum því tekið af skarið eftir
okkar getu og settum á stofn sérstakt
átak undir nafninu Stjörnusprotar.
Hvað verður síðan um það og annað
veit nú enginn.“
Ef litið er á fjölda einkaleyfaum-
sókna sem lagðar voru inn í fyrra
kemur í ljós að þeim fækkaði einnig
milli ára eftir metár árið 2018. ,,Sam-
tals voru lagðar inn 62 einkaleyfaum-
sóknir árið 2019 samanborið við 66
umsóknir árið 2018. Umsóknum ís-
lenskra aðila fækkaði úr 57 umsókn-
um í 46 en umsóknum erlendra aðila
fjölgaði úr 9 í 16.“ Ennfremur má sjá
að evrópskum einkaleyfum sem stað-
fest eru hér á landi hefur fjölgað frá
því að Ísland gerðist aðili að Evr-
ópsku einkaleyfastofunni.
omfr@mbl.is
26% fækkun skrán-
ingar vörumerkja
Gæti verið merki um minni nýsköpun