Morgunblaðið - 02.03.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
Dr. Wolfgang Edel-
stein, sem lengi var
ráðgjafi mennta-
málaráðherra og stýrði
ýmsum umbótaverk-
efnum í skólakerfi
landsins, lést í Berlín á
laugardag 90 ára að
aldri. Wolfgang varð
íslenskur ríkisborgari
nítján ára gamall eftir
að hafa flúið með fjöl-
skyldu sinni frá Þýska-
landi nasismans 1938.
Eftir að hafa lokið
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1949 hélt Wolfgang
til háskólanáms í Frakklandi þar
sem hann lagði stund á málvísindi,
latínu og bókmenntir. Dokt-
orsritgerð sína skrifaði hann við há-
skólann í Heidelberg í Þýskalandi
þar sem hann hafði einbeitt sér að
miðaldasögu, latínu og uppeldis-
fræðum.
Hann var ráðinn til starfa við
Odenwald-skólann í Suður-
Þýskalandi árið 1954 sem kennari
en varð síðar námstjóri. Síðar starf-
aði hann við Max-Planck-rannsókn-
arstofnunina í uppeldis- og mennta-
málum frá stofnun hennar árið 1963
þar til hann lét af störfum árið
1997.
Wolfgang var þekktastur hér á
landi fyrir áhrif á þró-
un skólastarfs á 20.
öldinni og er talinn
vera í hópi þeirra sem
mest höfðu áhrif.
Hann var ráðgjafi
menntamálaráðherra
frá árinu 1966 til 1984
og svo aftur á árunum
1989 til 1991 um mót-
un skólastefnu. Stýrði
hann á þeim tíma
mörgum umbótaverk-
efnum meðal annars á
vegum skóla-
rannsóknadeildar
menntamálaráðuneyt-
isins sem var stofnuð að undirlagi
hans.
Wolfgang flúði til Íslands frá
Þýskalandi nasismans um miðja
síðustu öld.
Wolfgang var sæmdur heið-
ursdoktorsnafnbót frá félags-
vísindadeild Háskóla Íslands árið
1995 fyrir störf sín að skólamálum
og rannsóknum. Hann hlaut nafn-
bót heiðursprófessors við Freie-
háskólann í Berlín og við Potsdam-
háskólann. Árið 2009 hlaut hann
Hildegard Hamm-Brücher-
verðlaunin fyrir framlag sitt til að
efla lýðræðismenntun og árið 2012
var Wolfgang sæmdur Theodor
Heuss-verðlaununum fyrir störf sín
á þágu lýðræðisuppeldis.
Andlát
Dr. Wolfgang Edelstein
Mikið var um dýrðir í Laugardalshöll á laug-
ardagskvöldið þegar efnilegt tónlistarfólk
kom saman og freistaði þess að heilla þjóðina
og tryggja sér keppnisrétt á Eurovision í Rot-
terdam.
Daði og Gagnamagnið lentu í fyrsta sæti í
Söngvakeppninni með laginu Think About
Things, sem verður framlag Íslendinga í und-
ankeppni Eurovision sem fram fer í vor.
Í úrslitaeinvígi keppninnar komust Daði og
Gagnamagnið ásamt þungarokkshljómsveit-
inni Dimmu, sem flutti lagið Almyrkva og
hafði Daði betur í einvíginu. Tæknilegir örð-
ugleikar komu upp í öðrum flutningi Daða og
Gagnamagnsins og þurfti sveitin því að stíga
af sviði og flytja lagið að nýju skömmu seinna.
Í samtali við mbl.is kvaðst Daði vera til í
slaginn. Spurður hvernig tilfinning það væri
að vinna Söngvakeppnina sagði hann: „Þetta
er mjög grillað eiginlega bara. Maður er búinn
að vera svo mikið í þessu og svo er maður bara
allt í einu að fara bara í Eurovision. Það er
mjög skrýtið, en þetta verður bara klárlega
gaman.“
Erlendir veðbankar höfðu nokkru áður spáð
Daða og Gagnamagninu sigri í Söngvakeppn-
inni í gærkvöldi. Vefsíðan Eurovisionworld
samkeyrir stuðla frá öllum helstu veðbönkum
sem bjóða upp á veðmál um lokakeppni Euro-
vision. Á laugardag var Daða spáð 11.sæti
samkvæmt síðunni en í gær breyttist spáin.
Daða er nú spáð þriðja sæti. veronika@mbl.is
Rokk Almyrkvi með þungarokkshljómsveitinni Dimmu fór vel í landann og hafnaði í öðru sæti. Félagar Daði Freyr og Stefán Jakobsson fluttu báðir úrslitaframlög Söngvakeppninnar.
Morgunblaðið/Eggert
Sigurvegarar Daði og Gagnamagnið tóku við verðlaunum frá forverum sínum í Hatara.
Kveðja Stefán Jakobsson kastaði hlýrri kveðju á Ivu Marín. Gengið inn Nína flutti lagið Echo í Laugardalshöll. Hatarar Meðlimir hafa engu gleymt og var þeim vel fagnað.
Daði og Gagnamagnið
báru sigur úr býtum